Morgunblaðið - 17.10.2009, Page 30
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 2009
UNGLINGSÁRIN eru tími
mikilla breytinga, bæði líkamlega
og andlega sem og félagslega.
Þetta er sá tími í lífi einstaklinga
þar sem þörfin fyrir stuðning er
hvað mest og mikilvægt að hlúa að
hverjum og einum. Sjálfsmyndin
er í mótun og er oft viðkvæm á
þessum tíma. Ákvarðanir og
gjörðir unglingsáranna geta haft
mikil áhrif á framtíðarheilsu sem
og heilsu á líðandi stundu. Ýmis
áhættuhegðun er þekkt meðal
unglinga sem stofnar heilsu þeirra
í hættu og má þar nefna t.d. óá-
byrgt kynlíf, áfengis- og aðra
vímuefnaneyslu, lélegt mataræði
og litla hreyfingu.
Í 15. grein reglugerðar um
starfsemi heilsugæslustöðva er
fjallað um framkvæmd skóla-
heilsugæslu innan grunnskólanna.
Á þeim grundvelli hefur verið
mörkuð skýr stefna og markmið
fyrir starfsemi skólahjúkrunar og
störf skólahjúkrunarfræðinga sem
miða að því að efla heilsu grunn-
skólabarna. Þannig sinna skóla-
hjúkrunarfræðingar í grunn-
skólum fræðslu, stuðningi og
forvörnum sem miða að því að
stemma stigum við áhættuhegðun
og efla heilsu.
Rannsóknir sýna að unglingar
stunda þó áfram áhættuhegðun á
framhaldsskólaaldri og lögum
samkvæmt eiga unglingar 18 ára
og yngri rétt á að njóta heilsu-
gæslu í nærumhverfi sínu. Í reglu-
gerð um starfsemi heilsugæslu-
stöðva er þó enga grein að finna
um framkvæmd heilsugæslu í
framhaldsskólum og ekki er skóla-
hjúkrunarfræðingur starfandi inn-
an veggja flestra framhaldsskóla
landsins. Einungis fimm fram-
haldsskólar á höfuðborgarsvæðinu
framfylgja þessum lögum. Höf-
undar vita til þess að einhver hluti
framhaldsskóla á landsbyggðinni
framfylgir þessum lögum en höf-
undar hafa ekki haft tækifæri til
að kanna til hlítar hversu margir
það eru. Í 16. grein reglugerðar
um starfsemi heilsugæslustöðva er
þó fjallað um heilsuvernd og for-
varnir. Þar segir að heilsugæslu-
stöðvar skuli annast heilsuvernd
unglinga með unglingamóttökum
en slíkum móttökum sem starf-
ræktar voru á höfuðborgarsvæð-
inu hefur nú öllum verið lokað.
Að framansögðu er því ljóst að
heilbrigðisstarfsfólk er ekki að
sinna markvisst né samhæft
heilsuvernd og forvörnum til
handa unglingum 16-18 ára á Ís-
landi.
Í viðtölum sem greinarhöfundar
tóku við alla starfandi skólahjúkr-
unarfræðinga á höfuðborgarsvæð-
inu fyrir BS-rannsókn sína í
hjúkrunarfræði kom m.a. fram að
hjúkrunarfræðingar hafa víðtæka
þekkingu á þáttum er lúta að
heilsuvernd og heilsueflingu ung-
menna á framhaldsskólaaldri. Þeir
töldu að draga mætti úr og jafnvel
koma í veg fyrir margvísleg lík-
amleg, andleg og félagsleg vanda-
mál sem framhaldsskólanemar
glíma við með markvissu starfi
skólahjúkrunarfræðinga innan
framhaldsskóla. Erlendar rann-
sóknir staðfesta þetta. Hjúkr-
unarfræðingarnir bentu þó á að
þeim væri afar þröngur stakkur
skorinn í störfum sínum vegna
skorts á fjármagni og takmörkuðu
starfshlutfalli.
