Morgunblaðið - 18.04.2009, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2009
Í GEGNUM tíðina
hefur Framsókn-
arflokkurinn lagt
áherslu á fjölbreytta at-
vinnu og beitt sér fyrir
því að skapa fyr-
irtækjum jákvæð
starfsskilyrði.
Nú sem aldrei fyrr
þarf að skapa þannig
rekstrarumhverfi að
fyrirtæki hafi aðgang
að lánsfé og að skattaumhverfi sé
hagstætt.
Tafalausar afskriftir skulda hjá
litlum og meðalstórum fyr-
irtækjum kæmu fjölda þeirra strax
til góða og virkaði sem hvati fyrir
atvinnulífið. Daglega fara um tíu
fyrirtæki í þrot og gera má ráð
fyrir að um 3.300 fyrirtæki verði
gjaldþrota innan árs. Áhrifin ná til
tugþúsunda heimila með hörmu-
legum afleiðingum.
En hvað hafa stjórnvöld gert til
að sporna við þessari fyrirséðu
þróun? Atvinnulífið hefur mán-
uðum saman kallað eftir raunhæf-
um aðgerðum sem láta enn á sér
standa.
Það virðist vera auðvelt að gera
mikið úr litlu eða engu þegar Sam-
fylkingin lætur verkin tala í þess-
um málaflokki.
Er sá flokkur virkilega sáttur og
stoltur af þeim lista sem birtur
hefur verið og kallast aðgerðir í
þágu atvinnulífs?
Þar er lítið sem ekkert
bitastætt á ferðinni.
Að hluta er enn verið
að vinna í því sem upp er
talið og annað var farið
af stað í tíð verklítillar
ríkisstjórnar sem áður
sat. Skiptir það sköpum í
atvinnumálum þjóð-
arinnar að Íbúðalána-
sjóður veitir lán til við-
halds íbúða? Bjargar það
mörgum að fá virð-
isaukaskattinn end-
urgreiddan af þeim við-
gerðum?
Talað er um að leita leiða til að
örva fjárfestingu og skapa ný störf
– er það eitthvað nýtt? Kemur
þetta þeim þúsundum fyrirtækja
sem eru að sigla í þrot til góða hér
og nú? Fjallað er um að vinna eigi
gegn atvinnuleysi en að mínu mati
er það ófrávíkjanleg skylda stjórn-
valda og þarf vart að telja það upp
sérstaklega, nema þá til að lengja
aðgerðalistann.
Ég vil lýsa yfir ánægju minni
með þá ákvörðun að meta eigi
áhrif efnahagsástandsins á stöðu
kynjanna en tel þá athugun ekki
tilheyra björgunaraðgerðum í at-
vinnumálum.
Ég óttast að núverandi stjórn-
arflokkum finnist nægilega að gert
en við framsóknarmenn metum
stöðuna þannig að erfiðleikar at-
vinnulífsins sé stórlega vanmetnir.
Hvar eru úrræðin
sem atvinnulífið
hefur beðið eftir?
Eftir Fannýju
Gunnarsdóttur
Fanný
Gunnarsdóttir
Höfundur skipar 4. sæti Framsóknar
í Reykjavík norður.
Ný og spennandi verslun
opnar í Smáralind í dag
Flot
t
opnu
nar-
tilbo
ð!
Við bjóðum ítalska skó, töskur og fleira
fallegt sem fær hjörtu kvenna til að slá
hraðar. Komdu og líttu á úrvalið.
Framkvæmda- og eignasvið Reykjavíkurborgar ı Borgartúni 12-14 ı www.reykjavik.is/fer
Tökum vel
á móti vorinu
Reykjavíkurborg hvetur borgarbúa til að taka höndum saman við að hreinsa til í borginni eftir
veturinn og taka á móti vorinu með bros á vör. Reykjavíkurborg mun í ár ekki fjarlægja
garðúrgang og greinaafklippur sem skilin eru eftir við lóðamörk. Kallað er eftir auknu
frumkvæði og ábyrgð borgarbúa og vakin athygli á því að endurvinnslustöðvar Sorpu taka við
garðaúrgangi og greinaafklippum íbúum að kostnaðarlausu.
Hvetjum til dáða með eigin frumkvæði.
Með því að hreinsa rusl, snyrta tré og runna í garðinum okkar hvetjum við aðra til að taka til
hendinni. Stígum skrefinu lengra og tínum rusl utan girðingar, við næsta göngustíg eða á
nálægu útivistarsvæði. Hreinsunardagur í götunni eða í hverfinu býður upp á skemmtilega
samveru. Notum hugmyndaflugið og gerum tiltektina að skemmtilegu verkefni.
Nánari upplýsingar á reykjavik.is/fer og í síma 411 1111.