Morgunblaðið - 03.05.2009, Page 36

Morgunblaðið - 03.05.2009, Page 36
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. MAÍ 2009 Í LJÓSI atburða síðustu mánaða bankahruns og ann- arra áfalla hafa menn velt fyrir sér hversu heilbrigt gildismat réð hér ferðinni og hvað geti tekið við. Atburðirnir á Vatns- stíg 4 vekja ýmsar spurningar. Með hvaða hætti eru hagsmunir borgarbúa tryggð- ir er lúta að umhverfi, manngerðu og náttúrlegu, þegar borgaryf- irvöld ákveða að endurskipuleggja þétta íbúabyggð með róttækum hætti. Hvaða ráð hafa óbreyttir borgarar þegar yfirvöld ákveða að hverfið sem viðkomandi býr í skuli tekið og rifið eða næsta um- hverfi þess umturnað. Í ljósi þess sem gengið hefur á síðastliðin ár er spurning hvort það er brotalöm í lagaumhverfi skipulagsmála eða stjórnsýslan veik. Lengi hafa verið á lofti sögur um vondu verktakana sem mættu á svæðið með stóru gróðadraum- ana og hröktu fólk burtu með gylliboðum og hótunum á víxl, og herjuðu á stjórnmálamenn um endalaust aukinn byggingarrétt. Málið er ekki alveg svo einfalt. Tilfellið er að borgarstjórn Reykjavíkur ákvað með deili- skipulaginu frá 2003 að heimila stórfelld niðurrif eldri húsa og sameiningu lóða. Í því markmiði að laða að fjárfestingu. Þrýsta á endurnýjun í takt við Kringlur og Smáralindir. Þetta hét að efla miðborgina undir kjörorðinu verndun og uppbygging. Í raun þýddi þetta að heil hverfi voru tekin og gerð fjárfestingarhæf fyrir stórfjárfesta og fasteigna- félög. Gamalgróin byggð varð byggingarreitur. Borgarhlutar sem nutu hverfisverndar vegna sögu sinnar og sérstöðu sam- hvæmt Húsverndarstefnu Reykja- víkur mátti rústa. Það voru borg- aryfirvöld sem buðu upp í þennan dans og ýmis verktakafyrirtæki mættu á ballið í góðri trú en sitja nú í súpunni. Þessi stefna leiddi af sér gull- grafaraæði í miðborginni þegar nýeinkavæddir bank- arnir tóku að plægja þennan akur. Þessi stefna leiddi af sér svo ævintýralegt spá- verð á mögulegum byggingarleyfum að ekkert venjulegt fólk gat keypt sér heimili. Ekkert venjulegt fyr- irtæki sem vildi kaupa undir eigin rekstur hafði tök á því á þessum reitum. Fasteignafélög í skjóli lánaglaðra banka ruddu allri þess konar fjárfestingu frá og sátu ein að kökunni. Það er þó þessi grasrótarfjárfesting sem er verðmætust fyrir endurnýjun borgarinnar. Þetta er ástæðan fyrir því að þriðja hvert hús við Laugaveg er komið í eigu fast- eignafélaga sem helst vildu rífa, byggja og fara. Borgin leyfði verulega aukið byggingarmagn í hlutum gamla bæjarins þar sem fólk hafði talið sig öruggt með sitt. Fólk sem sóttist eftir að búa í gamla bænum og hafði lagt allt sitt í að kaupa gömul hús undir sig og sitt fólk og gera húsin upp þannig að sómi var að fyrir allt umhverfið. Hagsmuna þessa fólks var ekki gætt af skipulagsyfirvöldum þegar heimili þeirra eða nágrenni var lýst mögulegt byggingarland. Hagsmuna íbúa var ekki gætt þegar menn töldu sig geta hótað blokkum hvar sem var í nafni þéttingar byggðar. Hagsmuna íbúa var ekki gætt þegar hús voru látin standa auð og drabbast í vanhirðu. Hagsmuna íbúa var ekki gætt þegar hús voru látin standa opin fyrir mögulegum íkveikjum eins og urðu á Hverfisgötu, Bald- ursgötu og víðar. Hagsmuna íbúa var ekki gætt þegar lögreglan daufheyrðist við áhyggjum íbúa af útigangsfólki í húsunum eða eitur- lyfjasölu. Það var ekki staðinn vörður um sameignina, götumynd- ina, söguna, umhverfið, bæj- arbraginn. Ýmis verstu dæmin sýna hve berskjaldaðir borgarbúar geta orðið þegar „ég á, ég má“ þanka- gangur veður uppi. Séreign- arréttur á kostnað sameignar. Hverfistökur eru þannig ef til vill löglegar en siðlausar. Aðgerðir lögreglu við Vatnsstíg eru í þessu ljósi eftirtektarverðar. Húsið hafði staðið ónotað í einhver ár, heilt og í góðu standi enda standsett nokkru fyrir stefnubreytingu borgarinnar um að gamli bærinn þyrfti á öðruvísi fjárfestingum að halda. Ungt fólk tók yfir húsið í leyf- isleysi fyrir félagsstarf og mat- argjafir og var yfirlýsingaglatt um pólitík í fjölmiðlum. Ekkert dóp, ekkert