Morgunblaðið - 17.10.2009, Qupperneq 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Unu Sighvatsdóttur
una@mbl.is
VÆNDI færist í vöxt í Reykjavík, ekki aðeins í
bakherbergjum heldur einnig á götum úti, að mati
greiningardeildar ríkislögreglustjóra. Ekki hafa
áður fengist staðfestar upplýsingar fyrir því að
götuvændi sé iðkað á Íslandi. Þessi þróun helst í
hendur við vaxandi skipulagða glæpastarfsemi hér
á landi og óttast lögreglan að slík starfsemi tengist
erlendum glæpahópum.
Ein birtingarmynd þessarar þróunar er mál
ungu konunnar sem kom hingað til lands frá Lithá-
en í síðustu viku, að því er talið er fyrir tilstilli
manna sem hugðust selja hana í vændi.
Þótt lengi hafi leikið grunur á að mansal teygi
anga sína til Íslands hefur það ekki komið upp á yf-
irborðið með þessum hætti á Íslandi áður.
„Þetta er auðvitað fyrsta málið þar sem þetta
ber að með þessum hætti, ef hún hefði ekki tryllst í
flugvélinni hefðum við kannski aldrei heyrt neitt
og við getum ímyndað okkur hvað það hefur gerst
oft hérna,“ segir Þórunn Þórarinsdóttir, starfs-
kona Stígamóta. Mansalsmál eru flókin meðferðar
en Þórunn fagnar því að lögreglan hafi augljóslega
tekið mál litháísku stúlkunnar alvarlega enda var
ekki farið í grafgötur með þær áhyggjur að henni
væri hætta búin.„Ég held að lögreglan hafi gert
allt sem í þeirra valdi stóð til að koma henni í skjól
og nú getum við lært af reynslunni.
Það er gott að þessi umræða er komin af stað,
við þurfum að vera opin og vakandi og ef ekki væri
fyrir undangengna vinnu við Aðgerðaráætlun
gegn mansali þá er ég ekki viss um að lögreglan
hefði brugðist svona hratt við.“
Aðgerðaráætluninni, sem ríkisstjórnin sam-
þykkti í mars síðasliðnum, hefur hinsvegar ekki að
fullu verið hrint í framkvæmd og er ljóst að margt
má betur fara í meðferð mansalsmála, m.a. til að
tryggja fórnarlömbum mansals vernd.
Greiningardeild ríkislögreglustjóra, varar nú
við því að svipað ástand kunni að skapast í Reykja-
vík og orðið er í höfuðborgum nágrannalanda okk-
ar þar sem erlendir glæpaflokkar halda uppi
skipulagðri glæpastarfsemi þar sem vændi spilar
stórt hlutverk. Ásgeir Karlsson, yfirmaður grein-
ingardeildarinnar segir sterkar vísbendingar um
að það sé þegar að færast í vöxt.
Margir hafa því spurt hvers vegna þessir menn,
s.s. þeir sem tengjast máli litháísku konunnar og
allir eru þekktir ofbeldismenn, séu ekki sendir af
landi brott. Ásgeir segir það hinsvegar ekki eins
einfalt mál og það hljómi, ákveðnar lagalegar for-
sendur verði að vera til staðar til að það sé hægt.
Götuvændi og mansal
komið upp á yfirborðið
Greiningardeild ríkislögreglustjóra segir skipulagða glæpastarfsemi vaxandi
Þrír Litháar biðu konunnar sem kom hingað
til lands fyrir viku og varð lögreglan þess vör
að þeir leituðu hennar í Reykjanesbæ, en
konan vildi sjálf heldur dvelja hjá lögreglu en
fara til fundar við mennina.
Eftir að hún hvarf úr félagslegu húsnæði
voru mennirnir handteknir og var gæslu-
varðhald yfir þeim framlengt í gær til 21.
október á grundvelli rannsóknarhagsmuna.
