Morgunblaðið - 03.01.2009, Page 29

Morgunblaðið - 03.01.2009, Page 29
29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2009 Allt er leyfilegt í ást og stríði Sætur koss er veittur í hita augnabliksins. Álengdar bíður lögreglan þess sem verða vill. Júlíus Stefán Jóhann Hreiðarsson | 2. janúar Fylgi við hvað? Ríkisstjórnin virðist eitt- hvað vera að hressast og uppskera fyrir þrásetu sín. Sjálfstæðisflokkurinn eilítið stærri en síðast og Samfylkingin eilítið minni. Vinstri grænir tróna áfram á toppnum. Það er vandséð hvaða kostir eru best- ir hvað varðar hugsanlegar breytingar. Sjálfstæðisflokkurinn ber hug- myndafræðilega og sögulega mesta ábyrgð á því stjórnleysi, sem óprúttnir bisness- og bankamenn nýttu sér til að sækja auðfenginn gróða, og raddir frjáls- hyggju eru alls ekki þagnaðar á þeim bænum, þó að þær séu lágværari en áð- ur. Vandræðagangur flokksins í Evrópu- málunum er ekki sannfærandi. Samfylk- ingunni hefur ekki tekist að skapa sér sérstöðu eða trúverðugleika í stjórn- arsamstarfinu, ef Evrópumálin eru und- anskilin. Framsóknarflokkurinn og nú- verandi formaður hans, svo og fyrrverandi formaður Halldór Ásgríms- son, voru virkir arkitektar í að teikna upp kvótaránið og framsal ríkisbankanna. Vinstri grænir er með sína mótþróaþrjóskuröskun og Frjálslyndi flokkurinn ótrúverðugur. Sem sagt fátt um fína drætti. . . . Meira: stefanhr.blog.is Egill Jóhannsson | 2. janúar Iðrun forsenda fyrirgefn- ingar, forsendu trausts Traust í íslensku sam- félagi er í lágmarki í dag og margir spyrja hvernig það verði uppreist. Það verður ekki fyrr en lyk- ilstofnanir samfélagsins sýna iðrun, einlæga iðrun. Iðrun er for- senda fyrirgefningar þjóðarinnar sem er forsenda þess að hægt sé að byrja að byggja upp traust. Stofnanir samfélagsins þurfa að iðr- ast áður en þær byrja að byggja upp traust. Í gær og fyrradag gerðu bæði for- seti Íslands og forsætisráðherra tilraun til iðrunar. Þeir máttu ganga lengra. Þeir mega þó eiga það að þeir reyndu á með- an aðrir forhertust. Forherðing er and- heiti iðrunar. . . . Þar sem ég telst vera hluti af við- skiptalífinu þá mæli ég með að stofnanir viðskiptalífsins, sem m.a. kröfðust þess að fá frelsi til athafna, biðjist afsökunar á því að meðlimir þessara stofnana nýttu það frelsi án ábyrgðar. Þegar fyrrgreindar lykilstofnanir hafa sýnt gott fordæmi þá fylgir þjóðin í kjöl- farið því hver og einn þarf auðvitað að líta í eigin barm á sama hátt. Ég óska öll- um gleðilegs nýs árs og þakka fyrir sam- skiptin á því gamla. Meira: egill.blog.is STYRMIR Gunn- arsson færði fyrir því góð rök í ræðu 1. des- ember síðastliðinn að afdrif fullveldis landsins muni ráðast á lands- fundi Sjálfstæðisflokks- ins í janúarmánuði. Þar verði tekin ákvörðun með eða móti aðild og aðildarumsókn að ESB sem mun skipta sköp- um fyrir afdrif þess stóra máls. Ég tel að ritstjórinn fyrrverandi hafi hér rétt fyrir sér eins og svo oft en langar að velta hinu upp, hversu heilbrigt er það samfélag þar sem lítill útvalinn hópur kjósenda hefur slíkt ofurvald yfir samfélaginu. Það sannast mjög á þessu að Ís- land er ekki lýðveldi heldur flokks- veldi eins og Njörður P. Njarðvík benti svo hnyttilega á um daginn og mig langar að gera þetta óheppilega stjórnskipulag að umfjöllunarefni hér á eftir. Kjósendur og ofurkjósendur! Í orði kveðnu gerir stjórnskipan okkar ráð fyrir að löggjafarvaldið sé sjálfstætt vald, ein þriggja grunn- stoða lýðræðisins og að þeir sem þar sitja séu einasta bundnir af sann- færingu sinni og eiðstaf sem þeir sverja stjórnarskrá lýðveldisins. Al- þingismenn eru valdir af kjósendum í beinum lýðræðislegum kosningum, eða er ekki svo!? Nei, í reynd eru alþingismenn oft- ast valdir af stjórnmálaflokkum sem tefla þeim síðan fram sem sínum fulltrúum