Morgunblaðið - 03.01.2009, Blaðsíða 18
18 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2009
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
„ÞETTA er bara mjög sorglegt,“ segir Hilmar
Hilmarsson, skólastjóri Réttarholtsskóla, en þeg-
ar hann var kallaður að skólanum á nýársdags-
morgun höfðu 96 rúður verið brotnar. Fimmtán
ára nemandi gekk berserksgang um nóttina, í
annarlegu ástandi og notaði hamar til að brjóta
rúður í skólanum. Hann var handtekinn á vett-
vangi undir morgun og var þá alblóðugur á hönd-
um. Hann er talinn hafa verið einn að verki.
Hilmar segir málefni piltsins verða skoðuð eftir
helgi og þá með barnaverndaryfirvöldum og í
framhaldi verði ákveðið hvernig brugðist verði
við.
Skólahald á áætlun
Hilmar segir ekki búið að glerja en mælt var út
fyrir nýjum rúðum strax á nýársdag. Einhvern
tíma tekur þó að fá allt glerið. Skólahald hefst
samt samkvæmt áætlun næstkomandi þriðjudag.
Spurður út í kostnaðinn sem hlýst af athæfi pilts-
ins segist Hilmar ekki hafa tekið hann saman.
Ljóst sé þó að hann sé mikill.
Hjá fyrirtækinu Gleri og lásum fengust þær
upplýsingar að nóg hefði verið gera eftir nýárs-
nótt. Margar rúður hefðu verið brotnar víða á höf-
uðborgarsvæðinu.
Braut hátt í hundrað rúður
Fimmtán ára nemandi í Réttarholtsskóla gekk berserksgang við skólann á nýársnótt
Pilturinn var handtekinn á vettvangi, alblóðugur á höndum og með hamar í hendi
Í HNOTSKURN
»36 minni háttarskemmdarverk voru til-
kynnt lögreglunni á höf-
uðborgarsvæðinu á gaml-
árskvöld og nýársnótt.
Aðallega var um að ræða
rúðubrot.
»Alls voru 210 verkefnibókuð frá kl. 19 á gaml-
ársdag til kl. 8 á nýárs-
morgun. Það eru töluvert
fleiri mál en í fyrra, en þau
voru þá um 170.
»Meðal annars var inn-brotsþjófur gripinn
glóðvolgur, grímuklæddur
með hníf og hamar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eyðilegging Pilturinn beitti hamri sínum á hverja þá rúðu sem hann náði til og skarst við lætin.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
NÝTT opinbert hlutafélag um rekst-
ur Keflavíkurflugvallar og Leifs-
stöðvar tók til starfa um áramót. Það
tók yfir flugvernd af embætti lög-
reglustjórans á Suðurnesjum, auk
Flugmálastjórnar á Keflavíkurflug-
velli og Flugstöðvar Leifs Eiríksson-
ar. Kristján L. Möller samgönguráð-
herra ýtti nýja félaginu úr vör við
athöfn í flugstöðinni í gær.
„Nú vinna allir undir sama hatti.
Með því aukum við skilvirkni og hag-
kvæmni,“ segir Björn Óli Hauksson,
forstjóri fyrirtækisins.
Breytingin er gerð á erfiðleikatím-
um í ferðaþjónustu. Farþegum sem
um völlinn fara hefur fækkað. Björn
Óli segir að aðstæður hafi vissulega
breyst vegna gengismála en ríkið
hafi verið að styrkja fjárhagslegan
grundvöll fyrirtækisins. Í framtíð-
inni eigi flugvöllurinn að geta verið
fjárhagslega sjálfbær. Segir hann
góðar líkur á að það takist, ef farþeg-
um fækki ekki meira en orðið er.
Björn Óli segir það einnig hafa
kosti að taka við starfi við þessar að-
stæður. „Í góðæri hugsa menn
stærra og eyða meiri peningum en
þeir annars myndu gera. Við verðum
að sjá til þess að hér sé flugvöllur
með sem bestri þjónustu. Ef við get-
um gert það núna verður það hægt
um alla framtíð,“ segir hann.
Fyrirtæki úr þremur stofnunum
Ýtt úr vör Jón Gunnarsson, Kristján L. Möller og Björn Óli Hauksson.