Sérfræðingar reyna nú að vinna traust stúlk-
unnar og átta sig á stöðu hennar en hún kom
hingað með fölsuð skilríki.
Gæsluvarðhald framlengt
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
FJALLABYGGÐ, sameinað sveitar-
félag Siglufjarðar og Ólafsfjarðar,
hefur stöðvað frekari vegafram-
kvæmdir í Héðinsfirði á meðan land-
eigendur hafa ekki aflað tilskilinna
framkvæmdaleyfa. Landeigendur
telja sig á hinn bóginn ekki hafa
þurft að fá þessi leyfi, samkvæmt
upplýsingum blaðsins. Alls eru land-
eigendur í Héðinsfirði yfir 20.
Um er að ræða vegalagningu frá
nýja þjóðveginum, sem lagður var á
milli gangamunna Héðinsfjarðar-
ganga, og niður að Héðinsfjarðar-
vatni. Að auki var gert stæði fyrir
um 30 bíla við vatnið fyrir eigendur
bústaða á svæðinu, ásamt girðingar-
vinnu og greftri úr ósnum. Vega-
gerðin var verktakinn við vegalagn-
inguna. Birgir Guðmundsson,
svæðisstjóri Vegagerðarinnar á Ak-
ureyri, segir þá hafa farið í verkið í
góðri trú um að öll tilskilin leyfi væru
fyrir hendi. Framkvæmdirnar voru
langt á veg komnar þegar Fjalla-
byggð lét stöðva þær nýverið.
Birgir segir Vegagerðina hafa tal-
ið sig vera að vinna í samræmi við
samning við landeigendur frá árinu
2005. Landeigendur hafi átt að sjá
um að afla þeirra leyfa sem til þurfti
en lagning vegslóðanna var hluti af
samkomulagi þar sem landeigendur
fengu ekki bætur fyrir þann veg sem
lagður var á milli gangamunnanna.
Finna ekki samþykki
Þórir Kr. Þórisson, bæjarstjóri
Fjallabyggðar, segir tæknideildina
vera að skoða málið og kanna hvort
og þá hvaða leyfa hafi verið aflað.
„Við finnum ekki þau samþykki
sem landeigendur hafa verið vísa
til,“ segir Þórir og bætir við að leyfi
verði að fást fyrir öllum svona fram-
kvæmdum, óháð því hvort landeig-
endur og Vegagerðin hafi gert sam-
komulag sín á milli.
Vegagerð í Héðinsfirði án leyfis
Héðinsfjörður Vegaframkvæmdum í Héðinsfirði var svo gott sem lokið
þegar sveitarfélagið lét stöðva þær á meðan athugun tæknideildar fer fram.
Vegaframkvæmdir í Héðinsfirði komnar á lokastig þegar sveitarfélagið Fjallabyggð lét stöðva þær
Vegagerðin telur sig hafa verið að vinna eftir samkomulagi við landeigendur frá árinu 2005
Í HNOTSKURN
»Vegagerðin sem var stöðv-uð tengist ekki gerð Héð-
insfjarðarganga eða verktök-
um sem þar vinna.
»Framkvæmdirnar voruhluti af samkomulagi á
milli landeigenda og Vega-
gerðarinnar.
»Þann samning sá Fjalla-byggð ekki þar til á dög-
unum.
BJARKI Freyr Sigurgeirsson játaði
við þingfestingu í Héraðsdómi
Reykjaness í gær að hafa orðið
Braga Friðþjófssyni að bana í her-
bergi sínu að Dalshrauni í Hafn-
arfirði. 17. ágúst sl.
Bjarki játaði að hafa slegið
Braga með tréborði minnst fimm
þungum höggum í höfuðið. Sam-
kvæmt ákæru notaðist hann einnig
við vöfflujárn en því neitaði Bjarki
og sagði vöfflujárnið líklega hafa
legið undir borðinu. Samkvæmt
ákæru í málinu hlaut Bragi högg-
áverka á höfði, mörg brot á höfuð-
kúpu og alvarlega áverka á heila
sem leiddu hann til dauða.
