Morgunblaðið - 03.05.2009, Síða 49

Morgunblaðið - 03.05.2009, Síða 49
Þ au Angus og J ulia hafa fengist við tónlist all- lengi, en framan af tróðu þau upp í eigin nafni hvort fyrir sig, en það þeirra sem var að spila var gjarnan með hitt sér til aðstoðar. Það fór og svo að smám saman rann allt saman í eitt og þau fóru að koma fram saman sem Angus & Julia Stone árið 2006. Að því sögðu þá semja þau víst lög hvort fyrir sig og koma sér síðan saman um framhaldið, útsetningu, raddir og spilamennsku. Afkastamikil Það fyrsta sem þau systkini sendu frá sér var sex laga stuttskífa, Cho- colates and Cigarettes, sem kom út í ágúst 2006, en þau framleiddu hana til þess að hafa eitthvað til að selja á tónleikum. Önnur stuttskífa, Heart Full of Wine, líka sex laga, kom út í febrúar 2007. Þriðja stuttskífan, The Beast, að þessu sinni fjögurra lafa, kom út í ágúst 2007 og mánuði síðar kom fyrsta stóra platan, A Book Like This, en allar voru plöturnar að- eins gefnar út í Ástralíu til að byrja með. Plöturnar fjórar skarast nánast ekkert, Á The Beast er eitt lag af A Book Like This, og því gáfu þau út tónlist sem dugað hefði á ríflega tvær breiðskífur á rétt rúmu ári, alls 29 lög. A Book Like This var vel tekið í Ástralíu, fór beint í fimmta sæti ástr- alska breiðskífulistans, og orðspor þeirra systkina fór víða, lög rötuðu inn í sjónvarpsþætti vestur í Amríku og menn tóku að sperra eyrun víða. Það kom sér líka vel hvað aðrir tón- listarmenn tóku þeim vel, til að mynda Chris Potter, sem frægur er fyrir samstarf sitt við The Verve og Richard Ashcroft, og eins Fran Healy, liðsmaður Travis, sem hreifst svo af fyrstu stuttskífunni að hann bauð þeim afnot af heimahljóðveri sínu. Ólíkar raddir Það tók þó tíma að greiða úr rétt- indamálum og A Book Like This var ekki gefin út í Evrópu fyrr í október sl., en þá hafði annar hver maður sótt sér eintak á netinu ef að líkum lætur. Þess má svo geta að platan kom svo loksins út vestan hafs í mars sl., en þá með talsvert annarri lagaskipan og í raun eins og nokkurskonar safn úrvalslaga úr lagasafninu mikla. Ekki ber á öðru en að þau systkini nái vel saman, en þau eru þó býsna ólíkir tónlistarmenn. Það er ekki bara það að raddirnar séu einnig mjög ólíkar; Julia með tæra og eilítið hvella rödd og Angus öllu grófari, því þær falla merkilega vel saman. Málið er að lögin sem þau semja eru mjög ólík og þarf ekki mikið hugmyndaflug til að greina á milli þegar hlustað er á plötur þeirra. Annars vegar eru gríp- andi ljúflingslög, vissulega með beitt- um textum, en annars frekar átaka- lítil, og svo myrk klifunarkennd lög þar sem myrkrið ólgar undir. Eins og Julia Stone lýsti því í viðtali á síðasta ári: „Angus syngur um skýin, ég um rigninguna.