Morgunblaðið - 03.05.2009, Side 17

Morgunblaðið - 03.05.2009, Side 17
góða spænsku til að geta lesið blöð- in en menningarlega séð hef ég enga hugmynd um hvernig beri að skilja hinar og þessar tilkynningar né heldur hvort þær séu vanalegar varúðarráðstafanir eða einsdæmi. Ég hef enga skoðun á því hvort stjórnvöldum sé treystandi eða ekki og ég þekki ekki kerfið. Ég ímynd- aði mér að í svo fjölmennri borg hlyti að vera einhver vefmiðill sem miðlaði upplýsingum til útlendinga en hef enn ekki fundið neitt. Samkomuhald bannað Við höfðum vonað að málin myndu skýrast yfir helgina. En þess í stað virtist ástandið aðeins vera að versna. Á mánudagsmorgni las ég í blöðunum að opinberar töl- ur yfir látna hefðu hækkað og að ríkari íbúar borgarinnar væru að flýja hana í hrönnum. Í dagblöð- unum mátti sjá myndir af heilbrigð- isstarfsmönnum leita hugsanlegra flensueinkenna meðal farþega á flugvöllum og rútustöðvum. Mexí- kósk vinkona mín sagði mér að búið væri að koma á ferðatakmörkunum milli fylkja. Í hádeginu bárust fréttir af því að Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefði hækkað viðbúnaðarstig vegna farsóttarhættu í heiminum, úr 3. stigi í 4. stig. Þetta er í fyrsta skipti eftir að viðbúnaðarstigin voru tekin upp, í kjölfar óttans við SARS og fuglaflensu, sem því hefur verið lyft upp úr þriðja stigi. Atburðurinn var því í senn sláandi og sögulegur og eins og til að undirstrika hann reið kröftugur jarðskjálfti upp á 6 á Richter yfir borgina. Líkt og aðrir íbúar borgarinnar þrifum við grím- urnar okkar og hlupum felmtri slegin út á götu. Nokkrum klukkutímum síðar til- kynntu mexíkósk yfirvöld að frá og með mánudeginum væru allar stór- ar samkomur bannaðar. Tilskipunin gerir ekki upp á milli ólíkra gerða samkomustaða, auk opinberra bygginga og safna á landsvísu skyldu bæði veitingastaðir, barir, garðar og líkamsræktarstöðvar loka dyrum sínum. Sú undantekn- ing var þó á að veitingastöðum skyldi heimilt að selja fólki mat til að taka með heim. Frestur til að skila skattaskýrslu var fram- lengdur um mánuð. Jafnvel mik- ilvægum mexíkóskum tyllidögum skyldi slaufað. Hinni árlegu fimmta-maí-göngu var aflýst, en skrúðgangan er einn af stærri við- burðum höfuðborgarinnar. Í henni fagnar heill her fólks í 19. aldar búningum sigri mexíkóska hersins á frönskun innrásaröflum árið 1862. Vinnumálaráðherra Mexíkó, Javier Lozano Alarcon, mæltist til þess að atvinnurekendur tækju frumkvæði í því að einangra þá sem mættu til vinnu með hita, hósta, kvef eða önnur merki um smit. Mestan ugg vakti þó ef til vill sú yfirlýsing að ef dánartölur héldu áfram að hækka myndi almenningssamgöngukerf- inu, sem flytur að jafnaði fimm milljónir manns á dag, verða lokað. Þegar erfiðleikar bjáta á í Mexíkó er kirkjan sá staður sem stór hluti þjóðarinnar leitar til. Varúðarráðstafanir stjórnvalda ganga hins vegar svo langt að jafn- vel kirkjum hefur verið lokað. Þess í stað má sjá fólk krjúpa og biðja fyrir utan kirkjur. Bráðabirgðaölt- urum hefur verið komið upp utan dyra og öll hin ótal Maríuskrín sem finna má víðsvegar um borgina ljóma upplýst. Á plakötum sem nú hefur verið klístrað á veggi og ljósastaura má lesa leiðbeiningar yfirvalda til al- mennings. Haldið ykkur fjarri smit- uðu fólki! Þvoið hendur reglulega með vatni og sápu! Ekki deila mat eða drykk með öðrum! Loftið vel út úr íbúðum og skrifstofum! Haldið svæðum og hlutum í sameiginlegri notkun hreinum! Hyljið vitin með skurðlæknagrímu! Ótti og óvissa eru öflugt eitur. Strax á mánudagsmorgun mátti í fjölmiðlum og á spjallsvæðum heyra raddir sem ásökuðu stjórnvöld um að hafa reynt að þagga flensuna niður til þess að vernda eigin hag í komandi kosningum. Stjórnarand- staðan var sökuð um að nýta sér flensuna til þess að koma óorði á ríkisstjórnina. Fréttir bárust af því að fyrir utan eina jarðlestarstöðina hefðu hermenn selt