Morgunblaðið - 17.10.2009, Qupperneq 52
LAUGARDAGUR 17. OKTÓBER 290. DAGUR ÁRSINS 2009
Heitast 9°C | Kaldast 1°C
Hæg vestanátt og
talsverð rigning. Sunn-
an 8-13 m/s og úr-
komuminna á Austur-
landi. Hvessir í kvöld. »10
Heimild: Seðlabanki Íslands
DOLLARI
STERLINGSPUND
KANADADOLLARI
DÖNSK KRÓNA
NORSK KRÓNA
SÆNSK KRÓNA
SVISSN. FRANKI
JAPANSKT JEN
SDR
EVRA
MEÐALGENGI/VIÐSKIPTAVOG ÞRÖNG
123,54
201,36
119,47
24,735
22,071
17,754
121,26
1,3554
196,62
184,15
Gengisskráning 16. október 2009
123,83
201,85
119,82
24,807
22,136
17,806
121,6
1,3594
197,21
184,67
236,5554
MiðKaup Sala
124,12
202,34
120,17
24,879
22,201
17,858
121,94
1,3634
197,8
185,19
FÓLK Í FRÉTTUM»
ÞÆTTIR »
Þriðja þáttaröð True
blood aðeins lekið. »45
Árni Matt og Arnar
Eggert vita hverju
ekki má missa af og
hvað hefur gerst til
þessa á loftbylgj-
unum öflugu. »44-48
ICELAND AIRWAVES»
Partí, partí,
partí, partí
FÓLK »
Stefán Hallur illmennast
í Frakklandi. »44
TÓNLIST »
Jólagestir Bó jafnómiss-
andi og hangikjöt. »44
Vala-kvikmyndir
gengur út frá tíb-
etskum búddisma
og leitast við að
leggja gott út í
samfélagið. »44
Tíbetskur
búddismi
KVIKMYNDIR »
Menning
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Í LAUSASÖLU 395 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950
VEÐUR»
» VEÐUR mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Kennsl borin á manninn
2. Ótrúlegar myndir af háskaför …
3. Götuvændi stundað í Reykjavík
4. Játaði að hafa orðið Braga að bana
Íslenska krónan veiktist um 0,3%
„Nú sem aldrei
fyrr er mikilvægt
að fólk þjappi sér
saman í söng og
gleði. Þetta verður
skemmtileg kvöld-
stund,“ segir
Guðni Ágústs-
son, fyrrverandi alþingismaður.
Hann stendur í kvöld fyrir sviða-
messu á vegum Hestamannafélags-
ins Sleipnis í Flóanum en nú í morg-
unsárið verður tekin fyrsta skóflu-
stungan að nýrri reiðhöll félagsins á
Selfossi. „Á borðum þar verðum við
með svið, sviðasultu, flatkökur og
flæðandi bjór,“ segir Guðni um
messuna sem verður haldin í félags-
heimilinu Þingborg í Flóanum. Þar
frumflytur Ólafur Þórarinsson,
Labbi í Glóru, nýjan þjóðsöng
Sleipnismanna.
GUÐNI MEÐ SVIÐAMESSU
Hestamannagleði í Flóa
Tvær samkomur
voru haldnar á
Hótel Selfossi í
gærkvöldi, annars
vegar borgara-
fundur séra Gunn-
ars Björnssonar og
hins vegar árshátíð
kvenna sem starfa hjá Olís. Þar
skemmti Geir Ólafsson söngvari sem
sló í gegn við mikinn fögnuð
kvennanna. Árshátíðin var haldin í
sal við hliðina á fundi Gunnars og
þurftu fundarmenn að brýna raust-
ina þegar Geir söng My way.
SAMKOMUR
Konurnar trylltar í Geir
Ólafs á árshátíð Olís
Rithöfundurinn
Arnaldur
Indriðason hlaut í
fyrradag banda-
rísku glæpasagna-
verðlaunin Barry-
verðlaunin fyrir
skáldsögu sína
Kleifarvatn.
