Morgunblaðið - 17.10.2009, Blaðsíða 35
Minningar 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 2009
hugsun og væntumþykja, Hildur
hennar og Óli, ömmudrengirnir sem
hún var svo stolt af, Andrea og litla
langömmustelpan sem hún átti svo
stutta samleið með. Þetta voru gim-
steinar hennar og Alla sem nú sér á
eftir eiginkonu sem hann mat svo
mikils, Hildur systir hennar og fjöl-
skylda, missir ykkar er mikill, Guð
blessi ykkur öll og gefi ykkur styrk.
Kæra vinkona það er komið að
kveðjustund hjá okkur í bili, ég efast
ekki um að við eigum eftir að hittast
aftur og þá heilsar þú mér með
flottu kerlingapartíi. Fjölskyldan á
Ásvegi 4 þakkar þér samfylgdina,
vertu ætíð góðum Guði falin.
Ég kveð þig, hugann heillar minning
blíð,
hjartans þakkir fyrir liðna tíð,
lifðu sæl á ljóssins friðar strönd,
leiði sjálfur Drottinn þig við hönd.
(Guðrún Jóhannsdóttir.)
Kolbrún Páls.
Hugurinn hvarflar norður á Dal-
vík í dag þegar Þóranna Hansen er
kvödd þar hinstu kveðju. Minning-
arnar kalla fram mynd af myndar-
legri og rösklegri konu, sem ber
með sér hressan andblæ, flytur mál
sitt einarðlega og af hreinskilni
þannig að eftir er tekið og dregur
ekki af sér í hverju því sem hún tek-
ur sér fyrir hendur. Dugnaði hennar
var við brugðið og hef ég fyrir satt
að á yngri árum hennar, á síldarár-
unum góðu, hafi fáir staðist henni
snúning í söltun.
Leiðir okkar Þórönnu lágu saman
á vettvangi Slysavarnafélags Ís-
lands, einkum á þremur síðustu ára-
tugum aldarinnar sem leið. Fyrst á
landsþingum félagsins þar sem hún
mætti sem fulltrúi kvennadeildar-
innar á Dalvík en þar var hún í
stjórn í áratugi, þar af sem formað-
ur í mörg ár. Myndaðist þá með
okkur vináttu sem hélst æ síðan.
Síðar, eftir að mér hafði verið falið
forsæti í stjórn félagsins, var hún
kjörin í stjórnina sem fulltrúi Norð-
urlands og sat þar í um það bil einn
áratug.
Öll hennar störf á vettvangi fé-
lagsins mótuðust af lifandi áhuga á
þeim málefnum, sem það bar fyrir
brjósti. Hún lagði mikla áherslu á
tvíþætt hlutverk félagsins, annars
vegar forvarnir gegn slysum og hins
vegar björgunarþáttinn. Ég held að
óhætt sé að fullyrða að kvennadeild
félagsins á Dalvík hafi á þessum ár-
um verið með sterkari deildum fé-
lagsins og lagði margt gott til hvað
varðaði bæði þessi svið.
Mér er sérstaklega minnisstæður
áhugi Þórönnu er við vorum að
stofna Slysavarnaskóla sjómanna og
sá stuðningur sem hún og deild
hennar veitti í þeim efnum. Fyrsta
sigling Sæbjargar til Dalvíkur til
námskeiðahalds er minnisstæð fyrir
þær móttökur sem kvennadeildin
stóð þar fyrir. Konurnar í slysa-
varnadeildunum skildu vel hversu
þýðingarmikið það starf var sem
slysavarnaskólanum var ætlað að
vinna, bæði til að varna slysum sem
og til að stuðla að skjótri og farsælli
björgun ef óhapp bæri að höndum.
Fullyrði ég óhikað að skólinn hafi
margsannað gildi sitt á þessum svið-
um. Þóranna bar og mjög fyrir
brjósti starf björgunarsveitarinnar
á Dalvík og lagði á sig ómælda vinnu
til að efla aðstöðu hennar og tækja-
búnað. Eftir að Þóranna lét af þess-
um félagsstörfum var það henni
ánægjuefni að þær konur sem tóku
við keflinu héldu áfram öflugu starfi
og hefur svo verið að ég hygg fram á
þennan dag.
Eftir að leiðir skildi á hinum fé-
lagslega vettvangi hittumst við Þór-
anna sjaldnar en áttum hins vegar
oft tal saman í síma. Þau samtöl
voru jafnan lífleg og uppörvandi
enda hafði Þóranna áhuga á margs
konar málefnum og hafði ákveðnar
skoðanir. Hún sagði og frá ferðum
sínum víðs vegar hin seinni ár, svo
og frá fjölskyldu sinni og högum
hennar. Ég og fjölskylda mín sökn-
um hennar nú sárt og erum þakklát
fyrir vináttu hennar um árabil. Eig-
inmanni, dóttur og fjölskyldu henn-
ar sendum við okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Haraldur Henrysson.
