Morgunblaðið - 17.10.2009, Blaðsíða 37
Minningar 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 2009
✝ Þorgerður Bene-diktsdóttir, hús-
freyja á Grænavatni í
Mývatnssveit, var
fædd á Grænavatni
hinn 5. apríl 1916.
Hún andaðist á
sjúkrahúsinu á Húsa-
vík 8. október, á ní-
tugasta og fjórða ald-
ursári.
Hún var önnur í
röð fjögurra dætra
hjónanna Benedikts
Guðnasonar bónda
þar – sem þangað
hafði flust með fjöl-
skyldu sinni frá Vogum árið 1890 –
og Solveigar Jónsdóttur, Hinriks-
sonar frá Helluvaði. Tóku þau við
búi á hálfu Grænavatni árið 1910
og bjuggu þar til dauðadags Bene-
dikts 1954 og Solveigar 1986, en
þá var hún á hundraðasta aldurs-
ári. Aðrar dætur þeirra voru Þór-
þar næstu hálfu öldina, framan af í
leiguábúð en árið 1967 fengu þau
fjórðung jarðarinnar keyptan og
byggðu hann upp næstu árin með
hjálp sona sinna. Sigurður var
fæddur 5. maí 1919 og lést 14. apríl
2001. Saman eignuðust þau þrjá
syni. Þeir eru: 1) Erlingur, f. 1948,
fv. kennari við MA og for-
stöðumaður Húss skáldsins á Ak-
ureyri. Kona hans er Sigríður Stef-
ánsdóttir og börn þeirra þrjú:
Erna, Sigurður og Kári. 2) Bene-
dikt, f. 1952, framkvæmdastjóri
Búseta á Akureyri. Hann er kvænt-
ur Helgu Sigurðardóttur og dætur
þeirra tvær: Þorgerður og Sigrún.
3) Hjörleifur, f. 1957, bóndi á
Grænavatni. Hann var giftur Æsu
Hrólfsdóttur og eru börn þeirra
þrjú: Brynja, Arna og Hrólfur.
Þorgerður verður jarðsungin
frá Skútustaðakirkju laugardag-
inn 17. október og hefst athöfnin
kl. 14.
dís, f. 1911 – d. 1998,
Þórhildur, f. 1922, og
Sigrún, f. 1930, allar
á Grænavatni.
Þorgerður fór í Al-
þýðuskólann á Laug-
um og síðan í Kenn-
araskólann þar sem
hún lauk kenn-
araprófi vorið 1939.
Næstu árin var hún
kennari barna í
Reykjadal, Laxárdal
og á Húsavík, og við
unglingakennslu í
Mývatnssveit einn
vetur. Þá gegndi hún
tvívegis á þessum árum starfi
„húsmóður“ Laugaskóla og sinnti
þá jafnframt kennslu þar. Hinn 14.
júní 1947 gekk Þorgerður i hjóna-
band með Sigurði Þórissyni,
Torfasonar, og Þuríðar Sigurð-
ardóttur í Baldursheimi. Hófu þau
búskap á Grænavatni og bjuggu
Það fór ekki mikið fyrir Þorgerði
tengdamóður minni – hún var smá-
vaxin og grönn og hafði ekki hátt.
Samt var hún mikil þungamiðja í
fjölskyldunni, elskuð og virt og hjá
barnabörnunum var hún í dýrlinga-
tölu.
Hún er ein fróðasta, minnugasta
og heiðarlegasta kona sem ég hef
kynnst. Hún var af þeirri kynslóð
kvenna, sem þrátt fyrir góðar gáfur
og menntun fékk og kaus sér það
hlutskipti að sinna fyrst og fremst
sínu heimili – og það gerði hún vel.
