Morgunblaðið - 13.02.2009, Blaðsíða 39
Menning 39FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2009
HJÁTRÚARSÝNING Á TORGI
Kl. 19:00
Barnaleiðsögn um grunnsýninguna um hjátrú
Kl. 19:30
Leiðsögn um sýninguna Endurfundi
Kl. 20:00
Spilmenn Ríkínís leika og syngja þjóðlega
tónlist
Kl. 20:30
Stuttur fyrirlestur um hjátrú
Kl. 20:30
Barnaleiðsögn um grunnsýninguna um hjátrú
Kl. 21:00
Leiðsögn um sýninguna Endurfundi
Kl. 21:30
Stuttur fyrirlestur um hjátrú
Kl. 22:00
Spilmenn Ríkínís leika og syngja þjóðlega
tónlist
Opið 11-24
Suðurgata 41 · 101 Reykjavík · sími 530 2200 · www.thjodminjasafn.is · Opið alla daga vikunnar nema mánudaga kl. 11–17
Föstudaginn 13. febrúar verður fjölbreytt dagskrá
á Þjóðminjasafni Íslands í tengslum við Safnanótt.
Aðgangur ókeypis 17-24
HJÁTRÚ Á ÞJÓÐMINJASAFNINU Á SAFNANÓTT7 9 13
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
ÞEGAR talað er um að lýsa borgir,
dettur sennilega flestum í hug gamli
góði ljósastaurinn, þráðbein himna-
lengja sem lýsir sinn radíus sem
skarast við radíus næsta staurs, svo
við rötum okkar leið. Kannski að
einhverjum detti í hug flóðlýsing-
arnar eins og þær sem notaðar eru
til að lýsa upp framhlið Háskóla Ís-
lands, Þjóðleikhúsið og fleiri slíkar
byggingar.
En í dag, þegar 21. öldin er varla
búin að slíta barnsskónum, hefur
hugtakið „borgarlýsing“ fengið allt
annað inntak og merkingu, í takt við
nýja tækni, nýjar hugmyndir og nýj-
ar áherslur í lýsingu borga.
Borgin er frásögn
„Hver borg á sér sína frásögn, og
er frásögn í sjálfri sér,“ segir miðla-
listamaðurinn Alexander Stublic, og
þá frásögn má undirstrika á ýmsan
máta með annars konar lýsingu á
áhrifamikinn hátt.
Alexander Stublic er einn frum-
mælenda á ráðstefnu sem haldin
verður í Norræna húsinu í tilefni af
Vetrarhátíð frá kl. 13-18.30 á morg-
un, og á ráðstefnunni verður talað
um það hvernig hægt er að end-
urskapa hafnarborgir með hliðsjón
af þeim nýju hugmyndum um lýs-
ingu borgarlandslagsins sem Alex-
ander talar um.
Lýsingin dýpkar frásögina
Hann talar um frásögnina. Það er
frásögnin sem við upplifum í því um-
hverfi sem við þekkjum. Þar gerist
ýmislegt, þar er saga, þar eru minn-
ingar. Frásögnina má dýpka og und-
irstrika með nýju ljósi, þannig að
upplifun okkar dýpki, verði áhrifa-
ríkari og segi hugsanlega nýjar sög-
ur um það umhverfi sem við héldum
að við þekktum.
Það sem til þarf er hugmynda-
auðgi, listrænt innsæi, heill hell-
ingur af nýrri tækni, hönnun og
búnaður. Alexander tekur dæmi:
„Ný tegund af lýsingu bætir nýjum
þræði í vef borgarfrásagnarinnar,
sem getur líka lifað sjálfstæð í sín-
um eigin tíma og rúmi. Ef við
vinnum með frosið form, eins og
arkitektúr er hægt að blása arki-
tektúrinn upp með lýsingu eins og
við þekkjum svo vel, eða að nota
aðrar aðferðir við lýsinguna, aðferð-
ir sem eiga í samspili við annað í
umhverfinu og geta gert það að
verkun að skynjun okkar og upp-
lifun af byggingunni, eða staðnum,
verður ný.“
Ljósið þarf að hafa innihald
Saga þessarar þróunar er ekki
löng og Alexander miðar upphafið
við aldamótin, og kannski 2003, þeg-
ar fyrir alvöru var farið að lýsa upp
borgarlandslag samkvæmt nýju
hugmyndunum. „Grundvallaratriði
er að það sem lýst er er ekki eins og
einhvers konar skjár eða skermur,
heldur miðill. Í mínu tilfelli þróast
hugmyndirnar út frá vídeólist og ég
byggi verk mín á þeirri tækni.
