Morgunblaðið - 03.01.2009, Blaðsíða 44
44 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2009
Sudoku
Frumstig
3 6
2 1 6 8
9 2 4 3 1
7 4 3
1 6 9 7 4 5
1 8 7
8 9 5 6 1
4 1 3 5
9 2
8 9 5 6 4
1 7 4
2 6
8 4 3
3 1 7 8
7 4 6
8 1
4 9 5
7 9 1 2 4
5 1 9 3
8 7 4
2 3 4 5
4 1 8
7 5
4 2 6
6 7 4 1
5 8 3
2 4 6 9
1 3 4 7 8 9 5 6 2
5 6 7 1 3 2 8 9 4
2 9 8 4 5 6 3 1 7
4 8 5 9 7 3 6 2 1
7 2 3 8 6 1 4 5 9
9 1 6 5 2 4 7 8 3
6 7 1 2 4 8 9 3 5
8 5 2 3 9 7 1 4 6
3 4 9 6 1 5 2 7 8
1 3 6 4 2 8 9 5 7
2 8 7 3 5 9 4 1 6
9 4 5 7 6 1 8 3 2
8 7 3 1 4 2 5 6 9
4 6 2 9 7 5 1 8 3
5 9 1 8 3 6 7 2 4
6 2 8 5 9 4 3 7 1
7 1 9 2 8 3 6 4 5
3 5 4 6 1 7 2 9 8
3 6 7 9 5 1 2 4 8
9 5 1 8 2 4 3 7 6
4 2 8 3 7 6 9 1 5
2 8 3 7 4 5 6 9 1
6 7 9 2 1 8 5 3 4
5 1 4 6 3 9 8 2 7
8 4 2 5 9 7 1 6 3
1 3 6 4 8 2 7 5 9
7 9 5 1 6 3 4 8 2
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla út
í reitina þannig að í hverj-
um 3x3-reit birtist tölurnar
1-9. Það verður að gerast
þannig að hver níu reita lína
bæði lárétt og lóðrétt birti
einnig tölurnar 1-9 og aldrei
má tvítaka neina tölu í röð-
inni.
Í dag er laugardagur 3. janúar, 3. dag-
ur ársins 2009
Orð dagsins: Ef þér fyrirgefið mönnum
misgjörðir þeirra, þá mun og faðir yð-
ar himneskur fyrirgefa yður.
(Matt. 6, 14.)
Þegar kreppuárið mikla 2009rann upp fyrir Víkverja var
hann nývaknaður, eldhress og út-
hvíldur, eftir hófleg veisluhöld
gamlárskvölds, vel fyrir hádegi 2.
janúar. Víkverji var hress og vildi
gera eitthvað uppbyggilegt, fara út
að hlaupa jafnvel. Þegar ásjóna
hans blasti við í baðherbergisspegl-
inum, sver um miðbikið, varð hon-
um hið fornkveðna ljóst. Það skiptir
ekki máli hvað þú borðar á milli jóla
og nýárs, heldur hvað þú borðar á
milli nýárs og jóla. Þetta ætlar Vík-
verji að hafa í huga og stefnir að
sjálfsögðu á Reykjavíkurmaraþonið
í ágúst. Ekkert minna.
x x x
Reyndar hafði það sem Víkverjilagði sér til munns á milli jóla
og nýárs ekki hjálpað mikið til held-
ur. Hangikjöt, rjúpur, hamborgar-
hryggur, kalkúnn, lambakjöt og
fleira, allt með tilheyrandi meðlæti
og drykkjum. Ef tekið er nógu
harkalega á því, sem er sjálfgefið,
getur þessi hátíðarvika eflaust jafn-
ast á við nokkra mánuði úr árinu
hvað ofneyslu hitaeininga snertir.
Eftirréttirnir settu líka sitt mark á
vömbina. Ostakökur, rísala mand,
súkkulaðikökur, ístertur og ótal-
margt fleira.
x x x
En það er samt gott. Hvað hefurVíkverji svo sem við það að
gera að vera í óaðfinnanlegu formi
allan ársins hring? Er það ekki nóg
að hann sé guðdómlegur á að líta
frá því í apríl og fram í september,
þegar nekt hans er með mestri tíðni
opinberuð á ylströndum og sund-
laugarbökkum? Jú líklega er það
best að kroppurinn gangi í bylgjum
eins og efnahagurinn. Eitthvað þarf
stundum undan að láta í líkams-
ræktinni, svo hægt sé að leggjast
með góðri samvisku með kökudisk á
maganum í sófann og láta fara vel
um sig. Að sama skapi er nauðsyn-
legt að taka við innblæstrinum frá
baðvoginni í janúar og hugsa stórt.