Grænavatn var hennar staður, þar
var hún fædd, þar bjuggu foreldrar
hennar og systur og gott sambýlis-
fólk. Eftir að hún giftist manni sín-
um Sigurði frá Baldursheimi bjuggu
þau á Grænavatni og hann varð
Siggi Græni. Hann var lengi oddviti
og heimili þeirra var sá staður, þar
sem fólk rak erindi sín. Ættingjar og
vinir nær og fjær komu í heimsókn
og ræktuðu vinskap. Og sumardval-
arbörnin komu mörg ár eftir ár og
héldu áfram tryggð og sambandi.
Það var því oft margt um manninn á
heimilinu og líf og fjör og nóg að
gera hjá húsfreyjunni.
Þegar ég kom fyrst í Grænavatn
voru synirnir þrír enn allir heima á
sumrin og mér þótti ævintýralegt að
ganga inn í þetta samfélag. Það var
reyndar oft haft hátt, skoðanir voru
sterkar, sögur voru sagðar og hermt
eftir sveitungum. Í þessu tók hún
Dedda eins og hún var alltaf kölluð
ekki mikinn þátt, en hún hlustaði og
hafði oft gaman af og sagði svo oft
sína skoðun hljóðlegar síðar. Því hún
hafði svo sannarlega skoðanir – á
sveitamálum og landsmálum og þær
urðu reyndar enn meira áberandi
síðustu árin og hún ræddi málin,
ekki síst við barnabörnin, sem hún
var alltaf í góðu og stöðugu sam-
bandi við. Hún var mikill unnandi
góðra bókmennta og góðrar tónlist-
ar. Hún unni íslenskri náttúru og
fannst erfitt að horfa upp á þegar
stundarhagsmunir og gróðasjónar-
mið réðu meiru en virðing fyrir land-
inu og ást á því.
Í langan tíma, meðan mest var að
gera á heimilinu, fór Dedda lítið út
fyrir sveitina. Á seinni árum buðum
við henni og Sigga, meðan hans naut
við, öðru hverju í stuttar ferðir. Hún
var mjög fróð um landið og naut þess
að ferðast og það var ógleymanlegt
að fara með henni um slóðir þar sem
hún hafði ekki komið, en þekkti samt
náttúru, umhverfi, bæi og mannlíf af
lestri og frásögnum annarra. Þau
heimsóttu okkur líka til Þýskalands
árið 1992. Það var þeirra eina utan-
landsferð og einnig þar nutu þau
þess að sjá og upplifa.
Margir vinir okkar hafa heimsótt
Grænavatn, voru velkomnir og
minnast hlýrrar móttöku og frá-
bærra veitinga. Það sló ekkert út
heimabakaða flatbrauðið með salt-
reyði og hangikjöti og upprúlluðu vel
sykruðu pönnukökurnar.
Við vorum ekki af sömu kynslóð
og ég var alin upp í ólíku umhverfi.
Það er því spurning hvernig henni
leist á tilvonandi tengdadóttur, sem
kom að sunnan og þótti alltaf sjálf-
sagt að vera í námi, starfi og ýmsum
verkefnum utan heimilisins. Aldrei
fékk ég athugasemdir, aðeins stuðn-
ing og með árunum þróaðist með
okkur djúp vinátta. Ég á tengda-
móður minni ótrúlega mikið að
þakka, í aðstoð og hjálp, samkennd
og vináttu alla tíð.
Sigríður Stefánsdóttir.
Ég var ekki orðinn fjögurra ára
þegar ég komst að því að það er öm-
urlegt að vera lengi í Reykjavík. Ég
vissi líka hvar væri betra að vera.
Þess vegna heimtaði ég að fá að fara
í sveitina til ömmu og afa og fékk
það. Í gegnum skólagöngu mína fór
ég svo austur ófáar helgar og sauð-
burður, heyskapur og göngur voru
fastir liðir. Ég átti alltaf öruggt skjól
hjá ömmu og afa, sama hvort ég var
að koma frá Akureyri eða Þýska-
landi eða hvernig staðan var hjá
mér. Það var sæng ofan í öðrum
svefnbekknum og húsafötin í hinum.
Ef amma vissi að ég var á leiðinni
var oft bakað, pönnukökur, hjóna-
bandssæla eða fíkjuterta. Frænd-
systkin mín á Grænavatni sökuðu
ömmu stundum um það í gríni að
taka sér biblíuna til fyrirmyndar og
slátra alikálfinum, ekki væri bökuð
fíkjuterta fyrir þau. Vinir mínir sem
heimsóttu mig frá Þýskalandi fengu
líka að kynnast góðgerðum ömmu.
Kaffimeðlætið sem tæplega níræð
konan bauð upp á er þeim minnis-
stætt.
Amma varð sífellt pólitískari með
aldrinum og oft fussaði hún yfir vit-
leysunni í Framsókn. Það er eitt af
mörgu sem var til merkis um að hún
var algjörlega óbiluð andlega. Einn-
ig hélt hún sitt eigið heimili þangað
til í sumar þegar hún lagðist inn á
sjúkrahúsið á Húsavík eftir hjarta-
áfall. Ég held að það séu ekki margir
sem bera sig betur eftir tvö hjarta-
áföll en amma, 93 ára, og biðji um að
það sé nú ekki haft of mikið fyrir sér.
Daginn fyrir aðrar göngur hringdi
ég í hana á sjúkrahúsið til að fá
pönnukökuuppskriftina, því að það
er ekki hægt að fara í göngur án
þess að hafa vel sætar pönnukökur í
nesti. Hún gaf mér hana strax eftir
minni og einnig góð ráð um bakst-
urinn: ein teskeið lyftiduft, smá van-
illudropar og tvær teskeiðar af sykri
í soppuna, þá bakast þær jafnar. Ef
til er einhver rjómi er gott að nota
hann í soppuna í staðinn fyrir smjör-
líki.
Margt er farið með ömmu en
margt lifir líka í minningunni og í
þeim sem þekktu hana.
Sigurður Erlingsson.
Jæja nafna mín, varstu vön að
segja við mig þegar þú kvaddir mig
og því líklega við hæfi að ég noti
sömu kveðju í þetta skiptið. Ég vona
líka þú fyrirgefir mér að ég skrifi um
þig í Morgunblaðið þó þú hafir ekki
verið beinlínis sátt við Moggann síð-
ast þegar við töluðum saman.
Sumrin á Grænavatni voru órjúf-
anlegur partur barnæsku minnar.
Þar fékk ég að leika lausum hala
meðan mamma og pabbi voru í
vinnu, ýmist í stússi með afa á Löd-
unni eða heima hjá ömmu. Ég held
ég hafi ekki tölu á skúffukökunum,
skrautsykurskökunum eða pönnu-
kökustöflunum sem ég fékk að
„hjálpa“ ömmu við að baka, hvað þá
stundanna sem ég fékk að sniglast í
kringum hana í garðinum. Eins þeg-
ar amma var að lesa fyrir mig á
kvöldin þar sem hún oftar en ekki
sofnaði miðju kafi svo ég varð að ýta
við henni til að klára bókina. Mikið
óendanlega er ég þakklát fyrir þess-
ar stundir.
Eftir því sem árin liðu og ferðum
mínum í Grænavatn fækkaði, var
síminn aldrei langt undan. Amma
var óspör á að hringja í okkur barna-
börnin sín og ræða um daginn og
veginn og ekki síst um pólitík, bæði
hérlendis og erlendis. Símtölin voru
stundum mjög löng enda var ég farin
að gefa mér að minnsta kosti
klukkutíma ef ég sá að amma var að
hringja. Amma hafði skoðanir á hlut-
unum, þó svo hún hafi oftast haldið
þeim fyrir sig. Ég held að greining-
ardeildir gömlu bankanna hefðu ver-
ið betur staddar ef þeir hefðu haft
hana innan sinna raða, en amma
vissi hverjum hún var tilbúin að
treysta.
Í stuttu máli var amma snillingur.
Þó hún hafi verið 60 árum eldri en
ég, þá var hún ekki bara amma, hún
var líka vinkona og átti einstakt
samband við okkur krakkana og
held ég alla sem kynntust henni. Það
var hægt að ræða við hana um allt.
