Morgunblaðið - 03.05.2009, Side 6
6 FréttirVIKUSPEGILL
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. MAÍ 2009
Ýmsir munu fagna endurkomu Úlf-anna í úrvalsdeildina en félagið
á glæsilegri sögu en flest önnur
ensk félög. Það var
stórveldi á sjötta
áratugnum þeg-
ar það varð
meistari í þrí-
gang, 1954,
1958 og 1959. Á
sama áratug hafn-
aði félagið einnig þrívegis í öðru
sæti. Knattspyrnustjóri liðsins á
þessum tíma var Stan Cullis. Úlf-
arnir hafa unnið enska bikarinn fjór-
um sinnum, 1893, 1908, 1949 og
1960, og deildarbikarinn í tvígang,
1974 og 1980. Gengi félagsins hefur
verið magurt undanfarinn ald-
arfjórðung en á þeim tíma hafa Úlf-
arnir aðeins verið í efstu deild í einn
vetur, 2003-04.
Eftir Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is
H
ann er kraftmikill,
snöggur og gegnheill
af vöðvum. Þyngdar-
punkturinn er neð-
arlega sem þýðir að
jafnvel bestu varnarmenn eiga ákaf-
lega erfitt með að hemja hann þegar
hann snýr á þá og rykkir af stað.
Hann er líka skytta góð, með báðum
fótum, og raðar inn mörkum eins og
að drekka vatn.
Andstæðingar eiga sannarlega við
rammann að rjá þegar Sylvan
Ebanks-Blake er annars vegar en
hann hefur slegið rækilega í gegn í
vetur með liði sínu Wolverhampton
Wanderers sem vann næstefstu deild
í Englandi með yfirburðum. Enginn
leikmaður í efstu deildunum tveimur
hefur skorað fleiri mörk, 25 að tölu.
Næstu menn eru fjórum mörkum á
eftir, þannig að mikið má ganga á í
lokaumferð deildarinnar í dag til að
gullskórinn gangi honum úr greipum.
Það yrði þá annað árið í röð sem
Ebanks-Blake hreppir hnossið en í
fyrra gerði hann 23 mörk fyrir
Plymouth Argyle og Úlfana. Þeirra á
meðal mark ársins gegn Charlton.
Kappinn hafði þá verið króaður af upp
við endamörk þegar hann sneri af
ótrúlegri hugmyndaauðgi og styrk á
agndofa varnarmanninn og þrumaði
knettinum upp í vinkilinn. Þulurinn
átti bara eitt orð: Abracadabra! (Sjá á
YouTube: Ebanks-Blake Wonder
Goal).
Það er á Ebanks-Blake að skilja að
undanfarin tvö ár hafi verið ævintýri.
„Ég get ekki lýst þessu. Það er ekkert
erfiðara í knattspyrnu en að skora
mörk en því fleiri sem maður skorar
þeim mun heitar þráir maður þau,“
sagði hann nýverið við The Sunday
Times. Í viðtalinu kveðst hann oft
liggja andvaka á síðkvöldum og velta
því fyrir sér að hann hafi verið að
leika knattspyrnu að viðstöddum 23
þúsundum áhorfenda og vinna mergj-
uð afrek. „Ég spyr mig: Gerði ég
þetta í raun og veru? Og þegar svarið
er jákvætt er tilfinningin óviðjafn-
anleg. Þessu má aldrei ljúka.“
Mýmörgum sögum fer af mönnum
sem hafa verið iðnir við kolann í neðri
deildum á Englandi en sprungið á
limminu þegar í úrvalsdeildina er
komið. Næsta vetur fær Ebanks-
Blake tækifæri til að sanna að hann
sé ekki einn af þeim. Spurningin er
bara hvort hann mun klæðast búningi
Úlfanna eða einhvers annars félags.
Blóðhundarnir hafa nefnilega runnið
á lyktina.
Lamdi útkastara með
veski unnustunnar
Ekki svo að skilja að Ebanks-
Blake hafi ekki farið út af sporinu.
