Morgunblaðið - 13.02.2009, Síða 40
40 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 2009
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
ÞEGAR tilkynnt var um að hinar vinsælu sjón-
varpskonur Eva María Jónsdóttir og Ragnhildur
Steinunn Jónsdóttir myndu leiða saman sjarma-
hesta sína í forkeppni Evróvisjón runnu tvær
grímur á suma. Myndu þær ná saman? Eða yrði
þetta nokkurs konar valdabarátta? Hið fyrr-
nefnda varð ofan á og það heldur betur. Tvíeykið
hefur verið á miklu flugi allt frá byrjun og haldið
uppi rennsli þáttanna þegar misgáfuleg lög hafa
ætlað að bera hann ofurliði. Á milli þeirra hefur
verið telepatískt grallarasamband sem skilar sér
óhindrað inn í stofur landsmanna.
„Við þekktumst áður, en bara af því að við vor-
um að vinna í sama húsi,“ útskýrir Eva í símann á
miðjum handahlaupum í undirbúningi lokaþátt-
arins sem fram fer á morgun.
„Við komumst svo að því, okkur báðum til
furðu, að við erum andlegar systur. Og höfum
flissað mikið og hlegið í öllum undirbúningnum.
Það er auðvitað þægilegt að vinna með manneskju
þar sem samskipti eru óheft og án allrar stífni. Við
erum þá saman öllum stundum utan vinnu líka, ég
er t.d. að kenna Ragnhildi að drekka kaffi um
þessar mundir.“
Falleg keppni
Vinkonurnar hafa líka vakið athygli fyrir glúrið
fataval og eru afskaplega samstiga í þeim efnum.
„Fyrsti „búningurinn“ sem við vorum í var
reyndar gagnrýndur mjög harkalega af öllum,
áhorfendum sem innanbúðarfólki,“ segir Eva
María og hlær. „Þannig að nú lítur yfirútlitshönn-
uður sjónvarpsins eftir okkur og passar að við
séum snyrtilegar til fara.“
Eva María segir að lagt hafi verið upp með að
vera léttar og kátar.
„Auðvitað er ekki hægt að taka þetta graf-
alvarlega en um leið elskum við þessa keppni af
öllu hjarta eins og svo margir. Það er það sem er
svo fallegt við hana. Við vorum báðar í vinkonu-
hópum í gamla daga þar sem legið var yfir mynd-
bandsupptökum af keppnunum. Þannig að það var
hægur vandi fyrir okkur að gefa okkur svona í
þetta.“
Systur í (Evróvisjón) anda
Eva María og Ragnhildur Steinunn hafa farið mikinn í kynnastarfinu
í Evróvisjón Sprellandi fjörug útgeislunin hefur hitt heila þjóð í hjartastað
Morgunblaðið/Eggert
Samloka „Við komumst svo að því, okkur báðum til furðu, að við erum andlegar systur,“ segir Eva
María Jónsdóttir um samstarf hennar og Ragnhildar Steinunnar.
Einar Þurfti ekki
mikið glaðloft
við fæðingu
dóttur
sinnar.
Lýstu eigin útliti. Sjá mynd …
Ætlar þú á rústað (spyr síðasti að-
alsmaður, Kristín Eysteinsdóttir leik-
stjóri)? Það er alveg hugsanlegt.
Hvað uppgötvaðir þú síðast um sjálf-
an þig? Að þegar ég vel erfiðari leið-
ina gengur mér alltaf betur.
Hvað tekurðu mikið í bekk?
Ég leggst reglulega á nuddbekk,
hinsvegar orðið mjög langt síðan ég
lyfti einhverju það þungu að það
mælist …
Styðurðu ríkisstjórnina? Ég styð lýð-
ræði.
Uppáhaldslið í ensku knattspyrn-
unni? Manchester United.
Hversu pólitískur ertu á skalanum 1
til 10? Ég held að það sé ekki hægt að
mæla slíkt á skala. Hafa ekki allir ein-
hverja skoðun á málunum?
