Morgunblaðið - 24.10.2009, Side 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. OKTÓBER 2009
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
ÞAÐ hvessti hressilega undir lok ársfundar ASÍ
í gær, sem hafði þó að mestu einkennst af sam-
heldni og stillingu þá tvo daga sem þinghaldið
stóð yfir. Viðbótartillaga Vilhjálms Birgissonar,
formanns Verkalýðsfélags Akraness, og 15 með-
mælenda hennar um lífeyrismál varð tilefni
snarpra orðaskipta.
Tillaga Vilhjálms og félaga gerði ráð fyrir að
miðstjórn ASÍ fengi umboð til að gera þær
breytingar á samningi um lífeyrismál „sem
tryggi að launafólk yfirtaki stjórnun lífeyr-
issjóða innan ASÍ. Jafnframt samþykkir árs-
fundurinn að unnið verði að breytingum á reglu-
gerðum sjóðanna þannig að sjóðsfélagar kjósi
stjórnarmenn beinni kosningu,“ sagði þar.
Tekist var á um þessi mál í nefnd ársfundarins
áður en þau komu til afgreiðslu eftir hádegi í
gær. Skv. upplýsingum þingfulltrúa féllu þung
orð á milli Vilhjálms annars vegar og nokkurra
forystumanna ASÍ hins vegar. Vilhjálmur fór
fram á að leynileg atkvæðagreiðsla færi fram um
tillöguna. Úrslitin urðu þau að hún var felld með
176 atkvæðum (79,3%) gegn 56 (20,7%). 12 at-
kvæðaseðlar voru auðir. Ársfundurinn sam-
þykkti svo að fela miðstjórn að standa fyrir víð-
tækri umræðu um málefni lífeyrissjóðanna
meðal aðildarsamtaka sinna.
Snörp orðaskipti um tillögu Vilhjálms
Tillaga um að launafólk yfirtaki stjórnun lífeyrissjóða felld með 80% atkvæða á ársfundi ASÍ
Samþykkt að ráðast í víðtæka umræðu um málefni lífeyrissjóða og endurskoðun á stefnunni
Í HNOTSKURN
»Endurskoðun á stefnuASÍ í lífeyrismálum á að
vera lokið eigi síðar en 31.
mars 2010.
»Ársþingið hafnaði einnighugmyndum um skatt-
lagningu á inngreiðslur í
lífeyrissjóði.
»Þá er þess krafist aðtekjutenging örorku- og
ellilífeyris á milli almanna-
trygginga og lífeyrissjóða
verði endurskoðuð og tekið
verði upp frítekjumark
vegna greiðslna úr lífeyris-
sjóðum.
Morgunblaðið/Heiddi
Fagnar Ingibjörg R. Guðmundsdóttir var endurkjörin varaforseti ASÍ. Enginn bauð sig gegn henni.
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
„ÉG veit að formennska í BSRB
gerir miklar kröfur. Ég mun gera
allt sem í mínu valdi stendur til þess
að ég fái undir þeim risið og þar með
því trausti sem þið hafið nú sýnt
mér,“ sagði Elín Björg Jónsdóttir
nýkjörin formaður BSRB, eftir að
úrslit í formannskosningu lágu fyrir
í gær á þingi BSRB í gær.
Hún er fyrsta konan sem tekur
við formennsku í BSRB en er þraut-
reynd í forystu fyrir opinbera
starfsmenn. Hún er formaður Fé-
lags opinberra starfsmanna á Suð-
urlandi, hefur átt sæti í stjórn
BSRB í tvo áratugi og var varafor-
maður bandalagsins á seinasta kjör-
tímabili.
Spenna var á lokadegi þingsins í
gær þegar gengið var til kosninga.
Formaður kjörnefndar tilkynnti
skömmu fyrir kjörið að Snorri
Magnússon, formaður Lands-
sambands lögreglumanna, hefði
ákveðið að draga framboð sitt til
formanns til baka. Því voru þrjú eft-
ir í kjöri og urðu úrslitin þau að Elín
Björg var kjörin formaður með
52,38% atkvæða eða 132 atkvæði af
252. Árni Stefán Jónsson, formaður
SFR, fékk 82 atkvæði eða 32,54% og
Arna Jakobína Björnsdóttir, for-
maður Kjalar, fékk 38 atkvæði eða
15,08%.
Elín Björg sagði í samtali við
Morgunblaðið að ekki væri strax að
búast við mjög breyttum áherslum í
forystu BSRB. „Við byggjum á
gömlum grunni sem BSRB hefur
lagt undanfarin ár, sem er að verja
velferðarkerfið og störfin sem þar
eru. En tímarnir og aðstæðurnar
eru breytt og starfið mun að sjálf-
sögðu bera þess merki.“ Hún segist
hafa einsett sér að vinna kröftug-
lega að launajafnrétti kynjanna.
„Það veldur hver á heldur og það fer
enginn í föt Ögmundar Jónassonar,
enda mun ég ekki reyna það, en ég
mun reyna að gera þetta eins vel á
minn hátt og ég mögulega kann og
get,“ segir hún.
