Morgunblaðið - 17.10.2009, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 17.10.2009, Blaðsíða 41
Dagbók 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 2009 Sudoku Frumstig 8 6 5 2 1 4 8 9 2 1 6 4 9 3 1 6 2 8 3 7 5 8 6 7 5 4 7 3 6 7 6 4 7 8 9 8 2 1 5 2 9 5 2 9 3 1 6 8 3 7 4 8 3 9 2 3 1 6 5 6 7 8 4 2 4 7 5 6 7 2 9 8 3 2 3 7 5 1 8 9 6 4 8 1 9 4 6 3 2 5 7 5 4 6 2 9 7 3 1 8 1 6 5 7 2 4 8 3 9 7 9 3 1 8 5 4 2 6 4 2 8 9 3 6 1 7 5 9 7 1 8 5 2 6 4 3 3 8 4 6 7 1 5 9 2 6 5 2 3 4 9 7 8 1 2 1 7 5 6 8 9 3 4 9 3 5 1 4 7 6 8 2 8 6 4 3 2 9 1 7 5 6 4 3 9 8 1 5 2 7 1 2 8 6 7 5 4 9 3 5 7 9 4 3 2 8 1 6 7 9 2 8 5 6 3 4 1 4 8 6 2 1 3 7 5 9 3 5 1 7 9 4 2 6 8 7 2 4 8 9 3 6 1 5 6 8 5 7 2 1 9 4 3 9 1 3 5 6 4 2 8 7 5 6 8 9 1 7 4 3 2 2 9 7 4 3 6 8 5 1 4 3 1 2 8 5 7 6 9 8 4 9 1 5 2 3 7 6 1 7 6 3 4 9 5 2 8 3 5 2 6 7 8 1 9 4 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er laugardagur 17. október, 290. dagur ársins 2009 Orð dagsins: Mannssonurinn er ekki kominn til að tortíma mannslífum, heldur til að frelsa. (Lúk. 9, 56.) Víkverji er áhugasamur um konurog hefur í laumi sterkar skoð- anir á klæðaburði þeirra, þótt enginn sé hann Karl Lagerfeld. Um hríð hef- ur mikið verið í tísku meðal kvenna að klæðast hnjásíðum pokum. Þeir fást reyndar í öllum regnbogans lit- um, allt frá gulbrúnum út í rauð- brúnan og frá gráum út í svartan. Þetta gríðarlega litaúrval er til bóta, en Víkverji getur samt ekki beðið eft- ir því að þessi tískubylgja gangi yfir. x x x Pokar þessir eru rykktir á allavegu og yfirleitt er teygja neðst, við hnén. Þeir eru víðir og form- lausir, en neðarlega, of neðarlega að framanverðu, eru oft tveir vasar. Þeir eru til þess að konurnar geti gengið um með hendur í vösum og bognar í baki. Þessi útbúnaður lætur flestar þeirra líta út fyrir að vera sér- lega stuttar til hnésins, rasssíðar, brjóstasmáar og magamiklar. Nokkrar þeirra komast þó upp með þetta, með herkjum. Víkverji hlakk- ar til þess þegar buxur komast aftur í tísku meðal kvenna. Þrefalt húrra fyrir buxum! Og þrefalt húrra fyrir konum! x x x Víkverji ætlar ekki að kaupa jóla-gjafirnar strax. Hann ætlar að bíða með það fram á daginn fyrir Þorláksmessu, eins og hann gerir alltaf. Einhverjir hafa reynt að segja Víkverja að hann muni spara fúlgu fjár með því að kaupa gjafirnar núna. Þannig skjóti hann verðbólgu og skattahækkunum ref fyrir rass. x x x En það er eins þessi jólin og hinfyrri. Það er hugurinn sem skiptir máli en ekki verðmæti gjaf- arinnar. Ef Víkverji þarf að spara peninga um jólin, nú þá bara kaupir hann miklu ódýrari hluti og skrifar svo þeim mun innilegra kort með. Það á ekki að vera neitt sérstakt vandamál. En hann ætlar ekki að rjúfa þá notalegu jólahefð að fara í bæinn að kaupa gjafir rétt fyrir jól, þegar fólk er komið í rétta skapið og jólasnjórinn fellur á hvíta jörðina. Þannig er nú það. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 berja, 4 kría, 7 drengs, 8 kústur, 9 rödd, 11 vanda um við, 13 band, 14 minnast á, 15 brátt, 17 góðgæti, 20 skip, 22 éta, 23 reiður, 24 áann, 25 korns. Lóðrétt | 1 spjarar, 2 máltíðin, 3 sleif, 4 ójafna, 5 gengur, 6 ákveð, 10 hefja, 12 elska, 13 á húsi, 15 níska, 16 þvinga, 18 leiktækið, 19 meiðir, 20 hafði upp á, 21 glufa. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 skapmikil, 8 snark, 9 unnið, 10 kyn, 11 rofna, 13 niðja, 15 hatts, 18 snáði, 21 vik, 22 narti, 23 efinn, 24 sinnulaus. Lóðrétt: 2 klauf, 3 pakka, 4 Iðunn, 5 iðnað, 6 æsir, 7 iðja, 12 nýt, 14 inn, 15 hann, 16 Torfi, 17 svinn, 18 skell, 19 átinu, 20 inna. