Morgunblaðið - 24.10.2009, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 24.10.2009, Blaðsíða 60
LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 297. DAGUR ÁRSINS 2009 Heitast 8°C | Kaldast 2°C  Slydda eða rigning norðan- og norðvest- anlands. Stöku él nyrðra en léttir víða til sunnan heiða. » 10 Heimild: Seðlabanki Íslands DOLLARI STERLINGSPUND KANADADOLLARI DÖNSK KRÓNA NORSK KRÓNA SÆNSK KRÓNA SVISSN. FRANKI JAPANSKT JEN SDR EVRA MEÐALGENGI/VIÐSKIPTAVOG ÞRÖNG 122,18 200,6 115,95 24,669 22,048 17,924 121,42 1,333 195,08 183,65 Gengisskráning 23. október 2009 122,47 201,09 116,29 24,741 22,113 17,977 121,76 1,3369 195,66 184,16 235,6193 MiðKaup Sala 122,76 201,58 116,63 24,813 22,178 18,03 122,1 1,3408 196,24 184,67 FÓLK Í FRÉTTUM» TÓNLIST» Heimilistónar; hressandi og heilsusamlegt. »52 Forðast ber að hlusta á blús og tregatónlist fyrir svefninn, eða hvað? Bergþóra Jónsdóttir er ósammála. »56 AF LISTUM» Tónlist fyrir svefninn FÓLK» Lohan er óhrædd um litlu systur. »57 KVIKMYNDIR» Blomkamp er að gíra sig upp í aðra mynd. »53 Zombieland er ein fyndin della á sinn stórkarlalega hátt, það er að segja fyrir þá sem hafa sterkan maga. »54 Fyndin fyrir sterka maga GAGNRÝNI» Menning 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT Í LAUSASÖLU 590 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950 VEÐUR» » VEÐUR mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. „Átti bara að vera okkar á milli“ 2. Sló 48 ára gamalt met við fæðingu 3. Fjögurra barna metal-mamma 4. Bílalán stóra vandamálið  Íslenska krónan veiktist um 0,3% Eftir Agnesi Bragadóttur agnes@mbl.is FLOSI Ólafsson, leikari, rithöfundur, þýðandi og húmoristi, liggur sár- þjáður á Landspítalanum við Hring- braut, eftir að hafa lent í alvarlegu bílslysi í Borgarfirði á miðvikudaginn var. Eins og greint hefur verið frá í Morgunblaðinu missti Flosi stjórn á bíl sínum þegar flutningabíll með tengivagni tók fram úr honum og fór bíll hans þrjár veltur. Flosi var fluttur á gjörgæsludeild Borgarspítalans en hefur nú verið fluttur á legudeild á Landspítalanum. „Ég er alveg afleitur!“ segir Flosi veikum rómi, þegar blaðamaður spyr hann hvernig hann hafi það. Svo tístir í honum veikur hlátur, svona eins og lítill fugl sé að tísta. Það fer ekkert á milli mála að Flosi, allur í maski, svo notuð séu hans eigin orð, rígheldur í húmorinn. „Já, Agnes mín. Ég er alveg afleit- ur og allur í maski. Ég held að flest rifbeinin séu farin og bringubeinið brostið og ég er gríðarlega þjáður!“ grínast Flosi enn og kreistir fram lítið bros. Þegar blaðamann og ljósmyndara Morgunblaðsins ber að rúmstokki Flosa á Lansanum situr Lilja Mar- geirsdóttir, eiginkona Flosa, hjá hon- um og henni er enginn hlátur í hug, þótt hún brosi ögn vegna galgopa- háttar Flosa. Hún getur bara ekki stillt sig, ekki frekar en blaðamaður og ljósmyndari. – Flosi, hvernig stendur á því að þér tekst að halda húmornum, þrátt fyrir þessar erfiðu kringumstæður, þú mölbrotinn og þjáður? „Það á auðvitað ekki að vera hægt, en ég geri svo oft það sem ekki er hægt!“ svarar Flosi enn í hálfkæringi og smáhlátur fylgir. En ekki lengi, því Lilja segir nokkuð ákveðið: „Hann má alls ekki hlæja,“ og Flosi, bljúgur og hlýðinn gagnvart sinni heittelskuðu Lilju, steinhættir hlátur- tístinu. Flosi verður áttræður á þriðjudag- inn kemur. Af því tilefni endur- útgefur Skrudda æskuminningar Flosa, Í kvosinni, en sú bók hefur ver- ið ófáanleg í hartnær þrjá áratugi. Í Sunnudagsmogga í dag er ítar- legt viðtal Péturs Blöndals blaða- manns við Flosa Ólafsson, Þetta er helvíti asnalegt maður. Upphafsorð Péturs í viðtalinu eru: „Það er eitthvað geggjað við Flosa Ólafsson. Glampinn í augunum þegar hann hlær. Og hrossahláturinn. Hann er sami æringinn …“ Sárþjáður og mölbrotinn en rígheldur í húmorinn „Ég er alveg afleitur og allur í maski!