Morgunblaðið - 03.05.2009, Síða 32

Morgunblaðið - 03.05.2009, Síða 32
32 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. MAÍ 2009 21. Í slensk kristni hefur átt og á nægan orðaforða yfir helgar iðkanir og trúarlíf. Ég minni sérstaklega á eitt orð, sem til skamms tíma var samgróið daglegu lífi fólks almennt hér á landi. Það er orðið hugvekja. Það er vel hugsað og haglega myndað orð, sem hefur orðið til hér á landi, án beinnar eða náinnar fyr- irmyndar útlendrar. En merking þess er sameign almennrar kristni, því öll kristin trúariðkun miðar að því að vekja hugann, ekki sefja hann né svæfa. Vakna þú, sál mín, segja bænamenn Biblíunnar. Vakið og biðjið, segir Jesús. Vaktu, minn Jesús, vaktu í mér vaka láttu mig eins í þér biður Hallgrímur. Og öll vakandi kristni með honum. Að vakna til Guðs, vakna til vitundar um hann, um nær- veru hans, og ná að vaka í þeirri vitund, þetta er mark og mið kristins trúarlífs. Hugvekjan, sem helgaði hver vökulok vetrarins í bað- stofunni á þeim tveimur bæjum, þar sem ég man fyrst eftir mér, var merkileg iðkun. Það get ég fullyrt og tala þá af reynslu. Áður en gengið var til náða var lesinn lesturinn, hug- vekjan. Það var mikið unnið á kvöldvökum baðstofunnar, eng- inn sat auðum höndum. Oftast var líka eitthvað lesið upphátt til skemmtunar og fróðleiks. En í lokin, þegar komin voru háttumál, var bókin með hugvekjunum tekin fram. Þá varð allt hljótt, fólk lagði lúnar hendur í skaut sér, það slaknaði á vöðvum og taugum eftir annir og áhyggj- ur dagsins, stríðir, þreytulegir andlitsdrættir mýktust, það færðist rósemi yfir hvern svip, lítil, fátækleg vist- arvera varð svo rík af því, sem helst skortir í mann- heimi: Hún fylltist af friði. Og hvernig vaknaði hugurinn? Ég las auðvitað ekki í neinn hug. Nema þá minn. En ég var að sjálfsögðu lengi vel ekki læs á eitt eða neitt. En eitt get ég sagt með vissu um huga minn: Um leið og hann fór að vita til sín og gera sér grein fyrir einhverju, vaknaði hann til vitundar um Guð. Að Guð er og skiptir miklu. Að hann er „yfir og allt um kring með eilífri blessun sinni“. Þess vegna þessi blær yfir svipnum á fólkinu. Öllu er óhætt, það er allt gott. Framan af lengi var ég auðvitað sofnaður áður en kvöldhugvekjan var lesin. En bænirnar mínar eignaðist ég um leið og ég lærði að tala. Almúginn þar og þá hafði ekki lært neina sálfræði af bókum. En aldagróin guðræknisiðkun byggðist á vitneskju um þá staðreynd, að maður mótast af því, sem gerist í duldum djúpum hugans. Þau áhrif, sem berast að manni og inn í mann, sér í lagi á bernskuárum, þau orð og hugsanir, sem heila- frumurnar blessaðar fá til úrvinnslu, sökkvast niður í innri djúpin, til góðs eða ills, til bóta eða meins fyrir þann jarðveg, sem rætur persónuleikans standa í. Það vissi alþýðufólk að það skiptir máli út frá hvaða hugsunum maður sofnar. Og hvert hugurinn leitar um leið og maður vaknar. Það var hjartað, sem um er að ræða, þetta, sem við er- um innst inni, þetta, sem er uppspretta alls, sem við er- um. Varðveittu þá uppsprettu, haltu henni opinni, í opnu sambandi við hina eilífu uppsprettu, heilagan anda Guðs. Varðveit hjarta þitt framar öllu öðru, því að þar eru uppsprettur lífsins. (Orðskv. 