Morgunblaðið - 24.10.2009, Blaðsíða 22
22 Daglegt líf
ÚR BÆJARLÍFINU
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 2009
Haustið í Þingeyjarsýslu hefur ekki
ilmað af neinum sumarauka því oft
hafa blásið kaldir vindar og vetur
konungur hefur þegar sýnt á sér
klærnar, svo mikið að sumir urðu að
taka allt sláturfé á gjöf. Samt voru
nokkrir dagar frekar góðir og hefur
allt korn bænda verið skorið en er
lélegt í meira lagi á nokkrum bæjum,
sérstaklega þar sem fraus í sumar.
Allt tal um mikla hlýnun loftslags
vekur spurningar en hlýindakaflar
voru fáir í sumar og sunnanáttin lét
lítið á sér bera.
Þingeyingar eru í sóknarhug, þrátt
fyrir allt, því nýlega var stofnað Sam-
vinnufélag Þingeyinga sem er þver-
pólitískt félag með stefnuna á fram-
farir og nýsköpun. Þá stendur til í
vikunni að opna starfsstöð Nýsköp-
unarmiðstöðvar Íslands á Húsavík
sem ætlað er að vinna með heima-
mönnum að eflingu atvinnuþróunar
og sinna fólki sem vill innleiða nýj-
ungar, bæta rekstur og gera alvöru
úr viðskiptahugmyndum sínum.
Sauðfjárslátrun hefur gengið hratt
og vel hjá sláturhúsi Norðlenska á
þessu hausti enda vinnur þar góður
hópur fólks sem kann til verka. Mjög
lítið er um galla á verkuninni og einn
daginn var sett met hvað það varðar.
Dilkarnir eru víða vænir enda er
ræktunarstarfið að bera árangur og
flestir bændur láta ómskoða öll líf-
lömb en það hefur skilað sér í mun
betri gerð en áður var.
Slátrun nautgripa gengur hins vegar
hægt sé horft á þá biðlista sem nú eru
orðnir en svo virðist sem meira fram-
boð sé af gripum til slátrunar heldur
en undanfarin ár. Þetta er erfitt þar
sem lítið er um pláss og slæmt getur
verið að losna ekki við kýr þegar
minnka á framleiðsluna eins og
greiðslumark nýs verðlagsárs gerir
ráð fyrir.
Mannlífið tekur alltaf við sér þegar
haustar og nú hefur verið byrjað með
félagsmiðstöð í Ljósvetningabúð fyrir
efstu bekki grunnskólanna í Þingeyj-
arsveit. Þar hafa nemendur tækifæri
til þess að spjalla, fara í leiki o.m.fl. og
mun þessi tilraun vonandi efla tengsl
ungs fólks í héraðinu.
Kórastarfið er líka hafið en karlakór-
inn Hreimur ætlar að vera með tón-
leika í Þorgeirskirkju nk. mið-
vikudagskvöld. Þá stendur til að hafa
opin kvöld í Kiðagili annað hvert
þriðjudagskvöld fram að áramótum
þar sem verður m.a. gripið í spil,
komið með handavinnu, farið á bóka-
safnið o.fl. Þá má ekki gleyma hinu sí-
vinsæla hjónaballi sem haldið verður
á Breiðumýri laugardaginn eftir viku
þar sem verður bara gleði að sögn
skemmtinefndarinnar.
Og þó að enn sé haust er komið vetr-
arfrí í skólunum og kennarar Hafra-
lækjarskóla eru farnir að kynna sér
skólastarf fyrir sunnan. Þetta kunna
krakkarnir vel að meta og njóta þess
að vera úti þessa daga, ferðast eða
taka þátt í því sem verið er að gera
heima á bæjunum.
LAXAMÝRI
Eftir Atla Vigfússon
Félagar Pétur Valdimar Jónsson
smíðar skeifur með aðstoð Hall-
gríms Baldurssonar.
Eftir Unu Sighvatsdóttur
una@mbl.is
É
g held að þegar börn
spyrja spurninga séu
þau yfirleitt ekki að
leita eftir svörum held-
ur vilja þau virkilega
tala við foreldra sína,“ segir Björn
Rúnar Egilsson, nemi í heimspeki og
miðaldafræðum og leiðbeinandi á
leikskóla.