Erfiðasti viðmælandinn?
Viðmælendur eru ekki erfiðari en
fréttamaður leyfir þeim að komast
upp með. En sumir stjórnmálamenn
virðast halda að þeim sé farsælast að
svara sem minnstu.
Vandræðalegasta augnablikið í út-
sendingu? Ég mætti einu sinni of
seint á morgunvakt til að leysa Pálma
Jónasson af. Var dálítið seinn í gang
að berja saman fréttatímann. Þegar
ég loks hljóp af stað inn í hljóðver var
fréttastefið að byrja og ég hafði
gleymt að kíkja á hvernig innkynn-
ingin átti að vera kl. 07, en það eru
staðlaðar kynningar á morgnana og
mikilvægt að hafa þetta rétt. Ég
treysti því á tölvuskjáinn fyrir framan
mig og las af honum textann hans
Pálma án þess að hugsa. „Fréttastofa
útvarpsins, morgunfréttir les Pálmi
Jónasson“. Ég var ekkert að hafa fyr-
ir því að leiðrétta þetta við hlustendur
enda frekar kjánalegt að vita ekki
hvað maður heitir.
Er það satt að sjónvarpið bæti nokkr-
um kílóum við?
Ég held ekki. En sumir sjónvarps-
menn eru bara allt of feitir.
Útvarp eða sjónvarp?
Útvarp er miðill 21. aldarinnar, þar
starfar granna og fallega fólkið.
Hver eru þín mestu mistök?
Að hafa samþykkt að fara í leitarflug
með Landhelgisgæslunni. Það var
eins og að vera í 5 tíma inni í þvottavél
og við fundum ekkert.
Og þinn stærsti sigur?
Að hafa ekki þurft mikið glaðloft við
fæðingu dóttur minnar.
Wham eða Duran Duran?
Duran.
Eigum við (Íslendingar) von?
Ég vona það. Það hlýtur að vera.
Besta platan? Ég á svo erfitt með að
gera upp á milli, nefni frekar tvö
nöfn, Dylan og Young.
Uppáhaldsbókin? Á náttborðinu er
Ofsi eftir Einar Kára, Saga Eim-
skipafélagsins, ævisaga Obama og
uppeldisbókin The No Cry Dicipl-
ine Solution. Segir þetta eitthvað?
Hver yrði titillinn á kvikmynd um
ævi þína? Bigger than Jesus.
Hver myndi leika aðal-
hlutverkið?
Jesús.
Hvers viltu spyrja næsta viðmæl-
anda? Hvort er betra lakkrís eða
hlaup?
EINAR ÞORSTEINSSON
AÐALSMAÐUR VIKUNNAR ER FRÉTTAMAÐUR HJÁ RÍKISÚTVARPINU.
HANN ÞYKIR HAFA STAÐIÐ SIG VEL Í AÐ FLYTJA FÓLKINU Í LANDINU
FRÉTTIR Í ÖLLUM HAMAGANGINUM UNDANFARNA MÁNUÐI.
Fólk
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„OKKUR hefur lengi langað til að búa
til einhvers konar þema í kringum
mix-diska, og okkur langaði til að gera
það veglega. Við erum að bjóða fólki uppá
mix-diska seríu, og búa til stemningu í kring-
um það. Hönnunin á hulstrum fyrir alla
diskana er svo í höndum hönnuðar frá Kronk-
ron,“ segir Benedikt Freyr Jónsson, plötusnúð-
ur og tónlistarmaður, betur þekktur sem Benni
B-Ruff. Á morgun mun hann og Gísli Galdur
Þorgeirsson standa fyrir partíi í Kronkron við
Laugaveg, en tilefni þess er útgáfa á fyrsta
mix-disk þeirra félaga af fjórum. Ákveðið
þema er á hverjum diski, og munu þeir byrja
á danstónlistinni. „Svo tökum við fönk, soul og
smá afró, svo förum við í hipp hopp og R&B,
og endum svo með rosalega veglegu partíi þar
sem við verðum með íslenska tónlist,“ segir
Benni, en hver diskur kemur út með u.þ.b.
tveggja mánaða millibili og kemur sá síðasti
því líklega út í september.
