Morgunblaðið - 03.01.2009, Page 16

Morgunblaðið - 03.01.2009, Page 16
16 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2009 Vikuferð fyrir tvo til Tenerife á tímabilinu 3. febrúar til 28. apríl. Gisting og hálft fæði á Hotel Costa Adeje Gran, sem er stórglæsilegt 5 stjörnu lúxushótel og eitt af fáum hótelum sem komist hefur í hina frægu bók Leading Hotels of the World. Hótelið er eitt af glæsilegustu hótelum Evrópu og stendur svo sannarlega undir væntingum. Janúarvinningur: Vikuferð fyrir tvo til Tenerife að verðmæti 281.015 kr. Innifalið í verði ferðar: • Flug og flugvallaskattar til Tenerife og aftur til Keflavíkur • Gisting í tvíbýli og hálft fæði á Hotel Costa Adeje Gran • Akstur til og frá flugvelli erlendis Ekki innifalið: • Skoðunarferðir Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift eða í síma 569 1122 mbl.is/moggaklubburinn 1.vinningurregið 2. anúar Með Moggaklúbbnum til Tenerife á lúxushóteli „FÆÐINGIN var eiginlega akkúrat á miðnætti, ég var í kollhríðinni þeg- ar flugeldasýningin stóð sem hæst,“ segir Margrét Rósa Jochumsdóttir sem ásamt Baldri Steini Helgasyni eignaðist fyrsta barn ársins 2009. Drengurinn, sem hlotið hefur nafnið Jochum Helgi Baldursson, kom í heiminn aðeins fjórum mínútum eft- ir miðnætti. Margrét var hinsvegar sett á jóla- dag og var því komin tæpa viku fram yfir. „Mig grunaði að þetta væri að fara af stað og það voru endalausar bollaleggingar yfir kvöldmatnum um hvort hann kæmi fimm mínútum fyrir miðnætti eða hvenær þetta yrði.“ Um níuleytið fór vatnið og um klukkustund síðar hafði Margrét komið sér fyrir ofan í uppblásnum, heitum potti þar sem heimaljósmóðirin Áslaug Hauks- dóttir aðstoðaði hana við að koma Jochum í heiminn. Skaupið og flug- eldarnir fóru því að mestu leyti framhjá hinum nýbökuðu foreldrum en Margrét segist ekki sakna þess. „Ég tók varla eftir þeim, það var bara eitt sem komst að og það var að koma honum í heiminn.“ Fimm ára gömul systir Jochums átti hinsvegar erfiðara með að slíta sig með öllu frá flugeldunum og hljóp út í glugga til að horfa á þá milli þess sem hún fylgdist með fæðingunni. Mikill um- gangur hefur verið á heimilinu fyrsta sólarhringinn í lífi Jochums en Margrét segir hann spakan yfir athyglinni. Hún segist ekki hafa stefnt að ára- mótafæðingu. „Nei, hann var bara velkominn hvenær sem er. Hann valdi sér þessa tímasetningu alveg sjálfur, hann ætlaði sér greinilega að fá konunglegar móttökur í þenn- an heim.“ una@mbl.is Ætlaði sér að fá konunglegar viðtökur  Fyrsti Íslendingur ársins 2009 fæddist aðeins fjórum mínútum eftir miðnætti  Fimm ára gömul stóra systir fylgdist með fæðingunni og flugeldum til skiptis Fyrstur Jochum Helgi Baldursson kom í heiminn undir dúndrandi flug- eldasýningu um landið allt. Hann var rúmar 16 merkur og 53 cm á lengd. FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sæmdi ellefu Íslendinga heiðursmerki hinnar ís- lensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöð- um á nýársdag. Á myndinni má sjá orðuhafa í eft- irfarandi röð: Ástbjörg Stefanía Gunnarsdóttir, íþróttakennari, fyrir frumkvæði í almenn- ingsíþróttum og lýðheilsu. Grímur Karlsson, fyrr- verandi