Morgunblaðið - 03.01.2009, Síða 22
22 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2009
BÚIST er við, að
60.000 eftirlits-
myndavélar
verði settar upp í
Danmörku á
þessu ári og
munu þá bætast
við þær rúmlega
300.000 vélar,
sem nú fylgjast
með Dönum á
degi sem nóttu.
Þótt mynda-
vélunum fjölgi ár
frá ári eru Danir
ekki á einu máli
um ágæti þeirra. Reynslan í Bret-
landi virðist hins vegar vera öll á
eina leið, sem sagt, að myndavél-
arnar komi í veg fyrir glæpi og
skemmdarverk. Á það einkum við
um skóla og opinberar byggingar,
sem allir vita að eru vaktaðar.
svs@mbl.is
Undir
eftirliti nótt
sem dag
Reykvísk eftirlits-
myndavél.
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
ÍSRAELSKAR orrustuvélar héldu
áfram árásum á skotmörk á Gaza í
gær en margt bendir til, að Ísraelar
muni einnig ráðast inn á svæðið með
landher og skriðdrekum. Er mann-
fall meðal Palestínumanna komið á
fimmta hundraðið og ástandið sagt
skelfilegt.
Þrátt fyrir árásirnar hafa liðs-
menn Hamas haldið áfram að skjóta
eldflaugum á Ísrael og hvatt til
sjálfsmorðsárása í Ísrael. Hafa þeir
svarið þess eið að hefna grimmilega
dauða Nizar Rayans, eins helsta
leiðtoga Hamas, en hann, nokkrar
eiginkonur hans og börn féllu í árás
Ísraela á nýársdag.
Ástandið á Gaza hefur valdið
miklu uppnámi meðal fólks í araba-
ríkjunum og víðar. Hafa tugþús-
undir manna tekið þátt í mótmæla-
göngum þar og í Indónesíu,
Afganistan og Pakistan og haft uppi
heitingar um „heilagt stríð“.
Þúsundir hermanna bíða
skipunar um innrás
Ísraelar leyfðu og hvöttu í gær út-
lendinga til að fara frá Gaza og þykir
það benda til yfirvofandi innrásar.
Eru þúsundir hermanna og fjöldi
skriðdreka við landamærin en full-
yrt er í ísraelskum fjölmiðlum, að
innrásin hafi verið í undirbúningi
mánuðum saman.
Uzi Dayan, fyrrverandi varafor-
seti ísraelska herráðsins, sagði, að
stríðið gæti staðið vikum saman en
tilgangur þess væri að uppræta
Hamas. Sagði hann, að Ísraelar
vildu ekki leggja Gazasvæðið undir
sig aftur að undanskildum þeim
svæðum hvaðan eldflaugunum hefði
verið skotið og einnig svæði við
egypsku landamærin. Segja ýmsir
sérfræðingar, að tilgangurinn með
innrásinni sé ekki aðeins að koma
Hamas fyrir kattarnef, heldur einn-
ig að sýna öðrum óvinum Ísraela, að
þeir skuli ekki draga þá ályktun af
mistökum Ísraela í Líbanon, að þeir
veigri sér við að beita landher.
Talsmenn alþjóðlegra hjálp-
arsamtaka segja, að ástandið á Gaza
sé skelfilegt. Þar skorti allt, mat-
væli, hreint vatn og lyf. Hafa Ísrael-
ar komið í veg fyrir, að flutn-
ingabílar með þær nauðsynjar fái að
fara inn á svæðið.
Innrás á Gaza í aðsigi?
Hugsanlegt er að Ísraelar leggi aftur
undir sig nokkurn hluta svæðisins
AP
Eyðilegging Palestínsk kona í rústum heimilis síns í Rafah-flóttamannabúð-
unum á Gazasvæðinu sunnanverðu. Var ísraelsku flugskeyti skotið á það.
RAUL Castro, forseti Kúbu, sagði í
fyrradag á 50 ára afmæli kúbönsku
byltingarinnar, að hún myndi lifa í
önnur 50 ár en spáði því, að „óvin-
urinn“, Bandaríkin, myndi áfram
reyna allt til að leggja hana að velli.
Hátíðarhöldin á byltingarafmælinu
voru í minna lagi að þessu sinni
enda hefur Kúba eins og önnur ríki
orðið fyrir barðinu á kreppunni auk
þess sem þrír fellibyljir ollu þar gíf-
urlegum skemmdum á síðasta ári.
Er það tjón metið á 10 milljarða
dollara.
Í ræðu í borginni Santiago de
Cuba, þar sem Fidel, bróðir hans,
lýsti yfir sigri í baráttunni við ein-
ræðisherrann Fulgencio Batista
1959, sagði Raul, að yfirvöld í
Bandaríkjunum, hver ríkisstjórnin
á fætur annarri, hefðu reynt að
grafa undan byltingunni en stað-
festa Kúbverja hefði komið í veg
fyrir það. Raunar þyrftu þeir fátt
að óttast nema kannski sjálfa sig.