Aðspurður segir Benni vissulega erfitt að
velja tónlist fyrir svona diska. „Það er alltaf
þannig að maður vill hafa meiri tónlist en mað-
ur getur. Við ætluðum til dæmis að hafa fyrsta
diskinn 60 mínútur en enduðum í 79,8 mín-
útum,“ útskýrir hann. Þeir félagar ætla að
spila diskinn í heild sinni í partíinu á morgun,
en það hefst kl. 21 og verða veitingar í boði.
„Þetta verður svaka partí, og þetta mun fljóta
inn í sumarið,“ segir Benni að lokum.
Grein Sigurðar Líndal lagapró-
fessors sem birtist í Fréttablaðinu
hinn 7. febrúar síðastliðinn vakti at-
hygli fyrir margra hluta sakir. Þar
fer prófessorinn yfir stöðu stjórn-
skipunar í landinu og má af orðum
hans ráða að ofurvald ráðherra sé
lýðræðinu til trafala.
Í síðustu málsgrein greinarinnar
segir hins vegar: „En fátt stendur
þó lýðræðinu meira fyrir þrifum en
ofurvald afþreyingariðnaðarins.
Áhrif hans birtast ekki sízt í firr-
ingu þannig að menn losna úr
tengslum við umhverfi sitt og ber-
ast inn í sýndarveruleika. Nýjustu
birtingarmyndir hennar eru pott-
lokaglamur undir stjórn rokkara
og rappara, sem leyst hefur rök-
ræðuna af hólmi og þá er stutt í að
bareflin taki við af sleifunum.“
Djass-trommarinn Matthías
Hemstock sá sig knúinn til að svara
þessum fullyrðingum í grein á leið-
araopnu blaðsins í gær. Fleiri svar-
greinar tónlistarmanna úr rokk- og
rappgeiranum hljóta að vera í bí-
gerð.
Allt rokkurum og
röppurum að kenna
Fjölmiðlar hafa ekki farið var-
hluta af plögg-stríðinu sem nú geis-
ar í kringum Söngvakeppnina.
Keppendur beita öllum tiltækum
ráðum til að koma sér í blöðin og á
engan er hallað þegar því er haldið
fram að þar fari fremstur í flokki
Valli nokkur Sport. Valli þessi sér
um kynningarmál Elektru en vakti
athygli hér á árum áður sem út-
varpsmaður og síðar stjórnandi
sjónvarpsþáttarins Með hausverk
um helgar. Valli sá um kynning-
armál Mercedes Club fyrir síðustu
keppni og fór honum það vel úr
hendi þó að segja megi að líkt og
bankarnir hafi sveitin riðað til falls
þegar í ljós kom að engin innstæða
var fyrir velgengninni. Vonandi
bíða sömu örlög ekki Elektru.
Munu úrslitin ráðast
í fjölmiðlum?
Eitt af stelpupörum Evu Maríu og Ragnhildar var
að lóðsa vindvél mikla inn í einn þáttinn, en slíkt
tæki var mikið brúkað þegar „eitís“-menningin
stóð sem hæst til að gefa flutningi laganna
dramatíska vigt og blés þá stríður vindur um hár
flytjendanna.
„Það var mikið lagt á sig til að grafa þessa
góðu vél upp,“ segir Eva María. „Við lögðumst í
miklar rannsóknir á þessu fyrirbæri, leituðum að
sögu hennar og uppruna. Það fór um mann
nostalgískur sæluhrollur þegar hún var loks sett
í gang fyrir okkur stöllurnar og við fengum að
flagga hárinu okkar í þessu hjálpartæki popps-
ins!“
Vindvélin ógurlega
Gera fjóra mix-diska á átta mánuðum
Benni og Gísli Þeir félagar ætla að halda
uppi miklu fjöri í Kronkron á morgun.