Í því felst líka ómældur sparnaður
að láta tímabundið af ofáti á hverju
ári. Skafl beygjattu skalli, þótt skúr
á þig falli. Ást hafðir þú meyja, eitt
sinn skal hver ...teygja vel á kálf-
unum eftir útihlaup. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 vitleysa, 4
stafns, 7 fæð, 8 gorta, 9
beita, 11 þekking, 13
velgja, 14 ólán, 15 hand-
fang, 17 þungi, 20 á húsi,
22 svarar, 23 kjarr, 24
ákveð, 25 veslast upp.
Lóðrétt | 1 aula, 2 kað-
all, 3 bára, 4 þarmur, 5
bráðlyndur maður, 6
kona Njarðar, 10 rækta,
12 hóp, 13 sjór, 15
skjóta, 16 þefar, 18 hitt,
19 þvaðra, 20 óskað
ákaft, 21 öngul.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 sjálfsagt, 8 áttan, 9 angur, 10 afl, 11 arður, 13
afana, 15 hrúts, 18 kólga, 21 kol, 22 galli, 23 undum, 24
ágiskunar.
Lóðrétt: 2 játað, 3 lúnar, 4 svala, 5 gegna, 6 rápa, 7
þróa, 12 urt, 14 fró, 15 hagl, 16 útlæg, 17 skins, 18 klufu,
19 lydda, 20 aumt.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. Rf3 c5 2. c4 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
g6 5. e4 Rf6 6. Rc3 d6 7. Rc2 Bg7 8.
Be2 Rd7 9. Bd2 a5 10. O-O Rc5 11. Dc1
h5 12. Hd1 Bd7 13. Re1 Rd4 14. Bf1
O-O 15. Bg5 Bc6 16. Rd5 He8 17. f3 b5
18. Be3 Rce6 19. Dd2 bxc4 20. Bxc4
Hb8 21. Kh1 Rb5 22. Hac1 Rc5 23. b4
axb4 24. Rxb4 Db6 25. Red3 Ra3 26.
Bb3 Ba8 27. Rxc5 dxc5 28. Bxc5 Da5
29. Df4 e6 30. Hd7 Hf8
Staðan kom upp í ofurskákmóti sem
lauk fyrir skömmu í Nanjing í Kína.
Armeninn Levon Aronjan (2757) hafði
hvítt gegn Vassily Ivansjúk (2786) frá
Úkraínu. 31. Hxf7! fljótvirkasta leiðin
til sigurs. Framhaldið varð: 31…Hxf7
32. Dxb8+ Kh7 33. Bxe6 og svartur
gafst upp.
Hvítur á leik
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Leikhús fáránleikans.
Norður
♠9752
♥ÁG4
♦ÁD8
♣ÁKD
Vestur Austur
♠ÁD4 ♠--
♥KD83 ♥1072
♦KG7542 ♦1096
♣-- ♣G976542
Suður
♠KG10863
♥965
♦3
♣1083
Suður spilar 4♠.
„Takk fyrir talninguna í fyrsta slag,“
sagði vestur, fullur meinfýsni. Hann
kom út með ♥K, sagnhafi drap og aust-
ur lét TÍUNA til að sýna þrílit. Varla
stórsynd með gosann í borði, eða hvað?
Sjáum til. Sagnhafi fór í trompið og
vestur sá í hillingum fjórða varnarslag-
inn á ♠4, spilaði næst LITLU hjarta
undan drottningunni og hugðist þannig
byggja upp innkomu hjá makker sín-
um. En hjartanían var í suður og sagn-
hafi vann sitt spil fyrirhafnarlaust.
„Þessar þakkir þínar eru óþarfar,“
sagði sagnhafi og tók upp hanskann
fyrir austur. „Ég hefði bjargað mér
með því að spila ás og drottningu í tígli
og hent hjarta heima. Austur hefði
aldrei komist inn til að spila laufi.“
„Og svo gastu dúkkað fyrsta slag-
inn,“ sagði norður, sem líka vildi leggja
eitthvað vitrænt til málanna.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Allt það erfiði sem þú hefur lagt á
þig mun skila árangri á árinu. Verkefni
hagstæð starfsframa þínum fara í gang.
Reyndu að koma sem mestu í verk.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Finnst þér þú vera að bíða eftir
réttu manneskjunni til að halda áfram
upp á við? Þú getur hætt að bíða. Gefðu
þér nægan tíma til að undirbúa hlutina.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú þarf ekki að gera neitt áber-
andi eða meiriháttar til að falla í kramið.
Fólk er yfirleitt í góðu skapi og það gerir
allar samræður skemmtilegar.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Maki þinn vill gera eitthvað á
heimilinu sem þú ert ekki sáttur við.
Hættu að telja árin, líttu í kring um þig og
njóttu þess sem lífið hefur upp á að bjóða.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Til þess að sambönd þín gangi upp
þarft þú að sýna jafn mikla fórnfýsi og
aðrir sýna þér. Ekki reyna að berja hlut-
ina í gegn.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þér hættir til að vera of ráðríkur og
þú þarft að gæta þess að gera ekki meiri
kröfur til annarra en til sjálfs þín.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þér verður að öllum líkindum falin
aukin ábyrgð sem verður til þess að þú
verður í sviðsljósinu á næstu vikum.