Eitt af markmiðum heilsustefnu
heilbrigðisráðuneytisins sem gefin
var út í nóvember 2008 er að
stuðla að heilbrigðum lífsháttum
meðal ungmenna á framhalds-
skólaaldri. Hér eiga hugtökin
heilsuvernd og forvarnir ekki ein-
ungis við um áfengis- og vímu-
efnaforvarnir heldur alhliða
heilsueflingu þar sem markmiðin
eru að stuðla að auknu heilbrigði
og bættum lífsgæðum íslenskra
ungmenna á framhaldsskólaaldri.
Meðal aðgerða sem ætlaðar eru til
þess að framfylgja þessum mark-
miðum er að hvetja og aðstoða
framhaldsskóla við að útfæra
heilsustefnu í skólanámsskrá sinni
þar sem hugað er að andlegri, lík-
amlegri og félagslegri líðan nem-
enda með áherslu á heilsueflingu
og forvarnir.
Betur má þó ef duga skal svo
markmið heilsustefnunnar náist.
Nú er metaðsókn í framhaldsskóla
landsins og til að stuðla að heil-
brigði ungmenna sem þangað
sækja er mikilvægt að heilbrigð-
isráðuneytið, menntamálaráðu-
neytið, heilsugæslan, Samband ís-
lenskra framhaldsskólanema og
framhaldsskólarnir vinni saman að
innleiða skólaheilsugæslu í fram-
haldsskóla. Þannig þarf að efla
tengsl milli heilsugæslu og fram-
haldsskólanna og marka sam-
ræmda stefnu og markmið fyrir
starfsemi skólahjúkrunar innan
framhaldsskóla í líkingu við það
sem er við lýði í grunnskólum
landsins. Ef skólahjúkrunarfræð-
ingar væru starfandi innan allra
framhaldsskóla væri stigið mik-
ilvægt skref í áttina að heilsu-
vernd og forvörnum er stuðla að
andlegri, líkamlegri og félagslegri
heilsu ungmenna er stunda nám í
framhaldsskólum landsins.
Eiga hjúkrunarfræðingar erindi
við framhaldsskólanemendur?
Eftir Þóreyju Rósu Ein-
arsdóttur, Sonju Maggýju
Magnúsdóttur og Helgu Sif
Friðjónsdóttur
» Þannig þarf að efla
tengsl milli heilsu-
gæslu og framhalds-
skólanna og marka sam-
ræmda stefnu og
markmið fyrir starfsemi
skólahjúkrunar innan
framhaldsskóla...
Þórey Rósa
Einarsdóttir
Þórey Rósa og Sonja Maggý eru
hjúkrunarfræðingar. Helga Sif er
lektor við hjúkrunarfræðideild Há-
skóla Íslands
Sonja Maggý
Magnúsdóttir
Helga Sif
Friðjónsdóttir
HVERNIG má það vera að ég,
einstaklingur sem hef örorkubætur
frá lífeyrissjóðum og að hluta frá
Tryggingastofnun fæ nú skertar
bætur um nær 20% frá lífeyris-
sjóðnum sem þar að auki hafði
skert tekjur mínar um 10% fyrr á
árinu vegna stöðu sjóðsins? Skýr-
ing lífeyrissjóðsins er sú að bæt-
urnar mínar séu komnar yfir
viðmiðunarlaun þegar orkutap varð
fyrir tveimur árum.
Ekkert hef ég gert síðustu ár
sem gæti hafa breytt tekjum mín-
um. Ég spyr því. Hver lét bæt-
urnar mínar fara yfir þessi viðmið-
unarlaun? Ekki ég.
Hver setur reglurnar sem unnið
er eftir? Ekki ég.