skurðlækna- grímur sem dreifa átti ókeypis. Lögreglumenn sögðu að þeim hefðu ekki borist neinar opinberar leið- beiningar um flensuna eða um rétta notkun skurðlæknagrímanna heldur hefðu þurft að reiða sig á almennar upplýsingar í fjölmiðlum. Á spjall- svæðum mátti lesa nafnlausar frá- sagnir aðila sem sögðust vera læknar á hinu eða þessu sjúkrahús- inu og skýrðu frá ringulreið, lyfja- skorti og jafnvel skipulögðum til- raunum yfirvalda til þess að falsa dánarvottorð í von um að halda tölu látinna niðri. Aðrir sögðu frá því að læknar og hjúkrunarfólk væri að veikjast og látast í stórum stíl og að mikil hræðsla hefði gripið um sig innan starfsstéttarinnar. Margir notuðu tækifærið til að taka út ónotað frí eða jafnvel til þess að fara snemma á eftirlaun. Æðruleysi á erfiðum tímum Enn sem komið er er yfirgnæf- andi hluti látinna í Mexíkó. Hvers vegna vírusinn hittir fólk svo mun harðar fyrir í Mexíkó er enn ekki vitað. Uppi eru getgátur um það að mögulega sé hér á sveimi annar vír- us sem í bland við svínaflensuvírus- inn sé banvænn kokteill. Michael O’Leary, forstjóri Ryan Air, kenndi því um að Mexíkó væri vanþróað þriðjaheimsríki þar sem fólki byggi í skít og þrengslum. Einhverjir geta sér til að loftmengun hér í borginni geri vírusnum auðveldara fyrir. Ráðstafanir yfirvalda eru að mati flestra skynsamlegar. Enn sem komið er hlítir fólk leiðbeiningum yfirvalda og tilmælum. Ég hef bæði séð og heyrt samlíkingar við ástandið eftir stóra jarðskjálftann 1985. En það er grunnt á óttanum um að ástandið versni og hvað þá? Hvað gerist verði almennings- samgöngur lagðar niður? Hvað ger- ist ef svínaflensan breiðist enn frek- ar út? Munu fleiri þjóðir loka á mexíkóskar útflutningsvörur? Er hætta á því að matvöruverslunum verði lokað? Hvaða áhrif mun þetta ástand hafa á hina óopinberu borg- arastyrjöld sem geisar í norðri? Fólk er þegar byrjað að hamstra dósamat og vatn, en hér í Mexíkó- borg telst kranavatnið ódrykkjar- hæft. Mögulega má rekja æðruleysi Mexíkóa til þess að hér er fólk ýmsu vant. Flest fullorðið fólk man vel jarðskjálftann 1985 þar sem rúmlega tíu þúsund manns létust. Fólk er sömuleiðis vant ýmsu sam- fara stöðugum átökum yfirvalda og eiturlyfjamafíunnar. Von um betri tíð Ég get ekki annað en vonað að allt fari á besta veg. Við getum huggað okkur við það að frá því að fuglaflensan hræddi líftóruna úr heimsbyggðinni fyrir sex árum hef- ur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin og flestar þjóðir heims lagt áherslu á viðbúnað og viðbrögð gegn akk- úrat þessum aðstæðum. Þrátt fyrir allt hefur verklag mexíkóskra og bandarískra stjórnvalda enda verið fumlaust við þessar erfiðu að- stæður. Ég þekki vissulega útlend- inga sem ætla beint úr landi eða eru þegar farnir úr landi en sjálf ætla ég að doka við. Mexíkó er jú nýja ástin mín og mér finnst hún al- gerlega þess virði að bíða og sjá til hvað gerist. borg 17 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. MAÍ 2009 www.tskoli.is Ráðstefna verður haldin í hátíðarsal Tækniskólans við Háteigsveg föstudaginn 8. maí frá kl. 13:00 – 17:00. Ráðstefnugjald er 4000 kr. Ráðstefnugögn verða afhent frá kl. 12:30. Skráning fer fram í s. 514 9601 eða á netfangið ave@tskoli.is. Nánari upplýsingar á www.tskoli.is. • Ávarp samgönguráðherra • e Airline Industry: Trends, Challenges and Strategies John Wensveen Ph.D. Dean of School of Aviation • Air Atlanta Hannes Hilmarsson forstjóri • Icelandair Birkir Holm Guðnason framkvæmdastjóri • Flugfélag Íslands Árni Gunnarsson framkvæmdastjóri • Flugvélamarkaðurinn Hafþór Hafsteinsson stjórnarformaður Avion Aircraft Trading hf. • Flugfélagið Ernir Hörður Guðmundsson framkvæmdastjóri • Primera Air Hrafn Þorgeirsson framkvæmdastjóri • Flugmálastjórn Pétur K. Maack flugmálastjóri Áskoranir og tækifæri Rekstur flugfélaga

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.