Morgunblaðið - 13.02.2009, Síða 26
26 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2009
✝ Margrét Þor-valdsdóttir fædd-
ist á Eiði í Grindavík
20. nóvember 1917,
dóttir hjónanna Stef-
aníu Margrétar Tóm-
asdóttur, f. 1893, d.
1969, og Þorvaldar
Kristins Klemens-
sonar, f. 1891, d.1 967
Hún lést á Hrafnistu í
Hafnarfirði 6. febrúar
sl.
Margrét fluttist
ung með fjölskyldu
sinni að Járngerð-
arstöðum.
Hún var elst fimm alsystkina en
hin eru Tómas, f. 1919, d. 2008,
Halldóra Jóhanna, f. 1921, Guð-
laugur, f. 1924, d. 1996, og Val-
gerður Sigurbjörg, f. 1927. Hálf-
systir hennar samfeðra Lovísa, f.
1913, d. 2000.
Hinn 9. desember 1945 giftist
Margrét Hallgrími Georg Björns-
syni, fiskverkanda og bifreiða-
stjóra, f. 26.10. 1908, d. 2.12. 1992.
Þau bjuggu allan sinn búskap á
Reykjavíkurvegi 33 í Hafnarfirði.
Sonur þeirra er Þorvaldur Stefán
Hallgrímsson, f. 19.8. 1946, kvænt-
ur Svanhildi Leifsdóttur, f. 26.11.
1948. Synir þeirra eru
Leifur, f. 1967,
kvæntur Guðrúnu
Ósk Gunnarsdóttur, f.
1966, Hallgrímur
Smári, f. 1970, kvænt-
ur Maríu Jónu Guðna-
dóttur, f. 1970, og
Grétar Már, f. 1976,
kvæntur Haddý Önnu
Hafsteinsdóttur, f.
1978. Langömmu-
börnin eru átta.
Stjúpbörn Mar-
grétar, börn Hall-
gríms frá fyrra hjóna-
bandi, eru Ó.P. Anna, f. 1931, d.
1990, og Guðbjörn, f. 1934.
Margrét lauk barna- og ungl-
ingaskólanámi í Grindavík og
stundaði jafnframt fiskvinnslu og
almenn sveitastörf á meðan hún var
í foreldrahúsum. Þá var hún oftast í
kaupavinnu til sveita á sumrin.
Í Hafnarfirði starfaði Margrét
auk húsmóðurstarfa við fiskvinnslu
og ráku þau hjónin skreiðar- og
saltfiskverkun þar um árabil.
Margrét dvaldi á Hrafnistu frá
1998.
Margrét verður jarðsungin frá
Víðistaðakirkju í Hafnarfirði í dag
kl. 13.
Mig langar með nokkrum orðum
að minnast tengdamóður minnar
Margrétar Þorvaldsdóttur. Ég var
aðeins 15 ára unglingur þegar ég
fór að koma á Reykjavíkurveginn á
heimili þeirra Möggu og Halla með
Valda syni þeirra. Þar var mér strax
tekið með mikilli hlýju af þeim hjón-
um og myndaðist vinátta sem alla
tíð varði, og aldrei bar skugga á.
Þegar við Valdi fórum svo að búa
sjálf, ung að árum, á Smyrlahraun-
inu skammt frá heimili þeirra, var
gott að geta komið til þeirra, hve-
nær sem var, til þess að að leita að-
stoðar og ráða og alltaf voru strák-
arnir okkar velkomnir í heimsókn til
afa og ömmu. Þar gátum við alltaf
gengið að vísri pössun fyrir þá og
þar fannst þeim gaman að vera.
Magga amma lék við þá, jafnvel
liggjandi á gólfinu, spilaði eða las.
Hún kunni mikið af vísum og kvæð-
um, sem hún fór með fyrir þá og
brýndi fyrir þeim að vera góðir og
heiðarlegir drengir.
Alla tíð var Magga mér sem besta
mamma og þótti mér afskaplega
vænt um hana. Hún var mjög vel
gefin og stálminnug, en lítillát og
gerði engar kröfur fyrir sjálfa sig,
en var alltaf tilbúin að aðstoða aðra
sem á þurftu að halda. Ég minnist
þess að þegar foreldrar Möggu
dvöldu á Elliheimilinu Grund í
Reykjavík taldi hún ekki eftir sér að
fara með strætó til Reykjavíkur eft-
ir vinnudag í fiskverkun og ganga
vestur á Grund í hverri viku, og
stundum oftar meðan þeir lifðu.
