Morgunblaðið - 13.02.2009, Síða 34
34 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2009
Raðauglýsingar 569 1100
Fundir/Mannfagnaðir
Hádegisfundur
á laugardaginn
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur, Samfylkinga-
félag, heldur súpufund í hádeginu laugar-
daginn 14. febrúar kl. 12.00 á fyrstu hæð í
Rúgbrauðsgerðinni við Skúlagötu.
Ræðumaður á fundinum verður:
Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi
formaður Alþýðuflokksins.
Erindið nefnir hann:
80 daga stjórnin, fyrirburður eða framhaldslíf.
Til að ræða efnið verða líka Valgerður Bjarna-
dóttir, Vilhjálmur Þorsteinsson, Eiríkur Berg-
mann og Anna Pála Sverrisdóttir, en hún er
formaður Ungra jafnaðarmanna.
Allt Samfylkingarfólk og annað áhugafólk um
stjórnmál velkomið.
Stjórnin.
Sjálfstæðisflokkurinn
í Suðvesturkjördæmi
Auglýst eftir framboðum
til prófkjörs í Suðvestur-
kjördæmi
Sjálfstæðisflokkurinn í Suðvesturkjördæmi
mun halda prófkjör 14. mars nk. til að velja
frambjóðendur á lista flokksins fyrir komandi
Alþingiskosningar. Hér með er auglýst eftir
framboðum og verða þau að hafa borist á skrif-
stofu Sjálfstæðisflokksins í Valhöll að Háaleitis-
braut 1 í Reykjavík, eigi síðar en klukkan 12:00
mánudaginn 23. febrúar nk. Framboðunum ber
að skila ásamt mynd af viðkomandi og stuttu
æviágripi á tölvutæku formi. Hvert framboð
verður að vera stutt 20 flokksmönnum
búsettum í kjördæminu. Enginn flokksmaður
getur staðið að fleiri framboðum en hann má
fæsta kjósa í prófkjörinu eða 7 talsins.
Nauðungarsala
Uppboð
Með vísan til 2. mgr. 7. gr. laga um búfjárhald o.fl. nr.
103/2002 verður seldur á uppboði graðhestur:
Brúnn, á 2. – 3. vetri, ómarkaður. Með óskráð örmerki
nr. 984104742512002.
Uppboðið fer fram að Emmubergi, Dalabyggð, mánudaginn
23. febrúar nk. kl. 14:00. Greiðsla við hamarshögg. Ávísanir ekki
teknar gildar nema með samþykki uppboðshaldara.
Sýslumaðurinn í Búðardal,
11. febrúar 2009.
Áslaug Þórarinsdóttir sýslumaður.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Hafnargata 17, raðhús (215-5499) Grímseyjarhreppur, þingl. eig.
Brynjólfur Árnason, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Sjóvá-Al-
mennar tryggingar hf., fimmtudaginn 19. febrúar 2009 kl. 15:30.
Skíðabraut 6, Björk, 01-0201 (215-5180) Dalvíkurbyggð, þingl. eig.
Björn Halldór Sturluson, gerðarbeiðandi Vörður tryggingar hf.,
miðvikudaginn 18. febrúar 2009 kl. 13:30.
Torfufell, 152813, jörð (fnr. 215-9756) Eyjafjarðarsveit, þingl. eig. Víðir
Ágústsson og Adda Bára Hreiðarsdóttir, gerðarbeiðandi
Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 18. febrúar 2009 kl. 11:00.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
12. febrúar 2009.
Halla Einarsdóttir, ftr.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Engjasel 85, 205-5400, Reykjavík, þingl. eig. Ingimar Kristinn Jónsson,
gerðarbeiðendur Engjasel 85, húsfélag, Nýi Glitnir banki hf. og
Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 17. febrúar 2009 kl. 11:30.
Kögursel 20, 205-6213, Reykjavík, þingl. eig. Reynir Einarsson og Ólöf
Ágústína Stefánsdóttir, gerðarbeiðendur Glitnir banki hf., fjárfestlán
og Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda, þriðjudaginn 17. febrúar 2009
kl. 11:00.
