Morgunblaðið - 17.10.2009, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 17.10.2009, Qupperneq 34
34 Minningar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 2009 ✝ Þóranna Hansenfæddist á Dalvík 18. apríl 1936. Hún lést á gjörgæsludeild FSA 7. okt. sl. Foreldrar hennar voru Hans Herluf Hansen, f. 18.7. 1901, d. 4.5. 1936, og kona hans Þuríður Jóna Magnúsdóttir, f. 2.9. 1906, d. 5.7. 1995, fósturfaðir Þórönnu frá 1947 var Har- aldur Zophoníasson hagyrðingur, f. 5.9. 1906, d. 22.12. 1996. Systur Þór- önnu eru 1) Matthildur Hansen, f. 24.6. 1932, d. 25.3. 1933. 2) Hildur Hansen, f. 7.10. 1933, maki Þórir Stefánsson, f. 23.5. 1924. Barn þeirra er Þórhildur Arna Þór- isdóttir verslunarmaður, f. 21.2. 1962, sambýlismaður Ingvar Páll Jóhannsson, f. 1.12. 1960, gjald- keri hjá Dalvíkurbyggð, börn þeirra eru 1) Katrín Sif uppeldis- Andri Þór Ólafsson tónlist- armaður, f. 26.11. 1987. Fyrir átti Aðalsteinn soninn Guðmund Ágúst, f. 30.9. 1945. Þóranna bjó alla tíð á Dalvík. Eftir hefðbundna skólagöngu byrjaði hún snemma að vinna fyr- ir sér við þau störf sem í boði voru hverju sinni, s.s. fiskvinnu og síldarsöltun. Mörg ár vann hún við hin ýmsu verslunarstörf, lengst af hjá KEA og í Dalvík- urapóteki, starfsævi sína endaði hún hjá Sparisjóði Svarfdæla. Þóranna vann lengi að málum Slysavarnafélags Íslands sem voru henni sérstaklega hugeikin. Hún sat í landsstjórn SVFÍ um árabil, einnig var hún í stjórn og formað- ur slysavarnadeildar kvenna á Dalvík í yfir tuttugu ár. Hún vann einnig að málum aldraðra og var formaður félags eldri borgara á Dalvík um tíma. Þóranna var mik- il hannyrða-og prjónakona og var hún vel þekkt fyrir sína rósavett- linga. Útför Þórönnu fer fram frá Dalvíkurkirkju í dag, laugardag- inn 17. október, og hefst athöfnin kl. 13.30. fræðingur, f. 14.6. 1985. 2) Þórir nemi í VMA, f. 25.6. 1989. Hinn 25.12. 1958 giftist Þóranna Að- alsteini Grímssyni, f. í Reykjavík. 20.2. 1926, foreldrar Gróa Ágústa Guðmunds- dóttir, f. 26.8. 1896, látin, og Grímur Guðmundsson, f. 1.4. 1898, látinn, fóst- urfaðir Guðlaugur Davíðsson, f. 23.12. 1909, látinn. Þór- anna og Aðalsteinn eignuðust eina dóttur, Hildi, sem starfar við bók- hald, f. 4.9. 1955, gift Ólafi Ágúst Baldurssyni pípulagningameist- ara, f. 18.8. 1954. Hildur og Ólaf- ur eiga tvo syni 1) Aðalsteinn hagþróunarfræðingur, f. 2.5. 1981, í sambúð með Andreu Pál- ínu Helgadóttur, f. 12.12. 1978, viðskiptafræðingi og eiga þau eitt barn, Hildi Helgu, f. 9.4. 2009. 2) Elsku mamma mín, hetjulegri og snarpri baráttu þinni við illvígan sjúkdóm er lokið, það tók innan við einn mánuð. Ég gerði mér grein fyr- ir því strax í upphafi að líkurnar voru ekki miklar á sigri við þennan vágest, en þar sem þú varst þekkt fyrir allt annað en að gefast upp hélt ég samt í vonina, enda alin upp við það að þú bjargaðir þér út úr hlut- unum. Það var nú gert grín að okkur fyr- ir öll símtölin og samveruna, en það er samt eitt sem við höfðum alveg gleymt að ræða, það var hvað við myndum gera þegar aðeins önnur okkur stæði eftir! Nú er ég í þeim sporum og er áttavillt án þín. Þú ein veist hvað ég sakna þín mikið og þó ég sé orðinn „gömul“ eins og drengirnir mínir segja nú stundum á ég bágt með að takast á við fráfall þitt og trúa því að þú hringir ekki oftar í mig og við ræð- um hin og