Hún var vel lesin, fylgdist með frétt-
um og missti aldrei úr fyrr en þriðju-
daginn áður en hún kvaddi. Hún
hafði einstakt lag á að fylgjast með
afkomendum sínum, vissi hvar var
íþróttamót í gangi, hver árangurinn
var, hvernig gekk í skólanum og síð-
ustu árin hvar í heiminum við vorum
stödd. Oftar en ekki fékk ég fréttir
af frændsystkinum mínum og fjöl-
skyldu í gegnum ömmu.
Amma var alveg tilbúin að kveðja
þegar að því kom og hafði oft á orði
síðustu mánuðina að það hefði verið
fínt að verða níræð en allt eftir það
væri bara vitleysa.
Ég er þakklát fyrir allar stund-
irnar sem við áttum saman, þakklát
fyrir öll símtölin og síðast en ekki
síst þakklát fyrir að hafa átt svona
dásamlega ömmu.
Þín nafna,
Þorgerður Benediktsdóttir.
Þegar Brynja frænka mín var
þriggja ára dó langamma okkar.
Brynja og hinir litlu krakkarnir í
fjölskyldunni voru heima meðan á
jarðarförinni sjálfri stóð en komu í
erfidrykkjuna og fannst þetta
mannamót besta skemmtun, enda
höfðu þau mikið svigrúm til að
hlaupa um og leika sér.
Síðar um veturinn var Brynja að
forvitnast um framrás tímans og
vildi vita hvað amma yrði gömul þeg-
ar hún sjálf yrði á ýmsum aldri.
Amma svaraði ítrekuðum spurning-
um af mikilli þolinmæði eins og
hennar var von og vísa en þar kom
að hún gat ekki svarað öðru en að þá
yrði hún sennilega dáin.
Brynja ljómaði upp: „Jaaaá, og þá
verður nú skemmtisamkoma í kirkj-
unni, amma mín!“
Amma sjálf og aðrir í fjölskyld-
unni hafa reglulega glaðst yfir þess-
ari sögu á árunum 23 sem síðan eru
liðin.
Ömmu fannst fyrir allmargar síð-
ustu kosningar að hún gæti varla
mætt á kjörstað því hún myndi
ábyggilega deyja bráðum og henni
fannst ekki rétt að taka ákvarðanir
sem ættu eftir að koma öðrum meira
við. Því fer samt fjarri að hún hafi sí-
fellt verið með hugann við dauðann.
En hann var ekki heldur feimnismál.
Og á kjörstaðinn fór hún alltaf á
endanum, enda fylgdust fáir betur
með þjóðmálunum eða tóku ein-
dregnari afstöðu til þeirra. Reyndar
gerðist það sennilega ekki fyrr en
hún komst á efri ár en þá varð hún
líka mjög skemmtilega pólitísk. Hún
dreif sig meira að segja á mótmæla-
fund í Dimmuborgum í fyrravetur
þótt hún færi ekki oft út af bæ. Ég
vona að hún fyrirgefi okkur að láta
minningargreinar um sig birtast í
Morgunblaðinu.
Bernskuminningar mínar um
ömmu tengjast ekki síst eldhúsinu
og þar var gaman að vera með henni
og fá að hjálpa til, t.d. sykra pönnu-
kökurnar, snúa upp á kleinurnar eða
pikka flatbrauðið. Svo spjölluðum
við líka um bækur og ýmislegt fleira,
enda hefur alltaf verið til siðs heima
á Grænavatni að tala við börn eins
og viti borið fólk.
Oft hef ég spurt hana ráða um t.d.
matargerð, bakstur og hannyrðir, og
alltaf uppskorið góð og gagnleg svör.