Binda vonir við Obama
Margir Kúbverjar binda vonir
við, að samskipti Kúbu og Banda-
ríkjanna muni breytast til hins
betra er Barack Obama sest á for-
setastól en hann hefur þegar lofað
að auðvelda Bandaríkjamönnum af
kúbönskum ættum að ferðast til
ættlandsins og senda þangað fé.
Segist Raul Castro vera reiðubúinn
til viðræðna við Obama.
Á Kúbu hafa gilt sérstök neyð-
arlög frá árinu 1991 er Sovétríkin
liðu undir lok og efnahagslegum
stuðningi þeirra við landið lauk.
Meðalmánaðarlaun í landinu eru
um 2.500 ísl. kr. og er það hvergi
nærri nóg fyrir brýnustu lífs-
nauðsynjum. Því verður fólk að
hafa úti allar klær til að komast af.
svs@mbl.is
AP
Raul Byltingin lifi áfram þrátt fyrir
ákaflega kröpp kjör almennings.
Byltingin
enn í 50 ár
APAR af tegundinni macaque baða sig í heitri
laug á hverasvæði í borginni Yamanouchi í Helj-
ardal í fjallahéruðum Honshu-eyjar í Japan. Ap-
ar af þessari tegund eru um 60 cm á hæð, að
jafnaði um 15 kg fullvaxnir og oft nefndir
snæapar. Um 250 macaque-apar halda sig á
svæðinu, þar er mikið um kletta innan um sí-
græn tré og stutt í snævi þakta tinda. Apabyggð-
in í Heljardal, sem er hluti af Jigokudani-
þjóðgarðinum fyrir villta apa, er velþekkt og
minnir landsmenn oft á að upprunaleg náttúra
landsins er sums staðar lítt sködduð þrátt fyrir
mikið þéttbýli. Myndir af dýrunum hafa m.a.
birst á frímerkjum og vefsíða er helguð þeim.
Villtir apar lifa hvergi annars staðar í heim-
inum á jafn norðlægum slóðum. Meðalhitinn að
vetrarlagi er mínus tíu gráður og snjór er yfir
landinu í fjóra mánuði ár hvert.
Reuters
Spjallað í heita pottinum
STJÓRNARHERINN á Srí Lanka
náði í gær á sitt vald bænum Kili-
nochchi í norðurhluta landsins en í
áratug hefur hann verið stjórnmála-
leg og hernaðarleg miðstöð Tamíl-
tígra í aldarfjórðungslangri baráttu
þeirra fyrir sérstöku ríki Tamíla á
eynni.
Talsmaður stjórnarhersins sagði,
að sótt hefði verið að bænum úr
þremur áttum en um hann hefur
verið setið í tvo mánuði. Höfðu tam-
ílsku skæruliðarnir eflt varnir sínar
við bæinn en stjórnarherinn hélt
uppi stöðugum loft- og stórskota-
liðsárásum á hann. Kváðust stjórn-
arhermenn hafa mætt lítilli mót-
spyrnu þegar þeir héldu loks inn í
bæinn.
Búist við grimmilegum
bardögum
Taka Kilinochchi auðveldar
stjórnarhernum að sækja áfram
norður Jaffnaskaga og til Jaffna,
stærstu borgarinnar í hinum tam-
ílska hluta Srí Lanka. Flestir búast
þó við hörðum bardögum áður en
því marki verður náð. Minnt er á,
að stjórnarherinn hafi lagt Jaffna-
skagann undir sig 1995 en Tígrarnir
hafi síðan hrakið hann burt með
stórárás á herstöð. Féllu þá meira
en 1.200 stjórnarhermenn.
Talsmenn Tígranna hafa fátt sagt
um atburði gærdagsins en leiðtogi
þeirra, Velupillai Prabhakaran,
sagði í nóvember, að skæruliðabar-
áttunni yrði haldið áfram hvað sem
liði sigrum stjórnarhersins.
Í Bandaríkjunum, Evrópusam-
bandinu og á Indlandi eru Tamíl-
tígrarnir á skrá yfir hryðjuverka-
samtök en þeir hafa lengi verið orð-
lagðir fyrir grimmd. svs@mbl.is
Höfuðstöðvar Tígranna á valdi
stjórnarhersins á Srí Lanka
Búist við hörðum bardögum er herinn sækir áfram norður Jaffnaskaga
Í HNOTSKURN
» Samtök Tamíl-tígrannavoru stofnuð 1975 til að
vinna að stofnun sérstaks,
tamílsks ríkis í norðaust-
urhluta Srí Lanka.
» Borgarastyrjöldin hófst1983 og hafa allar sátta-
tilraunir runnið út í sandinn.
Talið er, að hún hafi kostað
meira en 70.000 manns lífið.