Morgunblaðið - 17.10.2009, Qupperneq 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 2009
NÁNAST er fullbókað út veturinn í skólabúðirnar
í Reykjaskóla í Hrútafirði þar sem grunnskóla-
nemendum gefst kostur á að dvelja í viku í senn
við óhefðbundið skólastarf.
Nokkuð dró úr umsóknum í fyrravetur, fyrstu
mánuðina eftir að kreppan skall á, en að sögn
Karls B. Örvarssonar, sem rekur Reykjaskóla
ásamt Halldóru Árnadóttur konu sinni, hefur að-
sóknin glæðst að nýju og nú er svo komið að nán-
ast öll pláss vetrarins eru fullbókuð.
Karl segir gleðiefni að þrátt fyrir niðurskurð í
skólakerfinu reyni skólar allt hvað þeir geti að
halda ferðum sem þessum inni í skólastarfinu.
„Ég hef enda alltaf sagt að því í ósköpunum ætti
þetta ástand að bitna á þeim þegnum þjóðfélags-
ins sem ekkert hafa til þess unnið? Hafi einhvern
tíma verið þörf fyrir svona starfsemi þá er það
núna því dvölin hér þjappar krökkunum saman.
Hér er ekki sjónvarp, ekki farsímar, net eða
blöð. Hér eru krakkarnir á sínum eigin forsendum
og fá að hvíla sig á þessu áreiti í samfélaginu og
efla með sér vináttu og væntumþykju.“
Til að bregðast við þrengri kjörum hefur í
mörgum skólum verið gripið til þess ráðs að hefja
söfnunarstarf til að kosta ferðina í skólabúðirnar,
til dæmis með tombólum, skemmtikvöldum og
sölu klósettpappírs. Þetta hefur víða gefist mjög
vel og verið hvatning fyrir skólabörnin. „Ég hef
heyrt af því að í sumum skólum taka krakkarnir
ekki annað í mál en að fara í þessa ferð enda hafa
þau vitað af henni árum saman og hlakkað til,“
segir Karl. „Foreldrafélögin hafa í mörgum skól-
um tekið virkan þátt í söfnunum og ég veit af
stórum skóla sem fór í svona söfnunarátak og það
tók þau ekki nema viku að safna nægum pening.
Þetta er skemmtilegt fyrir krakkana líka því
það hleypur kapp í þau að ná því markmiði að
komast í ferðalagið og þegar það tekst þá hafa þau
líka unnið sér inn fyrir því.“ una@mbl.is
Skólabúðir vel sóttar eftir stutta lægð
Örlítið dró úr aðsókn í Reykjaskóla síðasta vetur en grunnskólanemar láta
kreppuna ekki svipta sig tækifærinu og safna margir sjálfir fyrir ferðinni
Ljósmynd/Karl B. Örvarsson
Reykjaskóli Vinsæll að vanda.
TUGIR tóku þátt í aðgerðum á Lækjartorgi í
gær, þar sem mótmælt var að fjórum flótta-
mönnum sem hafa dvalist hér á landi var vísað til
Grikklands. Þrír þeirra eru þegar farnir utan.
Safnað var undirskriftum þar sem brottvísun var
mótmælt. „Brottvísunin er ómannúðleg. Þessir
menn hafa myndað tengsl við íslenskt samfélag,“
segir Linda Mangúsdóttir sem ásakar yfirvöld
um að hafa haft rangt við í málinu.
Morgunblaðið/Ómar
MÓTMÆLA BROTTVÍSUN FLÓTTAMANNA
FRÉTTASKÝRING
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
ÚTGJÖLD Reykjavíkurborgar
vegna fjárhagsaðstoðar við borg-
arbúa voru tæpir 1,2 milljarðar á
fyrstu níu mánuðum þessa árs. Þetta
er mikil aukning, en allt síðasta ár
voru þau útgjöld 1.055 milljónir, og
sléttur milljarður árið 2007.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær fjölgar þeim mikið sem
þiggja nú fjárhagsaðstoð frá borg-
inni vegna framfærslu og samkvæmt
heimildarákvæðum, um tæp 45% að
jafnaði á milli sambærilegs árstíma
nú og í fyrra. Fjöldi þeirra sem
þiggja aðstoð helst mjög náið í hend-
ur við atvinnuleysi, að sögn Ellýjar
Þorsteinsdóttur, skrifstofustjóra á
velferðarsviði Reykjavíkurborgar.
Þeim fer því fjölgandi sem þiggja
fjárhagsaðstoð marga mánuði sam-
fleytt. Nú eru þeir 309 talsins sem
hafa þegið hana tólf mánuði í röð eða
lengur, en í júní síðastliðnum voru
þeir 229 talsins. Þetta er áhyggju-
efni, enda þarf fólk að öllu jöfnu
meiri aðstoð við að komast út úr að-
stoðinni og afla sér sjálft tekna eftir
því sem það þiggur aðstoðina lengur.
Langflestir sem þiggja aðstoð hafa
hins vegar þegið hana í þrjá mánuði
eða skemur.
„Það er mjög mikilvægt að geta
boðið aðstoð við fólk meðan það
þiggur fjárhagsaðstoð, svo það kom-
ist aftur út á vinnumarkaðinn þegar
hann glæðist á ný,“ segir Ellý.