Foreldrar Braga fara fram á sex
milljónir króna í miskabætur.
Bjarki hafnaði ekki skaðabóta-
ábyrgð fyrir dómi í gær en fékk
frest til að taka afstöðu til upphæð-
arinnar.
Aðalmeðferð hefði farið fyrr
fram ef ekki væri beðið niðurstaða
úr geðrannsókn. Niðurstöðurnar
verða þó ekki til þess fallnar að
skera úr um sakhæfi en hugsanlega
getur sitthvað komið fram sem
varpar ljósi á atvikin. Aðalmeðferð
í málinu fer fram 9. nóvember nk.
Játaði á sig
manndráp í
Hafnarfirði
STARFSMENN Vegagerðarinnar
hafa lokið fyrstu yfirferð í Ólafs-
fjarðargöngum, eftir að steypu-
klæðning hrundi þar á dögunum á
einum stað. Ekki hafa fundist frek-
ari skemmdir en verið er að taka
saman skýrslu um málið innan
Vegagerðarinnar.
„Við fórum þarna metra fyrir
metra og leituðum eftir sprungum.
Við fundum ekki neitt meira en ætl-
um að fara aðra ferð og huga þá bet-
ur að klæðningunni í lofti gang-
anna,“ segir Birgir Guðmundsson,
svæðisstjóri Vegagerðarinnar á Ak-
ureyri. Hann segir mun minni líkur
vera á einhverjum skemmdum í
klæðningum í loftinu þar sem það
var allt boltað á sínum tíma.
Um 20 ár eru liðin síðan Ólafs-
fjarðargöngin voru tekin í gagnið.
Hefði einhver galli verið í sjálfri
steypuklæðningunni segir Birgir
það hafa átt að vera komið fram fyr-
ir löngu. Hrunið í klæðningunni
megi í fyrstu rekja til spennu í berg-
inu en ekkert vatn fannst bakvið
klæðninguna.. Líklegast hafi mynd-
ast litlar sprungur í setlaginu og við
því megi alltaf búast í jarðgöngum
sem þessum. Klæðningin verður
sprautusteypt á ný. bjb@mbl.is
Frekari sprungur í
Ólafsfjarðargöngum
hafa ekki fundist
Litháíska konan sem flutt var hingað til lands
á fölsuðum skilríkjum er sennilega fórnar-
lamb mansals á vegum erlendra glæpa-
gengja. Þetta er aðeins ein hlið undirheima-
starfsemi sem sækir í sig veðrið á Íslandi.
TRÉBÁTURINN Hólmsteinn GK
sökk á augabragði í Sandgerðishöfn
eftir að Ásdís GK sigldi á hann við
bryggju í Sandgerðishöfn síðdegis í
gær.
Ásdís var að koma úr róðri og var
ætlunin að leggja bátnum við
bryggju framan við Hólmstein.
Grétar Sigurbjörnsson hafnar-
vörður segir að kúpling Ásdísar hafi
bilað með þeim afleiðingum að bátn-
um hafi verið siglt á Hólmstein.
„Þegar hann ætlaði að fara að snúa
svaraði kúplingin ekki og stefnið
lenti í miðjum bátnum,“ segir hann.
Fimm voru í áhöfn Ásdísar og slas-
aðist enginn í óhappinu.
Hólmsteinn hefur legið við
bryggju í Sandgerði sl. tvö ár. Hann
er í eigu bæjarfélagsins í Garðinum,
en ætlunin var að breyta bátnum í
safngrip. Nú er framhaldið undir
eiganda bátsins og tryggingafélagi
hans komið.
steinthor@mbl.is Ljósmynd/Reynir Sveinsson
Bátur sökk
á augabragði
í Sandgerði