Leirubakki 32, 204-8062, Reykjavík, þingl. eig. Davíð Freyr Rúnarsson,
gerðarbeiðendur Leirubakki 18-32, húsfélag ogTryggingamiðstöðin
hf., þriðjudaginn 17. febrúar 2009 kl. 10:30.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
12. febrúar 2009.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Brúarflöt 2, mhl. 01-0103, fastanr. 227-2716, Akranesi, þingl. eig. Lárus
Guðmundur Jónsson, gerðarbeiðendur Akraneskaupstaður og
Shooters sport bar á Ísl ehf, miðvikudaginn 18. febrúar 2009 kl. 15:00.
Garðabraut 2, mhl. 01-0103, fastanr. 210-0849, Akranesi, þingl. eig.
Thai-A ehf., gerðarbeiðandiTryggingamiðstöðin hf., miðvikudaginn
18. febrúar 2009 kl. 13:30.
Garðabraut 21, mhl. 01-0101 og 02-0101, fastanr. 210-0821, Akranesi,
þingl. eig. Guðmunda Júlía Valdimarsdóttir og Brynjar Ingimarsson,
gerðarbeiðandi Nýi Kaupþing banki hf., miðvikudaginn 18. febrúar
2009 kl. 13:45.
Hólmaflöt 10, mhl. 01-0101 og 01-0102, fastanr. 228-3791, Akranesi,
þingl. eig. Steindór Óli Ólason og Sigurrós Allansdóttir,
gerðarbeiðendur Akraneskaupstaður og Landsbanki Íslands hf.,
aðalstöðv., miðvikudaginn 18. febrúar 2009 kl. 16:00.
Höfðabraut 4, mhl. 01-0101, fastanr. 210-0916, Akranesi, þingl. eig.
Brandur Danielsen, gerðarbeiðendur Akraneskaupstaður,
Íbúðalánasjóður, Skeljungur hf., Sparisjóður Mýrasýslu og Spölur
ehf., miðvikudaginn 18. febrúar 2009 kl. 15:45.
Höfðabraut 7, mhl. 01-0302 og 02-0106, fastanr. 210-0884, Akranesi,
þingl. eig. Elvar Már Valdimarsson, gerðarbeiðandi Nýi Kaupþing
banki hf., miðvikudaginn 18. febrúar 2009 kl. 15:15.
Presthúsabraut 21, mhl. 01-0101 og 02-0101, fastanr. 210-0152, Akra-
nesi, þingl. eig. Einar Ástvaldur Jóhannsson og Arnþór Ingi Hlynsson,
gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Vátryggingafélag Íslands hf.,
miðvikudaginn 18. febrúar 2009 kl. 13:00.
Seljuskógar 18, mhl. 01-0101 og 01-0102, fastanr. 230-0308, Akranesi,
þingl. eig. Skarphéðinn Orri Björnsson, gerðarbeiðendur Akranes-
kaupstaður, BYR sparisjóður, höfuðst., farstýr, G.Pálmason ehf. og
Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 18. febrúar 2009 kl. 15:30.
Suðurgata 85, mhl. 01-0101, fastanr. 210-2037, Akranesi, þingl. eig.
Gengi ehf., gerðarbeiðendur Akraneskaupstaður og Íbúðalánasjóður,
miðvikudaginn 18. febrúar 2009 kl. 14:30.
Suðurgata 85, mhl. 01-0201, fastanr. 210-2038, Akranesi, þingl. eig.
Gengi ehf., gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 18.
febrúar 2009 kl. 14:45.
Suðurgata 89, mhl. 01-0101, fastanr. 210-2033, Akranesi, þingl. eig.
Ármann Rúnar Ármannsson, gerðarbeiðandi Nýi Kaupþing banki hf.,
miðvikudaginn 18. febrúar 2009 kl. 14:15.
Sýslumaðurinn á Akranesi,
11. febrúar 2009.
Félagslíf
I.O.O.F. 1 1892138 8½.I.*I.O.O.F. 12 190021381/2 Sk.
upplýsingar er að finna á mbl.is/upplýsingar
ATVINNU- OG RAÐAUGLÝSINGAR
Pabbi þinn var frábær maður.