4, 23) Þar, innst í grunni veru þinnar, er það lindarauga, sem er til þess gert að vera í sambandi við þá lind lífsins, sem Jesús vitnar um og er sjálfur Guð, opinber í honum. Leit og svör Sigurbjörn Einarsson » Að vakna til Guðs, vakna til vit-undar um hann, um nærveru hans, og ná að vaka í þeirri vitund, þetta er mark og mið kristins trúar- lífs. Pistlar sr. Sigurbjörns Einarssonar, sem Morgunblaðið birti á sunnudögum á síðasta ári, vöktu mikla ánægju meðal lesenda. Um það samdist, milli sr. Sigurbjörns og Morgun- blaðsins, að hann héldi áfram þessum skrifum og hafði hann gengið frá nýjum skammti áður en hann lést. Á SÍÐUSTU árum hefur Háskólinn á Hólum verið að brjóta sér leið frá því að vera hefðbundinn bændaskóli á fram- haldsskólastigi í að vera nútímaháskóli sem stenst allan sam- anburð við aðra há- skóla innanlands sem erlendis. Þessi leið hefur síður en svo verið greið og vaxtarverkirnir á stundum miklir. Öllum má ljóst vera að þeir miklu umbrotatímar sem við lifum nú hafa áhrif á þró- un háskólastigsins eins og aðrar samfélagsstoðir. Spurningin hvort réttlætanlegt sé að reka 7 full- gilda háskóla í landinu og hvort smáir og sérhæfðir háskólar geti lifað sjálfstæðu lífi er áleitin. Auk þess að mennta og rannsaka hafa háskólar um allan hinn vestræna heim haslað sér völl sem virkir gerendur í svæðisbundinni þróun atvinnu- og menningarlífs. Þróun þessi birtist m.a. í gagnvirku sam- starfi fræðastarfs, atvinnulífs og opinberra aðila. Forsendur svona samstarfs eru vel skilgreind markmið og áhersla á að allir hafi möguleika til að ná markmiðum sínum. Með ræturnar í samfélaginu Einn megingrundvöllur lítils há- skóla í dreifbýli er að hann næri rætur sínar í því umhverfi sem hann starfar í og að námsframboð endurspegli að einhverju leyti það menningar- og atvinnulíf sem er í umhverfi hans. Háskólinn á Hól- um hefur skapað sér þessa sér- stöðu. Þær þrjár námsleiðir sem hann býður upp á eiga sér djúpar rætur í samfélaginu sem umlykur hann. Gjarnan er sagt að Skaga- fjörður sé vagga íslenska hestsins og hvað er þá eðlilegra en að kenna hestafræði við Háskólann á Hólum. Sjávarútvegur og sjáv- arnytjar hafa verið burðarás at- vinnulífs á landsbyggðinni og síð- ast en ekki síst er Skagafjörður vettvangur margra stórra atburða Íslandssögunnar. Það er því afar viðeigandi að Háskólinn á Hólum sérhæfi sig í að kenna ferða- málafræði með áherslu á menn- ingu, sögu og náttúru. Annar grundvöllur lítils há- skóla í dreifbýli er að gæði þeirrar kennslu sem þar fer fram séu mikil og að fag- mennska ráði í rann- sóknum og öllu fræðastarfi. Lögbund- ið gæðamat yfirvalda, sem fram fór á síð- asta ári, staðfesti að Háskólinn á Hólum stendur fyllilega und- ir þeim gæðakröfum sem til háskóla eru gerðar og stenst því samanburð við það besta sem ger- ist. Efnahagsleg áhrif á nærsamfélagið Áhrif Háskólans á Hólum eru mörg og margvísleg og ekki víst að allir geri sér grein fyrir þeim miklu og beinu áhrifum sem hann hefur á nærsamfélagið. Sem dæmi um þessi miklu áhrif má nefna að á árinu 2007 voru 75 starfsmenn starfandi við skólann í 54 stöðu- gildum. Auk fastra starfsmanna skólans störfuðu þar 16 manns yf- ir sumarmánuðina. Launa- greiðslur til þessara starfsmanna námu um 250 milljónum króna. Reikna má með að af þessum fjár- munum fari á annað hundrað milljóna inn í