Morgunblaðið - 14.05.2009, Qupperneq 27
Predikun þín um skólagöngu og
að mennta sig fyrst og fremst, er
mér hugstæð en gekk eitthvað erf-
iðlega að fara eftir. Hvað ég hlakk-
aði alltaf til að fá ykkur heim eftir
vetradvöl ykkar í útlöndum, þú
súkkulaðibrúnn. Þetta er þitt „tes!“
Mikil ósköp á ég eftir að sakna þín,
ég sit eftir með heilmikið af minn-
ingum sem er mér mikils virði. Ég
elska þig, afi minn og sofðu vært
blundinn eilífa.
Ég kveð með miklum söknuði.
Þitt barnabarn,
Helga Rut.
Í dag verður kvaddur frá Foss-
vogskirkju Ingólfur Guðmundsson á
99. aldursári. Ingólfur var móður-
bróðir minn og mikill og góður vin-
ur. Hann var yngstur 14 systkina
foreldra sinna, Jakobínu Jónsdóttur
og Guðmundar Sigmundssonar, sem
þá bjuggu á bænum Villingadal á
Ingjaldssandi. Miklir erfiðleikar og
hörmungar voru hjá þessum ungu
hjónum á byrjunarárum þeirra því
þau misstu eina dóttur úr heila-
berklum og fimm ung börn úr hvíta
dauða sem svo var nefndur. Einn
sonur þeirra drukknaði með Leifi
heppna 1925. Sjö barna þeirra kom-
ust til fullorðinsára.
Ingólfur fór suður til Reykjavík-
ur 1928 og fór þá á sjó og var bæði
á bátum og togurum. Hann útskrif-
aðist sem stýrimaður árið 1939. Eft-
ir nokkur ár á sjó kom hann í land
og vann eftir það við verslunarstörf.
Mörg ár var hann verslunarstjóri
hjá Silla og Valda, Vesturgötu 29.
Eftir að það fyrirtæki hætti störf-
um keyptu þau hjónin verslunina og
ráku hana í mörg ár.
Ingólfur var alla tíð mikill gæfu-
maður. Ein hans mesta gæfa var
þegar hann kynntist ungur eigin-
konu sinni, Svövu Ingimundardótt-
ur, en þau gengu í hjónaband 31.
maí 1941 og hefur því samband
þeirra varað um 70 ár.
Eignuðust þau þrjá syni sem allir
eru kvæntir og eiga þeir samtals 7
börn. Barnabörnin eru 12.
Minning hans er vafin hlýju og
einlægri gleði. Það var alltaf gott að
vera í návist hans. Lífsþróttur hans
var einstakur og alltaf stutt í glitr-
andi glettni hjá honum.
Hann miðlaði svo mörgum af lífs-
gleði sinni og vermandi vinarhlýju
þess sem alltaf átti uppörvandi orð
og brosið bjart öllum þeim sem áttu
með honum samleið.
Um ævina kynnist maður mörgu
góðu fólki sem hefur mismikil og
misjöfn áhrif á mann. Sömuleiðis
verða sumir samferðamenn eftir-
minnilegri en aðrir. Ingólfur var
einn þeirra manna sem setja svip
sinn á umhverfið og verða ætíð hug-
stæðir. En alltaf er það nú svo, þeg-
ar dauðinn knýr dyra, að þá veldur
það alltaf söknuði þegar vinir og
ættingjar falla frá.
Að minnsta kosti er oft vandfyllt
skarð þeirra sem ekki fetuðu lífs-
brautina troðnum slóðum fjöldans
og létu aldrei fjötrast af áhrifa-
mætti tíðarandans. Í þeim hópi var
minn einlægi, trausti og góði
frændi.
Það var alltaf ánægjulegt að
heimsækja þau hjón á þeirra hlýja
og fallega heimili.
Við töluðum oft saman í síma,
honum þótti gaman að fá fréttir og
mest þótti honum og best að heyra
ef öllum sem hann þekkti liði vel.
Nú þegar leiðir skilur um stund
og í þeirri trú, að hið eilífa ljós lýsi
látnum vini, dauðinn sé framhald
lífsins og sálin lifi að eilífu, er Ing-
ólfur kvaddur með djúpri virðingu.
Honum fylgi hjartans þakklæti frá
mér og fjölskyldu minni, fyrir fögur
fordæmi, lærdómsrík kynni og allt
annað sem hann gaf mér af akri
vináttunnar.
Elsku Svava og fjölskylda, inni-
legar samúðarkveðjur frá mér og
fjölskyldu minni.
Vertu sæll. Þig signi ljósið bjarta.
Sjálfur Guð þig leggi sér að hjarta.
Blómgist þar um eilífð andi þinn
innilegi tryggðarvinur minn.
(Höf. ók.)
Guðs blessun fylgi Ingólfi í nýjum
heimkynnum.
