Morgunblaðið - 03.05.2009, Síða 33

Morgunblaðið - 03.05.2009, Síða 33
Umræðan 33 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. MAÍ 2009 Nái nemandinn ekki settu marki er þóknun endurgreidd - þá sem eru af erlendum uppruna: Þjálfun málhljóða; heyrn, framburður og ritun Fínstillt er að þörfum nemandans Námsaukinn er mældur í hverjum tíma Heimakennsla er veitt á höfuðborgarsvæðinu - Talnaleikni og reikningur - - Málhljóð, lestur og skrift - Kennsla og þjálfun Einstaklingar eða litlir hópar Einnig er hægt að panta bleiku möppuna: Gríptu til góðra ráða Vísir að handbók um atferlisstjórnun handa foreldrum, kennurum og ráðgjöfum í skólaþjónustu Þjónusta í heimabyggð Geymið auglýsinguna Guðríður Adda Ragnarsdóttir, atferlisfræðingur og kennari. Atferlisgreining og kennsluráðgjöf, sími og fax 562 14 67, adda@ismennt.is Kennslutækni: - Bein fyrirmæli (Direct instruction) - Hnitmiðuð færniþjálfun og mælingar (Precision teaching) - Talnafjölskyldur (Fact families) - Lausnaleit í heyranda hljóði (Talk aloud problem solving) - Smellaþjálfun (Clicker training; tag teach) - Stöðluð hröðunarkort (Standard Celeration Charts) - Hraðflettispil, leifturspjöld (SAFMEDS) Fyrir: - börn og fullorðna - byrjendur og lengra komna - lesblinda og reikniblinda - þá sem þurfa almenna leiðréttandi hjálp eða - mjög sértæka þjónustu, s.s. börn með einhverfu Kynningar um allt land fyrir foreldra, kennara, skóla og aðra hagsmunaaðila: Erindi, námssmiðjur, ráðgjöf, handleiðsla, eftirfylgd En hvernig er þetta gert? Leitað er eftir þátttakendum í klíníska rannsókn á nýju rannsóknarlyfi Tilgangur rannsóknarinnar er að athuga öryggi og verkun mismunandi skammta rannsóknarlyfsins við meðhöndlun á þrálátum háþrýstingi, samanborið við lyfleysu og virkt, markaðssett lyf. Aðalrannsakandi er Karl Andersen, sérfræðingur í lyflækningum og hjartalækningum. Rannsóknin fer fram á Rannsóknarsetri Íslenskra lyfjarannsókna ehf. – Encode, Krókhálsi 5d, 110 Reykjavík. Hverjir geta tekið þátt? • Konur og karlar á aldrinum 18-75 ára með þrálátan háþrýsting. Konur verða að vera komnar yfir tíðahvörf eða hafa undirgengist ófrjósemisaðgerð. • Einstaklingar á stöðugri þriggja lyfja meðferð við háþrýstingi sem eru þrátt fyrir það með of háan blóðþrýsting. Lyfjameðferðin má vera flóknari, þ.e. fleiri en þrjú lyf notuð, en eitt lyfjanna skal þó vera þvagræsilyf. Hvað felur rannsóknin í sér? Þátttaka varir í allt að 14 vikur og gert er ráð fyrir um 13 heimsóknum á rannsóknarsetur á tímabilinu. Heimsóknirnar taka u.þ.b. 1 til 4 klst. Gerðar verða blóðþrýstingsmælingar, bæði á rannsóknarsetri og með notkun blóðþrýstingsvaktara yfir sólarhring. Blóðsýni verða tekin í flestum heimsóknum. Áhætta af þátttöku felst í mögulegum aukaverkunum af notkun rannsóknarlyfsins, bæði þekktum og ófyrir- séðum. Ekki er hægt að tryggja að þátttakendur fái tímabundinn bata en niðurstöður rannsóknarinnar geta leitt til framfara í meðferð sjúkdómsins. Greitt verður fyrir þátttöku og rannsóknareftirlit verður þátttakendum að kostnaðarlausu. Frekari upplýsingar Ef þú hefur áhuga á að taka þátt, vinsamlegast hafðu samband við hjúkrunarfræðing rannsóknarinnar í síma 510 9911. Tekið skal fram að einstaklingar sem svara auglýsingunni hafa á engan hátt skuldbundið sig til að taka þátt í rannsókninni. Ákveði þeir að taka þátt, geta þeir dregið sig út úr rannsókninni hvenær sem er, án þess að gefa sérstaka ástæðu fyrir ákvörðun sinni. Rannsóknin hefur fengið leyfi Lyfjastofnunar, Vísindasiðanefndar og Persónuverndar. Unnið er að kvikmynd um sögu Landsmóta UMFÍ sem spanna nú í sumar 100 ár. Myndin byggist á stuttum myndbrotum frá öllum mótum frá upphafi til undirbúnings Landsmótsins á Akureyri í sumar, þar sem myndin verður sýnd. Þeir sem geta lánað myndir eða bent á eigendur mynda eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband hið fyrsta við Þjónustumiðstöð Ungmennafélags Íslands í síma 568-2929 eða á netfangið umfi@umfi.is Áttu kvikmynd af Landsmótum UMFÍ 1909–2009? EI N N ,T V EI R O G ÞR ÍR 24 8. 