nærumhverfið í formi útsvarsgreiðslna og þjón- ustu- og vörukaupa af ýmsu tagi. Þá eru ótalin ýmis önnur áhrif, eins og t.d. þau störf sem skapast í umhverfi skólans, m.a. í leik- og grunnskólum á svæðinu. Þess má jafnframt geta að yfir 40% af tekjum skólans eru sjálfsaflafé, sem einkum er aflað með rann- sóknarsamstarfi. Áhrifin af starf- semi skólans ná einnig langt út fyrir Skagafjörð. Tengsl hans við t.d. Selasetur á Hvammstanga og Háskólasetur á Blönduósi eru gott dæmi um hvernig háskóli sem þessi getur verið aflvaki nýsköp- unar í sínu umhverfi. Nemendafjölgun og alþjóðlegt yfirbragð Nemendum Háskólans á Hólum hefur fjölgað umtalsvert á und- anförnum árum. Í dag eru þeir um 180 að meðtöldum þeim nem- endum sem Háskólinn á Hólum er með í samvinnu við Landbún- aðarháskóla Íslands á Hvanneyri, en þessir skólar eru með sameig- inlega BS-gráðu í hestafræðum. Fjölgun þessi er í beinu samhengi við þá ákvörðun að færa Hóla- skóla á háskólastig. Í öðru lagi má rekja þessa fjölgun til aukins áhuga á íslenska hestinum og auk- innar verðmætasköpunar í tengslum við hann. Þessi áhugi nær langt út fyrir landsteinana og nemendum af erlendum uppruna fer ört fjölgandi. Sú staðreynd skapar Hólastað og háskólastarf- inu ákveðið alþjóðlegt yfirbragð sem laðar fram nýja menning- arlega og félagslega strauma. Í þriðja lagi á svo þessi fjölgun ræt- ur sínar að rekja til þess að á árinu 2005 var byrjað að kenna til BA-gráðu í ferðamáladeild. Samstarf á breiðum grunni Hér að framan hefur verið minnst á mikilvægi samstarfs fræða, atvinnulífs og opinberra aðila. Samstarf við aðrar há- skólastofnanir innlendar og er- lendar sem og samstarf við önnur skólastig er ekki síður mikilvægt. Sá andi sem svífur yfir nýjum lög- um um skólahald á Íslandi felur í sér það markmið að brjóta niður múra á milli skólastiga og auka enn frekar á sveigjanleika og möguleika á samþættingu á milli skólastiga. Þetta markmið skapar einstakt tækifæri til að vinna sam- an að nýjum leiðum til að efla nærumhverfi skólanna og laða fram nýjar hugmyndir til atvinnu- sköpunar og meiri lífsgæði. For- senda þess er sú að íbúar svæð- isins, sveitarstjórnir, atvinnulíf og opinberar stofnanir sjái sér hag í að vinna saman að eflingu skólans og skilgreini markmið og leiðir að því að gera hann að enn öflugra verkfæri í samfélagsþróuninni en hann er nú. Samfélagslegt verðmæti Háskólans á Hólum Eftir Herdísi Á. Sæmundardóttur » Lögbundið gæðamat yfirvalda, sem fram fór á síðasta ári, stað- festi að Háskólinn á Hólum stendur fyllilega undir þeim gæðakröfum sem til háskóla eru gerðar … Herdís Á. Sæmundardóttir Höfundur er fræðslustjóri í sveitarfélaginu Skagafirði. EINS OG alþjóð veit er nú er nýlokið einum sögulegustu þingkosn- ingum síðari tíma hér á landi. Sú vinstrisveifla sem við sáum í þessum kosningum gefur til kynna að landslag ís- lenskra stjórnmála gæti verið varanlega breytt. Það verður í það minnsta langur tími þar til Sjálfstæðisflokkurinn nær þeim styrk sem hann áður hafði. Nú þegar rykið er að setjast að loknum kosningum þarf Framsóknarflokk- urinn, líkt og aðrir stjórnmálaflokkar, að meta stöðu sína. Ég er stoltur af árangri flokksins í þessum kosn- ingum. Flokkurinn bætti við sig fylgi um allt land og hefur nú þingmenn í öllum