✝ Soffía Felixdóttirfæddist í Reykja-
vík 15. nóvember
1935. Hún lést á gjör-
gæsludeild Landspít-
alans við Hringbraut
fimmtudaginn 1.
október sl.
Foreldrar hennar
voru Sigríður Jóns-
dóttir, f. 8.6. 1906, d.
29.9. 1982 og Felix
Ottó Sigurbjarnason,
f. 1.10. 1908, d. 1.2.
1969. Systkini Soffíu
eru Jón Guðmunds-
son, f. 27.5. 1925, Ingibjörg Guð-
mundsdóttir, f. 19.12. 1926, d. 30.9.
2006 og Hörður Matthías Felixson,
f. 17.11. 1933, d. 10.7. 1985.
Soffía giftist 3.4. 1964 Sigurði
Eggert Sigurðssyni, f. 21.4. 1936,
þau skildu. Foreldrar hans voru
Guðrún Sigurlín Eggertsdóttir, f.
16.12. 1914, d. 19.12. 2001 og Sig-
urður Guðmundsson, f. 18.4. 1901,
d. 29.9. 1982. Synir Soffíu og Sig-
urðar eru: 1) Felix Gunnar, f. 13.12.
1963, kvæntur Svanhildi Hauks-
dóttur, f. 23.3. 1961, dætur þeirra
eru Soffía, f. 5.8. 1989 og María
Ósk, f. 3.4. 1992. 2) Sigurður Freyr,
f. 12.4. 1965, kvæntur Sóleyju
Helgu Björgvinsdóttur, f. 16.7.
1966, börn þeirra eru
Tinna Huld, f. 26.1.
2003 og Gunnar Þór,
f. 28.11. 2008. 3) Jón
Þór, f. 1.8. 1967,
kvæntur Jórunni
Dóru Sigurjóns-
dóttur, f. 10.4. 1972,
dætur þeirra eru Erla
Dögg, f. 5.5. 1992,
Hildur Karen, f.
20.12. 1997 og Eyja
Sigrún, f. 1.10. 2001.
Soffía giftist 29.8.
1981 Jóhannesi Pét-
urssyni, f. 3.2. 1933,
þau skildu.
Soffía ólst upp á Laugaveginum í
Reykjavík og gekk í Laugarnes-
skólann. Hún fór ung út á vinnu-
markaðinn og starfaði við ýmis
verkakonustörf. Soffía fylgdist
töluvert með íþróttum í gegnum
syni sína og sat um tíma í stjórn
fimleikadeildar Fylkis. Soffía hafði
gaman af því að standa að alls kon-
ar mannfögnuðum og reyndi að
gera það sem oftast bæði með ætt-
ingjum og vinum og hélt því áfram
fram á síðustu daga í félagsstarfinu
í Þórðarsveig þar sem hún bjó síð-
ustu árin. Útför Soffíu hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Meira: mbl.is/minningar
Soffía Felixdóttir hefur nú kvatt
þennan mannlega heim. Við kveðjum
elskulega frænku okkar með sárum
söknuði. Við hugsum með djúpri
samúð til frænda okkar, sona Soffíu,
og fjölskyldna þeirra. Við erum
þakklát fyrir að hafa átt Soffíu að,
þótt við hefðum viljað hafa hana
lengur. Hún sýndi Herði bróður sín-
um og fjölskyldu hans mikla hlýju,
tryggð og vinsemd. Soffía hafði líka
sérstakt lag á því að lífga upp á til-
veruna hvar og hvenær sem var.
Þeir sem hana þekktu muna eftir
þegar hún talaði og hló á sama tíma
með sínum einstaka stríðnishreim.
Þessi lífsgleði og kraftur er það sem
lýsir upp minningu hennar og mun
halda áfram að kasta ljóma til okkar
svo lengi sem við lifum. Björt er og
verður minning hennar.
Fjölskylda Harðar Felixsonar.
Við fráfall Soffíu Felixdóttur rifj-
ast upp minningar um konu sem gaf
mikið af sér og var okkar litla sam-
félagi hér í Þórðarsveigi 1-5 afar
mikilvæg.
Þegar þetta hús, sem eru íbúðir
fyrir 60 ára og eldri, var tekið í notk-
un á miðju sumri árið 2003 var hafist
handa við að skipuleggja félagsstarf.
Var skipað frístundaráð sem átti að
hafa umsjón með ýmsum uppákom-
um eins og jólahlaðborðum, þorra-
blótum, grillveislum á vorin og öðr-
um hlutum hér í salnum okkar.