“ Morgunblaðið/RAX Þjóðareign Þótt Flosi verði um hríð að notast við nátttreyjur sem merktar eru „EIGN ÞVOTTAHÚSS SPÍT- ALANNA“ þá er Flosi ekki eign spítalanna, hann er þjóðareign. Lilja, eiginkona Flosa, er með honum á myndinni. MYNDLISTARMAÐURINN Unnar Örn sýnir ljósmyndir er veita óvenjulega og raunsæja inn- sýn í lífsskilyrði Íslendinga á tímum heimskrepp- unnar á sýningunni Um sérstakt framlag Íslands og íslensks samfélags til sögu ófullkomleikans sem opnuð verður í Galleríi Ágúst í dag. Ljósmyndirnar voru teknar af híbýlum Íslend- inga á fyrri hluta tuttugustu aldar en ljósmynd- arinn var Sigurður Guttormsson, bankastarfs- maður frá Vestmannaeyjum, sem ferðaðist um Ísland á árunum 1930-1945 og tók myndir af húsakosti landsmanna sem honum fannst til merkis um óviðunandi lífsskilyrði alþýðufólks. Sigurður safnaði um 230 ljósmyndum, vildi með þeim sýna stéttaskiptingu á Íslandi í von um að misrétti í þjóðfélaginu yrði upprætt og kjör manna jöfnuð. | 51 Óviðunandi lífsskilyrði fólks ÞAÐ getur verið stórt skref fyrir fjögurra ára barn að uppgötva að skilin milli góðs og ills eru ekki jafneinföld og það taldi. Þetta er þó meðal þess sem Björn Rúnar Egilsson, heimspekinemi og leikskólakennari, rökræðir við nemendur sína á Laufásborg. Björn segir menntakerfið einskorð- ast of mikið af fræðsluhlutverkinu og því að fylla börn af upplýsingum í stað þess að hvetja þau til að hugsa rökrétt og ræða málin. Hann segir ástandið í samfélaginu nú hafa skapað frjóan jarðveg fyrir breyttan þankagang. „Ef þetta hefur kennt okkur eitthvað er það hversu mikilvægt er að opin, gagnrýnin hugsun fái að njóta sín í samfélaginu og skólum.“ | 22 Heimspekileg skólabörn Ekki má vanmeta hæfni barna til rökræðna Ljósmynd/Hrafnhildur Linnet Runólfsdóttir Hugsi Fjögurra ára börn eru mjög móttækileg fyrir heimspekilegum vangaveltum segir Björn.  Fótboltamark- vörðurinn Daði Lárusson er far- inn frá FH til erki- fjendanna í Hauk- um. Hann var lengi fyrirliði FH-inga og lyfti Íslandsbik- arnum nokkrum sinnum sem slíkur en var sagt upp þegar landsliðs- markvörðurinn Gunnleifur Gunn- leifsson kom í Kaplakrikann í haust. „Ég mun líklega setja auka fimm kíló á stöngina áður en ég fer í hné- beygjuna þegar ég fer að hugsa um leikina á móti FH,“ sagði Daði við Morgunblaðið með bros á vör. FÓTBOLTI Daði farinn frá FH til erkifjendanna í Haukum  Sérlegur prins- essudagur verður haldinn á morgun í Eymundsson í Kringlunni í tilefni af útkomu bókar Gerðar Krist- nýjar Guðjóns- dóttur, Prinsessa á Bessastöðum, milli kl. 14 og 15. Allir sem mæta í prinsessubúningi eða með eigin kór- ónu fá bókina Ballið á Bessastöðum að gjöf og þeir sem mæta með fálka- orðuna sína fá líka bók og nammi. Kórónur verða föndraðar á staðnum og lesið verður upp úr nýju bókinni. BÆKUR Bækur handa prinsessum og þeim sem eiga fálkaorðu  Íslenskir krakk- ar stóðu sig vel á fjölmennu skíða- móti í Manchester í Bretlandi. Krist- ófer Breki Berg- lindarson sigraði í sínum aldurs- flokki, en hann er níu ára gamall. Kristófer hefur verið sigursæll á skíðum að undanförnu. Hann slas- aðist reyndar illa í keppni í sumar, en er núna kominn á fulla ferð á ný. Hinir íslensku keppendurnir á mótinu stóðu sig líka vel, en þau eru Agla Jóna Sigurðardóttir, Lilja Hrund Lúðvíksdóttir og Jökull Eyj- ólfur Einarsson. SKÍÐI Íslendingar gerðu góða ferð til Manchester
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.