Morgunblaðið - 03.05.2009, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 03.05.2009, Blaðsíða 27
27 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. MAÍ 2009 Lamisil Once 1% húðlausn inniheldur 10 mg af terbínafíni (sem hýdróklóríð). Lamisil Once er einskammta meðferð við fótsvepp (tinea pedis). Ekki má nota Lamisil Once ef til staðar er ofnæmi fyrir terbínafíni eða einhverju öðru innihaldsefni lyfsins. Lamisil Once er eingöngu ætlað til útvortis notkunar. Lyfið er eingöngu ætlað til húðmeðferðar á fótum. Lamisil Once á ekki að nota á meðgöngu nema brýna nauðsyn beri til. Konur með barn á brjósti eiga ekki að nota Lamisil Once. Börn og unglingar undir 18 ára aldri eiga ekki að nota lyfið þar sem reynslu skortir af slíkri notkun. Lyfið á einungis að bera á einu sinni. Best er að bera Lamisil Once á húðina eftir sturtu eða bað. Lyfið verður að bera á báða fætur, jafnvel þótt einkenni sjáist einungis á öðrum fæti. Þetta tryggir eyðingu sveppsins. Hann getur leynst víðar á fótum þótt ekki sjáist nein merki um hann. Lamisil Once er mild lausn og ertir sjaldnast húðina. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lesið vandlega leiðbeiningarnar sem fylgja hverri pakkningu. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ. Drepur fótsveppinn - þarf aðeins að bera á einu sinni Hef opnað aðstöðu í Vesturturni Glæsibæjar 4.hæð, Álfheimum 74 Jónas Geirsson tannlæknir, MS Sérgrein: Tannlýtalækningar, tannfyllingar og tannsjúkdómafræði Tímapantanir í síma: 561 3130 Þetta er bara æði, rosalega gaman. Þeir eru allir æðislegir, það er skemmtilegur mór- all og rosalega fínt að hanga með þeim. Stefanía Svavarsdóttir, 16 ára nemandi MH og nýráðin söngkona Stuðmanna. Miðað við það sem vinir mínir hafa sagt mér þá virðist sem fasisminn sé að taka völdin aftur á Ítalíu. Thomas Lindenberg frá Ítalíu, sem hefur verið hér skiptinemi á vegum AFS- skiptinemasamtakanna. Okkar tími er kominn. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, á kosningavöku Samfylkingarinnar. Við tökum okkur þann tíma sem þarf. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, um stjórnarmyndunarviðræður Samfylk- ingarinnar og VG. Flokkurinn er dottinn út af þingi og er ekki í sömu stöðu og hann var. Hvorki fjárhagslega né sem talsmaður á op- inberum vettvangi á þinginu. Það er þó ekki það sama og að menn verði mállausir eða missi niður pennann. Nú gefst meira að segja meiri tími til þess. Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins. Stjórnendur nýju bankanna sögðu að Seðlabankinn væri allt of gamaldags og ekki ætti að hlusta á menn þar. Ríkisstjórnin ákvað að hlusta á þá, ekki okkur. Davíð Oddsson, fyrrverandi formaður stjórnar Seðlabankans, í viðtali við breska blaðið Daily Telegraph. Við hringdum meira að segja til að kjörstjórnin þar yrði örugglega búin að jafna sig á hlátursköstunum þegar við kæmum. Bjarni Einarsson á Tröðum, einn þriggja kjörstjórnarmanna í Staðarsveit, sem sjálfir voru næstum búnir að gleyma að kjósa. Ég bið þær konur og börn, sem brotið hefur verið á af hálfu starfsmanna og þjóna kirkjunnar fyrirgefningar á þeirri þjáningu og sársauka sem þau hafa liðið. Karl Sigurbjörnsson biskup í setning- arræðu við upphaf Prestastefnu Íslands. Sænski ráðherrann vildi líka stökkva upp í vagn sigurvegaranna og við sögðum nei. Embættismaður í utanríkisráðuneyti Sri Lanka, en ríkisstjórn landsins meinaði Carl Bildt að ferðast til landsins með utanríkisráðherrum tveggja annarra landa Evrópusambandsins. En það er fjarri undirrituðum að gef- ast upp og nú vil ég ítreka fyrra boð og bæti um betur og býðst til að leið- beina ríkisstjórninni endurgjaldslaust um hvernig stórbæta má ákvörð- unartöku til hagsbóta fyrir þjóðina. Þórður Víkingur Friðgeirsson, verkfræð- ingur og lektor við Tækni- og verk- fræðideild HR, í grein í Morgunblaðinu. Það var hlegið að þessari hugmynd og m.a. nefnt að sumir viðskiptavinir hringja á undan sér til að spyrja hvort ekki sé örugglega laust stæði fyrir framan búðina. Pálmi Freyr Randversson um viðbrögð kaupmanna við Laugaveginn þegar hann kynnti hugmynd, sem hann setti fram í meistararitgerð í skipulagshönnun og gekk út á bætt hjólastígakerfi í borginni. Frá sjónarhóli veirunnar er þetta millj- ónasafn af mönnum og dýrum eins og veisluborð í samanburði við þá tíma er fólkið var færra og dreifðara. Bandaríski sagnfræðingurinn William McNeill, sem hefur skrifað mikið um sögu læknisfræðinnar, um aðstæður í borgum eins og Mexíkóborg, Lagos og Kalkútta. Ummæli ’ Ljósmynd/Sigurjón Ragnar Stuðmaðurinn Stefanía Nýráðin söngkona hljómsveitar allra landsmanna. @Fréttirá SMS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.