Morgunblaðið - 03.05.2009, Page 41

Morgunblaðið - 03.05.2009, Page 41
Minningar 41 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. MAÍ 2009 vissi alltaf hvar maður hafði hana. Einu skiptin sem ég sá hana bregða í brýnnar var þegar afi var að stríða henni þar sem hann sat við eldhús- borðið með spilastokkinn í hendinni og barði hnúanum í borðið í hvert skipti og hann sló niður spili og það hlakkaði í honum. Þá sagði hann oft eitthvað til að æsa ömmu upp og svo leit hann á mann glottandi með augnaráði sem hann einn átti til og hló hátt og snjallt. Þegar ég var 9 ára byrjaði ég í minni fyrstu sumarvinnu í beitiskúrnum hjá pabba. Ég var há- launuð með 600 kall fyrir bjóðið og stóð uppi á kók-kassa til að ná upp á borðið. Mér fannst lyktin af beitunni ógeðsleg en það sem var skemmtilegt var að keppa við pabba og afa. Það var ekki nokkur von að vinna pabba sem hamaðist við bjóðið sitt og leysti allar flækjur á undraverðum hraða, en ég ætlaði aldeilis að ná afa því hann hamaðist ekki neitt við sitt bjóð. Stóð sallarólegur og hreyfðist ekki svo maður sá varla þegar hann fékk flækjur. Hann var samt alltaf fyrstur sem ég skildi ekki þrátt fyrir að hjálpa mér stundum með mitt bjóð. Síðar þegar maður fór að fara á djammið þá hitti maður stundum afa þar sem hann var alltaf kominn á fæt- ur langt fyrir allar aldir og kominn niður í bæ að tína dósir eftir lýðinn sem var að skemmta sér. Ég fór svo í nám til Akureyrar og alltaf var jafn- gaman að koma heim og þá kíkti mað- ur í kjallarann og fékk kleinur og pönnukökur hjá ömmu. Iðulega laum- uðu þau að mér pening þegar ég hélt norður á ný sem gladdi mig mjög. Umfram allt á ég aðeins góðar minn- ingar um ömmu og afa sem alltaf reyndust mér svo góð. Hvíl í friði, elsku amma og afi. Ykkar Halldóra Kristín. Elsku Ólöf amma og Sveinn afi. Ég á svo margar góðar minningar um ykkur. Þið pössuðuð mig þegar ég var lítill, þá voruð þið orðin 80 ára. Þið voruð svo hress og áttuð nóg af tíma og ást. Ég kom oft til ykkar eftir skóla í kjallarann og fékk ég þá alltaf eitt- hvað að borða. Ég hjálpaði þér amma að baka kleinur og flatbrauð. Það voru bestu kleinur og flatbrauð í heimi. Þið kennduð mér að spila Ol- sen, Olsen og þjóf. Sat ég oft hjá ykk- ur og spilaði. Afi þú reyndir að gera mig að almennilegum karlmanni og kenndir mér að rífa niður staura. Takk fyrir öll árin sem ég átti með ykkur og megið þið hvíla í friði. Kveðja, Bjartur. Mig langar í nokkrum orðum að minnast fyrrverandi tengdaforeldra minna til 25 ára, Ólafar og Sveins. Ég kynntist þeim þegar við Heiðar dróg- um okkur saman sumarið 1980. Þá var Sveinn á grásleppu og Heiðar var að hjálpa honum en ég var sjúkraliða- nemi á FSN. Ólöf var þá heimavinn- andi og bakaði kost fyrir togarana í Neskaupstað. Stóð hún og bakaði