Fyrir hálfu öðru ári var hann tekinn
höndum á næturklúbbi í Plymouth og
játaði í kjölfarið á sig klúryrði og
líkamsmeiðingar. Hann ku hafa lamið
furðu lostinn útkastara með veski
unnustu sinnar. Já, Ebanks-Blake er
greinilega í lófa lagið að koma fólki í
opna skjöldu – innan vallar sem utan.
Sylvan Augustus Ebanks-Blake
fæddist í Cambridge 29. mars 1986.
Foreldrar hans eru ógiftir og hann
hefur valið að nota eftirnöfn þeirra
beggja. Hann æfði með heimaliðinu,
Cambridge United, sem drengur en
fyrsta samninginn gerði hann við öllu
stærra félag, Manchester United.
Kaldhæðni í ljósi þess að Ebanks-
Blake batt trúss sitt við Liverpool í
æsku.
Hann átti ágætu gengi að fagna í
unglingaliði félagsins og lék sinn
fyrsta leik fyrir aðalliðið í deildarbik-
arnum í október 2004, aðeins átján
ára að aldri. Ebanks-Blake þurfti að
bíða í ár eftir næsta tækifæri sem
hann þáði raunar með þökkum, skor-
aði í deildarbikarleik gegn Barnet.
Eftir það sat hann nokkrum sinnum á
varamannabekk United í Meist-
aradeild Evrópu án þess að koma við
sögu. Í janúar 2006 var hann svo lán-
aður til Royal Antwerp í Belgíu til að
öðlast leikreynslu. Þar gerði hann
fjögur mörk í níu leikjum.
Við endurkomuna á Old Trafford
sá hann hins vegar sæng sína upp-
reidda. Hann fengi ekki fleiri tæki-
færi. „Auðvitað voru það vonbrigði,“
sagði hann við The Sunday Times.
„Enginn vill yfirgefa besta félag í
heimi og hlálegt að halda því fram að
vistaskiptin hafi verið skref upp á við.
En ég þráði að spila fótbolta.“
Það var næstefstudeildarlið
Plymouth Argyle sem gaf Ebanks-
Blake tækifæri til að sanna sig. Og
það gerði hann svo um munaði. Hann
þakkar Ian Holloway, þáverandi
knattspyrnustjóra, fyrir að hafa gert
sig að betri leikmanni. Holloway mun
hafa kennt honum að spila fyrir liðið
án þess að fórna meðfæddri eigin-
girni markaskorarans.
Mick McCarthy, knattspyrnustjóri
Úlfanna, mun vera af sama meiði.
„Þeir eru báðir afar hreinskilnir og
halda ekki aftur af sér. Þannig vil ég
að komið sé fram við mig. Ég hef
skömm á skjalli og ef ég er ekki í lið-
inu vil ég vita hvers vegna. Það er svo
fagleg skylda mín að rífa mig upp í
kjölfarið,“ segir Ebanks-Blake.
Þetta sýndi hann líka í verki á síð-
ustu leiktíð. Hóf veturinn á tréverk-
inu en um áramót var hann búinn að
gera þrettán mörk fyrir Plymouth,
þar af ellefu í deildinni. Þá byrjuðu
Úlfarnir að spangóla.
Það var klásúla í samningi Ebanks-
Blake við Plymouth þess efnis að
hann mætti yfirgefa félagið bærist
því tilboð upp á hálfa aðra milljón
sterlingspunda í hann. Úlfunum þótti
því fé vel varið.
Kvöld eitt í janúar 2008 bauð félag-
ið leikmanninum í heimsókn á Mol-
ineux. „Ég gekk út á völlinn. Flóð-
ljósin voru ekki einu sinni á en ég
áttaði mig eigi að síður á því hvílík
dómkirkja þetta er. Á því augnabliki
varð mér ljóst að þetta væri stað-
urinn þar sem mig langaði að leika
knattspyrnu.“
Við rammann að rjá
Sylvan Ebanks-Blake var ofaukið á Old Trafford en þessi kraftmikli miðherji lagði ekki árar
í bát og raðar nú inn mörkum fyrir Úlfana sem snúa aftur í úrvalsdeildina á næstu leiktíð
Massi Sylvan Ebanks-
Blake er eitt mesta
vöðvaknippi sem sést
hefur lengi í ensku
knattspyrnunni.
