Morgunblaðið - 17.10.2009, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 1 7. O K T Ó B E R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
282. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«BJARNI HARÐARSON
ER EKKI FULLKOMIN
KONA EN GÓÐ MÓÐIR
«JÓHANNES
Röð af bráðfyndn-
um uppákomum
Holtagörðum • Opið í dag frá kl. 10-18:30
Frábær opnunartilboð!
Interbed
hjónarúm
160x200 cm
Aðeins kr. 149.000,-
- býður þér góða nótt
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
FME hefur sent mál er varðar alls-
herjarmarkaðsmisnotkun Kaupþings
til embættis sérstaks saksóknara,
samkvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins.
Grunur leikur á að bankinn hafi
kerfisbundið reynt að hafa áhrif á eig-
in hlutabréfaverð og skapað stöðuga
eftirspurn eftir bréfunum og þannig
sent röng og villandi skilaboð til
markaðarins um raunvirði hlutabréf-
anna. Þetta var gert með þeim hætti
að bankinn, sem á hverjum tíma-
punkti mátti aðeins eiga mest 5% í
sjálfum sér, keypti bréf inn á veltubók
og seldi þau síðan áfram til valinna
viðskiptavina gegn lánum. Með þess-
um hætti gat bankinn verið virkur á
markaði með eigin hlutabréf.
Rannsókn FME náði nokkur ár
aftur í tímann. Ábyrgð vegna ákvarð-
ana sem tengdust rekstri Kaupþings
liggur m.a. hjá forstjóra bankans,
Hreiðari Má Sigurðssyni, og Sigurði
Einarssyni stjórnarformanni.
Mörg smærri mál, sem rannsökuð
hafa verið af Fjármálaeftirlitinu og
sum hver áður verið send áfram til
embættis sérstaks saksóknara, tengj-
ast þessari allsherjarmarkaðsmis-
notkun.
Meint allsherjarmisnotkun
Kaupþings til saksóknara
» Fjármálaeftirlitið hefur lokið sinni rannsókn
og sent málið til sérstaks saksóknara. Hann
ákveður hvort ástæða sé til að gefa út ákæru.
» Markaðsmisnotkun getur varðað allt að sex
ára fangelsi skv. lögum um verðbréfaviðskipti.
Grunur um falsaða | 18
Sigurður Einarsson og Hreiðar Már
Sigurðsson stýrðu Kaupþingi.
ÞAÐ verður mikill buslugangur í Laugardalslauginni næstu dagana. Evr-
ópumeistaramót fatlaðra í sundi hefst þar í fyrramálið og er sett í kvöld, en
mótið stendur yfir í heila viku. Þrettán Íslendingar eru á meðal ríflega 400
keppenda á mótinu, sem er langstærsta verkefni sem Íþróttasamband fatl-
aðra hefur tekist á hendur, en með keppendunum er fjöldi fylgdarfólks. Ís-
lensku keppendurnir æfðu af kappi í Laugardalnum í gær. Keppni hefst
klukkan níu í fyrramálið með undanrásum en síðan er keppt til úrslita í
fyrstu greinum klukkan fimm.
EVRÓPUMÓTIÐ HEFST Í LAUGARDALSLAUG
Morgunblaðið/Heiddi
ÁRNI Páll
Árnason félags-
og trygginga-
málaráðherra
lagði gær fram á
Alþingi frum-
varp til laga um
aðgerðir í þágu
einstaklinga,
heimila og fyrir-
tækja vegna banka- og gjaldeyris-
hrunsins.
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir
að Íbúðalánasjóði verði heimilt, að
fengnu samþykki ráðherra, „að
setja á fót opinbert hlutafélag sem
hafi að markmiði fjármögnun og
endurfjármögnun íbúðalána fyrir
fjármálafyrirtæki og Íbúðamála-
sjóð. Íbúðamálasjóði er heimilt að
leggja hinu nýja félagi til fé og
eignir“. Í athugasemdum kemur
fram að með þessari breytingu sé
lagður grunnur að húsbankakerfi
að danskri fyrirmynd.
Grunnur að húsbankakerfi
að danskri fyrirmynd
FYRSTU
skref til afnáms
gjaldeyrishaft-
anna verða stig-
in fyrir 1. nóv-
ember, að sögn
Gylfa Magn-
ússonar efna-
hags- og við-
skiptaráðherra í
samtali við Morgunblaðið. Fyrsta
skrefið felst í því opna fyrir inn-
streymi fjármagns. Þannig hafa
þeir sem hafa í hyggju að fjár-
festa hér á landi eða flytja hing-
að fjármuni tryggingu fyrir því
að geta flutt peningana út aftur
þegar þeim hentar – þannig að
höftin gilda ekki um þá fjármuni
sem koma til landsins eftir að
umræddar breytingar taka gildi.
»2
Gjaldeyrishöftum aflétt
fyrir lok líðandi mánaðar
KRÖFUHAFAR Atorku group
munu eignast félagið að fullu ef
nauðasamningar verða samþykktir.
Allt hlutafé í Atorku verður fært
niður skv. heimildum Morgunblaðs-
ins. Stjórn Atorku hefur boðað til
hluthafafundar nk. miðvikudag,
þar sem drög að nauðasamningi
verða kynnt hluthöfum. »19
Kröfuhafar Atorku gætu
eignast félagið að fullu
Jón Kalman Stefánsson heyrði árið
1995 útvarpsþátt um ríka konu.
Hann heillaðist af sögunni og hefur
nú sent frá sér aðra skáldsöguna í
þríleik sem spratt út frá þættinum.
LESBÓK
Fórum svo fljótt
inn í nútímann
Níunda nóvember næstkomandi
eru tuttugu ár síðan Berlínarmúr-
inn féll. Ágúst Þór Árnason rekur
atburðina vikurnar þar á undan og
nóvemberdaginn afdrifaríka.
Og nú gerðust
hlutirnir hratt
Hann gjörþekkir alþýðusöngva
þjóðar sinnar og úr þeim arfi
spretta jólalögin sem Bob Dylan
spreytir sig á á nýrri plötu sinni.
Ágóðinn rennur til hungraðra.
Jólagjöf Bobs
Dylans til heimsins
bbbm