sín- ar víðfrægu kleinur og flatbrauð. Ýmsar aðrar tegundir voru nú bak- aðar en bestar voru kleinurnar henn- ar og flatbrauðið. Gerði hún ýmsar til- raunir með það. Notaði fjallagrös og ýmislegt annað og bað mann um að smakka og segja sitt álit. Alltaf var hún að og tók vel á móti öllum þrátt fyrir mikið annríki. Eins var með Svein, alltaf tilbúinn til þess að hjálpa manni. Hann hafði harðan skráp en þar fyrir innan var hann með stórt hjarta. Bæði reyndust þau mér vel og tóku stelpunum mínum, Halldóru Kristínu og Guðnýju, opnum örmum þegar þær komu til okkar Heiðars þá 6 og 3 ára. Síðan þegar Bjartur fædd- ist hlupu þau undir bagga, orðin átt- ræð og pössuðu hann tvisvar í viku í 1-2 klst. í senn. Mikið nutu þau þess að við treystum þeim fyrir stráknum þrátt fyrir háan aldur. Mikill samgangur var við þau. Þeg- ar þau gátu ekki lengur búið á Kvía- bólsstígnum fluttu þau í kjallarann til okkar Heiðars. Þá var auðvelt að kíkja inn og hjálpa þeim þegar þau þurftu á að halda. Ólöf hélt áfram að baka flatbrauð á hellu fyrir utan úti- dyrnar og Sveinn hjálpaði henni oft. Ekki gat Sveinn hætt að sýsla og reif hann staura sem þeir Heiðar, Þórður og Björgvin færðu honum á bílaplan- ið. Oft var getan meiri en viljinn og fékk hann þá bara hjálp við að rífa staurana. Mér þótti vænt um þau bæði og voru þau mér mjög góð. Þegar ég kom austur núna í byrjun apríl til þess að fylgja Sveini til grafar þá sagði Ólöf við mig að hún hefði vilj- að fá að fara á undan Sveini. Hún vissi vel að það myndi ekki líða langt þang- að til hún fengi hvíldina líka. Ég votta Heiðari og ættingjum innilega samúð. Þorbjörg Sigurðardóttir. Fallin eru frá Ólöf Ólafsdóttir og Sveinn Þórðarson með stuttu milli- bili. Það er mikill sjónarsviptir af fólki sem sett hefur svip sinn á samfélagið svo lengi, en enginn er eilífur, þetta er gangur lífsins. Mig langar að leiðarlokum að þakka þeim fyrir allar skemmtilegu samverustundirnar sem við áttum saman. Við spiluðum oft vist, og þá var kátt á hjalla, mikið barið í borð og hlegið, það var einstaklega gaman að spila við þau, og gerðum við það reglulega á tímabili. Ég vil líka þakka fyrir allar veitingarnar sem maður þáði, en á Kvíbólsstíg 1 var alltaf opið hús og allir velkomnir, þau voru ein- staklega gestrisin hjón og skemmti- leg heim að sækja. Hvílið í friði. Sveinbjörn. Fyrir okkur var Ólöf besta amma sem hægt var að hugsa sér. Það var alltaf yndislegt að koma í heimsókn austur til ömmu og afa. Það var fátt betra en að vakna á morgnana á Kvía- bólsstíg og borða morgunmat á með- an amma lagði kapal og afi hlustaði á veðurfréttirnar. Amma bakaði dýr- indis kleinur og flatkökur og maður kom aldrei svangur úr heimsókn frá þeim gömlu. Okkur eru minnisstæðar margar stundir með ömmu. Til dæm- is þegar við