Morgunblaðið - 03.05.2009, Side 56

Morgunblaðið - 03.05.2009, Side 56
SUNNUDAGUR 3. MAÍ 123. DAGUR ÁRSINS 2009 Heitast 10° C | Kaldast 3° C Austan- og norðaust- an 5-13 og rigning framan af. Dregur úr veðri en norðvestan 8- 13 í kvöld. » 10 SKOÐANIR» Ljósvakinn: Betur verður ekki gert Pistill: Hvað sér Samfylkingin? Forystugrein: Endurreisn hluta- bréfamarkaðar Reykjavíkurbréf: Hrunið færði stéttarfélögum nýtt tækifæri til áhrifa Staksteinar: Enn grafa þeir undan traustinu Er dagurinn of stuttur? Auglýst eftir kennurum ATVINNA» TÓNLIST» Uppbyggilegar fréttir af Amy Winehouse!? »50 TÓNLIST» ORKU-ríkir tónleikar í Norræna húsinu. »48 HÖNNUN » Eygló Margrét hannar af krafti. »48 Vefþættir munu á endanum leysa hefð- bundna sjónvarps- þætti af með öllu, segir Ásgeir H. Ing- ólfsson. »47 Sjónvarp framtíðar VEFSÍÐA VIKUNNAR» reykjavíkreykjavík 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT Í LAUSASÖLU 395 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950 VEÐUR» » VEÐUR mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Þolinmæði á þrotum 2. Haldið sofandi í öndunarvél 3. Bæturnar misnotaðar 4. Fæðing með aðstoð Google ’Gjarnan er sagt að Skagafjörðursé vagga íslenska hestsins oghvað er þá eðlilegra en að kennahestafræði við Háskólann á Hólum?Sjávarútvegur og sjávarnytjar hafa verið burðarás atvinnulífs á lands- byggðinni og síðast en ekki síst er Skagafjörður vettvangur margra stórra atburða Íslandssögunnar. Það er því afar viðeigandi að Háskólinn á Hólum sérhæfi sig í að kenna ferða- málafræði með áherslu á menningu, sögu og náttúru. HERDÍS Á. SÆMUNDARDÓTTIR ’Stýrivextir í flestum öðrum lönd-um eru 0,5 til 2%. Krónubréfaeig-endur fá sem sagt hvergi hærri vextinú en hjá Jóni og Gunnu. Ég er ekki í nokkrum vafa um að það besta sem hægt er að gera í þeirri skelfilegu stöðu, sem er núna, sé að lækka stýrivexti strax í 2,5% og greiða þá út í krónum. Taki krónubrask- ararnir út vexti og innstæður þá verð- ur það í krónum. Væntanlega í smá- skömmtum eftir því, sem þeir sjá fjárfestingartækifæri í landinu. Þannig fæst sú innspýting í efnahagskerfið, sem þarf. SIGURÐUR ODDSSON ’Prófkjör eins og þau hafa tíðkastgeta í verstu tilfellum orðið tilþess að stærsti skoðanahópurinn ráðiöllum kosnum fulltrúum listans. Kosn-ingalögin eins og þau eru nú eru líku marki brennd þó að þau séu illskárri. Þetta má sýna með dæmi þar sem kjósendur í tilteknu kjördæmi skiptast í skipulagða hópa, dálítið misstóra. PÁLL BERGÞÓRSSON ’Ærin verkefni bíða hér á Íslandi.Undanfarin ár hefur athyglineinkum beinst að virkjanamálum, ál-verum og loftslagsbreytingum en önn-ur viðfangsefni hafa gjarnan lent í skugga þeirra. Áríðandi er að græða hundruð þúsunda hektara af landi í tötrum, vernda líffræðilega fjölbreytni og fagurt landslag, taka frá óbyggð svæði utan þjóðgarða og standa vörð um hina einstöku öræfakyrrð. ANDRÉS ARNALDS Skoðanir fólksins Kajakróður á köldum sjó Morgunblaðið/Kristinn Keppt um Reykjavíkurbikarinn í róðri KAJAKRÆÐARAR létu sig ekki muna um að vakna snemma á laugardagsmorgni og demba sér í kaldan sjóinn við Geldinganes til að keppa um Reykjavíkurbikarinn á árlegri sumarhátíð Kaj- akklúbbsins. Ekki létu þeir sér heldur róðurinn duga því að keppninni lokinni var tekin æfing í þyrlubjörgun á sjó með hjálp Landhelgisgæsl- unnar, og fengu þá ræðarar smjörþefinn af því hvernig það er að vera í sjónum undir öskrandi þyrluspöðum sem þeyta upp ölduróti. Þeir sem ekki lögðu í volkið gátu svo fylgst með þurrum fótum á landi og gætt sér á pylsu og kóki. SÖNGVASEIÐUR verður frumsýndur í Borg- arleikhúsinu að viku liðinni undir leikstjórn Þórhalls Sigurðssonar, en tuttugu ár eru liðin frá síðustu uppfærslu hans hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Það var Sveitasinfónían eftir Ragnar Arnalds sem gekk allt leikárið 1988 til 1989 og var síðasta sýning LR á fjölunum í Iðnó. Áður hafði Þórhallur sett upp tvær sýn- ingar fyrir LR, Ástin sigrar eftir Ólaf Hauk Símonarson og Tröllaleiki. En sýningar Þór- halls eru orðnar fjörutíu í Þjóðleikhúsinu og kennir þar ýmissa grasa, enda hefur Þórhall- ur staðið vaktina í fjörutíu ár og er sá starfs- maður hússins sem hefur lengstan samfelldan starfsaldur. Aðeins Benedikt Árnason hefur leikstýrt þar fleiri sýningum eða 50 talsins. Nú vill svo til að þrjár sýningar úr smiðju Þórhalls eru sýndar í leikhúsunum tveimur á sama tíma, en Hart í bak hefur verið sýnt í all- an vetur í Þjóðleikhúsinu og barnasýningin Skoppa og Skrýtla í „söng-leik“. „Þetta gerð- ist stundum í gamla daga,“ segir Þórhallur. „Þegar ég leikstýrði Kæru Jelenu, Gaura- gangi, Hafinu og Emil í Kattholti, þá gengu sýningarnar gjarnan fleiri en eitt leikár.“ | 12 Þrjár á sama tíma Morgunblaðið/Árni Sæberg Þórhallur Hefur sett upp 40 sýningar í Þjóðleikhúsinu. FIMM manna hópur Íslend- inga, sem bú- settir eru í Kaupmanna- höfn, og einn Ástrali hafa sett á laggirnar vef- síðuna www.ice- landic- collection.com þar sem íslensk- ir hönnuðir geta selt vöru sína. Einn af sex- menningunum, Supriya Sunneva Kol- andavelu, segir markmiðið að koma íslenskri hönnun af margvíslegum toga á framfæri um heim allan. „Það hafa allir möguleika á að hafa samband við okkur og við skoðum hvað þeir eru að gera, óreyndir sem reyndir eru velkomnir og við viljum sérstaklega gefa ungum hönnuðum tækifæri á að spreyta sig,“ segir hún m.a.| 50 Íslensk hönnun um heim allan Supriya Sunneva Kolandavelu Árni Matthíasson fjallar um systkinin Angus og Juliu Stone sem sitja sjaldan með hendur í skauti. »49 TÓNLIST» Iðjusamir Ástralar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.