Morgunblaðið - 12.05.2009, Qupperneq 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 2009
Stjórnarsáttmáli nýrrar ríkis-stjórnar (eða samstarfsyfirlýs-
ing eða hvað á að kalla hann) er með
lengstu plöggum af því tagi, sem rík-
isstjórnir hafa hamrað saman.
Gunnar Helgi Kristinsson stjórn-málafræðingur segir í Morgun-
blaðinu í dag að
algeng lengd
stjórnarsáttmála
sé 2.000 orð, en
þessi sé 7.000.
Er þetta þá efn-ismeiri
stjórnarsáttmáli
en oftast áður?
Fæst bendir til þess.
Fyrstu síðurnar eru á köflum
óskaplegt og innihaldsrýrt froðu-
snakk. Var Dagur B. Eggertsson
með puttana í „ritstýringunni“?
Gunnar Helgi nefnir að við mynd-un ríkisstjórna 1947, 1950, 1963
og 1967 hafi engin plögg verið birt.
Í eitt skiptið, þegar sjálfstæðismenn
og framsóknarmenn mynduðu sam-
an stjórn árið 1950, hélt Ólafur
Thors, þáverandi formaður Sjálf-
stæðisflokksins, ræðu á fundi sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík.
Ég er nú eiginlega ekki eins fjarriþví og sumir aðrir, að þannig
eigi stjórnarmyndanir að vera,“
sagði Ólafur. „Þessir eilífu mál-
efnasamningar, þar sem sérhver
flokksbjálfi og heimspekingur í
flokknum hleður upp metralöngum
tillögum til þess að gera landið
stjórnlaust sem allra lengst og þjóð-
inni sem mesta bölvun ... eru ekki
eftirsóknarverðir. Ég er eiginlega
með því að kveða þessa karla í kút-
inn og mynda stjórnir án langra
málefnasamninga.“
Höfundar nýja stjórnarsáttmálanshafa augljóslega ekki lesið bók
Matthíasar Johannessen um Ólaf ný-
lega.
Ólafur Thors
Metralangar tillögur
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 8 rigning Lúxemborg 14 skýjað Algarve 21 léttskýjað
Bolungarvík 10 rigning Brussel 18 léttskýjað Madríd 21 léttskýjað
Akureyri 12 skýjað Dublin 12 skýjað Barcelona 20 léttskýjað
Egilsstaðir 11 alskýjað Glasgow 16 léttskýjað Mallorca 26 heiðskírt
Kirkjubæjarkl. 9 rigning London 15 heiðskírt Róm 25 heiðskírt
Nuuk -4 heiðskírt París 15 skýjað Aþena 25 léttskýjað
Þórshöfn 10 skýjað Amsterdam 13 heiðskírt Winnipeg 15 heiðskírt
Ósló 12 heiðskírt Hamborg 14 léttskýjað Montreal 12 léttskýjað
Kaupmannahöfn 13 léttskýjað Berlín 13 skúrir New York 16 heiðskírt
Stokkhólmur 11 skýjað Vín 27 skýjað Chicago 13 alskýjað
Helsinki 11 léttskýjað Moskva 22 alskýjað Orlando 32 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
12. maí Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 2.10 0,6 8.11 3,4 14.11 0,7 20.31 3,6 4:22 22:28
ÍSAFJÖRÐUR 4.16 0,3 9.58 1,7 16.02 0,4 22.17 2,0 4:04 22:55
SIGLUFJÖRÐUR 6.21 0,1 12.40 1,1 18.21 0,4 3:46 22:39
DJÚPIVOGUR 5.06 1,9 11.18 0,5 17.39 2,1 23.59 0,6 3:46 22:03
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á miðvikudag
Suðaustan 8-15 m/s, hvassast
suðvestantil. Dálítil súld með
köflum, en bjart að mestu um
landið norðanvert. Hiti 10 til 18
stig, hlýjast norðanlands.