Elsku Magga mín, mig langar að
þakka þér allar þær góðu stundir
sem við höfum átt saman síðustu 45
ár og þakka fyrir ógleymanlegar
minningar. Nú hefur þú fengið þá
hvíld sem þú þráðir, eftir að heilsan
brást þér, og ég veit að það verður
tekið vel á móti þér, en ég á eftir að
sakna þín sárt.
Mig langar að lokum að þakka
fyrir hönd okkar fjölskyldunnar
starfsfólki Hrafnistu frábæra
umönnun sem Margrét hefur notið
þann tíma sem hún hefur dvalið þar,
bæði á vistinni 2A og hjúkrunar-
deildinni 4B.
Svanhildur Leifsdóttir.
Elsku Magga amma okkar.
Nú sitjum við öll saman og rifjum
upp allar góðu stundirnar sem við
áttum með þér. Öll munum við eftir
því þegar við vorum lítil og þú sast
með okkur á hnjánum og söngst
stígur hún/hann við stokkinn. Þú
hugsaðir alltaf svo vel um að okkur
yrði aldrei kalt og prjónaðir handa
okkur fullt af ullarvettlingum og
sokkum, ennþá eigum við fullt af
þeim. Þótt við höfum verið mjög
ung þegar þú bjóst á Reykjavík-
urveginum þá munum við öll eftir
bratta stiganum niður í kjallara sem
okkur fannst frekar ógnvekjandi
enda máttum við aldrei fara án
Möggu ömmu niður og alltaf þurft-
um við að bakka niður stigann.
Okkur fannst alltaf jafn fyndið
þegar þú tókst tennurnar út úr þér
og grettir þig fyrir okkur. Einnig
minnumst við allra spilastundanna
okkar saman. Takk fyrir allan
kóngabrjóstsykurinn, lakkrísinn og
appelsínið þegar við komum í heim-
sókn til þín á Hrafnistu, við fórum
aldrei svöng frá þér.
Drottinn er minn hirðir, mig mun
ekkert bresta.
Á grænum grundum lætur hann mig
hvílast,
leiðir mig að vötnum,
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu
fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert illt,
því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
Þú býr mér borð
frammi fyrir fjendum mínum,
þú smyr höfuð mitt með olíu,
bikar minn er barmafullur.
Já, gæfa og náð fylgja mér
alla ævidaga mína,
og í húsi Drottins bý ég
langa ævi.
(23. Davíðssálmur)
Biðjum að heilsa Halla afa og
þakkaðu honum fyrir rauða ópalið
sem hann gaf okkur alltaf þegar við
komum til ykkar á Reykjavíkurveg-
inn.
Þangað til næst, Guð geymi þig
elsku Magga amma okkar.
Linda Sif, Halla Björg,
Smári Leó og Stefán Grétar.
Margrét
Þorvaldsdóttir
Vertu blessuð, elsku amma,
okkur verður minning þín
á vegi lífsins, ævi alla,
eins og fagurt ljós, er skín.
Vertu blessuð, kristna kona,
kærleikanum gafstu mál,
vertu blessuð, guð þig geymi,
góða amma, hreina sál.
(Guðrún Jóhannsdóttir.)
Kveðja,
Svanhildur Lísa, Þóra
Margrét, Telma Rakel
og Emilía Ósk.
HINSTA KVEÐJA
✝ Tryggvi Gunn-arsson, skipa-
smíðameistari, fædd-
ist 14. júlí 1921 í
Hvammi í Dýrafirði.
Hann lést að dval-
arheimilinu Hlíð, Ak-
ureyri, 6. febrúar síð-
astliðinn.
Foreldrar hans
voru Ingibjörg Veró-
nika Ásbjörnsdóttir,
f. 12.3. 1901, d. 1.1.
1932 og Gunnar Jóns-
son, skipasmíðameist-
ari, f. 1.4. 1899 í Hlé-
skógum í Höfðahverfi, d. 27.10.
1960. Systir Tryggva var Bára
Gunnarsdóttir, f. 14.10. 1925, d.
3.11. 1992. Tryggvi átti 5 systkini
samfeðra. Þau eru Ólafur, f. 7.11.
1919, d. 13.11. 2004, Anna Lísa, f.
