Morgunblaðið - 05.03.2009, Síða 16

Morgunblaðið - 05.03.2009, Síða 16
16 FréttirERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MARS 2009 GEIMVÍSINDASTOFNUN Bandaríkjanna, NASA, hyggst skjóta á loft flaug með nýjum sjónauka sem á að geta fundið jarðstjörnur, þ.e. reiki- stjörnur sem líkjast jörðinni, fyrir utan sólkerfi okkar. Gert er ráð fyrir því að sjónaukanum verði skotið á loft með burðarflaug frá Canaveral-höfða laust fyrir klukkan fjögur í nótt að íslenskum tíma. Geimsjónaukinn Kepler á að kanna yfir 100.000 stjörnur, sem líkjast sól- inni, til að finna reikistjörnur þar sem líklegt er að vatn geti verið á yf- irborðinu og líf geti þrifist, þ.e. reikistjörnur sem eru hvorki of heitar né kaldar. bogi@mbl.is NASA hyggst skjóta sjónauka í geiminn aðfaranótt föstudags, en hann á að leita að reikistjörnum á stærð við jörðina á svæðum þar sem líf ætti að geta þrifist, þ.e. svæðum sem eru hvorki of heit né köld. GEIMSJÓNAUKINN KEPLER Heimild: NASA Þyngd við geimskot: 1.053,4 kg Ljósmælir: Er með mjög næman 95 megapixla myndnema. Þetta verður stærsta myndavél sem NASA hefur flutt í geiminn Kostnaður: Um 600 milljónir $ Lengd 4,7 m Þvermál: 2,7 m Ljósmælir sjónaukans verður notaður til að mæla örlitlar breytingar sem verða á birtu stjörnu þegar reikistjarna fer framhjá fyrir framan hana, þ.e á milli hennar og jarðar. Það er nær ógjörningur að leita að reikistjörnum á stærð við jörðina með sjónaukum á jörðinni vegna þess að lofthjúpurinn bjagar myndirnar Kepler mun aðeins leita á einu stóru svæði í stjörnumerkjunum Svaninum og Hörpunni Sjónsvið Keplers Nefndur eftir þýska stjörnufræðingnum Jóhannesi Kepler (1571-1630), en kenningar hans áttu stóran þátt í að festa sólmiðju-kenninguna í sessi. Stjörnumyndavél Loftnet með mikla mögnun Geislagjafi Sólhlíf Hreyfileiningar GEIMFLAUG FJARLÆGÐ LÍFVÆNLEGRA SVÆÐA FRÁ STJÖRNUM Skotið frá: Canaveral-höfða í Flórída Sporbrautartími: 371 dagur Tímalengd ferðar: 3,5 ár (e.t.v. 6 ár) Geimskot mögulegt á tímabilinu 5. mars til 9. júní Burðarflaug: Delta II 7925-10L Ljósmælir Svanurinn Harpan Heitari stjörnur Lífvænlegt svæði Stjörnur sem líkjast sólinni Vetrarbrautin Kaldari stjörnur Leitað að jarðstjörnum VORIÐ er á næsta leiti í París eins og sjá má á þessum krókusum eða dvergliljum, sem kinka sínum litfagra kolli til vegfarenda skammt frá Eiffelturninum. Á sama tíma var stórhríð með áfreðum í Skotlandi, allt að 25 cm jafnfallinn snjór í Glasgow og Edinborg. Þessa vetrar verð- ur líklega ekki minnst fyrir nein aftök en snjóa- samur hefur hann verið. Í Ölpunum og í Noregi hefur ekki snjóað meira í mörg ár. AP Krókusarnir boða betri tíð Ráðherrarnir höfðu „ofmetn- ast“ af völdunum og hegðuðu sér oft með „ósæmi- legum“ hætti. Þessa skýringu gaf Raul Castro, forseti Kúbu, á mikilli upp- stokkun í stjórn landsins en alls var skipt um menn í 12 ráðherra- embættum. Mesta athygli vekur brottvikning Felipe Perez Roque utanrík- isráðherra og Carlos Lage ráðuneyt- isstjóra en hann komst næstur því að gegna embætti forsætisráðherra. Perez Roque var alla tíð mjög náinn Fidel Castro, bróður Rauls, og voru þeir báðir, hann og Lage, oft nefndir sem líklegir eftirmenn Fidels. Uppstokkunin, sú mesta í sögu kommúnistaflokksins, hefur vakið vonir um meiri breytingar, t.d., að leyfður verði rekstur fleiri einkafyr- irtækja. Í yfirlýsingu frá Fidel Castro, fyrrverandi forseta, segir, að breytingarnar hafi verið nauðsyn- legar og hann neitar því, að með þeim hafi verið skipt út „mönnum Fidels“ fyrir „menn Rauls“. svs@mbl.is Raul rekur ráðherra Sagði þá hafa of- metnast af völdunum Raul Castro, forseti Kúbu. Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is ÓLÍKLEGT þykir að Omar al- Bashir, forseti Súdans, hrökklist frá völdum á næstunni þótt Al- þjóðasakamáladómstóllinn í Haag hafi í gær gefið út tilskipun um handtöku hans vegna ásakana um glæpi gegn mannkyninu og stríðs- glæpi í Darfur-héraði. Er þetta í fyrsta skipti sem dómstóllinn krefst handtöku sitjandi þjóðhöfðingja. Stjórn Súdans kvaðst ætla að virða tilskipunina að vettugi. Tals- maður dómstólsins sagði að ef yf- irvöld í Súdan handtækju ekki al- Bashir yrði málinu skotið til örygg- isráðs Sameinuðu þjóðanna. Arababandalagið varaði við því að handtökutilskipunin gæti haft „al- varlegar afleiðingar“ fyrir frið- arumleitanir í Darfur. Afríku- sambandið hefur einnig hvatt til þess að öryggisráðið ógildi tilskip- unina og rússnesk stjórnvöld sögðu hana skapa „hættulegt fordæmi“. Hefur tögl og hagldir í hernum Alþjóðasakamáladómstóllinn hef- ur ekki vald til að framfylgja tilskip- uninni, en hugsanlegt er að forsetinn verði handtekinn ef hann ferðast til ríkis sem hefur undirritað stofnsátt- mála dómstólsins. Al-Bashir er 65 ára og hefur verið við völd í tæp tuttugu ár, eða frá valdaráni hersins 30. júní 1989. Fréttaskýrendur telja litlar líkur á því að handtökutilskipunin verði til þess að al-Bashir missi völdin og verði framseldur til Haag. Hann hef- ur haft tögl og hagldir í hernum og ólíklegt er að undirmenn hans steypi honum af stóli vegna þess að þeir eiga einnig yfir höfði sér ákærur fyr- ir stríðsglæpi í Darfur. Ætla að hunsa tilskipunina Talið að forseti Súdans haldi völdunum þrátt fyrir ákæru um stríðsglæpi Reuters Harðstjóri Omar al-Bashir hefur verið ákærður fyrir stríðsglæpi. ÍTALIR senda að meðaltali 50 smá- skilaboð úr farsím- um sínum á mán- uði og eru þar með sæti á eftir Bret- um sem senda flest slík skilaboð meðal Evrópuþjóða. Nú hefur ítalski erkibiskupinn af Modena mælt með því að ungir kaþólikkar hætti að senda smáskilaboð og hætti jafnframt að nota samskiptavefi á netinu og tölvu- leiki meðan á páskaföstunni stendur. Slíkt myndi auðvelda ungmenn- unum að „hreinsa sig af sýndarveru- leikanum og komast aftur í samband við sig sjálf,“ að sögn Benito Cocchi erkibiskups. Yfirlýsing biskupsins hef- ur hlotið góðan hljómgrunn meðal starfsbræðra hans en biskupinn í Trent, Luigi Bressan, hefur einnig mælt með því að fólk noti föstuna til að tileinka sér endurvinnslu, t.d. með því að hætta að drekka vatn á flöskum og snúa sér að kranavatni. jmv@mbl.is Fastað í tækniveröld Upptekinn Á tali á föstunni? DÖNSK stjórnvöld hafa nú til athug- unar að stórherða refsingar í ofbeld- is- og morðmálum þegar um er að ræða félaga í glæpagengjum. Að undanförnu hefur geisað stríð á götum Kaupmannahafnar og stendur það einkum milli svokallaðra Helj- arengla og glæpaflokka innflytjenda. Vegna þess hefur stjórnin lagt fram frumvarp þar sem segir, að viðurlög við morði í þessu glæpaflokkastríði skuli vera lífstíðarfangelsi en ekki 21 ár eins og nú er mest. Lögreglunni verður gert auðveld- ara að koma mönnum í gæslu- varðhald og heimilt verður að beita hlerunum í málum, sem snerta brot á vopnalögum. Þá fær lögreglan einnig vald til að banna mönnum að dveljast í ákveðnum hverfum að viðlögðum fangelsisdómi. svs@mbl.is Refsingar stórhertar Beint gegn dönskum glæpaflokkum Aðalsaksóknari Alþjóðasaka- máladómstólsins (ICC) í Haag hef- ur sakað Omar al-Bashir um að hafa fyrirskipað her Súdans að tortíma þremur þjóðernishópum í Darfur. Dómstóllinn ákvað þó að ákæra ekki al-Bashir fyrir þjóð- armorð. Embættismenn Sameinuðu þjóðanna segja að stríðið í Darfur hafi kostað allt að 300.000 manns lífið frá því að það hófst árið 2003. Saksóknarar ICC segja að her Súdans og arabískar vígasveitir hafi hrakið 2,7 milljónir manna á flótta og þar af hafi um 100.000 dáið úr hungri eða af sjúkdómum sem raktir eru til flóttans. Hröktu 2,7 milljónir manna á flótta

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.