Heimspeki á ekki bara erindi innan
veggja háskólans að mati Björns,
heldur líka úti í samfélaginu og ekki
síst á leikskólunum. Hann hefur nýtt
tækifærið sem hann hefur sem leið-
beinandi á Laufásborg til hefja heim-
spekilegar rökræður við börnin.
Viðbrögðin voru svo góð, bæði hjá
börnum og foreldrum, að Björn
ákvað að taka saman vangaveltur um
reynsluna og úr varð smáritið Heim-
speki fyrir uppalendur.
„Ég er að reyna að veita fólki inn-
blástur um hvernig það getur átt í
samræðum við börnin sín, því ég held
að það geri þeim mikinn óleik með því
að slá á höndina og segja: „Þetta er
bara svona og þú skilur það þegar þú
verður eldri“, loforð sem enginn get-
ur í raun ábyrgst.“
Skilin milli góðs og ills
Sjálfur segir Björn að strax við 4-5
ára aldur verði börn mjög móttækileg
fyrir að takast á við þverstæður og
beita rökum. Til að kveikja samræður
meðal þeirra fer hann með þeim í
ákveðna leiki og les sögur, t.d. hina sí-
gildu sögu um jarðálfinn Láka.
Börnin eru þá beðin um að flokka
persónurnar í græn, gul og rauð
mengi eftir því hvort þær séu góðar,
vondar, eða kannski hvort tveggja og
rökstyðja val sitt.
„Það var stórt skref fyrir þau að
uppgötva að til væru karakterar sem
við vissum ekki í raun hvort væru
góðir eða vondir. Það er mjög gott
áreiti fyrir hugsunina að víkka þetta
út, því í huga barna á þessum aldri
eru skilin á milli góðs og ills mjög
skýr,“ segir Björn.
Í almennri námskrá er hvergi
kveðið á um heimspekikennslu og er
það í raun undir hverjum kennara
komið hvort henni er gefið rými.
Björn segir tækifærið hvað best til
þess í leikskólunum þar sem nám-
skráin sé ekki eins íþyngjandi. Auk
þess sé best að byrja sem fyrst.
„Ég hef heyrt það frá kennurum á
grunn- og framhaldsskólastigi að
þegar krakkar fá fyrst tækifæri til
rökræða þegar þau eru komin á ung-
lingsaldur þá er það mikil hindrun
hvað það er þeim framandi. Þau líta á
rökræður sem keppni og beita rök-
villum eins og að gera lítið úr þeim
sem þau ræða við í stað þess að svara
fyrir sig.“
Leikskólabörnin eru mjög mót-
tækileg, að sögn Björns, þótt þau taki
mismikinn þátt í umræðunum.
„Það fer líka eftir því hvað telst til
þátttöku, þú getur tekið þátt með því
að hlusta bara og taka eftir. Þau hafa
ekki alltaf eitthvað til málanna að
leggja, en þú sérð á líkamsburðinum
og augunum að þau eiga innri díalóg á
meðan og móttaka allt sem fer fram.“
Björn hefur einlægan metnað fyrir
því að venja börnin við samræðu-
samfélag þar sem þeim finnist eðli-
legt að setjast niður og ræða saman,
jafnvel um umdeilda hluti, og læra að
það sé í lagi þótt ekki séu allir sam-
mála. „Það er mikið skref fyrir suma,
sem eru ákveðnir persónuleikar og
vilja hafa rétt fyrir sér, að læra að
bakka þegar hinir sýna fram á að þeir
hafa rangt fyrir sér. Það hefur mikið
þroskagildi.“
Í leikskólunum má þannig í raun
leggja grunn að betra samfélagi til
framtíðar að mati Björns.
„Ég held að þetta ástand sem allir
eru uppteknir af núna sé þrátt fyrir
allt góður jarðvegur, því ef það hefur
kennt okkur eitthvað er það hversu
mikilvægt er að opin, gagnrýnin
hugsun fái að njóta sín í samfélaginu
og skólum svo að fólk hengi sig ekki í
málstað og verji hann gagnrýnilaust
fram í rauðan dauðann.
