Morgunblaðið - 17.10.2009, Side 44
44 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 2009
SkjárEinn tilkynnti í gær að
sjónvarpsstöðin yrði gerð að
áskriftarstöð og send út í læstri
dagskrá frá miðjum nóvember n.k.
Mánaðaráskrift mun kosta 2.200 kr.
Þetta eru slæmar fréttir fyrir aðdá-
endur Kalla Berndsen og Sölva
Tryggva. Þeir munu kosta 550-kall
á viku. Er missir í einhverju öðru?
Kalli og Sölvi kosta
550 krónur á viku
Fólk
LEIKARINN Stefán Hallur Stef-
ánsson dvelur nú í Frakklandi þar
sem hann leikur í uppfærslu á Júl-
íusi Sesari eftir Shakespeare.
„Leikstjóri verksins er Arthur
Nauzyciel sem leikstýrði Sædýra-
safninu í Þjóðleikhúsinu. Í kjölfarið
á þeirri uppsetningu bauð hann
mér að vera með í þessari,“ segir
Stefán Hallur.
„Þetta er amerísk-frönsk upp-
færsla, sem er upprunnin hjá
bandaríska leikhópnum American
Repertory Theater í samstarfi við
CDN í Frakklandi. Verkið var
frumsýnt 2008 og túraði þá um
sem ekki er frá Bandaríkjunum og
leikið er á ensku, mjög bandarískri
ensku eins og hann kemst að orði.
Stefán Hallur er fastráðinn hjá
Þjóðleikhúsinu og snýr aftur þang-
að eftir áramót. Þeir Íslendingar
sem sakna þess að sjá hann geta
farið í bíó og séð gamanmyndina
Jóhannes þar sem hann er í stóru
hlutverki. „Ég hef ekki séð mynd-
ina en hlakka til að sjá hana og því
miður missi ég líka af frumsýningu
á annarri mynd sem ég leik í, Des-
ember eftir Hilmar Oddsson,“ segir
Stefán Hallur að lokum.
ingveldur@mbl.is
Bandaríkin og fer nú um Frakkland
í tvo mánuði,“ segir Stefán Hallur.
Verkið var frumsýnt á miðvikudag-
inn var í Orléans og segir Stefán
Hallur viðtökur hafa verið mjög
góðar, uppselt sé t.d. á allar sýn-
ingar í Orléans og París.
Stefán Hallur fer með hlutverk
illmennisins Caius Ligarius sem er
náinn samstarfsmaður Brútusar.
„Þetta er ekki hefðbundin Shake-
speare-uppsetning. Hún vísar í og
er stílfærð á Kennedy-tímabilið,
Bandaríkin 1960-́65, en er að öðru
leyti tímalaus,“ segir Stefán Hallur.
Hann er eini leikarinn í sýningunni
Leikur illmenni með bandarískum hreim
Stórsöngvarinn Björgvin Hall-
dórsson, einnig nefndur Bo Hall,
heldur jólatónleika í Laugardags-
höll 5. desember næstkomandi með
góðum gestum og hefst miðasala
30. október kl. 10. Jólatónleikar Bo,
Jólagestir Björgvins, eru orðnir
mörgum jafnómissandi hluti jóla og
hangikjöt og heimagerður ís.
Í það minnsta fögnuðu margir
með Bo á Facebook þegar hann lét
vita af miðasölunni en kappinn á
nokkra vini þar, 3.751(!). Þann 30.
okt kemur einnig út pakki með
mynd- og hljóðupptökum frá Jóla-
tónleikum Bo í fyrra. Það eru ekki
jól fyrr en Bo segir jól!
Miðasala hefst og jóla-
plata kemur út 30. okt.
Airwavesútsendari blaðsins
rakst á mann og annan að vanda á
rölti sínu um hátíðina í fyrradag.