Þing BSRB stóð yfir í þrjá daga
og voru fjölmargar ályktanir sam-
þykktar. Í kjaramálaályktun BSRB
er áhersla lögð á að stöðugleikasátt-
málinn verði efndur og að kaup-
máttur almenns launafólks verði
varinn. Þá segir að flýta þurfi
endurskoðun á samspili bóta al-
mannatrygginga og lífeyrissjóða og
að dregið verði úr tekjutengingum í
lífeyrisbótakerfinu. Þá vill BSRB
stytta vinnuvikuna í dagvinnu í 36
stundir.
Í efnahagsályktun þingsins segir
að taka þurfi peningamálastefnu
Seðlabankans til endurskoðunar.
Efla eigi samstarf meðal íslenskra
og erlendra fjármálaeftirlitsstofn-
ana og stuðla verði að bættu við-
skiptasiðferði í efnahagslífinu.
„Fer enginn í föt Ögmundar“
Elín Björg Jónsdóttir kjörin formaður BSRB fyrst kvenna Fékk rúm 52%
atkvæða í kosningu milli þriggja frambjóðenda Leggur áherslu á launajafnrétti
Morgunblaðið/Heiddi
Sigurvegari Þingfulltrúar risu úr sætum sínum og fögnuðu ákaft þegar tilkynnt var að Elín Björg Jónsdóttir væri kjörin nýr formaður BSRB.
BSRB stillti upp nýrri forystu á
lokadegi þings bandalagsins í
gær. Elín Björg Jónsdóttir hafði
sigur í formannskjöri og er hún
fyrsta konan sem gegnir starfi
formanns BSRB.
ÞAÐ er mjög
eðlilegt að við
látum tilfinn-
ingar ráða í okk-
ar starfi,“ sagði
Gylfi Arnbjörns-
son, forseti ASÍ,
er hann sleit árs-
fundi sambands-
ins í gær eftir á
stundum nokkuð
heitar umræður um ályktanir. ,,En
það skiptir líka máli að við gerum
þetta af þrautseigju og yfirvegað
og vinnum okkar störf sem best.“
Hann sagði að þótt slægi í brýnu
væri mikilvægt að menn fylktu sér
saman um niðurstöðuna. „Við för-
um af þessum fundi sem heild,“
sagði hann. „Fyrir lok dags á
þriðjudaginn þurfum við að ná að
verja kjarasamninginn sem við höf-
um í höndunum.“
Fylkja sér
saman um
niðurstöðuna
Gylfi Arnbjörnsson
„ÁRSFUNDUR ASÍ leggur áherslu
á að atvinnuleitendum verði haldið
sem virkum þegnum samfélagsins
og krefst þess að skráning atvinnu-
leitenda og umsýsla atvinnuleysis-
bóta verði nú þegar færð til stéttar-
félaganna,“ segir í ályktun
ársfundar ASÍ sem samþykkt var í
gær. Fulltrúar lögðu ríka áherslu á
þetta við umræðurnar „Það voru
mistök á sínum tíma að færa þetta
frá stéttarfélögunum,“ sagði Guð-
mundur Þ. Jónsson í Eflingu. ,,Það
hafa rofnað tengsl á milli stétt-
arfélaganna og þeirra atvinnu-
lausu,“ sagði hann. Sigurður Bessa-
son, formaður Eflingar, sagði
núverandi kerfi sprungið.
Atvinnuleysisbætur
aftur til félaganna
FULLTRÚAR á
ársfundi ASÍ
gerðu um stund
hlé á fund-
arstörfum sínum
og sendu Jóhann-
esi Kristjánssyni
eftirhermu bar-
áttukveðjur með
von um góðan
bata en Jóhannes
fékk alvarlegt
hjartaáfall í sumar og gekkst undir
hjartaígræðslu í Svíþjóð. Jóhannes
hefur skemmt ársfundarfulltrúum
ASÍ síðustu ár. Til að sýna hug sinn
risu fundarmenn úr sætum, klöpp-
uðu hressilega fyrir Jóhannesi og
sendu honum góða strauma.
Sendu Jóhannesi
góða strauma
Jóhannes Krist-
jánsson
FULLTRÚAR á þingi BSRB gengu til
kosninga fulltrúa í framkvæmda-
nefnd bandalagsins eftir að úrslit í
formannskjörinu lágu fyrir. Var Árni
Stefán Jónsson, formaður SFR,
kjörinn 1. varaformaður BSRB,
Garðar Hilmarsson, formaður
Starfsmannafélags Reykjavík-
urborgar, var kjörinn 2. varafor-
maður, Þuríður Einarsdóttir, for-
maður Póstmannafélags Íslands,
var kjörin gjaldkeri og Kristín Á.
Guðmundsdóttir, formaður Sjúkra-
liðafélags Íslands, ritari.
Á þinginu var samþykkt sérstök
ályktun um Alþjóðagjaldeyrissjóð-
inn. Þar er mótmælt „þeirri kröfu
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS)
þess efnis að skilyrði fyrir lánveit-
ingum sjóðsins séu að jafnvægi
verði náð í ríkisfjármálum á næstu
þremur árum. Telur bandalagið
kröfuna aðför að almannaþjónust-
unni og velferðarþjóðfélaginu.“
Árni Stefán var kosinn 1. varaformaður