Morgunblaðið - 13.02.2009, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2009
Eftir Unu Sighvatsdóttur
una@mbl.is
„ÁÐUR var reglan sú að duglegt fólk fékk vinnu
og þannig ól ég upp börnin mín: menntaðu þig,
vertu duglegur og ábyrgur og þá verður allt í
lagi. En þetta er allt breytt,“ segir Ólafía Ólafs-
dóttir innanhúsarkitekt, sem er ein hundraða
íbúa Suðurnesja sem misst hafa vinnuna í kjölfar
kreppunnar.
Sjálf var Ólafía að taka fyrstu skrefin í átt að
sjálfstæðum rekstri þegar markaðurinn hrökk í
baklás. „Ég átti von á því að geta farið vel af stað
og var búin að koma mér upp skrifstofuhúsnæði
sem ég vann að á kvöldin, þegar þetta gerist allt
saman og verkefnin sem ég hafði átt von á hurfu.
Það byrjaði á því að menn sögðust aðeins ætla að
bíða og sjá til, en í raun er ennþá biðstaða.“
Finnst vegið að sjálfstæðinu
Atvinnuleysi hefur farið vaxandi um allt land
en er hlutfallslega mest á Suðurnesjum. Líkt og
fleiri segist Ólafía aldrei hafa búist við því að
verða atvinnulaus og það sé skrýtin tilfinning að
standa skyndilega í þeim sporum.
„Ég upplifi þetta þannig, og ég held að margir
aðrir geri það líka, að mér finnst eins og sjálf-
stæðið hafi verið tekið af mér. Ég sem er harð-
dugleg, heilbrigð, vel menntuð og full af krafti ...
allt í einu gat ég ekki það sem ég ætlaði, en það
var ekki ég sjálf sem stoppaði mig. Í raun geng
ég á vegg og möguleikarnir á að lifa því lífi sem
ég hafði sett mér og stefnt að lokast.“
Þrátt fyrir að hátt í 15 þúsund manns séu nú
skráðir atvinnulausir á Íslandi segir Ólafía að
fyrir marga sé umræðuefnið enn viðkvæmt. „Ég
skammaðist mín pínulítið fyrst. Og svo fylgja
þessu áhyggjur um hvernig maður á að fram-
fleyta sér og hvað gerist næst.“
Veita hvert öðru stuðning
Ólafía sat þó ekki lengi með hendur í skauti,
bíðandi þess sem verða vildi. Hún ákvað að nýta
millibilsástandið og bauðst gott tækifæri til þess í
Virkjun – miðstöð fyrir fólk í atvinnuleit sem
stofnað var til í janúar í Reykjanesbæ.
„Þótt dyrnar hafi lokast á akkúrat það sem ég
ætlaði mér að gera, þá opnast sem betur fer aðrir
möguleikar í staðinn. Í framhaldi af þessari
reynslu minni þá fannst mér að það þyrfti að
styðja ný fyrirtæki af stað ef við ætlum að koma
fólki í vinnnu. Þannig að nú er ég að vinna að
hugmynd með öðrum hér í Virkjuninni um að
búa til stoðkerfi fyrir fyrirtæki sem eru að fara
af stað.“ Ætlunin er að veita fólki stuðning við að
koma hugmyndum sínum í framkvæmd, m.a. með
viðtalstímum og aðstoð við gerð viðskiptaáætl-
ana.
Kemur ekki til greina að gefast upp
„Við ætlum að styðja fólk til að komast á fætur
og leggjast öll á eitt til að koma þessu svæði upp
aftur,“ segir Ólafía. Hún bætir við að það sé
ómetanlegt að geta gengið inn í fullkomna að-
stöðu eins og Virkjun var látin í té á varnarliðs-
svæðinu. Svæðið sé í raun lítið dæmi þess að
samfélagið hafi gengið í gegnum ýmislegt áður
en náð að vinna sig upp úr því. „Þetta svæði, sem
margir töldu að myndi eyðileggja húsnæðismark-
aðinn okkar þegar herinn fór og ætti að rífa, hef-
ur síðan verið nýtt undir mikla og góða starf-
semi,“ segir Ólafía og vísar þar m.a. í Keili,
miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs.