Verðlaunin voru veitt á glæpa-
sagnaþinginu Bouchercon í
Indianapolis. The Barry Award eru
þekkt verðlaun í Bandaríkjunum en
það eru tímaritin Deadly Pleasures
og Mystery News sem veita þau fyr-
ir bestu glæpasöguna.
BÓKMENNTIR
Arnaldur hlaut Barry-
verðlaunin fyrir Kleifarvatn
Iceland Airwaves er nú í algleymingi, hljómsveitin Drums tryllti lýðinn í
Listasafni Íslands – Hafnarhúsi í gærkvöldi þar sem meðlimir sungu og
léku á hljóðfæri sín af listfengi. Í kvöld verður mikið um að vera, talsvert af
fínni útlendri músík þó að íslenskt hafi vinninginn. Nefna má að Páll Óskar
og Hjaltalín leggja í púkk í Listasafninu í kvöld kl. 0.20 en sveitin Who
Knew slær botninn í hátíðina á Grand Rokk kl. 1.20. | 47
Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves nær hápunktinum í kvöld
Morgunblaðið/Kristinn
Drums tryllti lýðinn í Hafnarhúsinu
Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur
sia@mbl.is
„ÉG ÞÓTTI nú dálítið sérstakur unglingur því ég sat
og saumaði á meðan aðrir unglingar gerðu … ja, það
sem flestir unglingar gera,“ segir Olga Guðmunds-
dóttir, húsfreyja í Silfurtúni á Flúðum, og hlær inni-
lega. Áhuginn frá unglingsárunum kom til góða síðar
því árið 1998 fór Olga í skurðaðgerð sem misheppn-
aðist og í kjölfarið lamaðist hún í vinstri handlegg.
Eiginmaður hennar færði henni eitt sinn að gjöf sett til
að sauma út Íslandsmynd og það varð upphafið að því
að hún hóf að sauma út. Tíminn milli hálfátta og hálf-
níu á morgnana reynist henni drýgstur við saumaskap-
inn. Eitt verkið eftir hana vekur sérstaka athygli – síð-
asta kvöldmáltíðin saumuð svo smáum sporum að vart
er hægt að greina að um útsaum sé að ræða. Olga nýtist
við grind þegar hún er að sauma, þar í er efnið strengt
yfir og smám saman fært til eftir því sem saumaskapn-
um vindur fram.
Silfurtún er garðyrkjustöð á Flúðum og þar eru aðal-
lega ræktuð jarðarber. Á sumrin vinnur Olga við að
pakka þeim í tvo, þrjá tíma á dag, eftir því sem heilsan
leyfir. Yfir sumartímann eru jafnframt ræktaðir þar
tómatar og rauðkál og þá starfa í stöðinni um átta
manns. „Þannig að það er alltaf nóg að gera,“ segir
Olga. | 24
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Saumar Besti tíminn við saumaskapinn er milli hálfátta
og hálfníu á morgnana. Verk Olgu sjást í bakgrunni.
Lömuð á vinstri handlegg
eftir misheppnaða aðgerð
Besti tíminn til að sauma
er snemma á morgnana
TÓNLISTARMAÐURINN Skúli
Sverrisson er sjaldséður gestur á
Íslandi en hann er nú staddur hér á
landi til að taka upp nýja plötu og
verður með tónleika í Þjóðmenning-
arhúsinu í Reykjavík í kvöld.
„Þetta verða ekki tónleikar starf-
andi hljómsveitar eins og er nú á
Airwaves, heldur einstakt verkefni
og því við hæfi að hafa það í einstöku
húsi,“ segir Skúli.
Skúli hefur dvalið erlendis undan-
farna áratugi og unnið með mörgum
heimsþekktum tónlistarmönnum.
Með honum á plötunni leika meðal
annars Eyvind Kang á lágfiðlu, gít-
arleikarinn Amedeo Pace úr Blonde
Redhead og klarinettleikarinn
Anthony Burr. | 44
„Einstakt
verkefni“
Mættur Skúli Sverrisson.