Morgunblaðið - 17.10.2009, Side 24
Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur
sia@mbl.is
H
ún er lömuð í vinstri
handlegg eftir mis-
heppnaða skurð-
aðgerð sem gerð var
árið 1998. Olga Guð-
mundsdóttir barmar sér þó ekki,
segir marga hafa það verra en hún.
Listaverk eftir hana hanga um allt
húsið hennar í Silfurtúni á Flúðum,
þó ekki endilega hefðbundin lista-
verk því hún saumar út myndir –
sumar gefur hún en aðrar á hún
sjálf.
„Þessi mynd er hvatinn að því að
ég fór að sauma út,“ segir Olga og
bendir á mynd sem maðurinn henn-
ar gaf henni og sýnir Ísland. „Ég hef
svo sem ekkert verið að sauma í
sumar en á veturna reyni ég að vera
dugleg,“ segir hún og bætir við að
tíminn milli hálfátta og hálfníu á
morgnana reynist henni drjúgastur
við saumaskapinn.
Aðspurð hvar hún geymi það sem
ekki hangir uppi svarar Olga hlæj-
andi að á tímabili hafi hún gert mikið
af borðdúkum „… af því að það þarf
ekki að hengja þá upp“. Á rúminu í
svefnherberginu liggur líka sauma-
skapur eftir hana, rúmteppi í óhefð-
bundnari kantinum. „Þetta fékk ég
frá konu ósaumað. Stungan er öll
saumuð eftir munstri sem fylgdi.
Svo bætti ég við saumaskapnum að
neðan,“ segir hún og strýk-
ur teppið.
Olga játar því að sauma-
skapurinn geti reynst
henni tafsamur, þar
sem annar handlegg-
urinn er henni ónýtur
og hlær þegar hún er
spurð hvort hún sé
kannski orðin ótrú-
lega flink við þetta.
„Ja, sumir segja það,“
segir hún hógvær, „en
þetta snýst bara um
þolinmæði og mér finnst
þetta oft ganga ótrúlega
hægt hjá mér.“
Ein myndin sem hangir uppi á
vegg í borðstofu Olgu vekur meiri
athygli en aðrar. Síðasta kvöld-
máltíðin saumuð svo smáum sporum
að við fyrstu sýn virðist um málverk
að ræða. Þegar nær er komið sést þó
að þetta er útsaumur. „Ætli ég hafi
ekki verið tvo vetur með hana,“ seg-
ir hún og reynir að gera lítið úr því
hversu mikið verk fólst í að gera
myndina. Hún virðist ekki vera litrík
en í hana eru þó notaðir 12 lit-
ir. „Krakkarnir mínir gáfu mér
hana í afmælisgjöf. Mér finnst
gaman að því að fjölskyldan
fylgist svo vel með hvað ég er
að gera,“ segir Olga. Myndin er
öll talin út og „… litirnir eru all-
ir svo líkir að ég þurfti oft að
leggja þráðinn yfir búntið til að
finna út hvort ég væri með rétt-
an lit,“ segir hún og hlær.
Olga hefur líka haft gaman af
því að finna upp á einhverju nýju
sjálf og sýnir blaðamanni jólakúl-
ur í kassa. „Fyrir ein jólin ákvað ég
gera kúlur á jólatréð, það
er algjörlega mín hug-
mynd. Þá fann ég
myndir úr bókum
með borðdúkum og
slíku og tók upp úr
þeim og saumaði,“
segir hún. „Ég þarf
reyndar að fá aðstoð
hjá karlmönnunum á
heimilinu við að festa
þetta á kúlurnar.“
Olga segir að hún hafi
alla tíð haft gaman af
handavinnu. „Ég þótti nú
dálítið sérstakur unglingur
því ég sat og saumaði á meðan
aðrir unglingar gerðu … ja, það sem
flestir unglingar gera,“ segir hún og
skellihlær.
Silfurtún er garðyrkjustöð og þar
eru aðallega ræktuð jarðarber. Á
sumrin vinnur Olga við að pakka
þeim í tvo, þrjá tíma á dag. Yfir sum-
artímann eru jafnframt ræktaðir
þar tómatar og rauðkál og þá starfa
í stöðinni um 8 manns. „Þannig að
það er alltaf nóg að gera,“ segir
Olga.
Síðasta kvöldmáltíðin tók tvö ár
Útsaumur er líf og yndi
Olgu Guðmundsdóttur í
Silfurtúni á Flúðum.
Hún er lömuð í vinstri
handlegg en það kemur
ekki í veg fyrir að úr
höndum hennar spretti
listaverkin hvert af öðru.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hjálpin Olga notast við grind til að geta saumað þar sem vinstri handlegg-
urinn er henni ónýtur. Efnið er strengt yfir og smám saman fært til.
Handverk Síðasta kvöldmáltíðin er öll talin út og þó að litirnir virðist fáir eru þeir samt sem áður 12. Svo líkir eru þeir margir að hún þurfti oft að leggja þráð yfir búntið til að sjá rétta litinn.
Verk Rúmteppið góða er listaverk.
24 Daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 2009
Magnaðar ljósmyndir stækkaðar á
striga í bestu fáanlegum gæðum.
Til sýnis og sölu í Myndmáli,
stærsta ljósmyndagalleríi
landsins.
Skreyttu heimilið með íslenskum
landslagsljósmyndum.
Jón Páll Vilhelmsson
ljósmyndari
Opið frá 11-18 laugardag og sunnudag
Næstsíðasta sýningarhelgi.