Tækniþróunin á síðustu árum hefur
verið gríðarleg og gerir okkur kleift
að reyna nýjar aðferðir fyrir brota-
brot af þeim kostnaði sem áður
hlaust af tilraunum með lýsingu á
þennan hátt. Í mínum huga er þetta
vídeólist, sem skapar ljós og hreyf-
ingu, en ljósið verður að hafa inni-
hald,“ segir Alexander og áréttar
þetta með innihaldið. Það er þetta
sem gerir nýju lýsingarhugmynd-
irnar frábrugðnar steinrunnum
ljósastaur. Ég skoða mynd af ljós-
verki Alexanders þar sem hann nýt-
ir tækni vídeólistarinnar til að skapa
verk á byggingu sem stendur við
sjó. Það er einmitt sjórinn sem
skiptir höfuðmáli þar sem bárurnar
skapa mynstrið sem gárast á gleri
og stáli byggingarinnar, sem þar
með er orðinn þátttakandi í sjón-
arspilinu þar sem hafið og byggðin
mætast, flöktandi báran kveikir líf í
köldum strúktúrnum.
Þverfaglegur hópur fólks
Guja Dögg Hauksdóttir fram-
kvæmdastjóri ráðstefnunnar segir
mér að þeir sem vinni í þessari nýju
grein ljósahönnunar borga, komi úr
ýmsum greinum og hafi ólíkan bak-
grun. Þar er fólk sem unnið hefur
við lýsingu í leikhúsi, myndlist-
armenn, arkitektar, verkfræðingar,
tæknifólk og hönnuðir og þeir sem
tala á ráðstefnunni endurspegla þá
fjölbreytni. Hún segir þessa þróun
ákaflega spennandi. „Þetta snýst
ekki bara um það að fá hundrað vött
í hausinn svo maður sjái hvert mað-
ur er að fara. Fókusinn fjarlægist
það að lýsa upp einstaka punkta, yf-
ir í það að vinna lýsingu fyrir stærri
rými og á milli húsa. Það eiga að
vera ævintýri í þessu.“
Guja Dögg nefnir dæmi um mis-
heppnaðar tilraunir til borgarlýs-
ingar í Reykjavík, litaröndina á
Skothúsvegarbrúnni og túl-
ípanalampana sem spretta upp í
miðbænum þegar eitthvað stendur
til. „Á ráðstefnunni verða kynnt
verkefni í lýsingu sem hafa heppn-
ast vel, bjóða upp á ríkari upplifanir
og þola lengra líf í borgarrýminu.“
Ljós í
nýju ljósi
Roger Narboni Göngustígur í franskri borg. Græna hnitið skapar andstæðu við ljóðræna speglun hvolfþaksins.
Elinor Coombs Ljósabörn geta vissulega glatt augað í grárri borg.
Alexander Stublic Byggingin miðlar bárunum á haffletinum fyrir neðan. Engu er líkara en að húsið ætli á haf út.
Ráðstefnan Endursköpun hafnarborga verður
haldin í Norræna húsinu á morgun, á miðri
Vetrarhátíð. Þar verður upplýst hvernig
nýjar hugmyndir um lýsingu borga geta
dýpkað frásögn borgarlandslagsins.
Nemendur í fornámsdeild
Myndlistarskólans í Reykjavík,
sem hafa verið að vinna undir
stjórn Finns Arnars Arnarsonar
og Ólafar Nordal verða með
ljósainnsetningu í Vatnsmýrinni
í framhaldi af ráðstefnunni, eða
þegar dimma tekur.
Frummælendur á ráðstefn-
unni eru Jürgen Hasse prófess-
or í Berlín, Deike Canzler arki-
tekt í Stokkhólmi, Roger
Narboni ljósahönnuður í Frakk-
landi, Elinor Coombs ljósahönn-
uður í London, Alexander Stu-
blic miðlalistamaður í Berlín og
Jeroen Everaert myndlist-
armaður í Hollandi.
Verði ljós
í Vatnsmýrinni