Reyndar fylgdi gjarnan ráðlegging-
unum að „hún hefði svosem ekkert
vit á þessu“ og sama athugasemd
skaust gjarnan inn í samræður um
stjórnmál eða bækur, sérstaklega ef
hún var nýbúin að gagnrýna um-
ræðuefnið. Þetta lítillæti var einlæg-
lega meint en mesta firra. Fáir höfðu
betra vit á málunum en hún.
Þegar ég heyrði fyrst í ömmu eftir
að hún lenti á spítalanum í sumar
kvartaði hún eiginlega ekki yfir
neinu nema því að hafa ekki heyrt
fréttir í einn eða tvo daga. Hún
missti ekki af mörgum fréttatímum
eftir það fyrr en allra síðustu dagana
og var sjálfri sér lík allan tímann,
skörp í hugsun og fullkomlega með á
nótunum um allt milli himins og
jarðar.
Í síðasta símtali okkar, örfáum
dögum áður en hún dó, ræddi hún
þjóðmálin af sama ákafa og venju-
lega, svaraði spurningum mínum um
kæfugerð og sagði mér hvaða bækur
hún hafði verið að lesa svo fátt eitt sé
nefnt. Mig langar að verða eins og
hún þegar ég verð gömul.
Erna Erlingsdóttir.
Þann 16. ágúst 1975 var brakandi
þurrkur eftir langvarandi vætutíð
svo annríki var bæði úti og inni.
Heyið þurfti að komast í hlöðu og um
kvöldið ætluðu Helga og Bensi að
ganga í hjónaband í stofunni heima í
Yztafelli, svo veitingar urðu að vera
sómasamlegar þegar Grænvetning-
ar kæmu. Loks kom kvöld og ró féll
á mannskapinn. Stóra stundin rann
upp, kyrrlát og falleg. Þetta kvöld
bundumst við mæður brúðhjónanna
vináttuböndum sem aldrei trosnuðu.
Við gátum hringt í hvor aðra í gleði
og sorg. Oftast var umræðuefnið
bækur sem við báðar höfðum lesið,
landsins gagn og nauðsynjar og auð-
vitað barnabörnin, sem eru okkur
ömmunum einstaklega hugleikin.
Ég dáðist alltaf að einlægri réttlæt-
iskennd og skarpskyggni Þorgerðar.
Á minni löngu lífsleið hef ég aldrei
kynnst trúrra minni, ártöl, kvæði, at-
burðir, mannanöfn. Hún mundi
þetta allt. Ef ég var í vafa var ein-
faldast að „slá á þráðinn“ til Deddu.
Seint í júní á þessu ári fékk Dedda
áfall og var flutt á sjúkrahúsið á
Húsavík. Ég heimsótti hana oft og
naut þess að spjalla við hana. Aldrei
skorti okkur umræðuefni. Dedda
fylgdist með öllum fréttum og hafði
sínar skoðanir á lands- og heimsmál-
um. Þau ræddi hún á sinn hógværa
hátt, oft með léttri glettni sem alltaf
var grunnt á. Á náttborðinu lágu
áhugaverðar bækur og sögðum við
hvor annarri frá því sem við vorum
að lesa. Einn daginn kenndi hún mér
að prjóna fallega trefla. Alltaf fannst
mér ég fara ríkari af hennar fundi.
Oftast sat Þórhildur, systir hennar
líka hjá henni enda kom hún alla
daga að njóta samvista við systur
sína. Fimmtudagskvöldið 8. október
var þessu lokið.
Ég er innilega þakklát fyrir að
hafa kynnst þessari góðu og traustu
konu og fá að njóta visku hennar og
vináttu.
Ég votta sonum hennar, fjöl-
skyldu þeirra og öðrum ættingjum
mína innilegustu samúð. Hafið kæra
þökk fyrir ykkar góða viðmót í minn
garð.
Kolbrún Bjarnadóttir.
Með djúpri virðingu og þakklæti
kveð ég Þorgerði á Grænavatni.