Soffía var ein af þeim sem voru í
frístundaráði. Þar var nú ekki í kot
vísað. Það kom fljótt í ljós að þarna
fór kona sem kunni til verka bæði
hvað matseld og veisluhöld snerti.
Þar vildi hún helst standa ein að
verki og fór mikinn. Hún reiddi fram
dýrindisrétti sem allir kunnu að
meta.
Í salnum á Þórðarsveigi var kirkj-
an okkar hér í Grafarholti með starf-
semi sína frá 2004-2008. Einnig þar
var Soffía mjög virk og sömuleiðis i
bænahringnum sem hefur verið hér
sl. fimm ár.
Það var engin lognmolla í kringum
hana. Hún gekk að hverju starfi með
mikilli reisn og fórnfýsi og taldi ekki
eftir sér að gera þetta í okkar þágu.
Fyrir ári greindist hún með illvíg-
an sjúkdóm sem hún tókst á við með
mikilli hetjulund og lét engan bilbug
á sér finna til hinstu stundar. Hún
var afar sterkur persónuleiki og
hafði ákveðnar skoðanir á mönnum
og málefnum.
Ég þakka henni fyrir vegferð
hennar og allt það starf sem hún
vann fyrir okkur af einstakri fórn-
fýsi. Hennar er sárt saknað. Við Að-
alheiður vottum ástvinum og að-
standendum hennar okkar dýpstu
samúð. Veri hún að eilífu Guði falin.
Aðalsteinn Dalmann Októsson.
Soffía Felixdóttir
✝
Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
SIGURBJÖRG SIGVALDADÓTTIR,
Sjávargrund 4a,
Garðabæ,
lést miðvikudaginn 14. október.
Jarðsungið verður frá Garðakirkju föstudaginn
23. október kl. 11.00.
Hanna Stefánsdóttir, Jón Guðlaugsson,
Sigrún Stefánsdóttir, Sigþór Sigurjónsson,
Bylgja Eybjörg Stefánsdóttir,
Stefán Sigurður Stefánsson, Guðfinna Baldvinsdóttir,
Guðný Stefánsdóttir, Agnar Agnarsson,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Móðir mín,
ÁSTRÍÐUR MARÍA JÓHANNESDÓTTIR
REHDER,
ættuð frá Hellissandi,
Chantilly, VA,
Bandaríkjunum,
lést miðvikudaginn 16. september.
Fyrir hönd aðstandenda,
Nína Sigríður Rehder Duggan.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
SIGURLAUG JÓNSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni þriðjudaginn
20. október kl. 15.00.
Pálína Oswald, Edvard Pétur Ólafsson,
Kristján Andreas Ágústsson, Bryndís Konráðsdóttir,
Jón Frímann Ágústsson, Hallfríður Ólafsdóttir,
Þórður Ágústsson, Anne S. Svensson,
Guðríður Ágústsdóttir, Gunnlaugur Kr. Gunnlaugsson,
ömmu- og langömmubörn.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug og
samúð vegna fráfalls ástkærs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa, sonar og bróður,
GUNNLAUGS S. SIGURÐSSONAR
iðnrekanda,
Hlégerði 3,
Kópavogi,
sem lést á Landspítalanum Hringbraut aðfaranótt
miðvikudagsins 23. september. Viljum við jafnframt þakka starfsfólki
krabbameinsdeildar 11-E og hjúkrunarfræðingum Karitas fyrir
stuðninginn og hlýlegt viðmót gagnvart Gunnlaugi og aðstandendum.
Gíslunn Arngrímsdóttir,
Sigurður, Bergþóra og Hulda Gunnlaugsbörn,
Gísli Einarsson,
afastrákarnir,
Arnþrúður M. Jóhannesdóttir, Sigurður Gunnlaugsson,
Aðalbjörg, Hulda, Sigurlaug og Margrét Sigurðardætur.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
BJARNI BREIÐFJÖRÐ SVEINBJÖRNSSON,
Skólastíg 16,
Stykkishólmi,
lést miðvikudaginn 14. október.
Útförin fer fram frá Stykkishólmskirkju laugar-
daginn 24. október kl. 14.00.
Anna Kristjánsdóttir,
Jóhanna Bjarnadóttir, Ellert Kristinsson,
Birna Bjarnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar ástkæra eiginkona, móðir, tengdamóðir og
amma,
HALLA LÁRUSDÓTTIR,
Markarflöt 45,
Garðabæ,
lést á Landspítalanum við Hringbraut að kvöldi
fimmtudagsins 15. október.
Útförin verður auglýst síðar.
Bolli Þór Bollason,
Jóhanna Guðmundsdóttir, Mohsen Khajeh,
Lilja Guðlaug Bolladóttir,
Lárus Bollason,
Þórunn Bolladóttir, Sigurgeir Guðlaugsson,
Ólöf Bolladóttir, Guðmundur Pálsson
og barnabörn.