Morgunblaðið - 03.05.2009, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 03.05.2009, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. MAÍ 2009 Eftir Freystein Jóhannsson freysteinn@mbl.is Þ að jafnast ekkert á við fyrstu tengslin,“ segir Sæunn. „Á fyrstu tveimur til þremur ár- unum er lagður grunn- ur að sjálfsmynd einstaklingsins, enda eru þau mikilvægasta þroskaskeið ævinnar. Þá er heil- inn í örustum vexti og galopinn fyrir áhrifum umhverfisins. Þótt við munum ekki eftir fyrstu ár- unum, hafa rannsóknir í taugavís- indum og athuganir á sálarlífi full- orðinna leitt æ betur í ljós að einmitt þessir mánuðir hafa var- anleg áhrif á allt okkar líf upp frá því. Það er vegna þess að viðmót foreldra og annarra sem annast barn hafa bein áhrif á sjálfsmynd og tengsl þess við aðra um ókomin ár.“ Samfélagslegt verkefni að koma börnum til manns „Lítil börn hafa ríka þörf fyrir umönnum og hún skapar álag á foreldrana. Börn geta ekki lifað án foreldra og foreldrarnir þurfa stuðning til þess að sinna þörfum barnsins; þess vegna er það ekki einkamál foreldranna heldur sam- félagslegt verkefni að koma börn- um til manns. Því þarf að efla að- stoð við foreldra sem ekki eru í stakk búnir til að sinna börnum sínum nægilega vel, hvort sem það er vegna heilsufarsvanda eða slæmrar reynslu úr eigin barn- æsku. Ég hef líka efasemdir um leik- skólakerfið einsog það er nú. Það tekur frekar til þarfa fullorðinna en barna. Það er varhugavert að setja mjög ung börn á leikskóla, það gerum við allt niður í eins árs, en þá er sá tími sem barnið þarf hvað mest einstaklingsmiðaða umönnun. Hana hafa fæstir leik- skólar aðstöðu til að veita. Það er sátt um það í þjóðfélaginu að svona skuli þetta vera; það sé bezt fyrir alla. Foreldrarnir geta báðir unnið úti og fagaðilar gæta barns- ins og veita því verkefni við hæfi. En þessi mynd er mjög einföld- uð og bjöguð. Á fyrstu árunum hafa ung börn miklu meiri þörf fyrir nánd en nám. Það hefur verið tabú að tala um þetta því það er svo stutt í sekt- arkennd foreldranna. En við meg- um ekki láta vanlíðan hinna full- orðnu koma í veg fyrir að við tölum opinskátt um þarfir barna. Ég vil með bókinni opna fyrir um- ræðu svo foreldrar, fagfólk og ráðamenn hafi betri forsendur til að setja þarfir barna í forgrunn þegar þeir taka sínar ákvarðanir.“ Aðrir vista ekki börnin eins ung og jafn lengi – Hvenær eiga börn að byrja á leikskóla? „Ég tel í fyrsta lagi tveggja ára, helzt þriggja. En það er ekki bara aldurinn sem skiptir máli heldur líka hversu lengi börn dvelja þar. Það þarf að lengja fæðingarorlofið en við þurfum líka að endurskoða viðhorf okkar til samveru með litlum börnum. Ég veit ekki um neina þjóð sem vistar börn sín eins ung og eins lengi á leik- skólum og við. Hjá okkur er al- gengt að það séu fimm dagar í viku, níu tíma á dag. Það er skrýt- ið að þegar við vorum rík, töldum við okkur ekki hafa efni á að vera með börnum okkar. Það er mik- ilvægt nú þegar aðstæður eru til þess að fólk sé meira með börnum sínum, að fólk líti ekki á það sem eitthvert neyðarbrauð. Tengsl barnsins við foreldra eru því jafn- mikilvæg og næring og súrefni.“ Morgunblaðið/Heiddi Skelegg Sæunn Kjartansdóttir segir það ekki einkamál foreldra heldur samfélagslegt verkefni að koma börnum til manns. Bókin Árin sem enginn man fjallar um áhrif frumbernskunnar á börn og fullorðna. Höf- undurinn, Sæunn Kjart- ansdóttir, telur okkur á villigötum með yngstu þjóðfélagsþegnana og vill opna fyrir almenna umræðu um þeirra hlutskipti. Meiri þörf fyrir nánd en nám @ Fréttirá SMS Lán og styrkir til tækninyjunga og umbóta í byggingariðnaði Íbúðalánasjóður auglýsir til umsóknar lán og styrki til tækninýjunga og umbóta í bygg- ingariðnaði. Lán eða styrki má veita einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum sem vinna að þróun tæknilegra aðferða og nýjunga sem leitt geta til lækkunar á byggingarkostnaði og viðhaldskostnaði íbúðarhúsnæðis, styttri byggingartíma eða stuðlað með öðrum hætti að aukinni hagkvæmni í byggingariðnaði. Rafræn umsóknareyðublöð er að finna á vefsíðu Íbúðalánasjóðs, www.ils.is. Nánari upplýsingar veitir Einar Örn Stefánsson hjá Íbúðalánasjóði í síma 569 6900 og með tölvupósti einarorn@ils.is. Umsóknarfrestur er til 15. maí 2009 Íbúðalánasjóður skal samkvæmt lögum stuðla að tækni- nýjungum og umbótum í byggingariðnaði, m.a. með því að veita lán eða styrki. www.ils.is Borgartúni 21, 105 Reykjavík 569 6900, 800 6969, ils@ils.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.