Morgunblaðið - 18.04.2009, Page 64
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. APRÍL 2009
DULARFULLIR, óvæntir hlutir eru allt of sjald-
gæfir í kvikmyndaheiminum og eru því enn meira
fagnaðarefni fyrir vikið þá þeir stinga upp kollinum.
Hver hefði til dæmis trúað því að Svíar væru að slá í
gegn með hrollvekju á heimsmælikvarða? Höfum
hugfast að hryllingsmyndin þjáist ekki af blóðleysi,
hún er sívinsæl en einkum á meðal unglinga og yngri
aldurshópa. Kvikmyndaframleiðendur vita að þeir
eru ekki að veðja á kröfuharðasta markaðinn og venj-
an sú að myndir af þessari ómissandi kvikmynda-
grein eru að öllu jöfnu subbulegt B-myndamoð.
Evrópskir kvikmyndagerðarmenn hafa lagt meira
í hrollinn en kollegar þeirra vestan hafs, ekki síst
Spánverjar, og nýjasti stórhrollurinn kemur úr
sænsku vetrarríki, af öllum stöðum, og vottar hvergi
fyrir velferðarríkinu. Låt den rätta komma inn fjallar
um vináttu sem skapast á milli tveggja utangarðs-
unglinga í vesælu hverfi í Stokkhólmi. Þar rísa frá-
hrindandi bæjarblokkir upp úr köldum freranum,
það er vetur og myrkt yfir landi og lýð. Óskar (Hede-
brant), er 12 ára nemandi sem á í hrikalegum, fé-
lagslegum erfiðleikum. Það fer lítið fyrir ást og um-
hyggju í þessu hverfi, Óskar er hornreka, hvort sem
er á hans eigin heimili eða í skólanum.
Nýr nágranni, stúlkan Eli (Leandersson), breytir
lífi Óskars til hins betra. Enginn veit hvaðan hún
kemur, það er eitthvað leyndardómsfullt og ógnandi í
fari hennar og hegðunin harla óeðlileg. Hún fúlsar við
mat, kann best við sig í rökkrinu, þolir illa sólskin og
það verður að nálgast hana með varúð.
Því verður ekki neitað að Låt den rätta komma inn
er hrottaleg og ljót en þessi nýjasti meiður á gamalli
kvikmyndagrein er í aðra röndina falleg ástarsaga
undirmálsunglinga sem er hafnað af samfélaginu og
svellandi hefndarorgía sem gleður þá áhorfendur
sem á annað borð þola myndina, og það er full ástæða
til að vara viðkvæma við ofbeldinu og óhugnaðinum.
Hér er tekið til meðferðar einelti, alvarlegt, fé-
lagslegt vandamál sem hvarvetna er að finna á
byggðu bóli. Lausnin sem Låt den rätta komma inn
býður upp á er vitaskuld hreinræktuð fantasía sem
lýtur hrollvekjuforminu. En hún er frumleg og sam-
bandið á milli utangarðsbarnanna víkur ekki svo glatt
frá manni. Það er hræðileg dulúð yfir Eli, sem er hin
aldurslausa vampíra, eilíflega blóðþyrst og kvalin og
finnur nýjan verndara til að annast sig í linnulausri,
aldalangri leit að blóðmiklum slagæðum.
Þegar upp er staðið situr í manni kuldahrollur og
sjálfsagt ofbýður viðkvæmum sálum, en Låt den
rätta komma inn er líkingasaga, seiðmagnaður
ófögnuður með ríka réttlætiskennd fyrir hönd lít-
ilmagnans sem hún hefur óskipta samúð með og lýsir
einmanaleikanum og höfnuninni öllu öðru betur.
Tæknilega vel gerð, frábærlega kvikmynduð og leik-
stýrt og unglingarnir í aðalhlutverkunum smellpassa
svo í hlutverkin að þau líta ekki út fyrir að vera af
þessum heimi.
Sambíóin Kringlunni
Låt den rätta komma inn - Let the Right One In
bbbbn
Leikstjóri: Tomas Alfredson. Aðalleikarar: Kare Hede-
brant, Lina Leandersson, Per Ragnar, Henrik Dahl. 115
mín. Svíþjóð. 2008.
