Morgunblaðið - 24.10.2009, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.10.2009, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 2009 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn JóhannBjörnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is „ÞETTA eru einhver verstu tíðindi sem okkur hafa verið flutt í sam- göngumálum á Vestfjörðum í lang- an tíma,“ segir Einar Kr. Guðfinns- son, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í NV-kjördæmi, um dóm Hæsta- réttar Íslands á fimmtudag. Með dómnum var ákvörðun umhverfis- ráðherra árið 2007, um að heimila lagningu vegar í gegnum Teigsskóg og fyrir Gufufjörð og Djúpafjörð í Austur-Barðastrandarsýslu, felld úr gildi. Einar segir dóminn vera hreint kjaftshögg fyrir samgöngumál Vestfirðinga. Gríðarleg vinna hafi verið lögð í að reyna að tengja byggðirnar betur saman. „Þetta er sú leið sem heimamenn og við þingmenn höfum lagt ofur- áherslu á,“ bætir hann við. Ekki komi til greina að bjóða fólki upp á að fara áfram yfir hálsa, upp um fjöll og firnindi, til að kom- ast á milli staða. „Nú er verkefnið að finna aðrar leiðir, hvort heldur sem er með einhverjum breytingum á þessari leið og þverun fjarða, eða með öðrum hætti.“ Ekki verði farið að slá af kröfum um öryggi á veg- um. „Ég tel að þessi dómur sé svo al- varlegur að útilokað sé annað en að endurskoða lög um mat á umhverf- isáhrifum, sem setja okkur svona ströng viðmið og taka ekki eðlilegt mið af hagsmunum íbúa landsins.“ Einar segir ekki þýða að deila við dómarann, en hann muni beita sér fyrir breytingum. Túlkunin á lög- unum komi öllum í opna skjöldu og sé svo þröng að útilokað sé annað en að endurskoða lögin. Atriðið sem Hæstiréttur byggir á er að þáverandi umhverfisráðherra, Jónína Bjartmarz, horfði til bætts umferðaröryggis þegar hún mat umhverfisáhrifin af framkvæmdinni og heimilaði hana. Hæstiréttur seg- ir hins vegar að áhrif á umferðarör- yggi teljist ekki til umhverfisáhrifa í skilningi laga um mat á umhverf- isáhrifum. Ráðherrann hafi því far- ið út fyrir valdmörk sín og úrskurð hans ætti að ógilda. Dómurinn er kjaftshögg  Vestfjarðavegur fer ekki í gegnum Teigsskóg eftir dóm Hæstaréttar þess efnis  Þingmaður NV-kjördæmis gáttaður á dómnum, vill endurskoða umhverfislögin » Kjaftshögg í samgöngumálum Vestfjarða » Vill breyta umhverfislöggjöfinni í kjölfarið » Hagsmunir íbúa virtir að vettugi í lögunum Einar Kristinn Guðfinnsson SJÓNVARPIÐ notar nýjustu tækni til að taka upp Evrópumót fatlaðra í sundi, sem fram hefur farið í Laugardalslauginni alla vikuna. Síðasti keppnisdagurinn er í dag. Keppendur eru um 420 talsins, aðstoðarmenn þeirra rúmlega 200 og starfsmenn skipta hundruðum. Hefur mótið þótt takast framúrskarandi vel. Svo mörg met hafa fallið að nafn Reykjavíkur verður framvegis áberandi á metaskrám í sundi. | Íþróttir REYKJAVÍK ÁBERANDI Á METASKRÁNNI Morgunblaðið/Ómar „FLENSAN bætist við þau slysatilfelli sem alla jafna eru meðhöndluð á gjörgæslunni, það er því mikið að gera og gjörgæslurnar eru fullar,“ segir Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri lækninga á Landspítalanum. Hann segir mikið álag á gjörgæslunni en að vel sé fylgst með þróun mála þar. Til greina komi að opna vöknunargang til að bæta þar við gjörgæslusjúklingum reynist þörf á þótt það kalli vissulega á fleira starfsfólk. Seint í gærkvöldi voru sex sjúklingar á gjörgæslu vegna svínaflensunnar en einn til viðbótar hefur náð sér af flensu en er enn á gjörgæslu vegna annarra sjúkdóma. Tvær nýjar innlagnir voru á almenna deild vegna