Morgunblaðið - 24.10.2009, Blaðsíða 21
Fréttir 21ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 2009
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
FARI svo að dómsmál verði höfðað vegna Ice-
save- samkomulagsins, en allt útlit er fyrir að
Alþingi Íslendinga samþykki samkomulagið á
næstu vikum, er líklegt að EFTA-dómstóllinn í
Lúxemborg muni koma að meðferð dómsmáls-
ins síðar meir.
Dr. Carl Baudenbacher, forseti EFTA-
dómstólsins, lagði í samtali við Morgunblaðið
áherslu á að hann vænti þess að málarekst-
urinn mundi fremur snúast um stöðu for-
gangskrafna í þrotabú Landsbankans en
spurninguna um bótaskyldu íslenska ríksins
vegna Icesave. Að hans sögn yrði farvegur
málsins væntanlega sá, að mál yrði höfðað
fyrir íslenskum héraðsdómstól þar sem reyndi
á stöðu forgangskrafna.
Ef héraðsdómur óskaði eftir ráðgefandi áliti
EFTA-dómstólsins vegna ákvæða EES-
samningsins yrði næsta skrefið sérstök máls-
höfðun fyrir EFTA-dómstólnum, þar sem að-
ilar legðu fram skrifleg gögn og munnlegur
málflutningur færi síðan fram.
Myndi víða vekja áhuga
Hlutverk EFTA-dómstólsins yrði að sögn
Baudenbachers að túlka málið út frá ákvæðum
EES-samningsins og því líklegt að önnur ríki
myndu sýna því áhuga, enda varði það kröfur á
hendur þrotabúi banka. Erlend ríki, fjármála-
stofnanir og framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins myndu fylgjast grannt með því
hvernig dómstóllinn túlkaði forgangsröðunina
í þrotabú Landsbankans á Íslandi. Að fengnu
ráðgefandi áliti EFTA-dómstólsins yrði síð-
asta skrefið uppkvaðning dóms fyrir íslensk-
um dómstól, enda heyri kröfur í þrotabú
Landsbankans undir réttarkerfi landsins.
Mikið hefur borið á því, meðal annars í
ræðustól á Alþingi, að Íslendingar séu fórn-
arlömb úrelts regluverks EES-samningsins
um bótaskyldu vegna tapaðra innstæðna í fjár-
málafyrirtækjum. Carl Baudenbacher tekur
ekki afstöðu til þess hvort kröfur á hendur
íslenska ríkinu vegna Icesave-málsins séu af
slíkri hlutfallslegri stæðargráðu að lagabók-
stafurinn geti ekki átt við.
Það sé ekki við hæfi að hann sem forseti
dómstólsins tjái sig um einstök efnisatriði.
Hann geti hins vegar upplýst um þá persónu-
legu skoðun sína að hann telji víst að Bretar og
Hollendingar hefðu ekki samþykkt viðauka
samkomulagsins um mögulega málsupptöku
síðar, ef ekki hefði verið vegna tilvistar EFTA-
dómstólsins.
Áhugi annarra ríkja
Baudenbacher telur hins vegar einsýnt að
dómsmálið, ef af því verður, muni verða það
umfangsmesta sem nokkru sinni hefur komið
til kasta EFTA-dómstólsins.
„Þar sem málið varðar forgangsröðun við
uppgjör krafna í þrotabú fjármálafyrirtækis
munu önnur aðildarríki EES-samningsins sem
fyrr segir væntanlega sýna því mikinn áhuga.
Fjármálakreppan er ekki bundin við Ísland.
Það má því leiða að því líkur að mörg önnur
ríki EES-samningsins muni, eins og þau eiga
rétt til, senda inn skriflegar greinargerðir í
tengslum við málarekstur fyrir EFTA-
dómstólnum og taka þátt í hinum munnlega
málflutningi,“ segir Baudenbacher, en tekur
fram að þetta kunni að vera ótímabærar
vangaveltur. Hann segir málið einstakt.
„Þetta er af mörgum ástæðum einstakt mál.
Það snertir hina kerfislægu hlið og er frá laga-
legu sjónarmiði mjög áhugavert því það felur í
sér blöndu stjórnmála, alþjóðalaga og laga-
ramma EES-samningsins. Ég gæti gengið svo
langt að kalla þetta heillandi blöndu af lögum
og stjórnmálum, frá sjónarhorni lögfræðinnar.
Það er einnig einstakt vegna umfangs máls-
ins og þeirra fjármuna sem hér er um að ræða.
Þá gæti það og falið í sér lagalega áskorun, en
það er atriði sem ég get að sjálfsögðu ekki far-
ið nánar út í. Ég hef ekki kynnt mér málið í
smáatriðum en tel allar líkur á, að komi það til
kasta dómstólsins verði það áhugaverðasta
málið í 15 ára sögu hans.“
Hvað snertir umfang málsins í samanburði
við önnur telur hann að það muni verða meira
að umfangi en til dæmis þekkt mál fyrir
EFTA- dómstólnum um einkarétt norska rík-
isins á rekstri fjárhættuspila (spilakassa), mál
sem önnur aðildarríki EES-samningsins
sýndu mikinn áhuga á sínum tíma
Gestaprófessor við HÍ
Til að tilefni heimsóknar hans fari ekki á
milli mála vill Baudenbacher ítreka að það sé
hrein tilviljun að hann er hér á landi á sama
tíma og nýtt frumvarp um Icesave-sam-
komulagið er lagt fyrir Alþingi.
Tilefni heimsóknarinnar sé stutt heimsókn
til Háskóla Íslands þar sem hann haldi fyr-
irlestra um Evrópurétt sem gestaprófessor við
lagadeild skólans. Þetta sé í annað sinn sem
hann komi hingað til fyrirlestrarhalds. Honum
líki fyrirkomulagið og geti hugsað sér fram-
hald á því.
Icesave yrði stærsta mál dómsins
Forseti EFTA-dómstólsins segir málið myndu verða það umfangsmesta í sögu hans Ef kemur til
dómsmáls myndi dómstóllinn í Lúxemborg heyra vitnisburði Dómsniðurstaða yrði kveðin upp hér
Morgunblaðið/Golli
Dómari Carl Baudenbacher á Hotel Holti.
Í HNOTSKURN
»Þrír dómarar eru við EFTA-dómstólinn.
»Þeir eru Carl Baudenbacher (Liecht-enstein), Þorgeir Örlygsson og Hen-
rik Bull (Noregi).
»Dómstóllinn hefur aðsetur í Lúx-emborg.
»Baudenbacher er fjórði forseti dóm-stólsins en dómarar við hann sitja í
sex ár og eiga svo kost á að verða skip-
aðir áfram.