þessi mál. Ástarþakkir fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig og mína fjölskyldu, þú hugsaðir alltaf meira um okkur en sjálfa þig, og studdir okkur í gegnum það sem við tókum okkur fyrir hendur. Drengirnir þínir, Alli og Andri Þór, voru þér alltaf efst í huga, hvernig þeim liði, hvað þeir væru að gera og hvort þá vantaði eitthvað, þá voru amma og afi til taks. Það er sárt að þú skildir ekki fá meiri tíma með litlu Hildi Helgu og fyrir hana að geta ekki kynnst langömmu sinni. Ég mun sýna henni myndir úr öllum ferðalögunum sem þið Hildur systir þín fóruð í síðast- liðin ár og segja henni fullt af sögum af þér. Elsku mamma, það er komið að leiðarlokum að sinni, ég veit að þú fylgist alltaf með okkur, þú mátt treysta því að ég, Alli, Andri Þór og Óli, elsku besti tengdasonur eins og þú sagðir alltaf, munum fylgjast vel með pabba og Hildi, systur þinni. Við kveðjum þig með tregans þunga tár sem tryggð og kærleik veittir liðin ár. Þín fórnarlund var fagurt ævistarf og frá þér eigum við hinn dýra arf. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Guð geymi þig. Þín dóttir, Hildur. Elsku amma. Eftir rúmlega 28 ár skiljast leiðir okkar fyrr en mig grunaði. Fyrir minna en mánuði síð- an áttum við fjölskyldan frábæra helgi í bústaðnum, og nú þarf ég horfast í augu við að það var síðasta helgin sem við munum eyða saman. Okkur er kennt að þetta sé gangur lífsins, og eyðum við stórum hluta ævi okkar í að búa okkur undir það eina sem liggur alltaf ljóst fyrir í líf- inu: Eitt sinn verða allir menn að deyja. Aldrei er maður þó tilbúinn til að takast á við það þegar fjöl- skyldumeðlimur fellur frá, og síst af öllu þú amma, sem alltaf varst sterkust allra. Það fór ekki framhjá neinum nákomnum þér að þú stjórn- aðir því sem þú kærðir þig um og enginn komst upp með yfirgang gagnvart þér eða þínu fólki. Al- menningsálit var ekki það sem skipti þig mestu, heldur að fjöl- skyldu þinni og okkur „drengjunum þínum“ liði vel. Sögur af gjöfum þín- um til okkar bræðra voru frægar, og pakkinn frá ömmu var yfirleitt opn- aður síðast því víst þótti að hann táknaði skák og mát fyrir aðrar gjafir. Óteljandi atburðir milli okkar tveggja eru mér minnisstæðir, og flestar æskuminningar mínar eru bundnar Öldugötunni. Á öllum tímabilum lífs míns varstu tilbúin að sýna mér þolin- mæði, áhuga og hvatningu. Það varð til þess að ég sótti mikið í þig þegar ég taldi mig hafa unnið gott verk, hvort sem var í skóla eða vinnu, og langaði að monta mig. Að gera þig stolta var meiriháttar tilfinning, því þú varst manneskja sem maður leit upp til. Þrátt fyrir biturðina sem fylgir því að þurfa kveðja þig alltof snemma, þá er eitt haldreipi sem ég hef lengi treyst á að myndi hjálpa mér útúr þessum hremmingum. Fyrir allnokkrum árum vorum við tvö saman á Öldugötunni og ég taldi í mig kjark til að segja þér hluti sem voru mér mikilvægir. Ég tjáði þér hvað mér þætti vænt um þig og afa, þið væruð meira en afi minn og amma, þið væruð vinir mínir. Á sama tíma og gelgjan og töffaras- tælarnir voru í hámarki, tókst mér þó að sitja andspænis fjölskyldu- meðlim og opna mig upp á gátt. Þú tókst utan um mig og þakkaðir mér innilega fyrir. Ég hef lengi óttast daginn sem ég hefði þig ekki lengur í kallfæri. Tvisvar sinnum hafði ég beðið í hljóði til Guðs að þú og afi