Ljósmynd/Oddgeir Karlsson
„NEI, ekki svo mjög. Við rákum flugvöllinn í Kósóvó sem
íslenskan flugvöll,“ segir Björn Óli Hauksson, forstjóri
hins nýja félags, Keflavíkurflugvallar ohf. , aðspurður
hvort ekki verði viðbrigði að koma til Keflavíkur eftir að
hafa verið í Kósóvó.
Björn Óli er rekstrarverkfræðingur og hefur unnið í
Kósóvó frá árinu 2000. Fyrst var hann við uppbyggingu
eftir stríðið á vegum utanríkisráðuneytisins. Tveimur ár-
um síðar fór hann til starfa hjá Sameinuðu þjóðunum, var
ráðinn yfirmaður starfsliðs hjá yfirmanni efnahagsmála í
Kósóvó. Þar sá hann um öll flugmál héraðsins, þegar þau voru gerð borg-
araleg. Íslendingar komu að uppbyggingunni og í lok árs 2004, eftir að Björn
Óli lauk störfum fyrir SÞ, og varð hann verkefnisstjóri hjá Flugmálastjórn
Íslands í Kósóvó. Hafði hann m.a. það hlutverk að stýra flugvellinum í höf-
uðborginni Pristina. Hann kom beint frá Kósóvó í nýja starfið á Keflavík-
urflugvelli. „Ég var að ljúka starfi mínu þarna og var til í nýja hluti,“ segir
Björn. Hann byrjaði að undirbúa sameiningu Flugmálastjórnar og flug-
stöðvar í október og telur sig hafa náð að setja mark á undirbúninginn.
„Vissulega eru ýmsir hlutir frábrugðnir. Við urðum að fara afskaplega
spart með peninga, þeir voru engir til í byrjun. En okkur tókst að koma upp
flugvelli og þar er nú glæsilegur flugvöllur sem rekinn er með góðum hagn-
aði. Ég held að við getum gert það sama hér,“ segir Björn Óli.
Kemur beint frá Kósóvó
Björn Óli Hauksson
„JÚ, ÆTLI jólaruslið sé ekki að berast þarna
upp eftir núna,“ segir Björn H. Halldórsson, for-
stjóri Sorpu. Þrjár jarðýtur unnu að því að
dreifa úr og þjappa rusli þegar ljósmyndara
Morgunblaðsins bar að garði. Björn segir jóla-
ruslið vera eitthvað minna en í fyrra en það sé
óverulegur munur þegar horft sé til heimilanna.
„Bráðabirgðaniðurstöðurnar eru þær að um 9
prósentum minna hafi verið af rusli um þessi jól
en þau síðustu. Þetta verður vonandi að góðu
eldsneyti þegar fram í sækir. Ég geri að minnsta
kosti ráð fyrir því.“
Morgunblaðið/RAX
Jarðýtur urða jólaruslið í Álfsnesi
SKIPULAGSSTOFNUN hefur fall-
ist á matsáætlun Landsnets fyrir
Blöndulínu 3, frá Blöndustöð um
Skagafjörð til Akureyrar. Stofn-
unin gerir hins vegar margvíslegar
athugasemdir sem hún fer fram á
að teknar verði inn í frummats-
skýrslu.
Í athugasemdum sínum tekur
Skipulagsstofnun mið af fjölmörg-
um athugasemdum sem borist hafa
við matsáætlun, ekki síst vegna
legu háspennulínunnar í Skagafirði
og landi Akureyrar.
Meðal athugasemda Skipulags-
stofnunar er að Landsnet geri grein
fyrir og rökstyðji nauðsyn þess að
leggja línu með 220 kílóvolta
spennu þegar ekki á að nýta hana
nema að hluta í upphafi. Skipulags-
stofnun tekur undir athugasemdir
um að fjalla þurfi um þann kost að
fyrirhuguð lína verði lögð samhliða
núverandi línu alla leiðina til Ak-
ureyrar og hvort það sé valkostur
að auka flutningsgetu núverandi
línu í stað þess að byggja nýja.
helgi@mbl.is
Rökstyðji
nauðsyn
nýrrar línu
Skilyrði fyrir mats-
áætlun Blöndulínu