fyrir almenning sem fær við kosningar að velja einn bókstaf, en hvorki einn mann né tiltekið mengi manna sem viðkomandi telur best fallna til forystu. Fyrir vikið eru þing- menn eign flokkanna. Þeir eru bundnir af því að fylgja flokks- samþykktum og lúta flokksaga. Af herskara í þing- liði Sjálfstæðisflokks eru einungis einn eða tveir sem geta með einhverjum rétti sagt að þeir hafi verið kosnir af því að þeir telji rétt að Ís- land kanni ESB-aðild. Allir hinir voru, eins og flokkurinn sjálfur, fyr- ir kosningarnar, yfirlýstir andstæð- ingar aðildar og fóru ekkert dult með þá skoðun sína. Hafa þeir þá umboð til að tala fyrir og vinna eftir annarri algerlega andstæðri sann- færingu nú á miðju kjörtímabili? Já, samkvæmt almennum skilningi á flokksveldinu Íslandi þá getur landsfundur Sjálfstæðisflokksins sem sóttur er af örfáum prósentum kjósenda sama flokks breytt umboði allra kjósenda flokksins. Svo sam- dauna erum við þessu kerfi að mörgum þykir hreinlega ekkert at- hugavert við þessa skipan mála. Við búum því við það kerfi að ofar venjulegum kjósendum eru til of- urkjósendur sem skipa flokksþing stjórnmálaflokkanna. Flokkarnir koma fram sem nokkurskonar milli- liðir milli kjósenda og alþing- ismanna og með nokkrum hætti æðri hvorum tveggja, kjósendum og alþingismönnum. Breyti flokkurinn um stefnu þá hafa fulltrúar flokks- ins ekki aðeins leyfi til heldur bein- línis þær skyldur að fylgja annarri stefnu en þeir gerðu þegar hinir óbreyttu kjósendur fólu þeim umboð sitt til þingsetu. Einstakir þingmenn í Sjálfstæð- isflokki eru jafnvel í anda þessarar hugsunar farnir að hampa því að þeir fái brátt betra umboð en Sam- fylkingin til að vera ESB-sinnaðir! Kjósendur eru hér greinilega af- gangsstærð. Lítum aðeins nánar á afleiðing- arnar af þessu verklagi. Þingmenn í imbatakti Það hefur verið kallaður imba- taktur þegar fjöldi manna apar hver upp eftir öðrum einhverja hegðun án þess að sérstök hugsun hvers og eins eða sjálfstæð ákvörðun liggi þar að baki. Svo mjög erum við öll orðin sam- dauna því kerfi sem hér er rætt um að það þykir fréttnæmt ef einstakir þingmenn ganga ekki í imbatakti síns flokks. Þetta er fjarri því að vera sérstakt vandamál Sjálfstæð- isflokks og á stundum virtist mér af setu á hinu háa Alþingi að í liðsheild Vinstri grænna sé jafnvel lagt enn meira upp úr flokksaganum. Stjórn- málamenn eins og Pétur Blöndal (D), Kristinn H. Gunnarsson (?) og Valgerður Bjarnadóttir (S) verða þannig endalaus uppspretta aula- fyndni og upphrópana fyrir að fylgja sannfæringu sinni fremur en fyr- irframgefinni línu frá flokki sínum. Svo langt gengur hugmyndin um að þingmenn eigi að berjast í liðum að það er jafnvel talið til frétta ef þingmenn í stjórnarandstöðu tala ekki í takt hver við annan. Í reynd væri það miklu meiri frétt ef í til dæmis eftirlaunamálinu sem rætt var á Alþingi um daginn kæmu bara fram tvær skoðanir, skoðun stjórn- armeirihluta og skoðun stjórnarand- stöðu. Málið er einmitt þannig vaxið að það ætti að vera útilokað þar sem hver maður er eiðsvarinn að fylgja sannfæringu sinni að allir í stjórn- arandstöðunni annarsvegar og allir í stjórnarliðinu hinsvegar, kæmust að sömu niðurstöðu. Þetta er einnig mál þar sem rökstyðja má að flokks- línur séu með öllu óþarfar og til þess eins að laska hið lýðræðislega hlut- verk Alþingis. Óþörf afgreiðslustofnun Í raun og veru gerir imbatakt- urinn það að verkum að Alþingi verður að stærstum hluta óþörf af- greiðslustofnun framkvæmdavalds- ins. Þegar formenn tveggja flokka sem saman mynda þingmeirihluta koma saman, t.d. í Viðey eða Val- höll, þá geta þeir í raun og veru samið um niðurstöðu atkvæða- greiðslu í þingsölum. Og gera það blygðunarlaust. Þannig var samið í tveggja manna tali um EES-aðild okkar fyrir