Morgunblaðið - 03.05.2009, Síða 45

Morgunblaðið - 03.05.2009, Síða 45
Velvakandi 45 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. MAÍ 2009 Grettir HVAR ER KAKAN SEM VAR Í OFNINUM? NAMM! NAMM! HÚN VAR EKKI BÚIN AÐ LYFTA SÉR ÞÚ SEGIR MÉR ÞAÐ NÚNA Kalvin & Hobbes ALLT Í LAGI ÞÁ FRÁBÆRT! ALLT Í LAGI... HLAUPTU NÚ EFTIR GANGINUM OG SLEPPTU! GERÐU ÞAÐ!! ERTU EKKI ORÐINN OF GAMALL FYRIR ÞAÐ? MAMMA, MÁ ÉG SITJA Í KERRUNNI? Kalvin & Hobbes VAR VATNIÐ OF KALT, TARZAN? Kalvin & Hobbes ÉG HELD ÉG SÉ AÐ NOTA OF STERKA SÓLARVÖRN Hrólfur hræðilegi HVERNIG VAR ÞETTA? FULLKOMIÐ! ÉG HELD AÐ VIÐ ÞURFUM EKKI AÐ HAFA ÁHYGGJUR AF MÚSUNUM FRAMAR Gæsamamma og Grímur GRÍMUR, AF HVERJU TÓKSTU AF ÞÉR ÓLINA ÞÍNA? VIL EKKI FÁ FAR Í BRÚNKUNA Ferdinand Þeir minntu helst á Danny Zuko og gæjana í „Koppafeiti“, strákarnir sem þeystu eftir Kringlumýrarbraut á glæsilegum gulum blæjubíl þegar sólin gægðist undan skýjunum í byrjun vikunnar. Eina sem vantaði var vænn skammtur af brilljantíni í hárið. Morgunblaðið/Árni Sæberg Brunað á blæjubíl Að loknum kosningum ÞAÐ var ekki auðvelt fyrir almúgann að komast að í fjölmiðlum í aðdraganda kosninga og þarf ekki að koma neinum á óvart. Það voru því fyrst og fremst stóru nöfnin og pólitískir hags- munaaðilar í fjölmiðla- heiminum sem fengu að láta ljós sitt skína. Ýmislegt óvandað var látið flakka í kosninga- baráttunni eins og við var að búast og erfitt er fyrir venjulegt fólk að átta sig á því hvað á við rök að styðjast og hvað er aðeins áróður og vitleysa. Þrátt fyrir ömurlegt efnahagsástand og fátæklegar úrlausnir af hálfu stjórnmálaflokkanna, þeirra sömu og sköpuðu þetta ástand, voru höf- uðágreiningsmálin aðild að ESB sem fylgjendur þess boða sem alls- herjarlausn og kvótakerfin. Jafnvel hámenntaðir og virðulegir fræði- menn sem og lýðskrumarar pólitísku flokkanna geta ekki komið sér sam- an um hvað er okkur fyrir bestu. „Sérfræðingarnir að sunnan“ eins og algengt er að orða það í minni gömlu heimabyggð fyrir vestan boða engar lausnir. Þeir ágætu hámenntuðu menn geta bara alls ekki komið sér saman um það, hvort sem þeir koma „að sunnan“ eða frá útlöndum. Að sjálf- sögðu eru bæði kostir og gallar við aðild að ESB, vandinn er að meta hvort vegur þyngra. Skoðanir okkar almúgamannanna eru því jafngildar og þeirra. Nú berast fregnir af því að hagsmunaaðilar í sjávarútvegi innan ESB sjái sér hag í því að taka upp kvótakerfi að íslenskri fyr- irmynd. Það kemur ekki á óvart. Jafnaðarmenn/Samfylkingin (nýi Sjálfstæðisflokkurinn) á Íslandi sem eru helstu talsmenn aðildar að ESB ættu að gaumgæfa það. Mikil fylgis- aukning vinstri flokkanna kemur ekki á óvart því efnahagshrunið er fyrst og fremst talið vera á ábyrgð hægri flokkanna sem lengst hafa stjórnað landinu, þ.e.a.s. Sjálfstæð- isflokks og Framsóknarflokks. Sam- fylkingin (kratar) ber þó vissulega sína ábyrgð en sleppur furðuvel frá henni. Ég tel að aðild að Evrópu- sambandinu hafi í för með sér afsal fullveldisins og að sjáv- arauðlindir okkar muni fara forgörðum. Eftir aðild að EES hefur fjöldi innflytjenda hasl- að sér völl hér á