Alltaf svo hress og alltaf brosandi.
Ég man hvað hann var góður við
okkur þegar við fórum upp í sum-
arbústað einn veturinn, við fengum
meira að segja að hringja í vini okkar
úr risastóra farsímanum hans sem
var á stærð við skjalatösku. Foreldr-
ar þínir voru svo yndisleg saman, svo
samrýmd og samtaka í öllu. Þegar
við urðum aðeins eldri sátum við oft
með þeim um helgar áður en við fór-
um út á lífið. Við spjölluðum og
hlustuðum á tónlist á meðan við vor-
um að gera okkur til. Pabbi þinn tók
okkur í danssveiflu við undirleik
Sléttuúlfanna og við vorum báðar
móðar og másandi en hann brosti
bara og bauð mömmu þinni upp í
næsta dans.
Ég man líka eftir tvítugsafmælinu
þínu. Þá tókum við allt í einu eftir því
að Dire Straits voru í græjunum í
stað tónlistarinnar sem við höfðum
valið, þá kom í ljós að pabbi þinn var
bara að kynna strákana fyrir al-
mennilegri tónlist. Ég hitti foreldra
þína sjaldnar og sjaldnar upp úr tví-
tugu, eins og gengur og gerist, en
þau eiga alltaf sérstakan stað í mínu
hjarta. Það var bara svo gaman að
setjast niður í eldhúsinu og spjalla,
húmorinn og kaldhæðnin ríkjandi.
Kæru Sigríður, Andrea, Krissa og
Ásdís. Þið eruð allar svo sterkar og
flottar konur, passið vel hver upp á
aðra.
Kæra fjölskylda og vinir, ég votta
ykkur mína samúð.
Hildur Albertsdóttir.
Þorvaldur
Ólafsson
Elsku langamma.
Ég vil þakka þér
fyrir allar stundirnar
sem ég átti með þér. Þær voru ómet-
anlegar. Þegar ég hugsa til baka
blossar upp fjöldi minninga með þér.
Ber þá fyrst að nefna stundirnar þeg-
ar þú bjóst í blokkinni í Fossheiðinni
og ég var í pössun hjá þér. Þá leyfðir
þú mér stundum að fara í sendiferð í
Hornið, eins og það hét nú þá, með
minnismiða og krónur í buddu og var
þetta ekkert smáspennandi fyrir litla
stúlku þótt leiðin væri ekki löng. Þá
kom það stundum fyrir að við tvö
elstu systkinin gistum hjá þér og
þegar við vorum að bursta tennurn-
arfyrir háttinn tókstu út úr þér tenn-
urnar og grettir þig framan í okkur.
Mikið gátum við hlegið þá. Alla tíð
ruglaðir þú mér og mömmu af og til
saman og var ég bara orðin vön því.
Þú hafðir nú ekki jafn gaman af
þessu síðustu ár og afsakaðir þig
hvað þú værir orðin rugluð. Þá sagði
Helga Jónína
Gunnþórsdóttir
✝ Helga JónínaGunnþórsdóttir
fæddist á Stóra-
Steinsvaði í Hjalta-
staðaþinghá 13. júní
1921. Hún lést á
Hjúkrunarheimilinu
Ljósheimum á Sel-
fossi 17. janúar síð-
astliðinn og fór útför
hennar fram frá Sel-
fosskirkju 30. janúar.
ég þér nú að hafa ekki
áhyggjur af þessu þar
sem þú værir búin að
gera þetta frá því ég
mundi eftir mér. Og þá
hlóstu alltaf. Ekki má
nú gleyma öllu bakk-
elsinu sem þú barst á
borð fyrir gesti og ekki
var hægt að komast
upp með það að fá sér
ekki. Enda var svo sem
erfitt að hafna kökun-
um þínum sem brögð-
uðust dásamlega,
möndlukakan með
bleika kreminu og vínarbrauðin þín,
hver getur gleymt þeim. Þér fannst
líka afar leiðinlegt að geta ekki boðið
gestum kaffi og með því þegar þú
varst komin á Ljósheima. Það er
skrýtið að hugsa til þess að þú sért
ekki hérna lengur og ég geti ekki
lengur kíkt í heimsókn til þín þegar
ég er á Selfossi. En ég er viss um að
langafi hefur tekið vel á móti þér og
þið eruð saman á nýjan leik.