skipstjóri, fyrir smíði báta- og skipalíkana. Jón Arnþórsson, forstöðumaður Iðnaðarsafnsins, fyrir framlag til varðveislu íslenskrar verkkunnáttu og safnamenningar. Hildur Sæmundsdóttir, ljós- móðir, fyrir framlag til heilbrigðismála og forvarna. Elín Ósk Óskarsdóttir, óperusöngkona, fyrir fram- lag til íslenskrar tónlistar og menningarlífs. Grétar Þorsteinsson, fyrrverandi forseti ASÍ, fyrir störf í þágu íslensks verkafólks. Jón Eiríksson, fræðimað- ur og fyrrverandi oddviti, fyrir félagsstörf og fram- lag til menningarsögu. Steinunn Þórarinsdóttir, myndlistarmaður, fyrir framlag til íslenskrar og al- þjóðlegrar myndlistar. María Jónsdóttir, kvæða- kona og fyrrverandi bóndi, fyrir framlag til varð- veislu þjóðlegrar kvæðamenningar. Kjartan Ragnarsson, forstöðumaður Landnámsseturs Ís- lands, fyrir störf í þágu leiklistar og nýsköpun í miðlun menningararfs. Sigurður Guðmundsson, forseti heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands, fyr- ir framlag til heilbrigðismála. Ellefu hlutu riddarakross fálkaorðunnar Morgunblaðið/Árni Sæberg ENN eru 3-4 hross veik úr stóð- inu sem sýktist af salmonellu undir Esjurótum í lok desember. Engin hross hafa drepist síðan aðfaranótt 29. des- ember, þegar af- lífa þurfti eitt til viðbótar. Alls hafa því 23 hross drepist í stóðinu sem upphaflega var 40 hross. Gunnar Örn Guðmundsson, héraðs- dýralæknir Gullbringu- og Kjós- arsýslu, segir enn tvísýnt um 3-4 hross sem enn séu illa haldin, en hin séu á batavegi og hafi ekki hrakað aft- ur. Stóðið var flutt á hús í Mosfellsbæ 22. desember þar sem því hefur verið haldið einangruðu frá öðrum dýrum síðan. Að sögn Gunnars Arnar stendur til að flytja þau hross sem eftir eru eitt- hvert annað við fyrsta tækifæri, til að lágmarka smithættu. Síðan salmon- ellusýkingin kom upp hefur hún hald- ist innan stóðsins og ekki smitast út fyrir það, hvorki til dýra né manna, en Gunnar segist ekki geta fullyrt hve- nær smithættan líði hjá. „Það er svo- lítið erfitt að gera sér grein fyrir því, við munum bara fylgjast með því eins og þarft er.“ Sýni voru tekin úr tjörnum við Esju fyrir áramót og er niðurstöðu beðið. Sennilegt þykir að smitið hafi borist í vatnið með fugladriti. una@mbl.is Enn tví- sýnt um 3-4 hross Hross Mikið tjón varð af sýkingunni. Salmonellusýkingin hefur ekki breiðst út SÉRA Óskar Hafsteinn Óskarsson, prestur í Akureyrarkirkju, mun þjóna Selfosskirkju á næstunni, en sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir gegndi því starfi til áramóta. Segir Ey- steinn Ó. Jónasson, formaður sókn- arnefndar kirkjunnar, sr. Óskar eiga að geta sinnt starfinu fram á vor, en hann er væntanlegur aftur til starfa á Akureyri í júlí. „Hann var í leyfi í Kanada, en er snúinn aftur heim og gaf kost á sér í afleysingu,“ segir Eysteinn og kveðst vona að hann þjóni prestkall- inu a.m.k. fram yfir yfir fermingar. Ekki er vitað hvenær endanleg niðurstaða fæst í máli séra Gunnars Björnssonar sóknarprests, en rík- issaksóknari áfrýjaði í desember sýknudómi Héraðsdóms Suðurlands yfir sr. Gunnari til Hæstaréttar Ís- lands. annaei@mbl.is Séra Óskar í Selfosskirkju

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.