Morgunblaðið - 03.05.2009, Side 48
48 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. MAÍ 2009
Hvein í Ólavur Jákupsson mundaði
slípirokkinn af miklu listfengi.
Slag Jógvan Andreas á Brúnni fór hamförum á tunnunum.
Morgunblaðið/Eggert
Valkyrja Eivör Pálsdóttir leiddi sveitina með miklum glæsibrag og sjarmeraði salinn upp úr skónum.
ORKA
rokkar!
Næmi Bogi á Lakjuni einbeittur við tólin.
Þráðbeinn Leiðtoginn, Jens L.
Thomsen, á girðingastaurnum.
ALLSÉRSTÆÐIR hljómleikar fóru fram í Norræna húsinu síðastlið-
inn fimmtudag. Þá kom færeyska tilraunasveitin ORKA fram og það
var engin önnur en Eivör „okkar“ Pálsdóttir sem léði sveitinni eng-
ilblíða rödd sína. Olíutunnur, girðingarstaurar, slípirokkar og plast-
flöskur voru á meðal þeirra „hljóðfæra“ sem brúkuð voru á sviðinu
en tildrög þess eru að Jens L. Thomsen, leiðtogi sveitarinnar, smíð-
aði hljóðfærin ásamt vinum sínum og fjölskyldu og notaðist við til-
fallandi hluti í kringum sveitabæinn sinn.
Mæting var framúrskarandi góð og höfðu menn á orði að Norræna
húsið væri vel brúkanlegt undir tónleika af rafmagnaðri toganum.
Það var Ólöf Arnalds sem sá um upphitun og vafði hún fólki um fing-
ur sér eins og ekkert væri með sinni ofurfallegu og næmu tónlist.
Svona eiga norræn samstarfsverkefni að vera!
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
„SUMARLÍNAN er innblásin af strengjalist
(string art) sem er skrautaðferð sem var
mjög heit á sjöunda áratugnum, myndir eru
þá búnar til með því að strengja band á milli
nagla,“ segir Eygló Margrét Lárusdóttir
fatahönnuður þegar hún er spurð hvað hafi
veitt henni innblástur við gerð nýju sum-
arlínunnar. „Innblásturinn byrjaði með
strengjalist en leiddist svo út í eitthvert
teknó/goth, sem er nokkuð sérstakt.“
Eygló hannar undir nafninu EYGLO og
selur hönnun sína aðeins í Kronkron á
Laugavegi. Sumarlínan kom í verslunina fyr-
ir um tveimur vikum. „Ég vann línuna á
mjög stuttum tíma vegna barneigna og því
er hún kannski svolítið einföld en mjög
klæðileg. Ég hannaði aðeins kjóla í þetta
skiptið sem eru frekar fyrir konur í
yngri kantinum, þetta eru svona meiri
partíföt. Annars hef ég alltaf náð til
mjög breiðs aldurshóps með
hönnun minni.“
Sumarkjólar Eyglóar
eru tvennskonar; þröngir
og stuttir eða mjög víðir
úr silki. „Það er svolítið
reif í þröngu kjólunum
mínum og afturhvarf til
tíunda áratugarins. Það
gerðist eiginlega
óvart, ég horfi alls
ekki með stjörnur í
augum aftur til þess
tíma.“
Stuðlabergið
heillandi
Eygló saumar allar
flíkurnar í sumarlín-
unni sjálf og segir hún
það ekki mikið mál enda
selji hún bara í einni búð.
„Ég hef látið sauma fyrir
mig á Indlandi. En það er
svo dýrt að láta framleiða
fyrir sig núna að ég ákvað að
borga mér frekar sem sauma-
konu.“
Haustið er ekki langt undan og
Eygló vinnur nú á fullu að haust- og vetr-
arlínunni 2009/2010. „Ég er að vinna með
form á stuðlabergi í haustlínunni. Hún verð-
ur áfram þung eins og sumarlínan, hörð og
kraftmikil. Ég verð líka með meira af flókn-
um flíkum, kápur og jakkar fá að fljóta með,
ekki aðeins kjólar eins og núna,“ segir Eygló
sem hefur ekki sótt innblástur í náttúruna
fyrr en nú. „Ég fór að heillast af formi
grjótsins. Mér finnst spennandi að vinna með
það og smásjármyndir af grjóti geta verið
mjög flottar, því er ég að hugsa um að
blanda stafrænu prenti inn í haustið og vet-
urinn.“
Eygló fór fyrst að selja í búðum hérlendis
árið 2006 og segir hönnun sinni hafa verið
tekið mjög vel. „Ég þarf að fara að taka
skrefið í að selja erlendis. Það þyrmir svolítið
yfir mig núna að reyna að koma nýju merki
út í allri heimskreppunni. Næsta skref er
samt að setja upp netsíðu til að selja í gegn-
um, ég fæ fyrirspurnir að utan og góð við-
brögð í gegnum erlendar bloggsíður og því
væri gaman að fara að kíkja á netsölu.“
Hörð og kraftmikil hönnun
Fatahönnuðurinn Eygló hannar sumarkjóla
Innblástur frá strengjalist og 10. áratugnum
Morgunblaðið/Heiddi
Neyðin kennir naktri... „Það er svo dýrt að láta framleiða fyrir sig núna að ég ákvað að borga
mér frekar sem saumakonu.,“ segir Eygló Margrét sem hannar undir nafninu EYGLO.
Dæmi um
hönnun
Eyglóar.