Elín Ey tjáði honum t.d. að hún
hefði fengið tvö spilapláss á hátíð-
inni en eftirlátið vinkonu sinni úr
Trúbbatrix annað þeirra. Ást, frið-
ur og hamingja ríkir greinilega á
Airwaves, líkt og á Wooodstock
forðum daga!
Elín Ey lét gott af sér
leiða á Airwaves
NÝTT kvikmyndafyrirtæki hefur litið
dagsins ljós. Vala-kvikmyndir sérhæf-
ir sig í gerð heimildamynda og hand-
rita. Fyrirtækið er í eigu leikstjórans
Veru Roth og aðrir starfsmenn eru
Guðný R. Hannesdóttir og Lína Thor-
oddsen framkvæmdastjórar.
„Þetta er kvikmyndafyrirtæki sem
gengur út frá tíbetskum búddisma.
Það leitast við að gera góða hluti og
leggja gott út í samfélagið,“ segir
Lína um Völu.
„Fyrirtækið mun alltaf reyna að
vera í samvinnu við góðgerðarfyr-
irtæki og við miðum út frá því að okk-
ar vinna hafi tilgang og opni augu
fólks fyrir nýjum lífsgildum,“ segir
Lína. Á heimasíðunni www.vala.is má
lesa að velferð manneskjunnar og þrá
hennar eftir hamingju og þjáning-
arlausu lífi sé innblástur og hvati allra
verka sem unnin eru undir merkju
Völu.
Lína segir að fyrirtækið verði að-
allega rekið með styrkjum og mark-
miðið sé að fá myndirnar sýndar í
kvikmyndahúsum og sjónvarpi hér-
lendis sem erlendis.
„Við munum auðvitað herja á er-
lendan markað enda ætlum við að
hafa þetta fjölmenningarlegt,“ segir
Lína sem situr nú við handritaskrif.
„Það er margt í hugmyndabankanum
hjá okkur og er ég núna að skrifa
handrit fyrir heimildarmynd um geð-
hvörf.“Um síðustu helgi var opn-
unarhátíð Völu þar sem tvær stutt-
myndir og tvær heimildarmyndir,
Rajeev Revisited eftir Birtu Fróða-
dóttur og Í safni með Síðumönnum
eftir Veru Roth, voru sýndar.
ingveldur@mbl.is
Rajeev Revisited Heimildarmynd eftir Birtu Fróðadóttur og sjálfstætt
framhald Leitin að Rajeev frá 2002. Hún var sýnd á kynningarhófi Völu.
Vala er kvikmynda-
fyrirtæki með tilgang
Velferð manneskjunnar er innblástur og hvati allra verka
www.vala.is
Leikarinn Stefán Hallur fer víða.
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
TÓNLISTARMAÐURINN Skúli
Sverrisson hefur dvalið erlendis
undanfarna áratugi og unnið með
mörgum heimsþekktum tónlist-
armönnum á milli þess sem hann
hefur unnið að eigin tónlist. Sökum
anna hefur Skúli lítið svigrúm til
tónleikahalds hér á landi, en grípur
nú tækifærið þegar hann er staddur
hér til að taka upp nýja plötu og
blæs til tónleika í Þjóðmenning-
arhúsinu við Hverfisgötu í kvöld.
Skúli er staddur í Sundlauginni í
Álfafosskvosinni þegar ég næ tali af
honum og skýrir mér frá því að upp-
tökur séu rétt að hefjast, en aðrir
hljóðfæraleikarar á plötunni verða
tónlistarmennirnir Eyvind Kang,
sem leikur á lágfiðlu, Amedeo Pace
úr Blonde Redhead, sem leikur á
gítar, Anthony Burr, sem leikur á
klarinett og orgel, Ólöf Arnalds, sem
syngur, og Davíð Þór Jónsson, sem
leikur á píanó.