10 2 Á SAMA tíma og skjaldborg skal slegin um heimilin og fyr- irtækjum bjargað eru stýrivextir hærri en hjá nokkurri annarri þjóð. Þeir eru sagðir svona háir til að slá á verðbólguna. Samt sýnir reynslan ótví- rætt að verðbólgan eltir vextina. Hækki vextir eykst verðbólga. Lækki vextir þá hopar verðbólgan. Áhrif hárra vaxta á heimilin og vitlaus mæling verðtryggingar er það, sem allur almenningur þekkir af eigin raun og hefur látið ganga yfir sig allt of lengi. Áhrif hárra vaxta eru þau að 3.500 fyrirtæki verða gjald- þrota á árinu. Þá missa fleiri vinn- una og geta ekki staðið í skilum. Margir munu flýja land. Getur verið að þeir sem stjórna séu svo blindir að þeir sjái ekki hvert stefnir? Það hlýtur að vera önnur ástæða fyrir þessum ok- urvöxtum, sem allt eru að drepa. Líklegast telja þeir að stýrivextir verði að vera svona háir til að halda krónubréfunum í landinu. Krónan falli enn meira séu krónu- bréfin leyst út. Dekrað er við krónubréfaeigendur á sama tíma og almenningur kiknar undan af- borgunum og fyrirtækjunum blæð- ir út. Ekki er uppi á borðinu hversu há upphæð krónubréfin eru en sagt að þau geti verið 500 millj- arðar. Í nýlegri frétt í Mbl. kom fram að Evrópski seðlabankinn ætti 100 milljarða í krónubréfum og vextir af þeim um 7 milljarðar á ári. Vext- ir af 500 milljörðum eru þá samtals 35 milljarðar. Þeir eru reglulega greiddir út í evrum þrátt fyrir gjaldeyrishöftin. Hvers vegna er dekr- að svona við þessa braskara, sem af græðgi fjárfestu, sem fagfjárfestar, í krónu- bréfum á Íslandi? Væri ekki nær að huga að unga fólkinu, sem keypti íbúðir fyrir mörgum árum og hvað með þá eldri, sem misstu ævisparnaðinn? Hver skyldi svo borga þessa háu vexti? Jú, auð- vitað breiðu bökin. Jón og Gunna. Erfitt er að gera sér grein fyrir hvað 35 milljarðar í vexti er mikið án þess að bera það saman við ein- hverja þekkta stærð, eins og t.d. Kárahnjúkavirkjun, sem Lands- virkjun er að kikna undan. Líkleg- ast greiðir Landsvirkjun Kára- hnjúka upp á 40 árum, en vextirnir, sem Jón og Gunna greiða eru 1 stk. Kárahnjúkavirkjun á 3-4 árum! Frá bankahruni eru Jón og Gunna búin að greiða hátt í 20 milljarða í vexti, sem er hátt í eitt stk. tónlist- ar- og ráðstefnuhöll, sem bráðvant- ar. Hvað voru það annars margir milljarðar, sem heilbrigðisráðherr- arnir ætluðu að skera niður? Hvað er mikið í krónubréfum og hverjir eiga þau? Skattgreiðendur borga okurvextina og eiga heimtingu á að vita það, hvað sem allri bankaleynd líður. Það skyldi þó ekki vera að eitthvað af milljörðunum, sem bankaræningjarnir stálu frá þjóð- inni, hafi lent í krónubréfaskjóli. Það fer ekki hjá því að maður velti fyrir sér, hvað gerist lækki stjórnvöld stýrivexti í 2,5%. Ég held að það gerist ekki neitt annað en jákvætt við það. Stýrivextir í flestum öðrum löndum eru 0,5 til 2%. Krónubréfaeigendur fá sem sagt hvergi hærri vexti nú en hjá Jóni og Gunnu. Ég er ekki í nokkrum vafa að það besta sem hægt er að gera í þeirri skelfilegu stöðu, sem er núna sé að lækka stýrivexti strax í 2,5% og greiða þá út í krónum. Taki krónubraskararnir út vexti og inn- stæður þá verður það í krónum. Væntanlega í smáskömmtum eftir því, sem þeir sjá fjárfesting- artækifæri í landinu. Þannig fæst sú innspýting í efnahagskerfið, sem þarf. Húsgrunnar og fasteignir fara að seljast og aukið fjármagn fer í fyrirtæki og nýsköpun. Þökk sé krónunni, því værum við með evrur eða $, þá gæti Seðlabankinn ekki prentað seðla eftir því sem krónubréfin vætla út. Áður en Steingrímur gekk til samstarfs við Jóhönnu lofaði hann að lækka stýrivexti og leiðrétta eða fella nið- ur verðtrygginguna. Nú hefur hann fengið annan séns til að standa við loforðin. Skyldi hann gera það eða bara halda áfram að ræða ESB og evruna á meðan heimilin og fyrirtækin fljóta að feigðarósi? Skjaldborg um krónubréf eða heimili og fyrirtæki? Eftir Sigurð Oddsson »Hvað er mikið í krónubréfum og hverjir eiga þau? Skatt- greiðendur borga ok- urvextina og eiga heimt- ingu á að vita það, hvað sem allri bankaleynd líður. Sigurður Oddsson Höfundur er verkfræðingur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.