Morgunblaðið - 03.05.2009, Síða 22

Morgunblaðið - 03.05.2009, Síða 22
Ballerínukjóll Svarti lit- urinn tekur mesta ball- erínusvipinn af þessum. 22 Tíska MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. MAÍ 2009 Einhliða Ósamhverfir kjólar eins og þessir verða vinsælir í sumar. Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur ingarun@mbl.is Stuttir og litríkir kjólar erusannarlega vorboði þótt þaðsé kannski langt í að hægt sé að vera berleggjaður í þeim hér- lendis, ef einhvern tímann. Kjólarnir hans Christophe Decarnin hjá franska tískuhúsinu Balmain eru einhverjir þeir heitustu fyrir sumarið. Þetta eru engir væmnir blómakjólar heldur eru þeir rokkaðir, annaðhvort níðþröngir eða með útvíðu pilsi. Decarnin kom líka nýrri sídd í tísku, sítt-að-aftan- kjólum, sem eru eins og nafnið gefur til kynna stutt- ir að framan og síðir að aftan. Fyrir þær sem vilja vera í síðkjólum en samt sýna leggina er þetta góð lausn. Balmain hefur enda slegið í gegn hjá ung- stjörnunum og þeim sem vilja sýna að þeir fylgist með í tískuheiminum. Herðabreiðir jakkar og snjó- þvegnar gallabuxur eru einhverjar vinsælustu flík- urnar úr vor- og sumarlínu Balmain í ár, skammi hönnuðinn hver sem vill. Þessir kjólar eru hins veg- ar klæðilegri og eru ekki með eins mikið skrifað ut- an á sér „fórnarlamb tískunnar“ eins og herðabreiðu jakkarnir.  Við ströndina Liturinn á þess- um minnir á hafið og fer áreiðanlega vel við sól- brúna leggi. Flaksandi flottur Kjóllinn er töff í þessum dökkbleika lit. Með sítt að aftan Á kvöldin Þessi hylur ekki mik- ið en passar fyrir næt- urklúbbana. Rokkaður kvöldkjóll Þessi væri við hæfi á rauða dreglinum á óháðri kvikmyndahátíð. Lax ehf Suðurlandsbraut 18 s. 534 2030, 894 4047 palli@lax.is Langá á Mýrum Veiði í fallegu umhverfi Nokkrar spennandi stangir lausar í sumar www.svfr.is Háaleitisbraut 68 s. 568 6050 halli@svfr.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.