Ofmælt er að það úi og grúi af
nafnkunnum leikmönnum í liði Úlf-
anna um þessar mundir. Menn
kunna þó sitthvað fyrir sér. Félagi
Ebanks-Blake í framlínunni er hinn
víðförli Skoti Chris Iwelumo sem
gert hefur fjórtán mörk í vetur.
Þar fyrir utan kannast menn lík-
lega helst við markvörðinn Wayne
Hennessey, sem er þrátt fyrir ung-
an aldur orðinn landsliðs-
markvörður Walesverja, og varnar-
jaxlinn leikreynda Jody Craddock
sem lengi lék með Sunderland.
Hann er fyrirliði liðsins.
Af öðrum kempum má nefna út-
herjann Michael Kightly sem leikið
hefur fyrir landslið Englands skip-
að leikmönnum 21 árs og yngri, og
miðvörðinn unga Richard Stear-
man en þeir eru báðir í liði ársins í
deildinni. Þarna eru líka skoski
varnarmaðurinn Christophe Berra,
sem kom frá Hearts í janúar, enski
miðvellingurinn Karl
Henry og írski miðherj-
inn Andrew Keogh sem
átti fast sæti í liðinu fyr-
ir komu Iwelumos.
Úlfarnir hafa fengið
nokkra leikmenn að láni
á leiktíðinni, einkum
eftir að liðið lenti í öldu-
dal eftir áramótin. Þetta
eru Shane Higgs (Chel-
tenham), Kyel Reid og Nigel
Quashie (báðir West Ham), og
Marlon Harewood (Aston Villa).
Dvölin á Molineux hefur verið
sérstaklega ánægjuleg fyrir Quas-
hie sem er vanari því að falla niður
um deildir en fara upp um þær. Alls
hefur kappinn fallið fjórum sinn-
um með jafnmörgum liðum, QPR,
Nottingham Forest, Southampton
og WBA. Það er líklega öruggara
fyrir Úlfana að losa sig við Quashie
fyrir næsta tímabil!
Blanda af ylfingum og eldri úlfum
Sprækur
Michael
Kightly.
Ýmsir víðkunnir leikmenn hafaskrýðst búningi Úlfanna gegn-
um tíðina, þeirra merkastur Billy
Wright, sem var fyrirliði liðsins á
sjötta áratugnum. Hann lék 541 leik
fyrir Úlfana og 105 til viðbótar fyrir
enska landsliðið. Enda þótt Wright
léki allan sinn feril í vörn var hann
aldrei áminntur – hvað þá vísað af
velli. Af öðrum köppum frá þessum
tíma má nefna útherjann Johnny
Hancocks, sem gerði 168 mörk í 378
leikjum fyrir Úlfana enda þótt hann
væri ekki nema 163 cm á hæð, og
markvörðinn Bert Williams.
Af yngri leikmönnum Úlfannamuna eflaust margir eftir
markakóngnum mikla John Richards
sem gerði 195 mörk fyrir félagið á
árunum 1969-83, bakverðinum Ge-
off Palmer og miðvellingnum Kenny
Hibbitt. Þá lék Emlyn heitinn Hug-
hes til skamms tíma með félaginu.
Fræknasti leikmaður Úlfanna í
seinni tíð er án efa Steve Bull sem
gerði hvorki fleiri né færri en 306
mörk fyrir félagið á árunum 1986-
99, þar af 250 í deildinni. Öll komu
þau í neðri deildum en það kom ekki
í veg fyrir að Bull væri valinn í enska
landsliðið. Þar gerði hann 4 mörk í
13 leikjum og lék m.a á HM 1990.
Fornfrægt félag
einfaldlega betri kostur
laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-19
s: 522 4500 www.ILVA.is
Skemmtileg
lautarferð
Picnic. Nestiskarfa, málmur.
37 x 28 x 18 cm. Verð 3.990,-