Konu sem þekkti ekki kynslóðabil
eða fór í manngreinarálit. Konu sem
allt fram á síðustu stund fylgdist
með þjóðmálum af meiri áhuga og
glöggskyggni en margir sem telja
sig sérfræðinga í umræðunni. Konu
sem á sinn áreynslulausa og hóg-
væra hátt fylgdist með fólkinu sínu,
vissi alltaf hvar allir voru og hvað
þeim leið. Konu sem þekkti íslenskar
bókmenntir, ættir, land og þjóð bet-
ur en flestir sem ég hef kynnst. Til-
gerðarlaus, sjálfri sér samkvæm,
æðrulaus, hlý og ákveðin, gædd
næmu skopskyni og óvenju sterku
minni var Dedda hetja hverdagsins.
Ég er stolt af að hafa átt vináttu
þessarar konu, vináttu sem var mér
lærdómsrík. Í því sambandi sat ég í
stól þiggjandans, naut þess að
bergja af visku- og reynslubrunni
Deddu sem sífellt miðlaði með ljúfu
geði. Skipti þá engu hvort mig vant-
aði uppskrift að bestu fiskbollum í
heimi, lopapeysu, nýjan einbands-
trefil eða það sem algengast var,
andlegt fóður. Ljóðabrot eða tilvitn-
un sem flögraði í hugann og ég gat
ekki fest hendur á fangaði ég með
því að ræða við Deddu. Hún setti
hlutina í samhengi, vissi hvaðan
brotið kom og hver átti það. Við átt-
um oft löng símtöl um allt milli him-
ins og jarðar, aldrei kom ég að tóm-
um kofunum hjá Deddu hvert sem
málefnið var. Börnunum mínum,
óvandabundnum varð hún „amma
Dedda“. Á afmælum Braga nutu
samtök fatlaðra og langveikra þess
að hann átti sinn sess í hjarta
Deddu. Þjóðfélagsástandið var
henni ætíð hugleikið „Ja Erla mín,
það er ekki atvinnuleysið hjá þeim á
himnum fyrst þeir taka ekki við
mér,“ var kveðja hennar júníkvöldið
sem hún var lögð inn á sjúkrahúsið á
Húsavík eftir hjartaáfall. Næstu
mánuði var Dedda mishress líkam-
lega en andinn alltaf samur. Ég er
þakklát fyrir þennan tíma. Þakklát
fyrir að Hrund, 10 ára, fékk að kynn-
ast Deddu, æðruleysi hennar og því
fallega sambandi sem hún átti og
ræktaði við sína nánustu. Þakklát
fyrir stundirnar sem við mæðgur
áttum með Deddu og Hillu og rædd-
um allt frá fegurð landsins, misvitr-
um stjórnvöldum til ljóða og skepnu-
halda. Þær eru perlur í sjóði
minninganna. Við sem kynntumst
Deddu eigum arfleifð að varðveita,
minningu að heiðra. Ég þarf að lesa
ljóðin mín betur og lokka þau til að
festast í huganum, nú verður ekki
lengur gripið til símans þegar götótt
minni brestur. Eftir langan dag
kvaddi Dedda sátt og ferðbúin. Um
mitt sumar rifjaði hún upp við mig
ljóðið í Biðsalnum eftir Heiðrek Guð-
mundsson frá Sandi:
Hér bíður þú, vinur, þín bið var löng,
en bráðum er tjaldið fallið.
Þú þráðir að lokum aðeins eitt:
að endaði síðasti þáttur.
Og þá varstu orðinn, er allt um þraut,
við örlagadóminn sáttur.
Því annaðhvort tekur við eilífur svefn
ellegar fegurri heimur.
Og þeim verður dauðinn að lokum
líkn,
sem lengi er búinn að þreyja.
– En lífið er þyngst á þeirri stund,
þegar við byrjum að deyja.
(Heiðrekur Guðmundsson.)
Það þarf ekki fleiri orð. Bensi og
Helga, Elli og Sigga, Hjöri, krakkar
og kellingar, það er tómlegt um
stund en við erum rík af minningum.
Erla Sigurðardóttir.
Þorgerður Benediktsdóttir