Hver minning dýrmæt perla að liðnum
lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka
hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Ágústa Tryggvadóttir.
Langamma hefur þá fengið hvíld-
ina löngu eftir langt og árangursríkt
ævistarf.
Ég hef að undanförnu verið að
reyna að ímynda mér gleðina sem
var við völd hjá ykkur ömmu þegar
ég kom í heiminn snemma árs 1981.
Þið amma hljótið að hafa verið hopp-
andi kátar yfir að verða amma og
langamma í fyrsta skiptið, þú rétt að
verða sextug og amma rétt að verða
fertug. Þá hlýtur þér að hafa fundist
þú alveg hrikalega gömul þó svo að
sannarlega hafir þú það alls ekki ver-
ið það.
Það er margs að minnast á þessari
nærri þriggja áratuga samveru okk-
ar langömmu. Mér finnst ég einstak-
lega ríkur að hafa svo lengi haft að-
gang að langömmu. En
kynslóðabilið var stutt. Þú varst rétt
rúmlega 20 ára þegar þú eignaðist
Boggu ömmu. Amma einnig rétt um
tvítugt þegar hún átti mömmu og
mamma var alveg að verða 19 ára
þegar ég kom í heiminn. Við þrjú
elstu langömmubörnin þín, s.s. ég,
Inga og Ágústa, hljótum að hafa ver-
ið í pínuuppháhaldi hjá þér og við
nutum þess að vera svona aðeins
eldri heldur en langömmubörnin
sem komu síðar. Þú gerðir náttúr-
lega aldrei upp á milli langömmu-
barnanna heldur þótti þér alveg
jafnvænt um þau öll.
Mér er það sérstaklega minnis-
stætt þegar við bjuggum í blokkinni í
Fossheiðinni, þú á fyrstu hæðinni en
við í íbúðinni beint fyrir ofan. Þá var
vissulega oft farið í heimsókn til þín
og að sjálfsögðu var stutt að henda
okkur systkinunum í pössun til þín ef
þau ætluðu að líta út. Þó svo að við
flyttum síðar í Láengið fækkaði
heimsóknunum mjög lítið enda ekki
langt að hjóla. Ég man sérstaklega
eftir því að þegar við komum í heim-
sókn gafst þú okkur alltaf hafrakex,
smurt með smjöri og mjólk með. Þá
eru manni líka minnisstæðar jóla-
kökurnar sem þú bakaðir, síðan þá
hefur mig ávallt langað að kunna að
baka jólaköku eins og þú gerðir.
Síðan varð ég eldri og heimsókn-
unum fór fækkandi, hugðarefnin
urðu önnur en ég passaði ávallt upp á
að heimsækja þig reglulega, bæði í
Grænumörkina og síðar á Ljós-
heima, þó svo að ferðunum hafi
kannski verið farið að fækka óþarf-
lega mikið undir lokin. Ég heimsótti
þig síðast síðastliðinn aðfangadag og
það var fín stund þó svo að þú þekkt-
ir mig alls ekki. En þegar ég kvaddi
brostir þú, var það ánægjuleg stund.
En það var í síðasta skiptið sem við
hittumst, hefði ég vitað af því hefði
ég kannski kvatt þig enn betur en ég
gerði.
Að lokum langar mig að þakka þér
fyrir allar góðu samverustundirnar
og bið þig að skila kveðju til langafa
frá mér þar sem þið eruð nú loks
sameinuð eftir langan aðskilnað.
Megi góður guð geyma þig og varð-
veita vel eftir allt það góða sem þú
skildir eftir þig hér. Mig langar að
enda þetta á hluta af kvöldbæn sem
þú fórst svo oft með fyrir mig þegar
ég var hjá þér.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Minning þín lifir sem ljós í lífi okk-
ar
Þinn langömmustrákur
Baldur Gauti.