“ Hafi einhver efast um það hvort þeirra systkina kynni betur við sig í skugganum sannast það rækilega á nýrri sólóskífu Angus Stone, Smok- ing Gun, sem hann gaf út undir nafn- inu Lady of the Sunshine fyrir stuttu. Nafnið er sjálfsagt valið til að spilla ekki fyrir væntanlegri breiðskífu þeirra systkina sem væntanleg er síðar á árinu. arnim@mbl.is Skuggar og ljós Samrýnd Systkinin knáu Angus og Julia Stone dæla plötunum út. TÓNLIST Á SUNNUDEGI Árni Matthíasson Áströlsku systkinin Angus og Julia Stone hafa vakið athygli fyrir lipurlega samin lög og framúrskarandi flutning. Það má líka gefa þeim prik fyrir afköst, enda rekur hver platan aðra, nú síðast sólóskífa Angus. Landnámssetrið í Borgarnesi 437 1600 | landnamssetur@landnam.is Stormar og styrjaldir - Sturlunga Einars Kárasonar (Söguloftið) Lau 9/5 kl. 20:00 Sun 17/5 kl. 16:00 Lau 23/5 kl. 20:00 Lau 30/5 kl. 16:00 Mr. Skallagrímsson eftir Benedikt Erlingsson (Söguloftið - sýningum lýkur í vor) Fim 7/5 kl. 20:00 U Fös 8/5 kl. 20:00 U Fim 14/5 kl. 20:00 U Lau 16/5 kl. 20:00 U Þri 19/5 aukas. ! kl. 20:00 U Mið 20/5 kl. 20:00 U Fös 22/5 kl. 20:00 U næst síðasta sýn. Fös 29/5 kl. 20:00 U síðasta sýn. ! Tvær Grímur 2007 - Besti leikari - Besta handritið BRÁK eftir BrynhildiGuðjónsdóttur (Söguloftið) Lau 9/5 kl. 16:00 U Fös 15/5 kl. 20:00 U Sun 24/5 kl. 16:00 U Sun 31/5 kl. 16:00 U Fös 5/6 kl. 20:00 Lau 6/6 kl. 16:00 U Sun 21/6 kl. 16:00 Tvær Grímur 2008 - Besta leikkonan - Besta handritið Hafnarfjarðarleikhúsið 555 2222 | theater@vortex.is Húmanimal (Hafnarfjarðarleikhúsið) Sun 3/5 kl. 21:00 Sun 17/5 kl. 21:00 Sun 24/5 kl. 21:00 Ódó á gjaldbuxum (Síðustu sýningar) Mið 6/5 kl. 20:00 Fréttir á SMS MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. MAÍ 2009 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is Söngvaseiður (Stóra sviðið) Einleikjaröð- Sannleikurinn (Litla sviðið) Lau 9/5 kl. 19:00 U Lau 23/5 kl. 19:00 ný aukaU Lau 23/5 kl. 22:00 ný aukaÖ Ökutímar (Nýja sviðið) Sun 3/5 kl. 20:00 2kort U Mið 6/5 kl. 20:00 3kort U Fim 7/5 kl. 20:00 aukas U Fös 8/5 kl. 19:00 4kort U Lau 9/5 kl. 19:00 U Lau 9/5 kl. 22:00 U Sun 10/5 kl. 20:00 U Mið 13/5 kl. 20:00 5kort U Fim 14/5 kl. 20:00 6kort U Fös 15/5 kl. 19:00 U Lau 16/5 kl. 16:00 7kort U Sun 17/5 kl. 19:00 U Mið 20/5 kl. 19:00 8kort U Fim 21/5 kl. 20:00 Fös 22/5 kl. 19:00 aukas Lau 23/5 kl. 19:00 aukas Sun 24/5 kl. 20:00 aukas Mið 27/5 kl. 20:00 9kort U Fim 28/5 kl. 20:00 10kort U Fös 29/5 kl. 19:00 Ö Miðasala er hafin - aðeins sýnt í maí. Söngvaseiður – 5 dagar í frumsýningu! Mið 6/5 kl. 20:00 fors. U Fim 7/5 kl. 20:00 fors. U Fös 8/5 kl. 20:00 frums U Lau 9/5 kl. 20:00 2kort U Sun 10/5 kl. 20:00 3kort U Mið 13/5 kl. 20:00 4kort U Fim 14/5 kl. 20:00 5kort U Fös 15/5 kl. 20:00 6kort U Lau 16/5 kl. 16:00 7kort U Sun 17/5 kl. 16:00 U Sun 17/5 kl. 20:00 8kort U Mið 20/5 kl. 20:00 U Fim 21/5 kl. 16:00 U Fim 21/5 kl. 20:00 9kort U Fös 22/5 kl. 20:00 10kort U Lau 23/5 kl. 20:00 U Sun 24/5 kl. 16:00 U Mið 27/5 kl. 20:00 ný aukasÖ Fim 28/5 kl. 20:00 U Fös 29/5 kl. 20:00 U Lau 30/5 kl. 20:00 U Mán 1/6 kl. 16:00 ný aukaÖ Mið 3/6 kl. 20:00 U Fim 4/6 kl. 20:00 U Fös 5/6 kl. 20:00 ný aukasÖ Lau 6/6 kl. 16:00 U Lau 6/6 kl. 20:00 U Sun 7/6 kl. 16:00 U Fim 11/6 kl. 20:00 U Fös 12/6 kl. 20:00 ný aukasÖ Lau 13/6 kl. 14:00 Ö Sun 14/6 kl. 16:00 U Frumsýning 8. maí! Þú ert hér (Nýja sviðið) Fös 8/5 kl. 21:00 ný aukas Aukasýning vegna fjölda áskorana. ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Sími 551 1200 / midasala@leikhusid.is / www.leikhusid.is Hart í bak (Stóra sviðið) Sædýrasafnið (Kassinn) Creature - gestasýning (Kassinn) Í Óðamansgarði (Stóra sviðið) ópera í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík Skoppa og Skrítla í söng-leik (Kúlan) Kardemommubærinn (Stóra sviðið) Sýningar haustsins komnar í sölu Sýningum lýkur 15. maí. Tryggðu þér sæti Síðasta sýning. Bestu vinkonur barnanna í líflegri sýningu fyrir þau allra yngstu. Kolklikkaður leikhúskonsert. Aðeins fjórar sýningar. Aðeins tvær sýningar. Fös 8/5 kl. 20:00 U Lau 9/5 kl. 20:00 U Sun 3/5 kl. 21:00 Ö Fim 14/5 kl. 20:00 U Fös 15/5 kl. 20:00 Ö Fös 22/5 kl. 20:00 Lau 9/5 kl. 13:00 Ö Fim 14/5 kl. 20:00 AUKAS. Fös 15/5 kl. 20:00 U Lau 16/5 kl. 20:00 Sun 17/5 kl. 20:00 Lau 23/5 kl. 20:00 Lau 9/5 kl. 14:30 Ö Sun 24/5 kl. 14:00 U Þri 26/5 kl. 18:00 U Mið 27/5kl. 18:00 U Fös 29/5 kl. 18:00 U Lau 30/5 kl. 14:00 U Lau 30/5 kl. 17:00 U Fim 4/6 kl. 18:00 U Fös 5/6 kl. 18:00 U Lau 6/6 kl. 14:00 U Sun 3/5 kl. 14:00 U Sun 3/5 kl. 17:00 U Þri 5/5 kl. 18:00 U Sun 10/5 kl. 14:00 U Sun 10/5 kl. 17:00 U Lau 16/5 kl. 14:00 U Lau 16/5 kl. 17:00 U Sun 17/5 kl. 14:00 U Sun 17/5 kl. 17:00 U Lau 6/6 kl. 17:00 U Sun 7/6 kl. 14:00 U Sun 7/6 kl. 17:00 U Lau 13/6 kl. 14:00 Ö Lau 13/6 kl. 17:00 Ö Sun 14/6 kl. 14:00 U Sun 14/6 kl. 17:00 U Sun 30/8 kl. 14:00 Sun 30/8 kl. 17:00 Leikfélag Akureyrar Miðasölusími: 4 600 200, netfang: midasala@leikfelag.is Fim 7/5 kl. 20:00 U Fös 8/5 kl. 20:00 U Lau 9/5 kl. 20:00 U Sun 10/5 kl. 20:00 Ö Fim 14/5 kl. 20:00 Ný sýnÖ Fös 15/5 kl. 20:00 Ný sýnÖ Sun 17/5 kl. 20:00 Ný sýn Fúlar á móti (Sýnt í Íslensku Óperunni ) Aðeins örfáar sýningar Frá Ástralíu hafa komið fjölmargir þekktir tónlistamenn og hljóm- sveitir og spilað allt frá harðri fram- úrstefnu í sykrað popp. AC/DC Þegar spurt er: Til hvers er Ástr- alía? er svarið jafnan: AC/DC. Sveitin sú hefur haldið sess sínum sem ein vinsælasta rokksveit heims allt frá því fyrsta platan kom út fyr- ir hálfum fjórða áratug. Bee Gees Diskósveit djöfulsins, segir sjálf- sagt einhver, en þeir Gibb-bræður gáfu líka út fínar poppplötur. Midnight Oil Státar af ljótasta söngvara rokk- sögunnar, eða þar um bil. Sló í gegn með hápólitískt rokk og barðist fyr- ir réttindum frumbyggja. The Birthday Party Gríðarlega öflug rokksveit sem náði Men at Work Á sínum tíma var annað hvert tón- listarmyndband sem Sjónvarpið sýndi með Men at Work. Áströlsk sveit þó að annar höfuðpaur hennar sé Skoti. Kylie Minogue Kylie sló í gegn í Ástralíu sem tán- ingur þó að stærstu sigrana hafi hún unnið síðan hún fluttist til Bretlands. Crowded House Gáfumannapopp í hæsta gæða- flokki. Ekki beint áströlsk hljóm- sveit, höfuðpaurinn er frá Nýja- Sjálandi, en var stofnuð í Melbo- urne og hefur gert út þaðan, með hléum, alla tíð. Savage Garden Gríðarlega vinsæl sveit undir lok síðustu aldar. Tónlistinni er best að lýsa svo: Sykurmolar með hunangi. þó aldrei verulegum vinsældum. Nick Cave byrjaði sinn magnaða feril í sveit- inni. INXS Það er grátlegt að INXS sé frægari fyrir það hvernig söngvari hennar týndi lífinu. Eða kannski hlálegt. Andfætlingarokk Gítarhetjan mikla Angus Young.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.