kjördæmum. Það er flokknum nauðsynlegt til að geta gegnt því for- ystuhlutverki í íslenskum stjórn- málum sem mikilvægt er að hann gegni. Árangurinn í þessum kosningum var stórt skref í endurreisn flokksins og staðfesting á því að kjósendur sjá og virða viðleitni okkar til endurnýj- unar og þau skilaboð sem flokkurinn kom með frá flokksþingi okkar í jan- úar. Það er rétt að hafa það í huga að það eru aðeins liðin tvö ár frá verstu útkomu flokksins í alþingiskosn- ingum í ríflega 90 ára sögu flokksins. Ég held að enginn hafi getað búist við því Framsóknarflokkurinn næði strax fyrri styrk, en við sýndum í þessum kosningum að við erum sann- arlega á réttri leið. Það er fyrst og fremst þrennt sem skilaði Framsóknarflokknum þeim árangri í kosningunum sem raun ber vitni. Í fyrsta lagi brást flokkurinn hraðar og betur en nokkur annar stjórnmálaflokkur við eðlilegri kröfu um endurnýjun í kjölfar þeirra ham- fara sem átt hafa sér stað í íslensku samfélagi. Á flokksþingi í janúar tók grasrót flokksins í taumana og sýndi svo ekki verður um villst að það eru hinir almennu flokksmenn sem ráða ferðinni í flokknum. Nýr formaður flokksins, Sigmundur Davíð Gunn- laugsson, er 34 ára og undirritaður varaformaður flokksins hefur enn ekki náð þrítugu. Aldursforseti for- ystunnar er ritarinn, Eygló Harð- ardóttir, sem er 36 ára gömul og því ljóst að ungu fólki hefur verið falið það verkefni að leiða flokkinn á mikl- um umrótatímum. Þetta kunnu kjósendur að meta. Í öðru lagi er ljóst að markviss og lausnamið- aður málflutningur flokksins í efnahags- málum náði eyrum kjós- enda. Framsóknarflokk- urinn hefur alltaf gefið sig út fyrir að vera flokkur öflugs atvinnu- lífs og hefur viljað hlúa að ungu fjölskyldufólki, en það er sá hópur sem ber uppi sam- félagið. Hin nýja Framsókn setti fram róttækar og raunhæfar hug- myndir til hagsbóta fyrir heimili og fyrirtæki. Þetta kunnu kjósendur okkar, og raunar margir aðrir, vel að meta. Í þriðja lagi er ekki hægt að ná ár- angri í kosningum nema fyrir þrot- lausa vinnu fólks. Í mínu kjördæmi, sem og um allt land hafa hundruð sjálfboðaliða lagt sitt af mörkum og unnið fyrir flokkinn án þess að ætla sér nokkuð í staðinn. Starf Fram- sóknarflokksins byggist á fórnfýsi þessa fólks sem á þúsund þakkir skildar fyrir óeigingjarnt starf. Að af- loknum þessum kosningum er ég sannfærður um að Framsóknarflokk- urinn á eftir að gegna mikilvægu hlut- verki við endurreisn íslensks efna- hags. Vinstriflokkarnir tveir hafa nú á að skipa meirihluta til að mynda starf- hæfa stjórn og þurfa ekki atbeina Framsóknarflokksins til þess. Ég tel hins vegar að þær lausnir sem við höf- um boðað og sú aðferðafræði og sýn á stjórnmálin sem við höfum tileinkað okkur geri það að verkum að aðkoma Framsóknar að landstjórninni sé nauðsynleg til að byggja landið okkar upp á ný. Ef það verður ekki nú þá verður það sannarlega að afloknum næstu kosningum. Endurreisn Fram- sóknarflokksins er rétt að hefjast. Framtíð Framsóknar Eftir Birki Jón Jónsson Birkir Jón Jónsson » „Ég er stoltur af ár- angri flokksins í þessum kosningum. Flokkurinn bætti við sig fylgi um allt land og hef- ur nú þingmenn í öllum kjördæmum.“ Höfundur er varaformaður Framsóknarflokksins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.