Morgunblaðið - 18.04.2009, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2009
SÓPRANSÖNGKONAN Alexandra
Chernyshova heldur útgáfutónleika
í Salnum í Kópavogi á morgun,
sunnudaginn 19. apríl, kl. 17. Jónas
Ingimundarson leikur undir á píanó.
Þau flytja lög af nýjum geisla-
diski, Draumur – rómantísk lög eftir
Sergei Rachmaninov.
Söngkonan flytur mörg kunnustu
lög rússneska tónskáldsins Sergei
Rachmaninovs fyrir sópran, róm-
antísk sönglög sem fjalla meðal ann-
ars um ást, náttúru og sársauka.
Guðrún Ásmundsdóttir leikkona
kemur fram og les ljóðin við söng-
lögin en þau eru þýdd af Árna Berg-
mann, sem einnig les og kynnir.
Alexandra er fædd í Kíev í Úkra-
ínu árið 1979. Hún lauk píanónámi
árið 1993, fór þá í söngnám í tónlist-
arháskólanum Glier í Kíev og lauk
því árið 1998.
Árið 1997 söng Alexandra sitt
fyrsta aðalhlutverk í óperunni í
Kiev, 18 ára að aldri. Um skeið var
hún einsöngvari með Úkraínsku út-
varpshljómsveitinni. Árið 2002 var
Alexandra valin besta nýja óperu-
röddin í keppninni „Nýtt nafn í
Úkraínu“. Síðar það ár tók hún þátt í
alþjóðlegri keppni óperusöngvara í
Grikklandi og hafnaði í fjórða sæti,
yngst keppenda.
Síðla árs 2003 fluttist Alexandra
til Íslands. Hún hefur haldið rúm-
lega þrjátíu einsöngstónleika hér,
sungið með karlakórunum Heimi og
Hreimi, og gaf út sinn fyrsta geisla-
disk árið 2006. Síðar það ár stofnaði
hún Óperu Skagafjarðar sem setti
upp óperuna La Traviata þar sem
Alexandra söng hlutverk Violettu.
Ópera Skagafjarðar er þessa dagana
að æfa óperuna Rigoletto. Alex-
andra er listrænn stjórnandi óp-
erunnar og kórstjóri óperukórsins.
Alexandra fékk úthlutuð sex mán-
aða starfslaun listamanna á þessu
ári og notar tímann meðal annars til
að setja upp tvær einsöngsóperur í
haust; bresku óperuna Telephone og
rússnesku óperuna Waiting.
Söngkonan Alexandra Chernyshova.
Salurinn í Kópavogi
Útgáfu-
tónleikar
Alexöndru
ókeypis smáauglýsingar mbl.is
Í FULLUM GANGI Í PERLUNNI
OPIÐ ALLA DAGA FRÁ 10 - 18
VERIÐ VELKOMIN OG NJÓTIÐ FRÁBÆRS ÚTSÝNIS OG GÓÐRA VEITINGA Í VEITINGASAL PERLUNNAR
Sími: 561-4114
Frá 9. apríl til 3. maí
G Í F U R L E G T Ú R VA L A F Ö L L U M T E G U N D U M T Ó N L I S TA R
R O K K - P O P P - K L A S S Í K - B L Ú S - K Á N T R Ý - S LÖ K U N A R T Ó N L I S T- Þ Ý S K , S K A N D I N AV Í S K O G Í R S K T Ó N L I S T
O G A Ð S J Á L F S Ö G Ð U A L L I R N Ý J U S T U T I T L A R N I R Á B ET R A V E R Ð I E N Þ Ú ÁT T A Ð V E N J A S T
Rau›arárstígur 14, sími 551 0400 · www.myndlist.is
Opið í Galleríi Fold á Rauðarárstíg, virka daga 10–18,
laugardaga kl. 11–16 og sunnudaga kl. 14–16
Ragnhildur Þóra Ágústsdóttir
„Memento Mori“
Opnun laugardaginn 18. apríl kl. 15
Allir velkomnir
Þér er boðið á sýningu
Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu