Morgunblaðið - 03.05.2009, Qupperneq 47
Eftir Ásgeir H Ingólfsson
asgeirhi@gmail.com
VEFSÍÐA vikunnar er enn sem
komið er ekki upp á marga fiska, ný-
leg og ennþá frekar innihaldsrýr og
hrá. Hún er hins vegar ein besta gátt
sem hægt er að finna í sjálfa framtíð
sjónvarpsins, framtíð sem er rétt að
byrja.
Milliþekktar stjörnur
Streamys.org er vefsíða Streamy-
verðlaunanna sem voru veitt fyrir
röskum mánuði í fyrsta skipti fyrir
bestu vefþættina árið 2008, en eins
og flestir átta sig sjálfsagt á eru dag-
ar hefðbundinna sjónvarpsþátta
taldir – það er bara spurning hvað sú
niðurtalning tekur langan tíma, enda
sífellt færri sem láta sjónvarps-
dagskrána stjórna lífi sínu nú þegar
við getum hægt og rólega stjórnað
sjónvarpsdagskránni meira og meira
sjálf. Og með því að smella á „winn-
ers“ opnast gluggi með tenglum á
marga af betri vefþáttum sem hing-
að til hafa verið gerðir – og enn fleiri
má finna með því að kíkja á tilnefn-
ingarnar. Og það leynast meira að
segja milliþekktar Hollywood-
stjörnur inn á milli, en þau Rosario
Dawson, Paul Rudd, Eva Longoria
og Lisa Kudrow eru öll meðal hinna
tilnefndu.
Við Íslendingar tókum stórt stökk
fram á við í sjónvarps- og útvarps-
sögunni í kjölfar verkfalls rík-
isstarfsmanna um miðjan níunda
áratuginn og verkfall handritshöf-
unda í Hollywood í fyrra var vítamín-
sprauta fyrir vefþættina. Aðallega af
því Joss Whedon, skapara Buffy the
Vampire Slayer og fleiri góðra þátta,
vantaði eitthvað að gera. Þannig að
hann hóaði saman nokkrum vinum
og kunningjum til þess að gera Dr.
Horrible’s Sing-Along Blog, sem
kalla mætti Citizen Kane vefþátt-
anna hingað til. Þættirnir fjalla um
baráttu Dr. Horrible, viðkunnanlegs
skúrks sem „eitís“-hetjan Neil Pat-
rick Harris leikur, og hinnar óþol-
andi hetju Mr. Hammer, sem er af-
skaplega búralegur hrokagikkur í
meðförum Nathan Fillion. Báðir eru
þeir svo skotnir í sömu stelpunni og
skiptast á að syngja til hennar ást-
aróða – á milli þess sem þeir syngja
um það að tortíma/bjarga heims-
byggðinni.
Ekki bara gamanþættir
Þættirnir hlutu heil sjö Streamy-
verðlaun en Whedon varð þó af sigri
í flokki bestu gamanþátta – en kald-
hæðni örlaganna var sú að þar sneri
aðalleikkona hans á hann. Verðlaun-
in staðfestu endanlega að rauðhærða
þokkadísin Felicia Day, sem þeir Dr.
Horrible og Mr. Hammer börðust
um, er ríkjandi drottning vefþátt-
anna. Enda lætur hún sér leikinn
ekki nægja og leikstýrði, skrifaði og
lék aðalhlutverkið í The Guild, sem
fékk þrenn verðlaun, þar á meðal
fyrir besta gamanþátt. Enda stað-
festir Gildið blautan draum flestra
áhorfenda Dr. Horrible, hún er bara
nörd eins og flestir áhorfendurnir.
Þættirnir fjalla nefnilega um hóp
netspilara í netleik nokkrum – og
hefur Day játað það að hafa verið al-
varlega háð slíkum netleikjum sjálf
um langt skeið, þótt hún segist vera
laus úr viðjum þeirrar fíknar nú.
En þetta eru ekki bara gam-
anþættir, þótt þeir hafi vissulega
verið mest áberandi. Meðal til-
nefndra þátta var til dæmis Alive in
Baghdad, vikulegur fréttaþáttur frá
írösku höfuðborginni sem íranskir
og bandarískir fréttamenn unnu
saman. Og nú höfum við Íslendingar
eignast okkar eigin netþætti í Hring-
förum (Circledrawers) Ólafs Jóhann-
essonar. Framtíðin er rétt að byrja.
Þvottadagur Illgjarnir ofurskúrkar þurfa líka að þvo þvott. Og í þvottahús-
inu verður Dr. Horrible auðvitað yfir sig ástfanginn.
Rauðhærða
nördadísin
Allt fram
streymir
Síðan er á
frumstigi
enn sem
komið er, en
tekur vænt-
anlega und-
ir sig stökk
áður en
langt um
líður.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 3. MAÍ 2009
Hótel í miðbænum. Góður aðbúnaður.
295 dkr. fyrir manninn í 2ja manna herb. með
wc og sturtu
Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V.
Sími +45 33 79 67 20. www.loeven.dk
Sofðu vel! Í Kaupmannahöfn
– meira fyrir áskrifendur
Fylgiblað með Morgunblaðinu 12. maí
Eurovision 2009
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift
eða í síma 569 1122
Meðal efnis:
• Stiklað á stóru í sögu Eurovision í máli og myndum, helstu lög og uppákomur
• Páll Óskar spáir í spilin
• Kynning á keppendum í undankeppni og í aðalkeppni
• Ævintýrið um Jóhönnu Guðrúnu
• Íslensku lögin í gegnum tíðina
• Atkvæðaseðill fyrir aðalkeppnina
• Ásamt fullt af spennandi efni um Eurovision
Undankeppnin fer fram 12. og 14. maí en aðalkeppnin laugardaginn 16. maí.
Þetta er tvímælalaust blaðið sem sjónvarpsáhorfendur hafa við höndina 12., 14.
og 16. maí þegar Eurovision verður sýnt í sjónvarpinu.
Nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105 eða kata@mbl.is
Tekið er við auglýsingapöntunum til kl. 16.00, fimmtudaginn 7. maí.
Meistaranám í tónsmíðum
Listaháskóli Íslands býður upp á meistaranám í tónsmíðum.
Um er að ræða 120 eininga einstaklingsmiðað nám sem tekur tvö ár eða fjórar annir.
Námið byggir á samþættingu rannsókna og tónsköpunar.
Helstu áherslur í náminu:
Tónsmíðar sem listform í fjölbreyttu menningarsamfélagi.
Rannsóknir og þróun nýrra aðferða við tónsköpun og tónflutning.
Samspil tónlistar og annarra listgreina.
Íslensk menningararfleifð í tónsmíðum.
Umsóknum skal koma til tónlistardeildar Listaháskólans að
Sölvhólsgötu 13, 101 Reykjavík. Umsóknarfrestur er til 18. maí 2009.
Nánari upplýsingar eru á heimasíðu Listaháskólans: www.lhi.is
Í umsókn skal umsækjandi gera grein fyrir menntun sinni og störfum og skal hann
láta fylgja með sýnishorn af verkum. Þá skal fylgja með ítarleg námstillaga þar sem
koma fram markmið meistaranámsins og rannsóknarsvið.
Fagurfræðilegar rannsóknir á afmörkuðum sviðum tónsköpunar og tónlistar.
VEFSÍÐA VIKUNNAR: www. streamys.org»