20.11. 1934, Halldóra, f. 19.1. 1936,
Gunnar, f. 1940, Helga, f. 1945.
Tryggvi kvæntist eftirlifandi
konu sinni, Stellu Sigurgeirsdóttur,
a) Rakel, f. 31.10. 1973, m. Pálmi
Guðmundsson, börn þeirra eru
Björk og Salka. Ragna Björk, f.
20.5. 1979, m. Bragi Björnsson,
börn þeirra eru Ragnar Björn og
Helga Sif. c) Sigurgeir, f. 11.1.
1983. Dóttir hans er Auður Hulda.
3) Gunnar, skipaverkfræðingur, f.
2.12. 1958. M. Harpa Ágústsdóttir,
f. 2.9. 1956. Börn; Ágúst Þór Bárð-
arson, Tryggvi og María Borg.
Tryggvi lærði skipasmíði hjá föður
sínum á skipasmíðastöð KEA og
varð síðar skipasmíðameistari og
yfirsmiður stöðvarinnar er faðir
hans lét af störfum. Hann var þá
aðeins liðlega 30 ára og stjórnaði
henni þar til að hún var lögð niður
1975. Varð hann síðar verkstjóri
og hafnarstjóri hjá Akureyrarbæ.
Einnig var hann vigtarvörður hjá
Akureyrarbæ eftir að hann fékk
heilablóðfall 1977 og gegndi því
starfi til 1991. Tryggvi teiknaði og
smíðaði fjölmörg skip hjá Skipa-
smíðastöð KEA. Meðal þeirra er
hvalaskoðunarskipið Húni II.
Útför Tryggva fer fram frá Ak-
ureyrarkirkju í dag og hefst af-
höfnin kl. 13:30.
f. 1.8. 1922, þann 30.9.
1944. Foreldrar henn-
ar voru Sigurgeir
Jónsson og Sóley
Tryggvadóttir. Börn
þeirra Tryggva og
Stellu eru 1) Ingi-
björg, skrif-
stofumaður, f. 29.8.
1945, M. Haraldur
Valdimarsson f. 27.9.
1943 á Ísafirði. Börn
þeirra eru a) Tryggvi
f. 19.1. 1966, m. Krist-
ín Bergþóra Jóns-
dóttir, börn Arnar
Ingi, Rúnar Ingi, Bjarki Reyr,
Agnes Vala og Eyþór Nói. b) Elva f.
8.6. 1969, m. Páll Hlöðver Krist-
jánsson, börn þeirra: Sigmar og
Inga Rakel. c) Heimir f. 29.10. 1976,
m. Hildur Bolladóttir, börn þeirra:
Haraldur Bolli og Jónatan Hugi. 2)
Ragnar Geir, skipasmiður, f. 29.1.
1950. M. Erna Björk Guðmunds-
dóttir, f. 3.8. 1952. Börn þeirra eru:
Kær tengdafaðir minn er fallinn
frá. Mig langar til að minnast hans
með fáeinum orðum. Kynni mín af
honum hófust þegar ég kom norður
á Akureyri 1972, þá hjúkrunarnemi,
og kynntist Ragnari syni hans.
Tryggvi var einstaklega hlýr og
góður maður með notalega nær-
veru. Hann hafði mikinn áhuga á
gróðri og var garðurinn þeirra
hjóna í Lönguhlíðinni einstaklega
fallegur. Það var hugsað um hann af
mikilli natni og umhyggju og hlutu
þau hjónin viðurkenningu fyrir það.
Við fjölskyldan eigum margar
góðar minningar um það þegar við
heimsóttum afa og ömmu og nutum
þess að vera í veðurblíðunni fyrir
norðan í fallega garðinum þeirra
þar sem ótal tegundir blóma og fal-
lega klipptra trjáa nutu sín.
Eftir að Tryggvi veiktist 1978
kom hann oft suður til Reykjavíkur
í endurhæfingu, bæði á Grensás og
á Reykjalund. Við fjölskyldan nut-
um nærveru hans þann tíma sem
hann dvaldi hér fyrir sunnan. Það
má segja að Tryggvi hafi komist
mjög langt á eigin dugnaði og vilja
til að ná bata í erfiðum veikindum
og dáðist ég að því hversu duglegur
hann var.
