Morgunblaðið - 17.10.2009, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 2009
– meira fyrir áskrifendur
Fáðu þér áskrift á
mbl.is/askrift
Meðal efnis verður:
Vetrarklæðnaður á börn og fullorðna.
Góðir skór fyrir veturinn.
Húfur, vettlingar, treflar, lopapeysur og fl.
Snyrtivörur til að fyrirbyggja þurra húð.
Flensuundirbúningur, lýsi, vítamín og fl.
Ferðalög erlendis.
Vetrarferðir innanlands.
Bækur á köldum vetrardögum.
Námskeið og tómstundir í vetur.
Heitir pottar og sundlaugar góð afslöppun
Bíllinn tekinn í gegn.
Leikhús, tónleikar og ýmisleg afþreying.
Útilýsingar – góð ljós í myrkrinu.
Þjófavörn fyrir heimili og sumarbústaði.
Mataruppskriftir.
Ásamt fullt af öðru spennandi efni.
Pöntunartími auglýsinga er fyrir klukkan 16
mánudaginn 19. október.
Nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir
í síma 569 1105, kata@mbl.is
Morgunblaðið gefur út
glæsilegt sérblað
Vertu viðbúinn vetrinum
föstudaginn 23. október.
Vertu viðbúinn
vetrinum
en fyrir nokkrum árum og það eru fá
ár síðan ég gat til dæmis lesið Guð-
berg en nú er ég eiginlega með dellu
fyrir honum. Svo les ég allt sem ég
kemst yfir um þjóðfræði og ákveðna
kima sagnfræðinnar. Í pólitík les ég
helst Sturlungu, eitthvað úr henni á
hverju ári. Hún er alveg nauðsynleg
ef menn vilja skilja þau fræði, það er
miklu mikilvægara að lesa hana en
Moggann eða Fréttablaðið.“
Af hverju?
„Sturlunga er kennslubók í póli-
tík. Ef maður vill skilja hugs-
unarhátt manna sem stunda klækja-
pólitík þá er langbest að lesa
Sturlungu því þar sér maður allan
refsháttinn.“
Ægivald flokkakerfisins
Þú kynntist pólitíkinni skamma
stund sem þingmaður Framsókn-
arflokksins. Var það klækjapólitík?
„Já, pólitík byggist í litlum mæli á
umræðum um hugmyndir heldur
miklu fremur á átökum um stöðu.
Áhugi á pólitík eða raunverulegri
þjóðfélagsrýni er ekkert meiri inni á
Alþingi en á öðrum vinnustöðum.
Ef það væri raunverulegur áhugi
á stjórnmálum og hugmyndum á Al-
þingi þá hefðu stjórnmálamenn al-
mennt endurskoðað afstöðu sína við
bankahrunið. En það gerðu þeir
ekki heldur börðu hausnum við stein
og neituðu að horfast í augu við stað-
reyndir. Þessi viðbrögð eru jafn
órökrétt og þegar Óli kommi vinur
minn skrifaði um hið hvíta og stíl-
hreina mannvirki Berlínarmúrinn
löngu eftir að mönnum varð ljóst að
hann væri þarna til að halda mönn-
um í fangelsi.
Við getum haldið okkur við þá
skýringu að í Icesave-málinu séum
við að borga fyrir skuldir óreiðu-
manna en fyrst og fremst er allt
bankahrunið hér vegna þess að við
erum að borga fyrir vonda og
glannalega pólitík. Þeir sem neita að
viðurkenna það að bankarnir voru
ekki seldir heldur raunverulega
gefnir með skuldsettum yfirtökum
eru að afneita staðreyndum.“
Þjóðin virðist orðin fremur leið á
stjórnmálamönnum sem eru í sí-
felldum skotgröfum. Af hverju er
pólitíkin orðin þannig?
„Ein meginástæðan fyrir slæmum
farvegi stjórnmálanna er ægivald
flokkakerfisins. Af því leiðir að þeir
sem ætla sér að halda stöðu sinni
sem stjórnmálamenn verða að fara í
skotgrafir og vera þar. Auðvitað
væri hægt að búa til nýtt kosn-
ingakerfi þar sem einstaklingar eru
kosnir út á verðleika sína og hug-
sjónir en það hafa engar raunhæfar
tillögur verið lagðar fram sem miða í
þá átt. Því miður. Þess vegna breyt-
ist íslensk pólitík ekkert. Ég reyndi
það sjálfur að bjóða þessu flokka-
kerfi byrginn en hvarf frá þeirri til-
raun þegar ég sá við hvað var að
glíma. Ég er samt feginn að ég
reyndi, það væri miklu verra að hafa
það á samviskunni að hafa ekki
reynt.“
Ætlarðu að halda áfram að reka
bókabúð og skrifa bækur?
„Við sjáum nú til hvernig þjóðin
tekur þessari bók en, já, við hjónin
ætlum að reka þessa bókabúð. Fyrst
og fremst er ég smákapítalisti og hef
verið í meira en tuttugu ár. Ég rek
búðina, lítið bókaforlag og er með
ýmis önnur lítil verkefni og þetta er
ákaflega skemmtilegt. En um leið
barningur, eins og allur rekstur er í
dag. Og það sem skyggir á vinnu-
gleðina er að horfast í augu við þá
staðreynd að um þessi jól er ég að
keppa í bóksölu við undirboð frá
Pennanum–Eymundsson sem er
ríkisfyrirtæki og Jóni Ásgeiri sem
skuldar líklega þreföld íslensku fjár-
lögin. Hvorugur þessara aðila þarf
að hugsa um að standa undir sér
meðan ég þarf að hugsa um það dag
hvern að reka fyrirtækið þannig að
nefið standi upp úr. En ég tek þann
slag.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg Fátæk baráttukona Sesselja ásamt Sjönu vinkonu sinni og yngstu börnum.
» Áhugi á pólitík eða raunverulegri þjóðfélags-rýni er ekkert meiri inni á Alþingi en á öðrum
vinnustöðum. Ef það væri raunverulegur áhugi á
stjórnmálum og hugmyndum á Alþingi þá hefðu
stjórnmálamenn almennt endurskoðað afstöðu sína
við bankahrunið. En það gerðu þeir ekki heldur
börðu hausnum við stein og neituðu að horfast í
augu við staðreyndir.