Hver getur svarað mér nákvæm-
lega um það hvað hefur breyst á
síðustu tveim árum og verður til
þess að bætur mínar eru nú skert-
ar um rúmar 11.000 krónur á mán-
uði? Bætur sem úrskurðaðar voru
1. apríl 2007 og voru þá 36.331
krónur á mánuði fara niður í
35.656 krónur núna í nóvember.
Bætur þessar voru komnar í 47.502
krónur nú fyrir skerðingu sjóðsins.
Allt eru þetta útreikningar
lífeyrissjóðsins og væntanlega eftir
þeirra reglum. Ég hef ekkert getað
haft um þetta að segja og verð að
þiggja það sem mér er rétt, því að
ekki virðist vera neinn aðili sem
hægt er að snúa sér til með
óánægju nema sjóðurinn sjálfur.
Mér virðist sem lífeyrissjóðurinn
setji reglurnar greiði eftir þeim og
sinni kvörtununum og sjái einn um
allan úrskurð í svona málum. Alla
vega getur hann ekki bent mér á
neinn annan óháðan úrskurðar-
aðila.
Engin samvinna virðist vera
milli Tryggingastofnunar og lífeyr-
issjóða og segja mér þessir aðilar
að upplýsingar séu teknar upp úr
skattskrá ríkisskattstjóra. Það vill
einmitt þannig til að nú í ágúst
lækka bætur mínar líka frá Trygg-
ingastofnun og það vegna of hárra
tekna og nýrra reglna.þessi lækk-
un er um 4.829 krónur á mánuði.
Mjög margir eru að endurgreiða
Tryggingastofnun of greiddar bæt-
ur frá síðasta ári og er ég þar á
meðal. Engir af þessum útreikn-
ingum eru frá mér komnir en það
skal vera ég sem skal sitja í súp-
unni og sætta mig þegjandi og
hljóðalaust við hvernig þetta kerfi
vinnur.
Ég vil skora á allt það fólk sem
kerfið er að hringla með að senda
lífeyrissjóðnum bréf eða fyr-
irspurnir og biðja um skrifleg svör
um hvernig á öllu þessu hringli
stendur og síðan þarf að krefjast
breytinga svo að ekki sé hægt að
bjóða fólki uppá að bætur þess
hækki eða lækki eftir óskiljanlegu
kerfi.
Stöðugleiki er oft nefndur. Í
bótagreiðslum þarf að vera stöð-
ugleiki þar sem bætur eru mjög
lágar miðað við það sem þarf til
framfærslu. Rétt skattkort á rétt-
um stað og með greiðslur frá fjór-
um aðilum sem sífellt eru að
breyta tekjum manns. Það er ekki
mjög auðvelt að koma því þannig
að það nýtist vel því miður.
Heildaryfirsýn á kjörum öryrkja
virðist engin eða mjög svo tak-
mörkuð en hún er nauðsynleg.
DAGRÚN SIGURÐARDÓTTIR,
húsmóðir og öryrki.
Skerðing örorkubóta
Frá Dagrúnu Sigurðardóttur
– meira fyrir áskrifendur
Jólahlaðborð
Fáðu þér áskrift á
mbl.is/askrift
Meðal efnis verður :
Jólahlaðborð á veitingahúsum.
Hvað er annað í boði en jólahlaðborð.
Jólahlaðborð heima skemmtilegar
uppskriftir.
Fallega skreytt jólahlaðborð.
Tónleikar og aðrar uppákomur.
Ásamt mörgu öðru spennandi efni.
Pöntunartími auglýsinga er fyrir klukkan
16.00 mánudaginn 26. október.
Nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir
í síma 569 1105, kata@mbl.is
Morgunblaðið gefur út glæsi-
legt sérblað um jólahlaðborð
30. október.
Fjöldinn allur af veitingahúsum bjóða upp
á jólahlaðborð og sérrétti á aðventunni
og mikið í boði fyrir þá sem vilja gera sér
glaðan dag á þessum skemmtilega tíma
ársins.