Tryggvi var virkur félagi í
íþróttafélagi fatlaðra á Akureyri og
spilaði boccia af dugnaði og tók þátt
í mótum víða og vann til margra
verðlauna. Þau hjónin voru búin að
koma sér fyrir í notalegri íbúð í Lin-
dasíðunni þar sem sólstofan líktist
stýrishúsi á bát og það vakti fal-
legar minningar um liðna daga fyrir
Tryggva. Blessuð sé minning hans.
Þín tengdadóttir,
Erna Björk.
Kveðja frá systkinum
Tryggvi bróðir skipaði stóran
sess í huga okkar. Hann var næst-
elstur í systkinahópnum og öll litum
við upp til hans. Ungur að aldri hóf
hann að feta í fótspor föður okkar,
Gunnars Jónssonar skipasmíða-
meistara, bæði hvað varðar skipa-
smíðar og söngáhuga.
Tryggvi lærði skipasmíðar hjá
föður okkar á skipasmíðastöð KEA
og varð skipasmíðameistari og yf-
irsmiður stöðvarinnar aðeins þrítug-
ur að aldri, er faðir okkar lét af
störfum vegna veikinda. Tryggvi
stjórnaði stöðinni farsællega þar til
hún var lögð niður á áttunda ára-
tugnum.
Frá námsárum Tryggva minnast
Lísa og Halldóra þess af stolti þeg-
ar hann kom hjólandi heim úr
vinnunni af stöðinni.
Tryggvi var mjög söngelskur og
byrjaði snemma að syngja með
karlakórnum Geysi. Hann var alla
tíð tryggur Geysismaður og naut
þess bæði að syngja og hlusta á tón-
list. Helgu er sérstaklega minnis-
stæð óperettusýning sem þau sáu
saman stuttu eftir að hann fékk
heilablóðfall. Upplifun hans var því-
lík að aðrir hrifust með.
Gunnar minnist ánægjulegra
ferðalaga þeirra bræðra um landið
og skemmtilegra samverustunda.
Tryggvi hafði góða nærveru, var
glaðlyndur, geðgóður og áreiðanleg-
ur. Allt sem hann tók sér fyrir
hendur gerði hann af trúmennsku
og varð okkur góð fyrirmynd.
Við þökkum kærlega fyrir þær
stundir sem við höfum átt með
Tryggva gegnum árin þótt fjarlægð-
in hafi verið mismikil.
Stellu, börnum og fjölskyldum
Tryggvi Gunnarsson
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
VALGERÐUR SIGFÚSDÓTTIR
frá Vogum í Mývatnssveit,
Sólbrekku 26,
Húsavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga, Húsavík,
föstudaginn 6. febrúar.
Útför hennar fer fram frá Húsavíkurkirkju laugar-
daginn 14. febrúar kl. 14.00.
Stefán Haraldsson, Friðrika Baldvinsdóttir,
Guðmundur Óskar Haraldsson,
Gísli Haraldsson,
Sigfús Haraldsson, Elfa Brynja Sigurðardóttir,
Jón Kristinn Haraldsson, Klara Matthíasdóttir,
Haraldur Haraldsson, Guðrún Anna Jónsdóttir
og barnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
SIGURBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Sætúni,
Fáskrúðsfirði,
síðast til heimilis á dvalar- og
hjúkrunarheimilinu Grund,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
aðfaranótt fimmtudagsins 12. febrúar.
Jarðarförin fer fram frá Seljakirkju föstudaginn 20. febrúar kl. 13.00.
Kristín A. Gunnþórsdóttir, Sigurgeir Þór Sigurgeirsson,
Guðmundur Þór Gunnþórsson,
Guðjón Gunnþórsson, Helen Medvedeva,
Eygló Sara Gunnþórsdóttir,
Rut Gunnþórsdóttir, Eiður Sveinsson,
Rakel Gunnþórsdóttir, Ævar Agnarsson,
Þorgils Garðar Gunnþórsson, Helga Steinunn Hauksdóttir,
Rebekka Gunnþórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
THEÓDÓRA KRISTJÁNSDÓTTIR,
Bakkavegi 13,
Hnífsdal,
sem lést föstudaginn 6. febrúar, verður jarðsungin
frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 14. febrúar
kl. 14.00.
Halldóra Elíasdóttir, Guðmundur Kr. Thoroddsen,
Sigríður Inga Elíasdóttir, Svavar Geir Ævarsson,
Finnbjörn Elíasson, Gyða Björg Jónsdóttir,
Guðmunda Elíasdóttir, Friðrik Óttar Friðriksson.