horfðum saman á Leið- arljós, þegar við lágum allar í hjóna- rúminu og hlustuðum á hljóðbækur eða sátum í berjamó og sungum Und- ir bláhimni. Amma hafði stórt hjarta og hjá henni mátti alltaf finna hlýju og gleði. Hún hafði mikla trú á öllum sem stóðu henni nær, vildi allt fyrir alla gera og sá alltaf það besta í fólkinu í kringum sig. Hún var fyrirmyndar amma og fyrirmyndar manneskja sem við munum ætíð líta upp til. Með söknuði kveðjum við Ólöfu ömmu okkar sem alltaf var okkur svo góð. Þú ert ljósblik á lífshimni mínum, þú ert ljóð mitt og stjarna í kveld. (Magnús K. Gíslason.) Þorbjörg Helga, Þórey Ólöf og Þórhildur Vala Þorgilsdætur. Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Skógarhlíð 6, Reykjavík - 5, sem hér segir á eftirfarandi eignum: Akurgerði 39, 203-4458, Reykjavík, þingl. eig. Guðrún Magnúsdóttir, gerðarbeiðandi Glitnir banki hf, miðvikudaginn 6. maí 2009 kl. 10:00. Ármúli 38, 221-3262, Reykjavík, þingl. eig.TGM ráðgjöf ehf, gerðarbeiðandiTollstjóraembættið, miðvikudaginn 6. maí 2009 kl. 10:00. Bakkastígur 5, 200-0277, Reykjavík, þingl. eig. Árni Jóhannesson, gerðarbeiðandiTollstjóraembættið, miðvikudaginn 6. maí 2009 kl. 10:00. Baldursgata 17, 200-7169, Reykjavík, þingl. eig. Máni ehf, gerðarbeiðandi Frjálsi fjárfestingarbankinn hf, miðvikudaginn 6. maí 2009 kl. 10:00. Barðastaðir 15, 223-5604, Reykjavík, þingl. eig. Oddný Margrét Stefánsdóttir, gerðarbeiðendur Byko hf, Frjálsi fjárfestingarbankinn hf, Glitnir banki hf, Johan Rönning hf og Kaupþing banki hf, miðvikudaginn 6. maí 2009 kl. 10:00. Bárugata 11, 200-1853, Reykjavík, þingl. eig. Gistihúsið Ísafold ehf, gerðarbeiðandiTollstjóraembættið, miðvikudaginn 6. maí 2009 kl. 10:00. Bergstaðastræti 11a, 200-5810, Reykjavík, þingl. eig. Bogart ehf, gerðarbeiðandiTollstjóraembættið, miðvikudaginn 6. maí 2009 kl. 10:00. Dvergaborgir 8, 222-5616, Reykjavík, þingl. eig. Árni Róbert Si- gurðsson og Inga Lúthersdóttir, gerðarbeiðendur Innheimtustof- nun sveitarfélaga, Íbúðalánasjóður, Sýslumaðurinn í Kópavogi og Tollstjóraembættið, miðvikudaginn 6. maí 2009 kl. 10:00. Dyngjuvegur 3, 202-0004, Reykjavík, þingl. eig. Svak ehf, gerðarbeiðandi NBI hf, miðvikudaginn 6. maí 2009 kl. 10:00. Einarsnes 42-42a, 202-9426, Reykjavík, þingl. eig. Anna Jóna Karlsdóttir, gerðarbeiðendur Glitnir banki hf, Íbúðalánasjóður, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins B-deild og Sjóvá-Almennar tryggingar hf, miðvikudaginn 6. maí 2009 kl. 10:00. Eskihlíð 10, 202-9737, Reykjavík, þingl. eig. Anton Pétursson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 6. maí 2009 kl. 10:00. Flétturimi 16, 204-0110, Reykjavík, þingl. eig. Agnes Ámundadóttir, gerðarbeiðendur Flétturimi 16,húsfélag, Íbúðalánasjóður, Re- ykjavíkurborg ogTryggingamiðstöðin