yrðuð ekki tekin frá mér fyrr en ég hefði náð ákveðnum áföngum í lífinu. Ég bað um að fá að verða 25 ára áður en þið yrðuð tekin frá mér, og seinna að mér tækist að gera þig að lang- ömmu. Þann 9. apríl síðastliðinn varð mér ljóst að ég hafði verið bænheyrður. Ég var orðinn 28 ára og Hildur Helga var fædd. Grátlegt er að þið skylduð ekki fá meiri tíma saman, en til allrar guðs lukku eru til myndir af ykkur saman, sem mun auðvelda mér að útskýra fyrir litlu stelpunni minni hvílíkt hörkukvendi langamma hennar var. Elsku amma mín, ég kveð þig með tárum og bið Guð að geyma þig. Ég mun halda áfram að reyna að gera þig stolta. Ég veit að þú munt vaka yfir okkur litlu fjölskyldunni. Við pössum og styðjum afa og Diddu, og ég mun halda áfram að leita á þínar náðir þegar mig vantar hjálp, ég veit að þú munt alltaf heyra í mér. Aðalsteinn Ólafsson. Elsku amma mín. Frá því að mamma hringdi í mig og tjáði mér að þú værir komin á gjörgæslu leist mér ekki á blikuna. Það var einhvern veginn svo óhugs- andi þar sem helgina áður voru þið öll að mér undanskildum saman komin í bústaðnum okkar í Skíðadal. Ekkert okkar hafði hugmynd um hversu alvarlegur sjúkdómur þinn var í raun. Þetta tók allt svo stuttan tíma. Það er mér sárt og erfitt að hugsa til þess að ég eigi ekki eftir að fá fleiri símhringingar frá þér á kvöld- in og spjalla um allt milli himins og jarðar. Þú stóðst alltaf með mér, hvattir mig áfram og styrktir mig á allan hátt og varst svo áhugasöm um hvað væri að gerast hjá mér. Hvort ég væri að spila mikið, hvernig væri í vinnunni og hvort það væri nú ekki allt hreint og snyrtilegt hjá mér. All- ur sá stuðningur sem þú veittir mér þegar ég bjó erlendis. Alltaf barstu hag fjölskyldunnar fyrir brjósti og ef þér fannst á henni brotið varst þú fyrsta manneskjan til að standa upp og láta í þér heyra. Alltaf svo sterk og traust. Ótrúlegt að þú skulir allt í einu vera farin, við sem vorum að vona að þú fengir að sjá Hildi Helgu vaxa úr grasi og fylgjast með okkur í nokkur góð ár í viðbót. Ég þakka fyrir allar þær frábæru stundir sem ég átti hjá ykkur afa á Dalvík sem barn og unglingur. Ég lofa að hafa allt snyrtilegt hjá mér og passa okkar fólk sem ég best get. Elsku amma mín, allt sem þú gerðir, sagðir og kenndir er okkur öllum ómetanlegt. Að endingu ég segi við þig sem þetta lest, þetta er góður dagur, hafðu það sem best. Ég óska þess að hugsanir fallegar þig finni, ég faðmlag þér sendi og kveð þig að sinni. (Hjálmar Freysteinsson.) Andri Þór Ólafsson. Fréttin af veikindum og andláti Þórönnu frænku var ein af þessum fréttum sem koma eins og þruma úr heiðskýru lofti – að þessi hressa og ákveðna kona sem fátt virtist bíta á og bar aldurinn svo vel væri farin. Við sem höfum búið í nágrenni við Þórönnu alla okkar ævi minnumst góðra kynna og margra góðra stunda, heimsókna í kjallarann í Bárugötu 10 og seinna í Öldugötuna, kaffitímanna þar sem farið var yfir það sem efst var á baugi í bæjarlíf- inu, veisluhalda þegar stórfjölskyld- an úr Sæbakka kom saman og fagn- aði afmæli eða fermingu, gjafmildi og áhuga á velferð okkar barnanna í Bárugötu 11 og svo mætti lengi telja. Við eigum margar góðar minn- ingar um frænku okkar og góða vin- konu. Við syrgjum Þórönnu en vitum að það eru hennar nánustu sem orðið hafa fyrir mestum missi. Við sendum