Morgunblaðið - 03.05.2009, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.05.2009, Blaðsíða 1
3. M A Í 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 118. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is - Opinn fyrirlestur um markaðsfræði ALÞJÓÐLEGT MBA NÁM KENNSLUFUNDUR MEÐ DR. JOE PONS FIMMTUDAGINN 7. MAÍ KL. 8:15 - 10:00 www.hr.is/mba HÁSKÓLINN Í REYKJAVÍK R E Y K J A V Í K U N I V E R S I T Y VORIÐ ER KOMIÐ Í TÍSKUNA GENGISVÍSITALA JÓHANNS JÓHANNSSONAR BÍÓ Leitin að Eric HJÁLPARSTARF Í FJARLÆGUM LÖNDUM VIÐ GETUM HJÁLPAÐ MYNDAALBÚM Ólafur Þ. Harðarson SUNNUDAGUR EINS OG LOGI YFIR AKUR»4 KONUR REISA ÚR RÚSTUM»8 ALDREI hafa jafnmargir fallið í valinn á jafnskömmum tíma og í spænsku veikinni, sem á einu ári gekk yfir heimsbyggðina. Fórnarlömbin eru talin hafa verið á milli 20 og 100 milljónir. Ýmsir hafa borið svínaflensuna, sem nú geisar, saman við spænsku veikina, sem í upphafi var fremur meinlaus, en blossaði upp að nýju haustið 1918 í mun skæðari mynd og reyndist illvígust ungu og hraustu fólki. Læknavísindunum hefur fleygt fram á þeim rúmu 90 árum, sem liðin eru frá spænsku veikinni. Árin 1957 og 1968 komu skæðir faraldrar, en þeir voru ekkert í lík- ingu við spænsku veikina. Heilbrigðisyfirvöld um allan heim óttast að fram komi stökkbreytt inflúensuveira, sem geti breiðst hratt út og valdið miklum usla, og það skýrir varúðarráðstafanirnar, sem gripið hefur verið til um allan heim vegna svína- flensunnar, sem virðist hafa átt upptök sín í Mexíkó í febrúar. Svínaflensan borin saman við spænsku veikina 1918 AUKIN völd kvenna í Rúanda eru til komin vegna samfélagshruns í kjölfar þjóðarmorðs. Framtíð landsins þótti liggja í breytingum í anda jafnréttis og sátta. Konurnar náðu meirihluta á þingi í síðustu kosningum og eiga íslenskar þingkonur nokkuð langt í að ná þeim á því sviði. Hamfarir, konur og völd Systkin Fótbolti og fjölmiðlar eiga kannski fleira sameiginlegt en í fljótu bragði virðist; alla vega leikur tíminn stórt hlutverk í fréttatímum og fótbolta- leikjum. Systkinin Margrét fréttamaður og Pétur knattspyrnukappi Marteinsbörn áttu fótboltann saman framan af, en svo skildi leiðir. | 18 Morgunblaðið/Árni Sæberg Taka rimmur til hressingar „Í FYRRADAG kallaði nágranninn til mín inn um gluggann og spurði hvort það væri ég sem hefði verið að hósta og hvort ég væri nokkuð veik. Ég var ekki viss um hverju ég ætti að svara og muldraði eitthvað um að ég væri kvefuð. Þau hjónin hafa forðast mig eins og pláguna síðan.“ Unnur María Bergsveinsdóttir býr í miðri Mexíkóborg, þar sem svínaflensan hefur verið hvað skæð- ust, svo það er ekki að undra þótt nágrannar hennar hafi varann á sér. Í grein í blaðinu í dag lýsir Unnur María andrúmslofti ótta. Allar fjöldasamkonur eru bannaðar, skól- ar, söfn, opinberar byggingar og al- menningsgarðar eru lokaðir. Kirkjur eru líka lokaðar en fólk krýpur á tröppunum og biðst fyrir. Með grímu fyrir vitum „Ég set á mig grímuna í hvert skipti sem ég hætti mér út fyrir hússins dyr. Hún nær yfir hálft and- litið á mér, ég svitna undan henni og mig klæjar. Þar sem ég hef sjálf ver- ið veik veit ég ekki almennilega hvort ég ber hana til að verjast smiti, til að verja aðra fyrir sjálfri mér, eða einfaldlega til að vera eins og hinir. Vitanlega vill enginn vera flensumaðurinn,“ skrifar Unnur María. | 16 „Forðast mig eins og pláguna“ Unnur María býr í miðri Mexíkóborg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.