flens- unnar í gærkvöldi og er fjöldi smitaðra á LSH nú 32. Far- sóttanefnd LSH ítrekar tilmæli til ættingja sjúklinga að þeir takmarki heimsóknir eins og kostur er vegna hættu á smiti. Hvatt er til notkunar veirulyfja eins og Tamiflu gegn svínaflensunni hjá sjúklingum með bráð einkenni, en með því má minnka alvöru tilfellanna sem lenda á spít- alanum. Ólafur segir að þakka beri stuðning yfirvalda vegna flensunnar en í gær var tilkynnt að tvö gervilungu yrðu keypt fyrir gjörgæsluna. jmv@mbl.is Gjörgæslan full en vel fylgst með þróuninni Morgunblaðið/Júlíus Mikið álag á LSH vegna H1N1 og sex á gjörgæslu FULLTRÚAR frá Samtökum at- vinnulífsins og Al- þýðusambandi Ís- lands hittu þrjá ráðherra seinni- partinn í gær í Þjóðmenning- arhúsinu í þeim tilgangi að ræða stöðugleikasátt- málann, sem gerður var milli aðila vinnumark- arðar og stjórnvalda í sumar. Ætl- unin er að hittast aftur á morgun. Stór mál standa enn út af milli rík- isstjórnarinnar annars vegar og full- trúa vinnumarkaðarins hins vegar en yfir vofir að kjarasamningum verka- lýðshreyfingar og atvinnurekenda verði sagt upp í næstu viku. Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs- ins, segir að á fundinum hafi verið rætt hvernig hægt væri að komast í gegnum þetta. Margt hafi þurft að ræða og verið farið í gegnum hvert mál fyrir sig. „Ríkisstjórnin er að vinna í málum sáttmálans, sumt hefur gengið hjá þeim og annað ekki. Núna erum við að reyna að ná utan um þetta,“ sagði hann. Að sögn Vilhjálms kom ekki fram af hálfu stjórnarinnar mikið af nýjum upplýsingum en þó væri alltaf eitthvað að bætast í sarpinn. „Hvað varðar lækkun stýrivaxta er þó hægt að segja að atvinnulífið auð- vitað æpir á hana,“ segir Vilhjálmur. Reyna að finna stöð- ugleikann Vilhjálmur Egilsson Atvinnulífið og ráð- herrar á fundum HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær að fjórir mannanna sem sitja í gæslu- varðhaldi vegna mansalsmálsins svonefnda skuli sitja áfram inni, til miðvikudagsins í næstu viku í sam- ræmi við úrskurð héraðsdóms. Hæstiréttur felldi hinsvegar úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms yfir einum Íslendingi. Sjö karlar eru í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar málsins. Þrír Litháar, sem eru í haldi kærðu ekki gæsluvarðhalds- úrskurði. Lögreglan veitti í gær litl- ar upplýsingar um rannsóknina en auk mansals og vændis beinist hún m.a. að auðgunarbrotum, skjalafalsi og ofbeldisbrotum. Einn Íslend- ingur laus NÝ útgáfa af Sunnudagsmogganum kemur út í dag. Héðan í frá verður sunnudagsútgáfa Morgunblaðsins borin út fyrr á laugardögum og fylgir hún Morgunblaðinu á laugar- dagsmorgnum. Sunnudagsmogginn verður stærri og fjölbreyttari en fyrr og verða Lesbók og Barnablaðið hluti af hon- um. Eftir sem áður verða fréttaskýr- ingar og viðtöl í Sunnudagsmogg- anum, en teknir hafa verið inn nýir efnisþættir, sem gerð verða skil með reglubundnum hætti. Þar á meðal eru ferðalög, matur, heilsa og hönn- un. Í nýjum Sunnudagsmogga er for- síðuviðtalið við Emilíönu Torrini, sem lauk í vikunni vel heppnuðu tón- leikaferðalagi um Evrópu og hefur gert sig heimakomna á vinsældalist- um erlendis. Burðarviðtalið í Les- bók, sem er á öftustu tíu síðum blaðsins, er við Margréti Örnólfs- dóttur tónlistarkonu með meiru og nú bókarhöfund. Umsjón með Sunnudagsmogg- anum hefur Pétur Blöndal, Einar Falur Ingólfsson hefur umsjón með Lesbók og Signý Gunnarsdóttir með Barnablaðinu. Sunnudagsmogginn fyrr á laugardögum Morgunblaðið/Jim Smart
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.