Sjálf segist Ólafía vongóð um framtíðina og líta
enn á aðstæður sínar nú sem tímabilsástand.
Hún ákvað að halda í skrifstofuhúsnæðið þar sem
hún ætlar fyrr eða síðar að hefja sjálfstæðan
rekstur. „Ég reikna með því að geta tekið upp
þráðinn aftur, ég gefst ekki upp.“
Sjálfstæðið tekið af mér
Þúsundir Íslendinga
þurfa nú í fyrsta skipti að
sætta sig við atvinnuleysi
Morgunblaðið/RAX
Baráttuandi „Fyrst var ég ekki tilbúin að trúa því,“ segir Ólafía aðspurð hvernig henni leið þegar
stefndi í atvinnuleysi. Hún segir baráttuanda í fólki í sömu sporum sem hittist í Virkjun í Reykjanesbæ.
MÆLIRINN í Svartárkoti í Bárð-
ardal sýndi 27,8 stiga frost
klukkan sjö í gærmorgun og
einnig klukkan níu. Þetta er
mesta frost sem mælst hefur í
byggð þennan veturinn, segir á
bloggsíðu Einars Sveinbjörns-
sonar veðurfræðings. Hann segir
að nú sé að ljúka þessum veð-
urkafla með köldu, en þurru lofti
yfir landinu.
Nú taki að hlýna, það gerist
hægt fyrsta kastið, en seinnipart-
inn í dag ætti að verða komin
þíða um land allt á láglendi. Þó
geti setið eftir frostkaldar lænur
hér og þar um landið norðaust-
anvert. aij@mbl.is
Mesta frost á
byggðu bóli í vetur
RÍKISSTJÓRNIN hefur samþykkt
tillögu Kolbrúnar Halldórsdóttur
umhverfisráðherra um að Ár-
ósasamningurinn verði fullgiltur
hér á landi. Samningurinn fjallar
um aðgang að upplýsingum, þátt-
töku almennings í ákvarðanatöku
og aðgang að réttlátri málsmeðferð
í umhverfismálum.
Samningurinn var gerður árið
1998 og öðlaðist gildi í október árið
2001. 38 ríki undirrituðu hann auk
Evrópubandalagsins, þ.á m. Ísland.
41 ríki auk ESB hafa fullgilt samn-
inginn, öll norrænu ríkin þar á
meðal að Íslandi undanskildu.
Fullgilda Árósar-
samninginn
SKRIFAÐ var nýlega undir samn-
ing milli Hafnarfjarðarbæjar og
Hópbíla um fastan akstur grunn-
skólabarna (sund og íþróttir).
Samningurinn gildir í fjögur ár.
Nýmæli í samningi er að krafa er
gerð um að Hópbílar innleiði bif-
reiðar til skólaaksturs sem knúnar
eru vistvænum orkugjafa, segir á
heimasíðu Hafnarfjarðar.
Ýmis önnur ákvæði eru í samn-
ingnum, m.a. um öryggismál, þjálf-
un bílstjóra, stundvísi og fleira
Skólaaksturinn
verður vistvænni
Ábendingar eru vel þegnar á netfangið
ritstjorn@mbl.is eða s. 569-1317.
Vilt þú segja þína sögu?
Áhrif kreppunnar á fjölskyldur
HUGMYNDIR um að hverf-
islöggæslustöðvar í Breiðholti og
Grafarvogi verði lagðar niður hafa
verið lagðar fram af hálfu lögregl-
unnar og kynntar borgarstjóra.
Samfylkingin tók þetta mál upp í
borgarráði í gær. Ætlunin er að Ár-
bæjarhverfi og Grafarvogshverfi
verði þjónað frá Mosfellsbæ og
Breiðholti úr Kópavogi. Vesturbæ
Reykjavíkur á að sinna frá Seltjarn-
arnesi. „Þessar breytingar myndu
rjúfa hina nánu samvinnu hverf-
islöggæslu og þjónustumiðstöðva
borgarinnar sem deila húsnæði í
Mjódd í Breiðholti og Miðgarði í
Grafarvogi,“ segir í fréttatilkynn-
ingu frá Samfylkingunni.