SÆBJÖRN
VALDIMARSSON
KVIKMYND
Hrottaleg „Því verður ekki neitað að Låt den rätta inn, er hrottaleg og ljót en þessi
nýjasti meiður á gamalli kvikmyndagrein er í aðra röndina falleg ástarsaga...“
Vampíran og verndarinn
Endirinn er engu líkur, þó kom upp í hugann lokaatriðið í Nútímanum eftir meist-
ara Chaplin, þegar litli flækingurinn leiðir draumadísina sína inn í sólsetrið, alls-
laus en alsæll og ástfanginn. Ég ætla að leyfa lesendum að upplifa hina fullkomnu
andstæðu þess sólsetursljóðs í hinni rammgöldróttu Låt den rätta komma inn.
Þess má geta að lokum að lítið en metnaðarfullt fyrirtæki, Overture Films, er að
byrja á gerð bandarískrar útgáfu myndarinnar (Let the Right One In), undir stjórn
Matts Freeves (Cloverfield). Fyrirtækið er einnig með á prjónunum endurgerð
Mýrarinnar (Jar City), fyrir heimsmarkaðinn.
Himnaríki og helvíti
/ KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA
KNOWING kl. 8:10 - 10:30 B.i. 12 ára
RACE TO WITCH MOUNTAIN kl. 3:40 LEYFÐ
DUPLICITY kl. 5:50 B.i. 12 ára
GRAN TORINO kl. 5:50 LÚXUS VIP
BEVERLY HILLS CHIH... m. ísl. tali kl. 1:30 - 3:40 LEYFÐ
ÆVINTÝRI DESPERAUX m. ísl. tali kl. 1:30 LEYFÐ
17 AGAIN kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 - 10:20 LEYFÐ
17 AGAIN kl. 8 - 10:20 LÚXUS VIP
I LOVE YOU MAN kl. 5:50 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára
PUSH kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára
MONSTERS VS ALIENS m. íslensku tali kl. 1:303D - 3:403D - 5:503D LEYFÐ 3D DIGITAL
MONSTERS VS ALIENS m. íslensku tali kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 LEYFÐ
FAST AND FURIOUS kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára
FAST AND FURIOUS kl. 1:30 - 3:40 LÚXUS VIP
STATE OF PLAY kl. 5:30 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára
LET THE RIGHT ONE IN kl. 8 - 10:40 B.i. 16 ára
OBSERVE AND REPORT FORSÝND kl. 10:20 B.i. 16 ára
MONSTERS VS ALIENS m. íslensku tali kl. 23D- 43D- 63D LEYFÐ 3D DIGTAL
MONSTERS VS ALIENS m. íslensku tali kl. 2 - 4 LEYFÐ
MONSTERS VS... m.enskutali (myndinerótextuð) kl. 63D LEYFÐ 3D DIGITAL
THE BAADER MEINHOF COMPLEX kl. 8 B.i. 16 ára
CONFESSIONS OF A SHOPAHOLIC kl. 2 LEYFÐ
ROGER EBERT, EINN VIRTASTI
KVIKMYNDAGAGNRÝNANDI USA.
SÝND Í ÁLFABAKKA, OG AKUREYRI
EMPIRE
SKYSÝND Í KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI
CHRIS EVANS,DAKOTA
FANNING OG DJIMON
HUNSOU ERU MÖGNUÐ
Í FRUMLEGUSTU
SPENNUMYND ÞESSA ÁRS!
FRÁ LEIKSTJÓRANUM
SEM FÆRÐI OKKUR
LUCKY NUMBER SLEVIN
STÆRSTA OPNUN
Á ÁRINU
VINSÆLASTA MYNDIN Í DAG Á ÍSLANDI OG Í USA
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK
SÝND Í KRINGLUNNISÝND Í ÁLFABAKKA VIP
SALURINN
ER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
á allar 3D sýningar merktar með grænuSPARBÍÓ 850 krr
HVER SEGIR AÐ ÞÚ SÉRT BARA UNGUR EINU SINNI?
HÖRKUSPENNANDI MYND FRÁ LEIKSTJÓRA
THE LAST KING OF SCOTLAND
EMPIRE
TOTAL FILM
UNCUT
BRÁÐSKEMMTILEG
GAMANMYND SEM
KEMUR ÖLLUM
TILAÐ HLÆGJA