Morgunblaðið - 03.05.2009, Síða 31

Morgunblaðið - 03.05.2009, Síða 31
31 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. MAÍ 2009 Reuters 1. maí Mannfjöldi kom saman í París í gær í tilefni af 1. maí og mótmælti efnahagsaðgerðum stjórnvalda. Mun fleiri fundir og göngur voru haldn- ar nú en í fyrra og þátttakendur voru fleiri. Tekið var eftir því að stærstu stéttarfélög Frakklands sneru bökum saman um að skipuleggja fundi. S amdráttur í efnahagslífi heimsins setti sinn svip á 1. maí, dag verkamanna. Í Evrópu tóku mörg hundr- uð þúsund manns þátt í op- inberum fundum. Í Þýska- landi, Grikklandi og Tyrklandi var spenna í lofti, en víðast hvar fóru mótmæli friðsamlega fram. Vaxandi atvinnuleysi, stöðnun launa og reiði almennings út af fjármálakreppunni hef- ur hins vegar sín áhrif. John Monks, framkvæmdastjóri Sambands evrópskra stéttarfélaga, segir í samtali við The New York Times í gær að reiðin fari vaxandi. „Hjá sumum er afstaðan að harðna,“ segir hann. „Hún er að breytast úr áhyggjum í pirr- ing og reiði. Þetta er mikilvægasti 1. maí í langan aldur.“ Monks sagði að verkamenn þyrftu nú „að borga til að bjarga fjármálageir- anum“ og þeir vildu fá „eitthvað til baka“ frá ríkinu. Vaxandi reiði Til þess var tekið á föstudag að átta stærstu stéttarfélögin í Frakklandi héldu fundi saman í fyrsta skipti. Í Frakklandi voru 283 göngur og fundir, helmingi fleiri en í fyrra. Aðstandendur fundanna telja að 1,2 milljónir manna hafi tek- ið þátt, fimm sinnum fleiri en í fyrra. Samdrátturinn hefur komið hart niður á verkafólki. Eftirspurn hefur dregist saman og mörgum verksmiðjum hefur verið lokað eða þær dregið úr framleiðslu. Atvinnuleysi mæld- ist 8,5 prósent á evrusvæðinu í febrúar en var 7,2 prósent í fyrra samkvæmt tölum Eurostat, hagstofu Evrópu. Stéttarfélög virðast ekki bara vera að eflast í Frakklandi. Í Þýskalandi er talað um að þau séu að ná vopnum sínum á ný. Í grein í viku- blaðinu Die Zeit í liðinni viku er vitnað til þess að í kosningabaráttunni vorið 2005 hafi Guido Westerwelle, leiðtogi frjálsra demókrata, kall- að verkalýðshreyfinguna „sanna plágu“, en í kosningabaráttunni vorið 2009 hrósi Dirk Nie- bel, forustumaður sama flokks, stéttarfélög- unum fyrir „ábyrgðartilfinningu“ og „sveigj- anleika“. Hann hefur horfið frá kröfu sinni um að afnema frí 1. maí. Skyndilega keppist fram- bjóðendur úr öllum flokkum við að ausa stétt- arfélögin lofi. Kristilegir demókratar hafa löngum kvartað undan styrk stéttarfélaganna. Nú leggur flokkurinn til í sambandsríkinu Nordrhein-Westfalen að sett verði lög til að styrkja stéttarfélögin. Sögulegt tækifæri Stéttarfélögum í Þýskalandi vex um þessar mundir fiskur um hrygg. Félögum í þeim er nánast hætt að fækka og þau njóta meira álits í skoðanakönnunum en áður. Sóst er eftir sam- starfi við þau til að ráða fram úr efnahags- vandanum. Angela Merkel kanslari segir að stéttarfélögin muni hafa sitt að segja um það hvort Þýskaland rísi öflugra en fyrr úr efna- hagslægðinni eða leysist upp í illdeilum. Aukin harka gæti verið eitt merki um efl- ingu þýskra stéttarfélaga. Michael Sommer, formaður DGB, þýska alþýðusambandsins, sagði fyrir nokkrum dögum að búast mætti við félagslegu uppnámi og bætti við að litið yrði á hópuppsagnir sem stríðsyfirlýsingu. Önnur stéttarfélög hafa tekið í sama streng og segj- ast munu grípa til allsherjarverkfalls missi fé- lagar þeirra vinnuna unnvörpum. … en hvernig á að nýta það? Í fréttaskýringu í Die Zeit segir að þótt yf- irlýsingar stéttarfélaganna virðist lýsa einingu og baráttuvilja sé veruleikinn flóknari. Stétt- arfélögin sjái nú sögulegt tækifæri