Breytingar á hverfagæslu?
ÁHERSLA verður lögð á Disney-
starfsemi Eddu útgáfu og öll bóka-
klúbbastarfsemi frá þriðja aðila seld
burt, gangi áætl-
anir Fjárbakka
hf. eftir. En fyr-
irtækið keypti
nýlega Eddu út-
gáfu af Ólafsfelli
með þeim fyr-
irvara að nauða-
samningar tækj-
ust.
„Eddu-útgáfan
er í raun gjald-
þrota í dag,“ segir Jón Axel Ólafs-
son, sem kaupir útgáfuna í félagi við
bróður sinn Jóhann Garðar Ólafs-
son. Edda sé hins vegar önnur
stærsta útgáfa landsins hvað veltu
varðar og Andrés Önd það vikublað
sem seljist hvað best. Skuldastaða
félagsins sé þó ekki góð og því sé nú
unnið að því að fá stóran hluta
skuldanna afskrifaðan. „Við höfum
mætt velvilja hjá langflestum kröfu-
höfum og það hefur komið á óvart
hversu skilningsríkir og fúsir er-
lendir kröfuhafar hafa verið.“
Jón Axel segir Fjárbakka ætla að
endurskipuleggja rekstur Eddu og
einbeita sér að Disney-starfseminni.
Af slíkum áætlunum verði þó ekki
nema í samvinnu við kröfuhafa.
Jólasyrpa Eddu var á topp tíu list-
anum fyrir jólin, enda hafa Andrés
Önd og félagar lengi notið mikilla
vinsælda hér á landi. „Þetta er sá
markhópur sem við ætlum að sinna
og okkar áætlanir gera ráð fyrir að
útvíkka þá starfsemi og nýta netið í
meira mæli, auk þess sem Disney er
með heilmikla útgáfu sem aldrei hef-
ur ratað hingað til lands. Okkar hlut-
verk er að skemmta börnum og þess
vegna viljum við horfa á Eddu sem
skemmtifyrirtæki frekar en bara út-
gáfu.“ annaei@mbl.is
„Okkar hlutverk er
að skemmta börnum“
Í HNOTSKURN
» Andrés Önd birtist fyrst íteiknimyndinni The Wise
Little Hen árið 1934.
» Einungis Mikki mús nýturmeiri vinsælda af Disney-
persónum en Andrés.
» Andrésar Andar-blöðinkomu fyrst út á íslensku
1983.Andrés Öndin skapbráða hefur ver-
ið vinsæl hjá börnum í áratugi.Jón Axel Ólafsson
Hvað er þesssi Virkjun?
Virkjun – miðstöð fyrir fólk í atvinnuleit, hóf
starfsemi þann 19. janúar síðastliðinn sem við-
brögð við vaxandi atvinnuleysi á Suðurnesjum.
Þar er nú mesta atvinnuleysi á landinu, 11,6%, og
er Virkjun ætlað að vera samkomustaður fólks sem
vill breyta því áfalli sem atvinnleysi er í ný tækifæri
á vinnumarkaði og eru allir hvattir til að líta við.
„Það skapast hugmyndir og tækifæri þegar fólk
hittist. Þótt það sé ekki nema bara að fá stuðning
og finna að þetta er ekki þér að kenna,“ segir Ólafía
sem leggur áherslu á að þar eigi að vera gaman.
Virkjun hefur aðstöðu á Vallarheiði, í húsnæði
sem áður hýsti launadeild varnarliðsins þar sem
eru skrifstofur, kennslustofur og fundarsalir.
Hvernig er ástandið á atvinnumarkaði nú?
Skráð atvinnuleysi í janúar var 6,6% á landsvísu
eða að meðaltali 10.456 manns. Á sama tíma í fyrra
var atvinnuleysi 1%. Atvinnuleysið nú er það mesta
síðan í janúar 1995 og er búist við að það muni enn
aukast á næstunni og verði um 7,9%-8,4% í febr-
úar. Í dag eru 14.755 skráðir atvinnulausir.
S&S
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
Íslensk framleiðsla
Íslensk hönnun
Íslensk framtíð
Landsins mesta úrval af íslenskum sófum
Patti húsgögn