tæpum 20 árum, upp- skiptingu stjórnarráðsins fyrir hálfu öðru ári og þannig er nú verið að semja um ESB-umsókn þjóð- arinnar. Meðan fjárlaganefnd sú sem ég sat í haustið 2007 þingaði um sparnað og aðhald tilkynnti rík- isstjórnin að henni forspurðri um aukin útgjöld. Formaður og varafor- maður komu af fjöllum en urðu vita- skuld að hlýða. Starf okkar var þannig að mestu hégómi. Það liggur við að miðað við núver- andi ógöngur þessa kerfis væri eins hægt að leyfa kjósendum að kjósa mannlausa listabókstafi og segja svo eftir kosningar; talsmaður D-lista fer hér eftir með 25 af 63 atkvæðum í hlutafélaginu Íslandi, talsmaður S- lista 18, talsmaður F-lista 4 o.s.frv. Eftirláta svo bara framkvæmda- valdinu að stjórna landinu eins og hverju öðru hlutafélagi. Þegar kæmi að því að ákveða eitthvað gæti ein flokksskrifstofa komið málum í gegn með því að ná samningum við aðrar flokksskrifstofur þar til meirihluti væri fenginn. Það er auðvitað nokk- uð ýkt að draga myndina upp með þessum hætti en raunalega satt samt. Það er engum vafa undirorpið í huga þess sem hér ritar að flokks- valdið er grundvöllur þess að Al- þingi er frekar máttlaus stofnun og var algerlega ónýt til þess að afstýra hér þeim hörmungum sem flokks- veldið Ísland hefur leitt yfir þjóðina á undanförnum árum. Leiðin hér út úr er ekki einföld því við sterk öfl er að eiga. Eitt skrefið í átt til nýrra tíma er vitaskuld breyting á kosn- ingafyrirkomulagi þar sem tryggður er í meira mæli en nú réttur kjós- enda til að velja einstaklinga fremur en flokka. Það má vitaskuld gera með einmenningskjördæmum en vænlegra væri þó að gera landið allt að einu kjördæmi og auka um leið persónuval. Annað skref gæti verið að velja framkvæmdavaldið í sér- stakri kosningu en á því fyr- irkomulagi eru samt nokkrir aug- ljósir gallar. Sem fyrr verða fyrstu skref í átt til breytinga samt að koma frá al- menningi og gerist ekki nema fram komi grasrótarframboð til næstu kosninga sem hafnar núverandi flokkakerfi og þeim klafa sem það leggur á lýðræðislega kjörna full- trúa. Eftir Bjarna Harðarson »Eitt skrefið í átt til nýrra tíma er vita- skuld breyting á kosn- ingafyrirkomulagi þar sem tryggður er í meira mæli en nú réttur kjósenda til að velja einstaklinga fremur en flokka. Bjarni Harðarson Höfundur er bóksali á Selfossi. Imbataktur flokksveldisins BLOG.IS Árni Þór Sigurðsson | 2. janúar Er of flókið að kjósa? Margir hafa lýst þeirri skoðun, í umræðunni um Evrópumálin, að eðli- legt sé að viðhafa tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu. Með því er átt við að áður en stjórnvöld taka stefnumótandi ákvörðun um að fara í aðild- arviðræður við Evrópusambandið, eigi þau að leita eftir umboði frá þjóðinni til þess, burtséð frá niðurstöðum viðræðnanna. Nái stjórnvöld síðan samningi við ESB um aðild, yrði slíkur samningur að sjálfsögðu einnig borinn undir þjóðaratkvæði. Geir Haarde formaður Sjálfstæðisflokksins bættist um áramótin óvænt í hóp þeirra sem vilja tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu. Þessi afstaða fer mjög fyrir brjóstið á samfylkingarfólki, og yfirleitt þeim sem eru mjög áfram um aðild Íslands að Evrópusambandinu...................................................... Getur verið að það sé of flókið að kjósa? Getur verið að það sé of flókið að viðhafa beint lýðræði á mörgum stigum málsins? Af hverju óttast stuðningsmenn ESB- aðildar þjóðina? Frá mínum bæjardyrum er einmitt mikilvægt að stíga varlega til jarð- ar, að þjóðin sé ávallt beint og milliliðalaust með í ráðum, að þjóðin eigi ekki bara síð- asta orðið eins og það er oft kallað, heldur taki sjálf ákvörðun um það hvort fyrsta skrefið verður stigið. Það er lýðræði. Meira: arnith.blog.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.