til að afla sér nýrrar virðingar en séu ekki viss um hvort þau geri það með því að ráðast til atlögu eða sýna vilja til málamiðlana. Það er erfið spurn- ing þegar tilvera margra fyrirtækja hangir á bláþræði og þrýst er á starfsmenn að gefa eftir laun eða fallast á styttri vinnutíma. Búist er við að fjórar milljónir Þjóðverja verði án at- vinnu í haust og næsta sumar verði fjöldinn kominn yfir fimm milljónir. Stéttarfélögin kunna að hafa meðbyr um þessar mundir en hann gæti fljótt breyst í vonbrigði haldi at- vinnuleysið áfram að aukast án þess að þau fái rönd við reist. Meirihluti félaga í stéttarfélögunum nálgast nú eftirlaunaaldurinn og þau þurfa að ná í nýja félaga. Ef þeim tekst það er þeim borgið næstu áratugina. Nú hagnast stéttarfélögin á því að þau gagnrýndu fjármálakerfið hvað harðast í góðærinu. Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Infratest bera 39 prósent Þjóðverja mikið eða mjög mikið traust til stéttarfélaga og hefur sú tala ekki verið hærri í tíu ár. 26% segjast bera traust til atvinnurekenda og enn þá færri treysta stjórnmálaflokkunum, eða 23%. Það er kannski ekki að furða að frammámenn úr stéttarfélögum séu áberandi á framboðslistum sósíaldemókrata að þessu sinni. Á föstudag kom fram að í Þjóðarpúlsi Capa- cent Gallup hefði mælst að rúmlega 80 prósent Íslendinga teldu að viðskiptalífið á Íslandi væri spillt. Jafnframt kom fram að rúmlega 70 prósent teldu stjórnmálaflokkana spillta og helmingur er þeirrar hyggju að spilling þrífist á fjölmiðlum landsins. Aðeins dómstólar koma betur út í mælingunni en þeir gerðu í fyrra. Þessi könnun ber vitni því rofi sem orðið hefur í samfélaginu vegna bankahrunsins og ætti ef til vill að verða stjórnmálamönnum áminning um að oftúlka ekki umboð það sem þeir fengu í kosningunum. Könnunin sýnir hvað stjórn- málaflokkarnir eiga erfitt verkefni fyrir hönd- um að vinna sér traust umbjóðenda sinna á ný. Ekki var spurt um stéttarfélög í könnuninni en tengsl lífeyrissjóðanna við útrásarvík- ingana í góðærinu gerir að verkum að þau eiga erfiðara með að þvo hendur sínar af hruninu, hvað sem líður gagnrýni þeirra á fjár- málastefnu stjórnvalda og seðlabanka á sínum tíma. Þessi tengsl voru ef til vill ástæðan fyrir því hvað haft var hátt á meðan Gylfi Arn- björnsson, formaður ASÍ, talaði á Austurvelli 1. maí. Hins vegar var vert að leggja við hlustir því að þar kom fram hvaða leið hann vill fara á þessum erfiðu tímum. „Nú í sumarbyrjun verða kjarasamningar á almennum vinnumarkaði endurskoðaðir og gengið frá samningum við ríki og sveitarfélög. Aðilar vinnumarkaðarins eru sammála um að samhliða því verði tvennt að eiga sér stað,“ sagði Gylfi. Stöðugleikaskilyrði fyrir evru „Annars vegar teljum við að gera verði nýjan sáttmála milli vinnumarkaðarins og stjórn- valda um forsendur varanlegs stöðugleika. Launafólk verður að geta treyst því að rík- isvaldið axli sína ábyrgð á þróun efnahagsmála og komi í veg fyrir að viðkvæmt jafnvægi milli gengis, vaxta og verðbólgu raskist – þótt það kunni jafnvel að kosta þá vinsældir til skemmri tíma litið. Hins vegar þarf að byggja á þessum grunni víðtæka sátt um hvernig við vinnum okkur sameiginlega út úr þessum mikla vanda og mótum samræmda stefnu í efnahags-, atvinnu- og velferðarmálum. Við hjá Alþýðusamband- inu erum tilbúin í þessa vinnu og höfum sem veganesti ályktanir og stefnumótun aukaárs- fundar okkar í mars sl. Brýnast er að ná niður atvinnuleysinu, lækka vexti og koma stöð- ugleika á gengi krónunnar. Aðilar vinnumark- aðarins eru sammála um að í lok næsta árs þurfi atvinna að hafa aukist og marktæk skref stigin til uppfylla stöðugleikaskilyrði fyrir upptöku evru. Takmarkið er að fyrir árslok 2013 verði lífskjör a.m.k. þau sömu og fyrir bankahrunið. Ljóst er að þetta verður erfitt og sársauka- fullt verkefni en aðilar vinnumarkaðarins eru sammála um mikilvægi þess að verja velferð- arkerfið eins og kostur er.