fjölskyldunni, Alla, Hildi, Óla, Aðalsteini yngri og fjöl- skyldu og Andra, innilegar samúð- arkveðjur. Við finnum sannarlega einnig til með Hildi eldri sem nú hefur misst systur sína og bestu vin- konu. Missir ykkar er mikill og hug- ur okkar er hjá ykkur á þessum erf- iða tíma. Innilegar samúðarkveðjur frá okkur sem búum eða bjuggum í Bárugötu 11. Sigríður Hermannsdóttir. Jóhanna Tómasdóttir. Hermann Jón Tómasson. Guðrún Hrönn Tómasdóttir. Eftir erfiða baráttu við sjaldgæf- an sjúkdóm er Þóranna frænka mín, eða Lóla eins og við kölluðum hana, nú fallin frá og um leið hefur stórt skarð myndast í fjölskylduna. Það er afar erfitt að hugsa til þess að okkar síðasti fundur hafi í raun ver- ið sá síðasti og jafnframt furðulegt því mig grunaði það ekki þá. Minn- ingarnar eru samt margar og góðar og ég er glöð því ég veit að hún vissi hvað mér þótti afskaplega vænt um hana. Lóla hefur í mínum huga ekkert breyst frá því ég var lítil og við afi kölluðum hana „fínu frænku,“ þar til nú. Hún var alltaf á ferðinni, hress og ör og virtist alltaf hafa í nógu að snúast. Hún sá reyndar alltaf til þess að hafa eitthvað fyrir stafni, ef hún var ekki að baka eða steikja fjöll af þunna ljúffenga soðna brauðinu sem allir elska var það ævinlega eitthvað annað í svipuðum dúr. Mér fannst alltaf svo ævintýralegt þegar ég fékk að leika mér í Öldu- götunni, annað hvort ein, eða með Andra frænda mínum. Þar var að finna alls konar hluti sem við mátt- um leika okkur með eins og hol- lenska smápeninga í búðarleiki og í bílskúrnum voru alls konar spenn- andi og skemmtilegir hlutir. Inn á milli leikja var síðan boðið upp á drekkhlaðið borð af veitingum þrátt fyrir að Lólu hafi kannski ekki alltaf líkað frágangurinn eftir leiki dags- ins. Það er svo ótal margt í fari Lólu frænku minnar sem ég get, hef og ætla að taka mér til fyrirmyndar í framtíðinni. Ég hef heyrt margar dugnaðarsögur af henni frá því fyrir mína tíð og þeim er ekki erfitt að trúa því þær minningar sem fylla hugann þessa stundina snúast flest- ar um dugnaðinn og drifkraftinn sem einkenndu hana í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Stærsta minn- ingin sem ég mun geyma er samt sem áður áhuginn, umhyggjan og væntumþykjan sem hún sýndi fólk- inu sínu, og þar á meðal mér. Vinasambandið milli þeirra systra, ömmu og Lólu er að mínu mati einstakt. Þær ferðuðust saman víðs vegar um heiminn (og komu ævinlega með ótal glaðninga heim handa iðandi spenntum krakkaorm- um… jafnvel eftir að þeir urðu flest- ir fullorðnir), heimsóttu hvor aðra daglega, hringdust mikið á og ef maður var í vafa um hvar önnur þeirra var stödd gat maður oftast fengið upplýsingar um það hjá hinni. Fyrir hönd okkar allra í fjölskyld- unni vil ég segja að við sjáum sárt á eftir Lólu frænku en við erum jafn- framt afar þakklát fyrir allt og allar frábæru og yndislegu stundirnar sem við áttum saman. Innilegar samúðarkveðjur til Alla, Diddu og fjölskyldu. Takk fyrir okkur. Þín frænka, Katrín Sif og fjölskylda. Það kom á óvart er ég heyrði að Þóranna hefði verið flutt mikið veik á sjúkrahús nú fyrir skömmu þar sem hún lést 7. október sl. Það var árið 1967, við hjónin ný- gift og fyrsti sonurinn fæddur. Ég hafði heyrt um frændfólk eigin- mannsins á Dalvík en hvorki hitt né séð þau á þeim tíma. Þá kom til- kynning um pakka