Hún segir fjölmargt reynt að gera
til að tryggja virkni þessa fólks. Í
fyrsta lagi veiti sérfræðingar ráðgjöf
og stuðning hjá sex þjónustu-
miðstöðvum í hverfum borgarinnar.
„Við horfum sérstaklega á unga
fólkið og höfum lengi fylgst sér-
staklega með langtímanotendum,“
segir hún.
Mörg úrræði í boði
Sérstök átján mánaða átaksverk-
efni eru í gangi. Til dæmis karla-
smiðja og kvennasmiðja, fyrir fólk
sem þarf mikinn stuðning, og nokk-
uð sem kallast Grettistak, og er sér-
sniðið að þörfum þeirra sem stríða
við áfengis- og vímuefnavanda.
Verkefnin eru unnin í samstarfi
við Tryggingastofnun ríkisins, þar
sem fólk fær endurhæfingarlífeyri á
meðan á þeim stendur.
Þá hafa tvær tillögur verið sam-
þykktar í velferðarráði í tengslum
við þetta. Annars vegar að búa til
samráðsteymi fyrir stofnanir,
félagasamtök og sjálfboðaliða, til að
bjóða stuðning fyrir þá sem þurfa
aðstoð í þeirra hverfi. Í öðru lagi er
unnið að því að finna leiðir til að
þiggjendur fjárhagsaðstoðar geti
tekið þátt í verkefnum og vinnu á
vegum borgarinnar.
1,2 milljarðar í aðstoðina
Mikil aukning í fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg við einstaklinga
Þeim fer fjölgandi sem hafa þegið fjárhagsaðstoð í tólf mánuði eða lengur
Margt er gert á vegum borgar-
innar til að koma til móts við þá
sem þurfa fjárhagsaðstoð. Því
meiri stuðnings er þörf eftir því
sem fólk þiggur fjárhagsaðstoð-
ina lengur.
BÚIÐ er að bera kennsl á manninn
sem fannst látinn í flæðarmálinu á
Langasandi á Akranesi á fimmtu-
dag. Um er að ræða 25 ára gamlan
íslenskan karlmann sem búsettur
var á höfuðborgarsvæðinu. Engar
vísbendingar eru um að andlát hans
hafi borið að með saknæmum hætti,
að sögn lögreglunnar á Akranesi.
Um fjögurleitið á fimmtudag til-
kynnti vegfarandi um mann liggj-
andi í flæðarmálinu á Langasandi
skammt frá dvalarheimilinu Höfða.
Maðurinn var úrskurðaður látinn á
vettvangi. Rannsókn málsins held-
ur áfram.
Kennsl borin
á manninn
Þiggja fjárhagsaðstoð frá borginni
1400
1300
1200
1100
1000
900
800
700
600
Fj
öl
di
ei
ns
ta
kl
in
ga
Jan. Des.Feb. Mars Apr. Maí Jún. Júl. Ág. Sept. Okt. Nóv.
2009
907
1.258
1.193
Fjölgun að jafnaði í hverjum
mánuði, jan.-sept., frá fyrra ári:
44,9%
2008
1.217
ERLENDUR karlmaður um sex-
tugt lést þegar hann kastaðist af
fjórhjóli á veginum upp á Hauka-
dalsheiði skömmu fyrir kl. 15 í gær.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á Selfossi var maðurinn í
hópi um tuttugu erlendra ferða-
manna í fjórhjólaferð á svæðinu
þegar slysið átti sér stað.
Lögreglan segir tildrög slyssins
óljós enn sem komið er, en ljóst er
að maðurinn var farþegi á fjórhjóli.
Bæði hann og ökumaður hjólsins
féllu af hjólinu með þeim afleið-
ingum að maðurinn lést. Ökumann
fjórhjólsins sakaði ekki. Ekki er
hægt að gefa upp nafn hins látna
eða þjóðerni að svo stöddu.
Banaslys varð á
Haukadalsheiði
www.mbl.is | sjónvarp
Gerðu hróp að ráðherra.
MÓTMÆLENDUR gerðu hróp að
Rögnu Árnadóttur dómsmálaráð-
herra í gær þegar hún mætti á ráð-
stefnu í Öskju, húsi Háskóla Ís-
lands. Þar hugðist ráðherrann
flytja ávarp í tilefni af 60 ára af-
mæli Evrópuráðsins og 50 ára af-
mæli Mannréttindadómstóls Evr-
ópu.
Tilefni mótmælenda var brott-
vísun fjögurra flóttamanna frá Mið-
Austurlöndum, sem hér hafa verið
síðasta árið, til Grikklands.
„Brottvísun er morð“ var meðal
þess sem stóð á skiltum mótmæl-
enda sem gerðu hávær hróp að
ráðherranum. Hún sá sér þann
kost vænstan að víkja af velli.
Flóttamennirnir fjórir voru boð-
aðir til lögreglu vegna brottflutn-
ings síðdegis á miðvikudag sem
hafði þá í umsjá nokkrar klukku-
stundir áður en þeir voru fluttir
brott.
Stjórnvöld telja aðstæður fyrir
flóttamenn viðunandi í Grikklandi
en Flóttamannastofnun Sameinuðu
þjóðanna og Rauði krossinn eru á
öndverðum meiði.
Brottvísun mannanna fjögurra
hefur víða verið mótmælt í vikunni,
meðal annars við lögreglustöðina
við Hverfisgötu og heimili
dómsmálaráðherra í vesturborg-
inni.
Hávær hróp