Birgir G. Ottósson.
Minningar 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2009
Ég veit ekki hvenær
ég get sagt að ég hafi
kynnst Lilju Guð-
mundsdóttur. Guð-
mundi Hallvarðssyni,
syni hennar, kynntist
ég á Fylkingarárum okkar Guðmund-
ar, á hinum róttæku tímum sjöunda
áratugarins. Við Guðmundur vorum
félagar í róttæku starfi og vinir. Ég
hringdi því margt símtalið úr síma
Æskulýðsfylkingarinnar á heimili
Guðmundar. Oftast var það ljúf konu-
rödd sem svaraði. Og hún kallaði:
„Guðmundur, þetta er til þín.“ Þetta
voru mín allra fyrstu kynni af Lilju.
Seinna áttu leiðir okkar eftir að liggja
mikið saman. Guðmundur kvænist
1986 Önnu Margréti Jónsdóttur,
mágkonu minni (frá mínu fyrra
hjónabandi), sem hefur verið vinkona
mín frá okkar fyrstu kynnum. Eftir
það lágu leiðir fjölskyldnanna mikið
saman og það voru ekki fáir sunnu-
dagarnir sem við hjónin drukkum
kaffi með Lilju og Hallvarði á heimili
sonar þeirra og Önnu Margrétar.
Leiðir okkar lágu saman í afmælum,
fermingum og síðast en ekki síst hef
ég mörg ár kvatt gamla árið og fagn-
að því nýja í félagsskap Lilju og Hall-
varðar. Síðasta gamlaárskvöld var
mér ljóst að þetta yrði trúlega í síð-
asta sinn sem ég myndi fá að fagna
nýju ári með Lilju. Það var ekki auð-
velt að kynnast konu eins og Lilju.
Hún hélt sér til hlés, Hallvarður
ræddi málin, en hann hefur brenn-
andi áhuga á pólitík fyrr og nú. Ég
held að Lilja hafi verið honum sam-
mála um margt en áhugi hennar lá á
öðrum sviðum. Hún hafði áhuga á
fólki og líðan þess. Hún hafði samúð
með fólki í veikindum þess og fylgdist
vel með hvernig því vegnaði. Ég fann
vel að slíkt skiptir máli þegar málið
Lilja Guðvör
Guðmundsdóttir
✝ Lilja Guðvör Guð-mundsdóttir
fæddist 28. október
1921. Hún lést á líkn-
ardeild Landakots 24.
apríl 2009 og fór út-
för hennar fram frá
Digraneskirkju 6.
maí.
sneri að mér. Ég fann
líka að Lilja hafði
ánægju af tónlist og á
yngri árum hafði hún
byrjað að læra að leika
á píanó en orðið að
hætta því vegna gigt-
veiki.
Einu sinni áttum við
saman nokkra sumar-
daga í Hlöðuvík á
Hornströndum ásamt
Guðmundi og Önnu
Grétu. Þá fann ég
glöggt að þótt þau
Hallvarður væru sam-
rýnd og samtaka þá voru þau afar
ólík. Hallvarður var talsmaður gilda
gamalla lífshátta meðan Lilja var
borgarbarn. En það er ekki verra að
hjón séu ólík ef þau viðurkenna að svo
sé. Hallvarður var Lilju afar hjálp-
samur í þessum frumstæðu og um
margt stórbrotnu aðstæðum á Horn-
ströndum.
Ég vil að lokum þakka Lilju þessi
kynni um leið og ég votta Hallvarði og
öðrum aðstandendum samúð mína.
Bergþóra Gísladóttir.
Kærleikans besti bróðir,
birtan frá krossi þínum
lýsir mér gegnum lífið,
leiðbeinir fótum mínum.
Sælt er að sjá og finna
sólina leika um fjöllin
eins er þín ást og náðin
yfir mér lífs um völlinn.
(E.J.E.)
Látin er Lilja Guðmundsdóttir, hin
ljúfasta og yndislegasta kona. Hall-
varður eiginmaður hennar er frændi
minn og frá barnæsku man ég eftir
þeim hjónum þegar þau komu í heim-
sókn til okkar í Löngubrekku. Halli
var yfirleitt með galsa og þótti okkur
ekki leiðinlegt að láta hann elta okkur
um húsið með viðeigandi óhljóðum og
skrækjum. Lilja var hin fullkomna
frú, hæg og róleg. Gott þótti okkur að
setjast inn í eldhús og hlusta á Lilju
og mömmu spjalla saman þegar mesti
galsinn var liðinn hjá. Það sem ég
man mest frá Lilju á þessum tíma er
ljúfur hláturinn og fagurt gleðiblik úr
augunum. Ég man eftir mynd af litlu
fjöldkyldunni, Lilju, Halla og Guð-
mundi syni þeirra litlum. Þessi mynd
segir svo margt um hug þeirra hvors
til annars og væntingar þeirra til lífs-
ins sem þau voru að byrja saman.