“ Gylfi lýsir hér að ofan leið sátta. Hann ætlar ekki að fara í stríð, heldur miðla málum. Það er ef til vill ekki öllum félögum í aðildarfélögum ASÍ að skapi en það er sú leið sem líklegust er til að skila endurreisn þeirra kjara sem hér ríktu fyrir hrunið. Áhersla hans á aðgerðir til að uppfylla stöðugleikaskilyrðin fyrir upptöku evru er rétt nálgun. Um Evrópusambandið sagði Gylfi að nú væri einstætt tækifæri til að ná þeim stöð- ugleika og trúverðugleika, sem nú vantaði svo sárlega, með því að ganga til viðræðna um að- ild: „Stjórnmálamenn og hagsmunaaðilar hafa lengi þráttað um hvað aðildarsamningur við ESB feli í sér, hvað tapist og hvað ávinnist. Það má halda slíkum þrætum áfram endalaust en svarið fæst einfaldlega ekki fyrr en gengið er til formlegra aðildarviðræðna. Ég tel að aðild gagnist íslensku launafólki og fjölskyldum þeirra á ýmsan hátt eins og með lækkun matarverðs, lægri óverð- tryggðum húsnæðisvöxtum sem hægt er að treysta á, minni verðbólgu og stöðugu gengi. En auðvitað verðum við að setja fram vand- lega skilgreind samningsmarkmið í mik- ilvægum málaflokkum eins og sjávarútvegs- og landbúnaðarmálum – jafnvel skilyrði þar sem litið verði til hagsmuna bæði fyrirtækja og launafólks, og sjá hvað okkur stendur til boða. Það er og hefur verið skoðun Alþýðu- sambands Íslands að í þeim alvarlegu að- stæðum sem við búum við verði þjóðin að hafa kjark til að horfast í augu við blákaldar stað- reyndir, bregðast við þeim og leita nýrra leiða að sameiginlegum markmiðum. Og þótt aðild að ESB sé ekki gallalaus mun hún flýta upp- byggingu efnahagslífsins og verða okkur til heilla þegar til framtíðar er litið. Þannig get- um við með ábyrgri afstöðu og á lýðræðislegan hátt byggt upp réttlátt þjóðfélag.“ Eftir hrun bankanna er íslenskt efnahagslíf í molum en hinn veiki gjaldmiðill, krónan, er meginástæðan fyrir þeirri stórkostlegu kjara- rýrnun sem almenningur hefur orðið fyrir á undanförnum mánuðum. Hrun krónunnar hef- ur nánast verið eins og eignaupptaka. Hún hefur ekki aðeins gengisfellt eignir almenn- ings, heldur einnig starfskrafta og það er ekki eins og veikleikar hennar hafi nú fyrst verið að koma í ljós. Efling eða illdeilur Helstu andstæðingar Evrópusambandsins fara mikinn þegar þeir tala um hagsmuni sjáv- arútvegsins en þeir gera ekki einu sinni tilraun til að vega þá á móti hagsmunum almennings af að fá stöðugan gjaldmiðil og losna við fall- valta krónu. Stéttarfélög víða um Evrópu munu nú hafa meira tækifæri til að hafa áhrif á stefnumörk- un en um langt árabil af þeirri einföldu ástæðu að atvinnurekendur hafa ekki mikinn trúverð- ugleika þegar þeir eru komnir undir pilsfald ríkisvaldsins. Það á líka við um Ísland. Merkel talar um að valið standi á milli eflingar og ill- deilna í Þýskalandi og það sama má segja um Ísland. Fyrri kosturinn er vænlegri til árang- urs en það getur orðið erfitt að fylgja honum eftir. Þess vegna mega atvinnurekendur og ríkið ekki grafa undan launþegahreyfingunni með vanhugsuðum aðgerðum. Hrunið færði stéttarfélögum nýtt tækifæri til áhrifa Reykjavíkurbréf 020509 80% Hlutfall Íslendinga sem telja viðskiptalífið á Íslandi spillt 18.000 Fjöldi atvinnulausra á Íslandi 2013 Þá munu Íslendingar hafa náð sömu lífskjörum og fyrir hrun gangi áætlanir ASÍ eftir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.