Morgunblaðið - 24.10.2009, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.10.2009, Blaðsíða 1
L A U G A R D A G U R 2 4. O K T Ó B E R 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 289. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is GRÆNN TILBÚINN TIL NOTKUNAR . RAUÐUR TILBÚINN TIL NOTKUNAR R. HVÍTUR TILBÚINN TIL NOTKUNAR . GULUR TILBÚINN TIL NOTK UNAR lsi 3 - 11 0 R. Sunnudags Mogginn er nú borinn út með laugardagsblaðinu «GÍNUR EFTIRMYNDIR AF OFURFYRIRSÆTUM «SVEFNVANDAMÁL VARAÐ VIÐ BLÚS FYRIR SVEFNINN Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ hefur vísað máli vegna láns sem Byr spari- sjóður veitti eignarhaldsfélaginu Exeter Holding í október og desem- ber 2008 til sérstaks saksóknara, en félagið var í meirihlutaeigu Ágústs Sindra Karlssonar lögmanns. Grun- ur leikur á að um umboðssvik hafi verið að ræða, en þau varða allt að sex ára fangelsi ef sakir eru miklar. Málið snýst um 1,1 milljarðs króna lán sem Byr veitti Exeter Holding í tveimur hlutum, í október og desember 2008, eftir bankahrun- ið, til þess að kaupa 1,8 prósenta stofnfjárhlut í Byr á yfirverði, en ekkert hefur verið greitt af láninu. Á þessum tíma var markaður með stofnfjárbréf lokaður og verð bréf- anna hafði lækkað mikið. Seljendur bréfanna voru meðal annarra MP banki og tveir stjórnarmenn í Byr, Jón Þorsteinn Jónsson, þáverandi stjórnarformaður Byrs, og Birgir Ómar Haraldsson stjórnarmaður. MP banki hafði eignast sín bréf m.a. eftir veðkall á eignarhaldsfélag í eigu Ragnars Z. Guðjónssonar, sparisjóðsstjóra Byrs, og annarra stjórnenda sparisjóðsins. Jafnframt hyggst Guðjón Jóns- son, stofnfjáreigandi í Byr, afla heimildar stofnfjáreigenda til að höfða skaðabótamál í nafni spari- sjóðsins gegn stjórnarmönnunum fyrrverandi. Að sögn Guðna Á. Haraldssonar, lögmanns Guðjóns Jónssonar, ósk- uðu Guðjón og aðrir stofnfjáreig- endur eftir upplýsingum frá Byr sparisjóði um málefni Exeter Hold- ing og var synjað. Stofnfjáreigend- urnir dóu ekki ráðalausir því þeir keyptu hreinlega Exeter Holding fyrir málamyndaverð. „Við sendum síðan Byr bréf í nafni stjórnarfor- manns Exeter Holding þar sem ósk- að var eftir því að félagið veitti sparisjóðnum fullt leyfi til að veita allar upplýsingar um öll viðskipti,“ segir Guðni. Lán Byrs til Exeter kært til sérstaks saksóknara » Byr lánaði 1,1 milljarð til að kaupa stofn- fjárbréf á yfirverði eftir hrun markaðarins » Fjármálaeftirlitið rannsakaði málið og kærði í framhaldinu til sérstaks saksóknara.  Niðurstaða FME | 18 Í DAG er fyrsti vetrardagur en hann ber alla jafna upp á laugardag að lok- inni 26. viku sumars og er fyrsti dagur fyrsta vetrarmánaðarins gormán- aðar, samkvæmt gamla norræna tímatalinu. Starrinn hefur líklega fagnað blíðu veðri undangengna daga eins og aðrir smáfuglar en hitinn á láglendi er víðast hvar yfir frostmarki eins og algengt er í október. Austlæg átt hef- ur verið ríkjandi en það er tíðasta áttin um þetta leyti árs. jmv@mbl.is KROPPAÐ Í GRÓÐUR VIÐ ÁRSTÍÐASKIPTI Morgunblaðið/Ómar  KÆMI til þess að mál yrði síðar höfðað vegna Icesave- samkomulagsins með aðkomu EFTA-dómstóls- ins er ljóst að málið yrði það umfangsmesta sem komið hefði til kasta hans. Þetta segir dr. Carl Baudenbach- er, forseti EFTA-dómstólsins, sem telur að fleiri ríki muni sýna mála- ferlunum áhuga, komi til þeirra á annað borð. Að hans mati er Ice- save-samkomulagið einstakt enda sé þar á ferð áhugaverð blanda af lögfræði og stjórnmálum. »21 Icesave yrði stærsta málið í sögu EFTA-dómstólsins Carl Baudenbacher  FRUMVARP Árna Páls Árna- sonar um al- menna greiðslu- aðlögun og fleira er orðið að lög- um. Rétt áður en það gerðist, á Al- þingi í gær, var hins vegar kippt út úr frumvarpinu tillögum um breytingar á lögum um tekjuskatt. Samkvæmt heimildum hefðu þessar tillögur óbreyttar heimilað skatt- frjálsar afskriftir risastórra kúlu- lána, sem tekin voru vegna hluta- bréfakaupa og koma tilgangi laganna ekkert við. »16 Hætt við breytingu á skattalöggjöf í skyndi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.