Hugsa sér allar breytingarnar sem
þau hafa upplifað, allt það nýja og um-
snúna. Að eiga saman 64 ár er meiri-
hluti ævinnar og stórmerkilegt, en að
eiga 64 góð ár með þeim sem maður
elskar mest af öllum er ómetanlegt og
dýrmætt. Þau hjónin voru samhent í
öllu sem þau tóku sér fyrir hendur og
studdu hvort annað í leik og starfi.
Móðir Lilju bjó hjá þeim lengi og eins
átti Ingibjörg móðir Halla athvarf hjá
þeim þegar þannig stóð á. Guðmund-
ur er eina barn þeirra en hann hefur
gefið þeim 3 barnabörn, Lilju Dögg,
Hallvarð og Elvu Rún ásamt yndis-
legri tengdadóttur, Önnu Margréti,
sem öll hafa verið þeim svo hugleikin
og elskuð. Halli sem alinn var upp á
Hornströndum byggði hús í Hlöðuvík
þar sem þau áttu sér athvarf frá
amstri dagsins. Þangað fór hann
margar ferðir með fjölskyldu og vini
og þar var Lilja húsmóðir í Búðabæ
með sama dugnaði og hún 16 ára fór
út á vinnumarkaðinn og þau ár sem
þau héldu saman heimili. Síðustu 7
mánuðir hafa verið erfiðir, veikindi og
dauði Lilju hafa tekið stóran toll af
þreki Halla frænda míns og beygt
hann en ekki brotið. Lilja var síðustu
vikurnar á líknardeild á Landakoti
þar sem vel var hugsað um hana. Til
þessa dags sem hún fór á Landakot
eldaði hún mat og þvoði þvotta þó
þrekið væri lítið. Voru þau verk ekki
samboðin karlmönnum að hennar
mati. Halli var stundum að læðast til
að setja í þvottavélina til að létta
henni störfin.
Ég heimsótti Halla eftir að Lilja
lést og bauðst til að pressa fyrir hann
sparifötin. Hann hélt nú að Lilja sín
hefði verið búin að því og mikið rétt,
þau voru hreinsuð og pressuð inni í
skáp tilbúin til notkunar. Það er erfitt
að kveðja. Þeir sem eftir sitja syrgja.
Ég vil votta fjölskyldunni samúð
vegna fráfalls Lilju og minnast henn-
ar sem mætrar sómakonu.
Stefanía Hjartardóttir.
Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en
3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Engin lengdarmörk eru á greinum
sem birtast á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-
15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda
inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist,
hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram.
Minningargreinar
✝
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
JÓNAS FINNBOGASON
frá Harðbak,
andaðist á Sjúkrahúsinu á Húsavík laugardaginn
9. maí.
Jarðarförin fer fram frá Raufarhafnarkirkju laugar-
daginn 16. maí kl. 14.00.
Hólmfríður Friðgeirsdóttir,
Vilmundur Þór Jónasson,
Valgeir Jónasson, Kristín Böðvarsdóttir,
Gunnar Finnbogi Jónasson, Þórhildur Þorgeirsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Maðurinn minn, faðir, fósturfaðir, tengdafaðir og
afi,
NÍELS ÞÓRARINSSON,
Klettahrauni 6,
Hafnarfirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi Hafnarfirði
miðvikudaginn 6. maí.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju fimmtu-
daginn 14. maí kl. 15.00.
Anna Erlendsdóttir,
Steina B. Níelsdóttir, Gunnar Níelsson,
Hafdís Erla Gunnarsdóttir,
Anna Lilja Dögg Gunnarsdóttir,
Víglundur Þorsteinsson, Svava Theodórsdóttir,
Lovísa María.
✝
Okkar kæri bróðir,
HREIÐAR ÁGÚSTSSON,
lést í Minneapolis, Bandaríkjunum föstudaginn 8. maí.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Óskar L. Ágústsson,
Magnús Ágústsson.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
UNA GUÐJÓNSDÓTTIR
frá Þórshöfn Langanesi,
Heiðarbóli 6,
Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þriðjudaginn
12. maí.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
✝
Hjartkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
NÍELS KJELDSEN BUSK
garðyrkjumaður,
lést þriðjudaginn 5. maí.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að vilja hins
látna.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki
hjúkrunarheimilisins Áss fyrir að annast hann af
alúð og hlýju síðustu æviárin.
Ragnheiður Kjartansdóttir Busk,
María Busk, Guðmundur Ingi Gunnlaugsson,
Kjartan Rúnar Busk, Gunhild Windstad,
Ragnheiður Elsa Busk, Steinar Logi Hilmarsson,
afa- og langafabörn.