hf, miðvikudaginn 6. maí 2009 kl. 10:00. Flugumýri 4, 208-3407, Mosfellsbæ, þingl. eig. Stálsveipur ehf, gerðarbeiðandiTollstjóraembættið, miðvikudaginn 6. maí 2009 kl. 10:00. Hjaltabakki 22, 204-7859, Reykjavík, þingl. eig. Wanvisa Susee og Halldór ÆgirTryggvason, gerðarbeiðendur Landsbanki Íslands hf,aðalstöðv og Sparisjóður Reykjavíkur/nágr hf, miðvikudaginn 6. maí 2009 kl. 10:00. Hjarðarhagi 54, 202-7995, Reykjavík, þingl. eig. Stígrún Ása Ásmundsdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Kaupþing banki hf og Kreditkort hf, miðvikudaginn 6. maí 2009 kl. 10:00. Hraunbær 52, 204-4664, Reykjavík, þingl. eig. Geir Sigurðsson, gerðarbeiðandiTollstjóraembættið, miðvikudaginn 6. maí 2009 kl. 10:00. Hringbraut 119, 202-4678, Reykjavík, þingl. eig. Margrét Magnúsdóttir, gerðarbeiðendur Dverghamrar ehf og Re- ykjavíkurborg, miðvikudaginn 6. maí 2009 kl. 10:00. Hvassaleiti 12, 203-1677, Reykjavík, þingl. eig. Hermann Þór Her- mannsson, gerðarbeiðandiTollstjóraembættið, miðvikudaginn 6. maí 2009 kl. 10:00. Iðufell 4, 205-2529, Reykjavík, þingl. eig. Skúli Arnarsson og Ma Theresa Noceja Bedia, gerðarbeiðandi Vátryggingafélag Íslands hf, miðvikudaginn 6. maí 2009 kl. 10:00. Kleppsvegur 128, 201-8456, Reykjavík, þingl. eig. Óli Antonsson, gerðarbeiðendur BYR sparisjóður,höfðust,farstýr, Íbúðalánasjóður og Sparisjóður Reykjavíkur/nágr hf, miðvikudaginn 6. maí 2009 kl. 10:00. Meðalholt 3, 201-1453, Reykjavík, þingl. eig. Már Ívar Henrysson, gerðarbeiðendur Avant hf, Húsasmiðjan hf, Reykjavíkurborg, Síminn hf, Sýslumaðurinn á Blönduósi ogTryggingamiðstöðin hf, miðvikudaginn 6. maí 2009 kl. 10:00. Merkjateigur 5, 208-4093, Mosfellsbær, þingl. eig. Snorri Halldórsson, gerðarbeiðendur Lýsing hf, Mosfellsbær og Nýi Kaupþing banki hf, miðvikudaginn 6. maí 2009 kl. 10:00. Miklabraut 88, 203-0614, Reykjavík, þingl. eig. Alma Charlotte R Róbertsdóttir og Þorlákur Hermannsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 6. maí 2009 kl. 10:00. Nönnufell 1, 205-2745, Reykjavík, þingl. eig. Olga Karen J Símonardóttir, gerðarbeiðendur Nönnufell 1,húsfélag og Vátryggingafélag Íslands hf, miðvikudaginn 6. maí 2009 kl. 10:00. Prestbakki 15, 204-7010, Reykjavík, þingl. eig. Svala Guðbjörg Jóhannesdóttir og Herbert Þ Guðmundsson, gerðarbeiðendur NBI hf, Reykjavíkurborg og Sýslumaðurinn á Blönduósi, miðvikudaginn 6. maí 2009 kl. 10:00. Samtún 28, 200-9556, Reykjavík, þingl. eig. Guðrún Snæbjörnsdóttir og Brynjar Carl Gestsson, gerðarbeiðandi Re- ykjavíkurborg, miðvikudaginn 6. maí 2009 kl. 10:00. Samtún 28, 200-9557, Reykjavík, þingl. eig. Guðrún Snæbjörnsdóttir og Brynjar Carl Gestsson, gerðarbeiðandi Re- ykjavíkurborg, miðvikudaginn 6. maí 2009 kl. 10:00. Seiðakvísl 10, 204-3431, Reykjavík, þingl. eig. Áslaug Skeggjadóttir og