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 g6 4. Bxc6 dxc6 5. d3 Bg7 6. h3 Rf6 7. Rc3 O-O 8. Be3 b6 9. Dd2 e5 10. Bh6 Dd6 11. O- O-O b5 12. Bxg7 Kxg7 13. Re2 a5 14. g4 a4 15. Rg3 Rg8 16. Hdg1 Kh8 17. Rf1 f6 18. Re3 Be6 19. Kb1 Bf7 20. h4 De6 21. c4 Had8 22. De2 Be8 23. g5 h5 24. gxf6 Dxf6 25. Hg3 Hd7 26. cxb5 cxb5 27. Rd5 Dd6 28. Hg5 Rf6 29. Rxe5 Rxd5 30. exd5 He7 31. He1 Kh7 32. De4 Df6 Staðan kom upp í Evrópukeppni taflfélaga sem lauk fyrir skömmu í Ohrid í Makedóníu. Alþjóðlegi meist- arinn Jón Viktor Gunnarsson (2462) hafði hvítt gegn Tom Weber (2334) frá Lúxemborg. 33. Rg4! Dxg5 34. Dxe7+ Dxe7 35. Hxe7+ Bf7 og svartur gafst upp um leið enda taflið vonlítið eftir 36. Re5 Kg8 37. d6. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Sviti og grátur. Norður ♠ÁG7654 ♥K75 ♦2 ♣K85 Vestur Austur ♠2 ♠KD98 ♥D432 ♥986 ♦109 ♦43 ♣D109732 ♣ÁG64 Suður ♠103 ♥ÁG10 ♦ÁKDG8765 ♣-- Suður spilar 6♦. Á meðan N-S fetuðu sig hægt og bít- andi upp í 6♦ lá austur sveittur undir feldi og hugsaði sitt. Með spaðahjón og ♣Á þóttist hann eiga von í vörninni. Þó skyggði á að suður hafði reynt við al- slemmu með fyrirstöðusögn á 6♣, sem benti óneitanlega til eyðu. Alla vega. Út kemur ♠2, sagnhafi drepur, tekur tvisvar tromp og spilar ♠10. Hvað nú? Sagnhafi geislar af sjálfstrausti og því er ekki líklegt að ♣Á haldi velli. En það væri hvatvísi að spila hjarta. Lítið lauf er áhrifameira! Sé sagnhafi tækni- lega kunnandi mun hann sjá fyrir sér tvöfalda þvingun: ef ♣Á er í vestur og ♠K í austur getur hvorugur haldið eft- ir meira en tveimur hjörtum í enda- stöðunni. Ánægður með sig, trompar sagnhafi laufið, tekur tíglana og … gef- ur grátandi á ♥D í lokin. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Það freistar þín mjög að reyna eitthvað nýtt svo þú skalt fyrir alla muni láta það eftir þér. Hver er sinnar gæfu smiður og það á jafnt við þig sem aðra. (20. apríl - 20. maí)  Naut Fyrst þú veist hvað þú vilt, áttu eft- ir að sjá að hvaða leið sem er liggur að því markmiði. Með lagni og léttri lund hefst þetta allt. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú átt erfitt með að segja nei og situr því uppi með verkefnafjölda sem þú ræður orðið ekkert við. Gerðu áætlun og láttu óttann við hið óþekkta ekki ná tök- um á þér. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Hamingjan bíður þín á næsta leiti en þú þarft að sýna dirfsku, en um leið þolinmæði til þess að finna hana. Heima fyrir er einhver sem elskar þig en getur ekki alltaf sýnt það. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Losaðu samband þitt við alla tví- ræðni. Ef þú ert jákvæður og hefur aug- un opin eru þér allir vegir færir. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Orkan í umhverfinu er óhagstæð fyrir hvers kyns togstreitu. Reyndu að líta sem best út því fyrstu áhrif geta haft mikil og varanleg áhrif. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Stundum stendur maður frammi fyr- ir fleiri möguleikum en hægt er að sinna. Búðu þig undir að mæta aukinni við- urkenningu og virðingu. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú leggur starfsheiður þinn að veði, þegar þú mælir fyrir ákveðnu máli. Gleymdu ekki að líta líka í eigin barm. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Stundum er spurning um að vera réttur maður á réttum stað á réttum tíma. Ergelsi úti í gamla vini er liðið hjá. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Grunnurinn þarf að vera góður til þess að það sem á honum rísi sé til frambúðar. Taktu þér stund á hverjum degi og gefðu ímyndunaraflinu lausan tauminn. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú átt ekki auðvelt með að leysa þrautir í dag. Reyndu samt. Ekki láta kúga þig til þess sem þú vilt ekki. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú skalt hafa það markmið þenn- an mánuðinn að vera skýr í samskiptum. Leyfðu léttleikanum að vera með í för og þá muntu komast létt í gengum þetta tímabil. Stjörnuspá 17. október 1946 Úrsmiðir afhentu Sjómanna- skólanum turnklukku, þá stærstu sinnar tegundar hér á landi. Morgunblaðið sagði að „hin mesta bæjarprýði væri að þessari klukku“. 17. október 1975 Svarta skýrslan svonefnda var afhent alþingismönnum. Hún lýsti „óhugnanlegu ástandi fiskistofnanna,“ sagði Dagblaðið. Hafrann- sóknastofnun lagði til að sókn í þorskstofninn yrði minnkuð um helming og full- yrt var að með hagkvæmri nýtingu mætti auka veiði botnlægra tegunda í 850 þús- und tonn. 17. október 1992 Járniðnaðarmenn kyrrsettu strandferðaskipið Búrfell (áður Heklu) á Fáskrúðsfirði til að mótmæla því að skipið færi til viðgerðar í Póllandi. Í kjölfar þess var gert við skipið í Reykjavík. 17. október 1997 Stækkað álver Íslenska ál- félagsins hf. í Straumsvík var formlega tekið í notkun. Kostnaður við framkvæmd- irnar var 10,5 milljarðar króna. Framleiðslugeta jókst úr 100 þúsund tonnum á ári í 162 þúsund tonn. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… Skafti Einars- son varð átt- ræður 13. októ- ber síðastliðinn. Af því tilefni ætla hann og fjöl- skylda hans að bjóða vinum og vandamönnum að hitta sig og þiggja veitingar í Félagsheimili Karlakórs Selfoss, Eyrarvegi 67 á Selfossi í dag, laugardaginn 17. október, milli kl. 17 og 21. 80 ára „ÉG er alltaf glöð og ánægð með að geta fagnað afmæli. Það er ekki slæmt að eldast og ég þakka guði fyrir að vera á góðum aldri,“ segir Elísabet Bjarklind Þórisdóttir, framkvæmdastjóri Menn- ingarmiðstöðvarinnar Gerðubergs í Breiðholti, um 55 ára afmæli sitt í dag. Þar sem dagskrá í Gerðubergi um Höllu Eyjólfsdóttur skáldkonu færðist til sunnudags fær Elísabet betra tækifæri til að fagna tímamótunum á heimili sínu, „frá klukkan níu til miðnættis þegar fólk á þessum aldri er vant að fara að sofa,“ segir afmælisbarnið og hlær. „Þeir vinir mínir og vandamenn sem þetta lesa mega gjarnan líta við hjá mér því ég var ekki búin að bjóða neinum. Ákveð þetta bara núna þegar ég er að tala við þig. Svo varð sonur minn, Þórir Örn, 25 ára um daginn þannig að það er ástæða til að skella í nokkrar pönnukökur. Maður verður að vera snöggur að snúa sér,“ segir Elísabet sem hefur veitt Gerðubergi forstöðu allt frá stofnun árið 1983. „Ég hef verið þeirrar gæfu aðnjótandi að vinna í Gerðubergi, þar sem við reynum að láta gott af okkur leiða og auka menningarneyslu fólks á breiðum grund- velli. Þetta er búið að vera einstaklega dýrmætur og lærdómsríkur tími. Í gegnum starfið hef ég kynnst dásamlegu fólki sem hefur auðg- að líf mitt og gert það enn skemmtilegra.“ bjb@mbl.is Elísabet Bjarklind Þórisdóttir 55 ára í dag Ekki slæmt að eldast Nýirborgarar Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is Reykjavík Aron Freyr fæddist 4. júní kl. 7.39. Hann vó 4.005 g og var 50,5 cm langur. Foreldrar hans eru Elín Margrét Þráinsdóttir og Davíð Þór Jónsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.