Leikskólabörn glíma við
heimspekilegar ráðgátur
„Þú skilur þetta þegar þú verður stór“ er ekki svarið
sem börn leita eftir þegar þau spyrja stórra spurn-
inga. Björn Rúnar Egilsson vonast til að veita full-
orðnu fólki innblástur til að rökræða við börnin sín
með smáritinu Heimspeki fyrir uppalendur.
Rök Hvaða saga eða ævintýri sem er getur verið kveikjan að heimspeki-
legum vangaveltum að sögn Björns og rökræðan getur farið fram í leik.
Ef börn fá fyrst tækifæri til
rökræða þegar þau eru
komin á unglingsaldur er
það mikil hindrun hvað
það er þeim framandi. Þau
líta á rökræður sem keppni
Í HEFTINU „Heimspeki fyrir
uppalendur“ ráðleggur Björn
foreldrum, ömmum og öfum
og öðrum sem umgangast
börn fyrst og fremst að vera
opin fyrir ráðgátum sem börn-
unum finnst
gaman að
kljást við
með þeim.
„Það mik-
ilvægasta er
að full-
orðnir
mega ekki
líta svo á að
þeir þurfi
að hafa öll
svörin á
hreinu, það eru engin gefin
svör og á ekki að vera búið að
ákveða niðurstöðuna fyrir
fram heldur erum við að rann-
saka málin saman.“
Heimspeki fyrir uppalendur
fæst ekki í bókabúðum en
áhugasamir geta pantað ein-
tak hjá Birni sjálfum. Heftið
kostar 2.000 kr. og rennur all-
ur ágóði til byggingar mun-
aðarleysingjahælis í Tógó á
vegum ættleiðingafélagsins
Sóleyjar og félaga. Pöntun má
senda á netfangið egils-
son@gmail.com og verður það
sent heim. Með tíð og tíma hef-
ur Björn hug á því að vinna
efnið áfram í veglega bók.
Stefnir á bók
Ljósmynd/Hrafnhildur Linnet Runólfsdóttir
Björn Rúnar
Egilsson
GESTIR þáttarins Orð skulu standa í
dag eru Arndís Þorgeirsdóttir frétta-
stjóri og Erik Hirt listaháskólanemi.
Þau fást m.a. við „sloprokk“ og
„munsturbörn“.
Fyrriparturinn er svona:
Deilur halda helgir menn
í heiðri nú sem áður.
Um nýliðna helgi var fyrripart-
urinn þessi:
Kalt er úti, kólnar geð,
svo króknar sálartetur.
Í þættinum botnaði Hlín Agnars-
dóttir:
Ekki verður annað séð
en aftur komi vetur.
Guðrún Kristinsdóttir m.a.:
Skárra væri ef veitti veð
sá væni Lykla-Pétur.
FH-ingurinn Davíð Þór Jónsson er
í stöðugri afneitun frá veruleikanum:
Ég hugsa að ég haldi með
Haukunum í vetur.
Svanhildur Hólm Valsdóttir brá
m.a. fyrir sig flámæli með þessum
skemmtilega árangri:
Kuldinn engum gefur greð
gránar hörundsletur.
Úr hópi hlustenda botnaði Magda-
lena Berglind Björnsdóttir á Blöndu-
ósi:
Í mig hollustunni hleð
og heilsast við það betur.
Margrét Guðmundsdóttir:
Þetta verður þvílíkt streð
að þreyja næsta vetur.
Tómas Tómasson:
Rændir sjóðir, rúin veð,
ríkir fimbulvetur.
Hörður Jóhannesson:
Ekkert haldbært hef ég séð
frá herrum þings í vetur.
Kristín S. Guðjónsdóttir á Hrafn-
istu í Reykjavík:
Sigraðu hrollinn söngvum með.
Já, syngdu í allan vetur.
Hlustendur geta sent botna og til-
lögur að fyrripörtum í ord@ruv.is
eða til Orð skulu standa, Ríkisútvarp-
inu, Efstaleiti 1, 150 Reykjavík.
Orð skulu standa
Morgunblaðið/Ómar
Verslað í snjókomu á Laugavegi
„Sloprokk“
og „munstur-
börn“