Helgi Jóhannes Jónsson, gerðarbeiðandi Frjálsi fjárfestingarbankinn hf, miðvikudaginn 6. maí 2009 kl. 10:00. Skúlagata 10, 200-3162, Reykjavík, þingl. eig. AB Vöruflutningar ehf, gerðarbeiðendur BYR sparisjóður,höfðust,farstýr, Reykjavíkurborg, Sameinaði lífeyrissjóðurinn, Sýslumaðurinn í Kópavogi og Völundur,húsfélag, miðvikudaginn 6. maí 2009 kl. 10:00. Sólheimar 25, 202-1638, Reykjavík, þingl. eig. Íslensk tískuvika ehf, gerðarbeiðandi Reykjavíkurborg, miðvikudaginn 6. maí 2009 kl. 10:00. Spóahólar 14, 204-9881, Reykjavík, þingl. eig. Páll Vignir Magnússon, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Lýsing hf, miðvikudaginn 6. maí 2009 kl. 10:00. Tunguháls 7, 204-4274, Reykjavík, þingl. eig. Ljósvirki ehf, gerðarbeiðendur Betri flutningar ehf, Glitnir banki hf, Kaupþing banki hf, Reykjavíkurborg, Set ehf,Tollstjóraembættið ogTrygginga- miðstöðin hf, miðvikudaginn 6. maí 2009 kl. 10:00. Urðarstígur 8, 200-7468, Reykjavík, þingl. eig. Gunnlaugur V Viðarsson, gerðarbeiðendur Landsbanki Íslands hf,aðalstöðv og Tollstjóraembættið, miðvikudaginn 6. maí 2009 kl. 10:00. Vesturgata 20, 200-0450, Reykjavík, þingl. eig. Ragnhildur Ásvaldsdóttir, gerðarbeiðandi Kaupþing banki hf, miðvikudaginn 6. maí 2009 kl. 10:00. Vesturgata 52, 200-0299, Reykjavík, þingl. eig. Sigurður I Sigur- geirsson, gerðarbeiðandi Vátryggingafélag Íslands hf, miðvikudaginn 6. maí 2009 kl. 10:00. Völvufell 17, 205-2212, Reykjavík, þingl. eig. Hús bakarans ehf, gerðarbeiðandi Samtök iðnaðarins, miðvikudaginn 6. maí 2009 kl. 10:00. Sýslumaðurinn í Reykjavík, 2. maí 2009. Þuríður Árnadóttir, deildarstjóri fullnustudeildar. . Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir Grensásvegur 12, 201-5635, Reykjavík, þingl. eig. Fasteignafélagið Stokkverk ehf, gerðarbeiðandi Reykjavíkurborg, miðvikudaginn 6. maí 2009 kl. 14:00. Háagerði 87, 203-5030, Reykjavík, þingl. eig. Marinó Ólason og Anna Kristín Gunnlaugsdóttir, gerðarbeiðandi Reykjavíkurborg, miðvikudaginn 6. maí 2009 kl. 14:30. Krummahólar 8, 204-9612, Reykjavík, þingl. eig. Kristján Gunnar H Daníelsson, gerðarbeiðandi Glitnir banki hf, miðvikudaginn 6. maí 2009 kl. 11:30. Sýslumaðurinn í Reykjavík, 2. maí 2009. Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir Bolholt 6, 201-2390, Reykjavík, þingl. eig. H.G. Meyer ehf, gerðarbeiðandi Friðrik Björnsson, fimmtudaginn 7. maí 2009 kl. 14:15. Bolholt 6, 201-2391, Reykjavík, þingl. eig. H.G. Meyer ehf, gerðarbeiðandi Friðrik Björnsson, fimmtudaginn 7. maí 2009 kl. 14:00. Meistaravellir 9, 202-5720, Reykjavík, þingl. eig. Ólöf Þorvaldsdóttir, gerðarbeiðandi Sparisjóður Reykjavíkur/nágr hf, fimmtudaginn 7. maí 2009 kl. 11:30. Sýslumaðurinn í Reykjavík, 2. maí 2009. Nauðungarsala

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.