brennivín, ekkert partí- stand. Það málar, tekur til og set- ur niður grænmeti. Vissulega lög- leysa en engar ógnanir við nágranna. Þó mætti þar stærsti lögregluher sem sést hefur, keðju- sögum og kúbeinum beitt svo hús- ið er stórskemmt. Gólf söguð úr undan fólki og gluggar brotnir úr með póstum og öllu saman. Fyrir utan harðræðið og gasið sem krakkarnir máttu þola. Þetta voru keðjusagir gegn paprikum. Engin tilraun var gerð til að semja eða lempa málið. Eflaust í alla staði lögleg aðgerð en siðferðilega veik. En það er líka einföldun eins og haft er eftir verktökum að allt sé í rugli í borgarstjórn vegna tíðrar meirihlutaskiptingar. Tilfellið er að stuðningurinn við niðurrifs- stefnuna hefur dvínað í borg- arstjórn og það hefur ekki breyst þrátt fyrir tíð borgarstjórn- arskipti. Menn hafa áttað sig á því að framtíð miðborgar Reykjavíkur sem miðstöðvar mannlífs og menningar, verslunar og ferða- mennsku verður ekki tryggð með þeirri sóun menningarverðmæta sem niðurrifstefnan bauð upp á. Áskorunin sem borgarstjórnin stendur nú frammi fyrir er með hvaða hætti þessum máli verður lent í aðalskipulagi borgarinnar. Um hverfistökur og hústökur Eftir Snorra F. Hilmarsson » Aðgerðir lögreglu við Vatnsstíg eru eftirtektarverðar og spurning hvort það er brotalöm í lagaumhverfi skipulagsmála. Snorri F. Hilmarsson Höfundur er formaður Torfusamtakanna. HÆSTIRÉTTUR Íslands hefur brugð- ist sínu hlutverki eins kirfilega og mögulegt er. Fyrir alllöngu var þáttur í útvarpinu þar sem hæstaréttarritari gerði grein fyrir störfum réttarins. Ein af aðferðum hæstaréttar í gegnum árin er þögnin. Með þessari aðferð hefur þessi stofnun komist hjá því að út- skýra og verja það sem fram- kvæmt hefur verið innan kerfisins. Þegar einn af lögmönnum skrifaði bók um ranglæti hæstaréttar var svar réttarins eingöngu þögnin. Þarna er í raun verið að misnota þann trúnað sem felst í því valdi sem rétturinn hefur. Það er alveg augljóst að þegar rétturinn hefur dæmt ranglega mundi hann fljót- lega reka í vörðurnar ef hann þyrfti að útskýra hvernig hinni röngu niðurstöðu hefði verið náð. Nafnið sem þessi hæsti réttur ber er því miður ákaflega villandi. Það sem er framkvæmt þar er að gefa endanlegan úr- skurð í ágreiningi en þegar úrskurðurinn er rangur hefur hann því miður ekkert með réttlæti að gera. Þessi dómstóll í þessu landi hefur ver- ið skilgetið afkvæmi einnar fræðistofnunar sem heitir Háskóli Ís- lands og hefur þannig orðið meng- aður af einstefnu og einlitun frá þeirri stofnun. Einnig hefur val á dómurum í réttinn verið þannig að pólitísk áhrif hafa náð að menga réttarstöðu þessarar stofnunar og gera hann þannig úr garði að áhrif stjórnvaldsins hafa í mörg- um tilfellum sett skugga á réttindi hins almenna borgara gegn stjórnvaldinu. Í sumum tilfellum hefur hæstiréttur hreinlega unnið eins og afgreiðslustofnun fyrir ríkisvaldið. Eitt af þeim atriðum sem þarf að taka upp í nýrri stjórnarskrá hlýtur að vera að ganga þannig frá málum að þessi armur kerfisins geti undir engum kringumstæðum skýlt sínum röngu niðurstöðum bak við þögn- ina. Nýlega var afhjúpað minn- ismerki á Akureyri um mál sem hæstiréttur hafði dæmt ranglega. Þar hafði dómur réttarins fallið með ríkisvaldinu en þegar málinu var vísað til Mannréttinda- dómstóls Evrópu og ríkisvaldið sá sína sæng uppreidda var málið bara hreinlega þaggað niður til að koma í veg fyrir að þetta yrði op- inber þjóðarskömm. Núna er enn ein skömmin í gangi en það er dómur hæstaréttar um mál sjó- manna sem voru að nota mann- réttindi sem helguð eru af Sam- einuðu þjóðunum og hefur nýlega komið mjög skýr svör um að kvótakerfi sem hæstiréttur hefur dæmt, er brot á skuldbindingu ríkisvaldsins um mannréttindi. Það sem ríkisvaldið hefur tekið sér fyrir hendur er að reyna að salta málið og þannig að reyna að Hæstiréttur og stjórnarskráin Eftir Bergsvein Guðmundsson » Þegar einn af lög- mönnum skrifaði bók um ranglæti hæsta- réttar var svar réttarins eingöngu þögnin. Bergsveinn Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.