Tækifærin eru mótuð, skorin út, eða
fundin upp.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Finnist þér að gengið hafi
verið á rétt þinn skaltu sýna festu og
rétta þinn hlut. Rólegt og yfirvegað yf-
irbragð fleytir þér í gegnum tvísýnar að-
stæður.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þér vinnst allt auðvelt svo þú
átt ekki að eiga í neinum erfiðleikum með
að fá þitt fram. Það er ekki auðvelt að
vera hreinskilinn við vini.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú ert í skapi til þess að deila
við einhvern í starfi. Taktu eitt verkefni
fyrir í einu og gefðu þér tíma til að anda á
milli. Vinnan verður léttari ef fleiri leggja
hönd á plóginn.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Reyndu að vera opinn gagnvart
þeim nýjungum, sem þér eru kynntar.
Hreyfing er holl og ekki skiptir mat-
aræðið minna máli.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Fiskurinn verður að halda sínu
striki. Taktu þér tíma til þess að kanna
heilsuna og kippa henni í lag. Nú er rétti
tíminn til að hefjast handa við heilsubót.
Stjörnuspá
3. janúar 1597
Heklugos hófst „með stórum
eldgangi og jarðskjálftum svo
þar sáust í einu loga átján eld-
ar í fjallinu,“ eins og segir í
Skarðsárannál. Í tólf daga
heyrðust „dunur með miklum
brestum, álíkt sem fallbyssna-
hljóð“.
3. janúar 1841
Þennan dag mældist hæsti
loftþrýstingur í Reykjavík,
1058,5 millibör. Sama dag 92
árum síðar, árið 1933, mældist
lægsti loftþrýstingur í janúar,
923,9 millibör. Munurinn er
134,6 millibör.
3. janúar 1948
Þýskur togari bjargaði fjórum
skipverjum sem hrakist höfðu
í nær átta sólarhringa á hafi
úti á vélbátnum Björgu eftir
að vél bátsins bilaði.
3. janúar 1969
Skinnaverksmiðjan Iðunn á
Akureyri stórskemmdist af
eldi. Morgunblaðið sagði tjón-
ið gífurlegt og að um hundrað
manns myndu missa atvinnu
sína.
3. janúar 1990
Íslandsbanki hf. hóf starfsemi.
Hann tók yfir viðskipti Al-
þýðubankans, Iðnaðarbank-
ans, Útvegsbankans og Versl-
unarbankans. Síðar breyttist
nafn bankans í Glitni.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
AFMÆLISDAGUR Kristínar Á. Ólafsdóttur,
kennara og söngkonu, hefst í Reykholtskirkju þar
sem hún fylgir ásamt Reykholtskirkjukór gömlum
vini, Tryggva Tausen, til grafar. „Að því loknu
held ég til Reykjavíkur þar sem ég verð í mínum
innsta kærleikhring,“ segir Kristín og vísar þar til
sinnar nánustu fjölskyldu. Dóttir hennar sem býr í
London, kemur t.a.m. heim ásamt kærasta sínum
til að vera í afmælinu. „Og það er náttúrulega með
betri afmælisgjöfum að fá börnin heim.“
Veisluhöldin ættu heldur ekki að vera af verri
endanum. „Ég á matreiðslusnilling að nafni Heiðu
Björg Hilmisdóttur fyrir tengdadóttir og ég veit að hún á eftir að
galdra fram ýmislegt til að gleðja bragðlaukana.“
Afmælin úr barnæsku eru Kristínu eftirminnileg. „Þau voru
óhemju skemmtileg. Það voru alltaf leikin frumsamin leikrit sem urðu
til á staðnum. Síðan á ég skemmtilega minningu frá fimmtugsafmæli
mínu, en þá sló ég upp stórveislu sem í mættu á þriðja hundrað
manns. Þar gat ég hoft yfir vinahóp og samstarfsfólk í gegnum eig-
inlega allt mitt líf og það fannst mér vera óskaplega skemmtilegt.“
annaei@mbl.is
Kristín Á. Ólafsdóttir 60 ára
Í innsta kærleikshring
Nýirborgarar
Akranes Viktor Logi
fæddist 24. ágúst kl. 7.46.
Hann vó 2.825 g og var 49
sm langur. Foreldrar hans
eru Lilja Ósk Kristbjarn-
ardóttir og Sigurður Jón
Björgvinsson.
Húsavík Eydís Lára
fæddist 2. september á
Akureyri, kl. 13.45. Hún
vó 2.575 g og var 49 sm
löng. Foreldrar hennar
eru Hjördís Þórey og
Samuel James Munro.
Danmörk Markus Máni
Leó fæddist 27. júlí kl.
6.05. Hann vó 3.650 g og
var 52 cm langur. For-
eldrar hans eru Rakel
Guðbjörg Magnúsdóttir
og Davíð Egilsson.