frá pósthúsinu, sendandi Þóranna Hansen á Dalvík. Í pakkanum voru falleg handprjón- uð barnaföt ásamt bréfi. Þetta var sem sagt fyrsta sending en ekki sú síðasta því hún hélt áfram að prjóna á börnin og fylgjast með okkur fjölskyldunni. Sem sagt, þarna var Þóranna komin inn í mína tilveru og sýndi hún mér ætíð ómet- anlega vináttu og tryggð í gegnum árin. Ef hún kom suður gisti hún stundum hjá okkur og það var sko engin lognmolla í kringum hana og ef við komum norður var tekið á móti okkur með glæsibrag í mat og heimabökuðu meðlæti. Það lék allt í höndum hennar og var hún mjög virk bæði innan og utan heimilis. Hún tók mikinn þátt í félagsstörfum og sinnti vel bæði ungum sem og öldnum í fjölskyldu sinni. Eiginmaður, einkadóttir, systir og fjölskyldan öll sjá nú á eftir klett- inum í tilverunni. Að lokum vil ég kveðja Þórönnu með erindi úr ljóði eftir Harald Zóp- haníasson, Bið ég með bljúgum hug – bæninni lyfti á flug: ófarin árastig alfaðir leiði þig. Endaðri ævitöf út fyrir dauða og gröf áfram til ljóssins lands lýsi þér blessun hans. Anna Þ. Ingólfsdóttir. Í fáeinum orðum langar okkur nú að kveðja Þórönnu og þakka fyrir allar góðu samverustundirnar á liðn- um árum. Þá langar okkur að þakka einstaka hlýju, velvild og vináttu í okkar garð. Þóranna var alltaf einstök við okkur strákana, sýndi okkur gjaf- mildi og tryggð og lét sér annt um velferð okkar. Allt það góða metum við nú mik- ils. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem.) Ættingjum og vinum sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Arnar og Jón Arnar. „Við burtför þína er sorgin sár, af söknuði hjörtun blæða.“ Það gerast oft atburðir í lífi manns sem eru óskiljanlegir og oft á tíðum ósanngjarnir að okkar dómi, það er eins og að vera lostin þungu höggi, þannig var mér innanbrjósts þegar kaldur veruleikinn blasti við, hún Þóranna kemur ekki heim aftur, hún er dáin, þessi lífsglaða, káta og kraftmikla kona, allt í einu er henni kippt í burtu af illvígum sjúkdómi. Þóranna var sterkur og ákveðinn persónuleiki, það sópaði af henni og hvar sem hún fór var eftir henni tek- ið, hún var hreinskiptin og hikaði ekki við að láta skoðanir sínar í ljósi, hún var líka hlý og hjálpsöm þó hún léti ekki mikið á því bera en það vissum við vinir hennar. Það mátti með sanni segja að hún var vinur vina sinna. Vinátta okkar spannar marga áratugi, margt höfum við brallað saman bæði í leik og starfi og oft var glatt á hjalla og margs að minnast og margs að sakna. Hver býður nú í pönnukökur og tekur um axlir og kyssir á báðar kinnar? Okk- ur hjónum hefur verið það ómet- anlegt að eiga þau að vinum Þór- önnu og Alla og fyrir þá vináttu viljum við af alhug þakka. Þóranna byrjaði snemma að vinna og var virk í atvinnulífi staðarins, slysavarnamál voru henni einstak- lega hugleikin og var hún formaður Slysavarnadeildar kvenna á Dalvík um árabil. Einnig sat hún í stjórn Slysavarnafélags Íslands og sinnti hún þessum störfum af miklum dugnaði og ósérhlífni eins og öllu sem hún tók að sér. Það var aldrei nein lognmolla í kringum hana. Hún starfaði einnig fyrir félag aldraðra og var formaður þess félags um tíma. Þó Þóranna kæmi víða við var fjölskyldan henni mikilvægust af öllu og um hana snerist öll hennar Þóranna Hansen Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.