landi og er það bæði gott og slæmt eftir aðstæðum. Ef menn eru að kvarta yfir fjölda Pólverja og Balta hér á landi þá skyldu menn íhuga hvernig dæmið liti út eftir að 70 milljónir Tyrkja eru komnir í Evrópusambandið. Þó að við þyrftum að herða sultarólina og búa við krappari kjör í einhvern tíma þá er það betra en að þurfa að afhenda Evrópusamband- inu auðlindir okkar fyrir fullt og allt. Við höfum áður þurft að standa ein og lifað það af, og við getum með auðlindir okkar að bakhjarli gert það áfram. Hvað varðar aðild- arviðræður við ESB þá skipta þær engu máli því að við uppfyllum ekki þau skilyrði sem ESB setur um- sækjendum um aðild og munum ekki gera það á næstu árum, jafnvel ára- tugum. Við verðum því að hugsa málið upp á nýtt og leita annarra lausna. Höfnum aðild að ESB og tryggj- um sjálfstæði Íslands. Hermann Þórðarson. Varst þú í Reykjadal á árunum 1965 - 1975/80? LAUGARDAGINN 9. maí verða endurfundir þeirra sem voru í Reykjadal á vegum Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra, bæði sem dval- argestir og starfsfólk. Hittumst við í Reykjadal og verður húsið opnað kl. 10 árdegis. Hugmyndin er að eiga saman notalegan dag, endurnýja gömul kynni og rifja upp gamlar minningar. Til er hópur á Facebook um endurfundina „Reykjadalur 1965-́75.“ Nánari upplýsingar gefa Grétar Pétur, s. 663 2226 og Jóndi, s. 895 0390. Er vonast til að sem flestir fyrrverandi dvalargestir/krakka- lingar og starfsfólk frá árunum 1965-1975/80 láti sjá sig. Reykjadalshópurinn.     Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Bólstaðarhlíð 43 | Vorfagnaður fimmtu- daginn 14. maí kl. 17. Ragnar Bjarnason og Þorvaldur Halldórsson sjá um stuðið. Söngur, grín og dans. Veislumatur frá Lárusi Loftssyni. Skráning og greiðslur í s. 535-2760 fyrir 12. maí. Félag eldri borgara, Reykjavík | Leik- félagið Snúður og Snælda sýnir leikritið „Hressingarheimilið Líf í tuskunum“ í Stangarhyl 4, kl. 14 föstudaginn 8. maí. Síðasta sýning. S. 588-2111 Félag eldri borgara, Reykjavík | Dans- leikur sunnudagskvöld kl. 20-23.30. Danshljómsveitin Klassík leikur danslög við allra hæfi. Sjá feb.is. Félagsheimilið Gjábakki | Síðasti dagur Vorsýningar, opið kl. 14-18. Handunnir nytja- og skrautmunir, unnir af högum höndum og hugviti eldra fólks. Vöfflu- kaffi selt frá kl. 14-17. Ýmis glerverk verða til sölu á vorsýningunni. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Hin ár- lega vorsýning dagana 1.-3. maí verður opin alla dagana frá kl. 14-18. Vöfflukaffi verður selt alla dagana kl. 14-17. Hraunsel | Handavinnusýningin verður opin dagana 9., 10. og 11. maí kl. 13- 16.30. Hæðargarður 31 | Myndlistarsýning Erlu Þorleifsdóttur og Stefáns Bjarna- sonar opin kl. 14-17. Upplýsingar í Ráða- gerði, s. 411-2790. Korpúlfar, Grafarvogi | Ganga frá Egils- höll á morgun kl. 10. Vesturgata 7 | Flóamarkaður fös. 8. maí og mán. 11. maí frá kl. 13-16. Fatnaður, húsbúnaður, vínilplötur, geisladiskar, bækur, skór. Sungið v/flygilinn og dans- að í kaffitímanum á föstudag. Veislukaffi báða dagana.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.