„Ég ákvað svo að nota tækifærið
fyrst það voru allir staddir hér og
leyfa fólki að heyra í þessum ein-
stöku tónlistarmönnum,“ segir
Skúli. Tónleikarnir verða á óvenju-
legum stað, í Þjóðmenningarhúsinu,
en Skúli segir það ráðast af því að
hann hafi langað að færa tónleika í
sparilegan búning.
„Þetta verða ekki tónleikar starf-
andi hljómsveitar eins og er nú á
Airwaves, heldur einstakt verkefni
og því við hæfi að hafa það í einstöku
húsi,“ segir Skúli og lýkur lofsorði á
starfsmenn Þjóðmenningarhússinns
fyrir liðlegheit.
Algert frelsi best
Síðasta sólóskífa Skúla var Seria
sem kom út fyrir þremur árum og að
mestu með sömu listamönnum og
eru nú með Skúla í Sundlauginni.
Hann segir og að platan nýja verði
beint framhald af Seríu og verkin
sem tekin verða upp einmitt samin
með þetta fólk í huga. Þegar litið er
yfir nafnalistann sést að þar eru
ýmsir listamenn sem þekktastir eru
fyrir frjálsan spuna, eins og til að
mynda Eyvind Kang og Anthony
Burr, sem hefur lengi starfað með
Skúla. Skúli segir þó að væntanleg
plata verði ekki spunaplata, allt sem
á skífunni verður er útspekúlerað og
planað. „Það má segja að það eina
sem sé eftir með plötuna sé að spila
hana inn, það er allt frágengið og út-
sett og meira segja búið að raða nið-
ur á plötuna,“ segir Skúli og gerir
ráð fyrir að upptökur taki þrjá til
fjóra daga.
Undanfarin ár hefur hann fengist
við ólíkar gerðir tónlistar og er til að
mynda mjög hagvanur í spuna-
músík. Hann segir líka að tónlistin
sem verið er að taka upp sé einstakt
verkefni og því við hæfi að hafa það í
einstöku húsi tónlistarmanns. „Það
er til svo mikið af spunatónlist sem
er spunatónlist undir ákveðnum for-
merkjum; það er verið að nálgast
ákveðinn stíl. Sem dæmi má nefna
að þótt djasstónlist sé spunakennd
þá er hún ótrúlega mikið prógram-
meruð stíllega séð og sama á við í
frjálsum djass, það er búið að taka
ákvörðun um ákveðin atriði áður en
menn fara að spinna.
Ég kann hins vegar best við mig í
tónlist sem byggist á því að ekkert
sé ákveðið fyrirfram heldur séum við
að uppgötva hvað gerist í núinu. Þeir
sem ég er að spila með eru líka mikl-
ir spunamenn og nálgast hljóðfærin í
samræmi við það og það sama má
segja um mig. Ég hef eiginlega
mestan áhuga á tveimur ólíkum
fyrirbærum, annars vegar tónlist
sem er fullkomlega skipulögð og
hins vegar fullkomlega frjáls. Allt
sem fellur þar á milli finnst mér ekki
eins áhugavert.“
Tónleikar Skúla Sverrissonar í
Þjóðmenningarhúsinu hefjast kl.
23:30 í kvöld.
Saminn og útsettur spuni
Morgunblaðið/Heiddi
Einstakt Skúli Sverrisson fór með mannskapinn í sundlaugina.
Skúli Sverrisson heldur tónleika í Þjóð-
menningarhúsinu við Hverfisgötu
Eins og fram kemur hér til hliðar kom Sería, sólóplata Skúla Sverrissonar,
út fyrir þremur árum og fékk fína dóma í fjölmiðlum. Gagnrýnandi Morg-
unblaðsins sagði að platan væri sú óvenjulegasta sem hafnn hefði heyrt
það árið: „Það er ekki vegna þess að hún er svo skrítin eða tormelt, held-
ur vegna þess að mér dettur hreinlega ekkert í hug sem líkist þessari
músík í fljótu bragði.“
Ekki skrítin eða tormelt