Á fimmtudag
Austan 5-13 m/s og dálítil súld
eða þokuloft sunnan- og aust-
anlands, en bjart með köflum
norðan- og vestanlands. Hiti 13
til 20 stig.
Á föstudag
Austlægar áttir og rigning eða
súld með köflum um landið
sunnanvert, en yfirleitt þurrt og
bjart norðantil. Áfram hlýtt í
veðri.
Á laugardag og sunnudag
Austlæg eða breytileg átt.
Sums staðar þokuloft við
ströndina, einkum austantil, en
annars bjart með köflum. Hægt
kólnandi veður.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Suðaustan 10-18 m/s. Súld eða
rigning með köflum sunnan- og
vestantil, en heldur hægari og
léttir heldur til um landið norð-
austanvert. Hiti 6 til 12 stig en
12 til 16 stig norðaustanlands
síðdegis.
MIKLUM hlýindum er spáð á landinu næstu
daga, svo langt sem spákortin ná. Spáð er suðlæg-
um og austlægum áttum og hitinn norðanlands og
austan ætti að geta farið upp undir 20 stig. Bjart-
viðri ætti að vera flesta daga.
„Þá er hún farin að vinna varmadælan, ekki sú
eiginlega í formi vélbúnaðar, heldur hin sem knúin
er af sólarorku og beinir varma úr suðri norður yf-
ir landið. Að þessu sinni virðist varmadælan ætla
að verða bæði sérlega kröftug og langvarandi,“
segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur á veð-
urbloggi sínu í gær.
Einar segir að til að svona aðstæður skapist
þurfi háþrýstisvæði að hreiðra um sig yfir Bret-
landseyjum. Það sér til þess að beina mildu og
röku Atlantshafslofti norður á bóginn. Loftið verði
að vera tiltölulega rakt þegar það berst upp að Ís-
landi. Lyfting þess yfir fjalllendi geri það að verk-
um að rakinn þéttist, úrkoma falli áveðurs og mik-
ið af dulvarma losni úr læðingi. Hans njóti síðan
íbúar Norður- og Norðausturlands í ríkum mæli í
formi hnjúkaþeysins. Suðræna loftið muni í þess-
ari lotu ná langt norður með austurströnd Græn-
lands, alla leið til Svalbarða. sisi@mbl.is
Mikil hlýindi verða næstu daga
„Varmadælan“ verður bæði kröftug og langvarandi, segir Einar Sveinbjörnsson
Morgunblaðið/Ómar
Eftir Hafþór Hreiðarsson
Norðurþing | Einn minnsti grá-
sleppubátur landsins, Ármann ÞH
103, er gerður út frá Kópaskeri og er
útgerðin á höndum kaupmannsins í
þorpinu og sona hans. Þegar ljós-
myndari var á Kópaskeri á dögunum
voru þeir bræður, Einar og Agnar
Ólasynir, að koma að landi eftir að
hafa skotist út og dregið nokkur net.
Einar sagði föður sinn, Óla Björn
Halldórsson, og Agnar hafa sinnt
grásleppuveiðunum að mestu í vor.
Hann sjálfur stundi nám við VMA á
Akureyri og komi heim um helgar
og vitji netanna með þeim ef viðri til
þess. Spurðir um aflabrögð sögðu
þeir bræður þau ekki hafa verið til
að hrópa húrra fyrir hjá þeim frekar
en mörgum öðrum enda tíðarfarið
búið að vera erfitt. Aflinn væri kom-
inn í sex uppsaltaðar tunnur. Fjöldi
grásleppubáta hefur verið gerður út
frá Kópaskeri í vor en þrátt fyrir það
eru ekki söltuð hrogn þar í ár. Þau
eru ýmist söltuð á Húsavík eða
Raufarhöfn og fara hrognin af Ár-
manni til söltunar hjá Hólmsteini
Helgasyni ehf. á Raufarhöfn.
Nota lítinn bát við
grásleppuveiðarnar
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Smábátur Einar og Agnar Ólasynir koma að landi á Ármanni ÞH.